Tíminn - 09.10.1960, Qupperneq 3
TÍMINN, sunnudagiim 9. október 1960.
3
Trésmiðir hlæja:
Alþýðublaðið grínast
að íhaldi og krötum
Hreindýraveið-
in gengur illa
Hreindýrahjaríirnar nú dreifðar um stærra
svæíii en nokkru sinni fyrr
Alþýðublaðinu virðast eng
in takmörk sett um fáránlega
heimskulegan málflutning.
í gær er það með útsíðu
fyrirsögnina „Fundurinn sner
ist gegn kommúnistum“ og þar
á að vera frásögn af fundi
í Trésmíðafélaginu, og er sú
frásögn sannarlega revía fyr
ir okkur trésmiði, sem á fund
inum vorum, því fáránlegri
skrif hygg ég að fáir hafi séð,
er fund þennan sátu. Það vita
allir trésmiðir sem fylgjast
með fundum félagsins, að þeir
hafa alla tíð verið mesta nið
urlæging íhaldsins í félaginu
þó flest hafi nú gengið þeim
erfiðlega. En á fundinum á
miðvikudaginn keyrði þó fyrst
um þverbak því aumara hefir
hlutskipti íhaldsins aldrei
verið og einangraðra hefir það
aldrei staðið á fundi heldur
en einmitt þá, og svo getúr
Alþýðublaðið verið að hrella
þá með þesu aumingjana.
I?að voru rislágir menn, Kári
Ingvarsson og hans félagar
er þeir laumuðust af fundi að
loknum hrakförum sínum,
enda ekki óeðlilegt því að svo
algerlega voru þeir einangr-
aðir með skoðanir sínar á
fundinum, sem þó var hinn
fjölmennasti í langa tíð að
ekki einn einasti maður
fékkst til að taka málstað
þeirra þrátt fyrir að margir
tækju til máls.
Þarvaldur auminginn Karls
son var sá eini er reyndi að
klóra í bakkann enda neydd-
ur til þess af stjórn félagsins
með sérstakri samþykkt og
það var taugaóstyrk'ur maður
og skömmustulegur er þar
stóð í pontu, enda almennt
hlegið að honum og engan
fékk hann til að taka málstað
sinn auminginn.
Þá var heldur ekki hátt ris
ið á foringja þeirra íhalds-
manna Magnúsi Jóhannes-
syni, þegar einn fundarmanna
skoraði á hann að lýsa yfir
hver yrði afstaða hans til
kaup- og kjaramála ef svo ó-
Eldur í trékössum
SlöKkviliðiö var Jcvatt að Klappar-
stíg 26 kl. 9 á laugardagsmorgun.
Hafði þar kviknað í trókössum, sem
þykkar glersklfur voru í, svo og
rusli urohvarfis kassama. Var tais-
verður eldur í kössunum, en varð
fljótlega slökktur og glerið flutt á
annan stað í portinu. Skemmdir
urðu smávægilegar, tvær eða þrjár
skífur brotnuðu.
1360 árekstrar í
Reykjavík
í gaer höfðu skýrslur um 1360
árekstra ! lögsagnarumdæmi Reykja
víkur borizt til rannsóknarlögregi-
unnar, og er það nokkru færra en
var á sama tima í fyrra, en þá voru
árekstrar 1380 talsins. Árið 1959
urðu árekstrar i Reykjavík 1871, og
bættust sex þetr síðustu við á gaml
ársdag.
liklega skyldi vilj a til að hann
yrði kosinn til Alþýðusam-
bandsþingsins. Magnús brást
reiður við og kvaðst ekki gefa
neinar yfirlýsingar um það,
heimskulegt væri að. krefjast
þess að félagsmenn fengju að
vita hver yrði hans. afstaða í
þeim málum.
Trésmiðir hlæja.
Fundarmaður.
16 ára pilt-
ur varð fyr-
ir voðaskoti
Það sviplega slys varð í Vesí
mannaeyjum í fyrrakvöld, að
16 ára piltur, Öm Gíslason
Johnsen varð fyrir voðaskoti
og liggur nú þungt haldinn
í sjúkrahúsinu í Eyjum.
Fjórir piltar höfðu farið út
á bát í fyrradag. Fara ekki
sögur af ferðalagi þeirra, fyrr
en þeir koma ag bryggju í
Vestmannaeyjum að nýju. Þá
vildi sVo sviplega til að skot
hljóp úr riffli, sem Öm John-
sen var að fara með frá borði
upp á bryggju. Lenti skotið
í honum. Mun það hafa farið
inn um kviðinn og út um bak
ið við spjaldhryggmn.
Örn var þegar fluttnr á
sjúkrahúsið í Eyjum. Var gerð
ur á honum uppskurður og var
þag erfið aðgerð og langvinn.
Aðgerðina framkvæmdu þeir
Einar Guttormsson sjúkrahús
læknir og Árni Ingólfsson
læknir.
f gærdag er blaðiö hafði
síðast spurnir af Erni, var
líðan hans þung. S. K. T.
Geir Hallgrímsson
borgarstjóri
Á bæjarstjórnaríundi fynr í vik-
unni var Geir Ilallgrímsson kjörinn |
borgarstjóri Reykjavíkur þann tíma,
sem eftlr er af yfirstandandi kjör-
tímabili. Auður Auðuns hefur verið
borgarstjóri menningarmáLa frá því
í nóvember s. 1. en nú Lá fyrir beiðni
hennar um.lausn frá störfum. Þá iá
einnig fyrir Lausnarbeiðni Gunnars
Thoroddsens fjá.rmáLaráðherra frá
borgarstjórastarfi. Báðar iausnar-
beiðnirnar voru afgreiddar og Geir
þv£ næst kjörinn borgarstjóri með
11 atkvæðum. 3 seðlatr voru auðir.
Enn me'ðvitundarlaus
Hallvarður Sigurjónsson, pilturinn
sem slasaðist í árekstrinum á Njarð
argötu s. I. miðvikudagsnótt, liggur
á Landakoti og var ekki kominn til
meðvitundar, þegar blaðið vissi síð-
ast til í gær.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir i kvöld
hinn vinsæla gamanleik „Grænu
lyftuna" eftir Awory Hopwood.
Góð aðsókn hefur verið að sýnlng-
um og leiknum tekið forkunnar vel,
enda ósvikinn gamanleikur, sem
kemur öilum i gott skap. Aðgöngu-
mlðasala hefst í Iðnó í dag kl. 2.
Myndin er af Steindóri Hjörleifs-
synl í hlufverki sínu. Halldór Péturs
son teiknaði myndina.
Aðfaranótt laugardagsins
var brotizt inn í Kjörgarð við
Laugaveg en þar eru allmarg-
ar verzlanir til húsa. Stolið
var um 30 þús. krónum í pen-
ingum og úrum að verðmæti
kr. 100 þúsund.
Farið var í 13 verzlanir í húsinu,
hurðir, peningakassar og skúffur
sprengdar upp í leit að peningum.
Náði 'þjófurinn um 30 þús. kr'ónum
í gjaldeyri og íslenzkum peningum.
Úra- og skartgripaverzlunin Menið
varð þó verst úti, en þaðan var
stolið 50—60 úrum, sem virt eru
á nálega 100 þúsund krónur. Má
og ver'a að einhverju fleira hafi
verið stolið en ekki var það full
kannað er blaðið vissi síðast til.
Ef fólk kynni að hafa orðið vart
við grunsamlegar mannaferðir í
næsta nágrenni við húsið um nótt-1
ina, er það vinsamlegast beðið að
gera rannsóknarlögr’eglunni við-
! vart. —h
Egilsstöðum. 8 okt. —
Hreindýrahjarðir hér á landi
virðast vera stærri í ár en und-
anfarið, og jafnframt eru dýr-
in að auka landnám sitt á há-
lendinu. Eru hja>-ðirnar nú
dreifðar um stærra svæði en
nokkru sinni fyrr, og hefur
hreindýraveiði gengið óvenju
illa af þeim sökum í haust.
í ár er ieyfilegt að fella 600
dýr, en hvergi nærri öll hafa ver-
ið skotin ennþa. Fyrri veiðitíma
Magnús Magnússon
skipaður prófessor
Magnús Magnússon, eðlis-
fræðingur, hefur veriö skip-
aður prófessor í eðlisfræði við
verkfræðideild Háskóla ís-
lands frá og með 15. f. m. og
jafnframt verið leystur frá
kennaraembætti við Mennta
skólann í Reykjavík.
Kosningar í Iðju
Allsherjaratkvæðagreiðsl
unni um kjör fulltrúa Iðju á
27. þing Alþýðusambands ís-
lands lýkur í kvöld kl. 10.
Kosningin hefst kí. 10. A-list-
inn er borinn fram af vinstri
mönnum, andstæðingum nú-
verandi ríkisstjórnar B-list-
inn af stjórn og trúnaðar-
mannaráði, íhaldi og krötum.
Stuðningsmenn A-listans
eru beðnir að kjósa snemma
og vinna sem ötullegast að
sigri vinstri manna.
Kosningaskrifs*ofur A-list-
ans eru i Framsóknarhúsinu
sími 12942 og i Tjarnargötu
20 sími 17511 og 17512.
ársins lauk 15. september, en veiði
verður aftur leyfð um miðjan
þc-nnan mánuð og fram í nóv-
ember. Er þá ætlunin að reyna að
feila þau dýr sem eftir eru og
leyfilegt að skjóta. — Veiðimenn
hofa þá sögu að segja að dýrin séu
í ár óvenju dreifð um heiðar og
r.pp undir jökla. Jafnframt eru
þau komin lengra suður á bóginn
>:n áður hefur verið, allt suður á
Skriðdalsafrétt og suður undir
Álftafjörð. Dýrunum fer fjölgandi,
og því virðast þau vera að taka sér
nýja bólstaði á hálendinu. E.S.
Nýbakaður
hæstaréttar
lögmaður
S. I. föstudag lauk Jón Skaftason
alþingismaSur flutningi þriðja próf-
máls síns fyrir hæstaréfti og hefur
því hiotið réttindi sem hæstaréttar-
málflutningsmaður. Hr Jón einn af
allra yngstu lögfræðingum er náð
hafa slíkum réttindum, aðeins 33
ára gamall. Þriðja máiið, sem Jón
Skaftason flutti, var söluskattsmál
fyrir fjármáiaráðuneytið gegn mjólk
urstöðinni í Reykjavik. Fyrsta málið
var skaðabótamál vegna niðurskurð
ar í Skagafirði, en annað var hið
fræga Svartagilsmál.
Jón Skaftason er fæddur á Akur-
eyri 25. nóv. 1926, en ólst að mestu
upp á Siglufirði. Stúdent frá Mennta
skólanum á Akureyri 1947, cand.
juris frá Háskóla íslands 1951 og
hdl. 1953. Jón var ráðinn fulltrúi
í ríkisskattanefnd 1952 og í fjármála
ráðuneytið 1955 og hefur verið það
síðan. Eins og mönnum er í fersku
mlnni vann Jón glæsilegan kosninga
sigur við aiþingiskosningarnar á síð
asta ári og situr nú á þingi. Kvænt-
ur er hann Hólmfríði Gestsdóttur
frá Seyðisfirði.
Jón hyggst innan skamms setja
upp iögfræðiskrifstofu með Jóni
Grétari Sigurðssyni lögfræðingi.
Aðalfundur Félags ungra Framsóknarmanna í Reykja-
vík verður haldinn í Framsóknarhúsinu miðvikudaginn
12. okt. 1960 kl. 8.30.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning aðalmanna og varamanna í fulltrúaráð
Framsóknarfélaganna í Reykjavík fyrir næsta
starfsár.
Félagar sýni félagsskírteini við innganginn. Þeir félagar,
sem skulda félagsgjöld fyrir s.l. starfsár geta fengið af-
greidd skírteini á skrifstofu fulltrúaráðsins í Framsókn-
arhúsinu (uppi) kl. 5—7 á þriðjudag og miðvikudag.
STJÓRNIN.
Stórþjófnaður
í Kjörgarði
30 hús. í peningum og úrum fyrir 100 þúsund
stoliS aíifaranótt laugardags