Tíminn - 09.10.1960, Síða 13
TÍMIN N, sunnudaginn 9. október 1960.
13
Hafnaði stöðunni
(Framhald af 11. síðu).
— Hefurðu mikla ánægju
af kammermúsik?
— Já, það er einhver göf
ugasta tegund tónlistarinn
ar. Mér þykir ánægjulegt að
áhugi fyrir henni skuli held
ur vera að glæðast aftur.
— Hefurðu kannski í
hyggju að koma á því sviði
sjálfur?
— Ja, þér að segja höfum
við nýlega stofnað kvartett
á vegum Musica nova.
— Þátttakendur auk þín?
— Einar Sveinbjörnsson
og Ingvar Jónasson með
fiðlur, og Árni Arinbjarnar
með lagfiðlu.
— Og er byrjað að æfa?
— Það er lítið, en stend-
ur til bóta.
— En ætlarðu þér kannski
að halda hér tónleika á næst
unni?
— Ég get eiginlega ekki
sagt neitt um það að svo
komnu máli.
— Hvað varstu látinn
leika við lokapróf í skólan-
um?
— Haydn-konsertinn, Kad
alevsky og 5. sólósónötu
Bachs. .
— Og þú hefur verið alveg
ákveðinn í að koma heim?
— Já, mig langaði heim,
þrátt fyrir vellaunaða stöðu
úti.
— Hvaða staða var það?
— Ég réði mig í Sinfóníu-
hljómsveit Suður-Jótlands
strax eftir próf í janúar, sem
fyrsti cellóisti. Plestir með-
limir hennar leika í Tívoli-
hljómsveitinni á sumrin,
þanig að hún hættir að
starfa, um leið og Tívoli
opnar á vorin.
— Þú hefur þá kannski
spilað í Tívoli líka?
— Já, ýmist þar eða í
Konunglegu kapellunni.
— Gaztu haldið þessari
stöðu áfram?
— Mér stóð það til boða,
já, en mig langaði heim, og
konuna líka. (Pétur er
kvæntur og á tvo drengi).
— Og hvað tekur nú við
hér?
— Það er nú hljómsveitin,
og svo langar mig til að
kenna, ef mögulegt er, það
er verst, að það eru tiltölu-
lega fáir, sem hafa áhuga á
því að leggja cellóleik fyrir
sig. Páll Kr. Pálsson bað mig
um að taka að mér cellódeild
við Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar, ef nemendur fengj-
ust, ég veit ekki enn, hver
árangurinn af því verður.
Maður vonar það bezta.
Það gerir blaðið líka fyrir
Péturs hönd, og árnar hon-
um alls góðs í starfi sínu í
framtíðinni. S.
tbúð óskast
fyrir alþingismann.
Forsætisráðuneytið
Sími 16740
Blekkingum svárað
(Framhald af 8. síðu).
jafngilda 6% kauphækkun.
En Kári gleymdi að geta þess
að það var hvorki hann né
félagar hans, sem mestan
þátt áttu í að stofnaður var
lífeyrissjóður, því allur undir
búningur að því var unninn
af þeim sem Kári kallar einu
nafni „kommúnistar“.
Kári deilir á núverandi
stjórn í félaginu fyrir að hún
hafi lítið gert í kaup- og
kjaramálum frá þvi hún tók
við félaginu fyrir sjö mán
uðum og að hún hafi svikið
gefin loforð um kjarabætur.
Já, ekki virðist nú Kári
hafa verið mjög svartsýnn á
getu „kommúnistana“ fyrst
hann virðist hafa ætlað þeim
að vinna á sjö mánuðum upp
aftur það sem hann og félag
ar hans gátu ekki á þrem ár-
um og þó heldur betur, því
á þeim sömu árum heppnað
ist Kára og félögum hans að
gera trésmiði að lægst laun
uðustu iðnaðarmönnum lands
ins. Og þegar kemur að því
að Kári á að svara, hvað sé
helzta hagsmunamál tré-
smiða í dag, svarar Kári að
það sé krafan um vikukaup.
Vissulega er krafan um viku
Átthagafélög
Austurlands
hafá kaffisölu í Breiðfirðingabúð í dag, frá kl.
14.30—kl. 18 síðd til ágóða fýrir Björgunarskútu-
sjóð Austurlands.
Fjölmennið og styrkið gott málefni.
FÉLAGSSTJÓRNIRNAR.
kaup bæði þörf og sjálfsögð,
enda rikir enginn ágreining
ur um hana innan félagsis.
En það athyglisverðasta við
svar Kára er að það virðist
alveg hafa farið framhjá hon
um, að stærsta hagsmuna-
mál trésmiða eins og allra
annara launþega í dag er að
snúast til varnar gegn því
kaupráni sem stjórnarvöldin
hafa framið á okkur og vinna
upp kjaraskerðinguna sem við
höfum orðið fyrir síðustu
mánuði, það er tvímælalaust
okkar helsta hagsmunamál
nú, en til þess að svo geti orð
ið verða trésmiðir að samein-
ast um að senda vinstrimenn
sem fulltrúa félagsins á Al-
þýðusambandsþing en ekki
þá menn sem virðast telja
kjaraskerðingu síðustu mán-
uði aukaatriði fyrir trésmiði.
íhaldsandstœðingur.
Greinargerð frá
Grænmetisverzluninni
(Framhald af 8. síðu).
Grænmetisverzlun landbún-
aöarins er ætlað að selja kart-
öflur í heildsölu til verzlana í
50 kg. sekkjum og heildsölu-
verðið er miðað við það.
Það liggur því alveg Ijóst
fyrir að Grænmetisverzlun
landbúnaðarins getur ekki
tekið á sig allan kostnað við
pökkun, umbúðir, vélakostn-
að og vinnu án þess að fá það
uppborið í verðinu.
K^upmenn gera hins vegar
þær kröfur nú að þeir losni við
ailan vinnu- og umbúðakostn-
að af þessari nauðsynjavöru,
en vilja þó halda 25—30%
álagningu sem þeir hafa haft
til þessa.
Okkur er hins vegar ekki
ljóst með hvaða rétti þeir geta
krafizt þess að við séum skyld-
ir til að taka við þeirri þjón-
ustu sem þeir hafa innt af
hendi, en þeir haldi óskertu
hendi, en þeir haldi óskertu
þvi verði, sem þeim hefur ver
ið ætlað fyrir þessa þjónustu.
Eitt rekur sig á annars horn
í greinargerð kaupmanna-
samtakanna í Morgunblaðinu
sunnudaginn 2. ökt., stendur
að það sé ekki rétt hjá mér, að
ég hafi ekki vitað um sölu-
bannið fyrr en fyrir tveim
dögum. Um þetta má að vísu
deila. Samtökin höfðu sent
Grænmetisverzlun landbún-
aðarins hótunarbréf dags. 7.
sept. um að þeir myndu hætta
sölu á kartöflum 1. okt. ef hún
ekki hefði þær í „neytenda-
pökkum“. En eins og fyrr segir
vissum við ekki til að okkur
bæri skylda til að taka við
þessum störfum smása'la og
þar að auki vissu þeir að við
vorum alls óviðbúnir að taka
við þessu og höfðum ekki
möguleika á að leysa þetta
starf af hendi, að svo stöddu,
saman ber verðlag o. fl. sem
fyrr getur.
Auk þess höfðum við látið
þá fylgjast með því að við vær
um að fá húsnæði og myndum
setja okkar vél í gang og hefja
pökkun við fyrsta tækifæri.
Það var því ekki fyrr en í
lok síðustu viku að okkur var
ljóst að kaupmönnum var al-
vara með, að hlaupa frá þeim
störfum, sem þeir hafa annast
síðan verzlun með kartöflur
hófst hér á landi.
Hitt er svo annað mál, að vel
má vera að smásalar fái of
lítið fyrir að selja þessa vöru,
miðað við núverandi verðlag í
landinu. En úr því getur
Grænmetisverzlun landbún-
aðarins, því miður, ekki bætt,
þar sem hún ræður engu um
smásöhiálagningu á þessa
vöru. í því efni er eingöngu
við verðlagsnefnd landbúnað-
arafurða að eiga, en mér er
ekki kunnugt um, að leitað
hafi verið eftir hækkun á
smásöluálagningu á kartöfl-
um í haust, hvað sem því veld
ur.
Jóhann Jónasson.
Brauðristar
Ryksugur
Hrærivélar
Höfum opnað aftur
eftir breytingar og lagfæringar á verzluninni
Vér getum nú boSið úrval ptærri og smærri heimilistækja. m a af hinum
heimsþekktu vörumerkjum VVestinghouse og Frígidaire. GeriÖ svo vel. lítiÖ
inn og kynnift yíiur vörugæðrn.
Strdujárn
Hafnarstræti 23
- Sími 18395 -
Kæliskápar
■■
y i*
Uppþvcttavélar
1IÉ
V
Sjálfvirka>- þvottavélar
(laundromat)
1
I
8
|
I
1
|
|
i
I
1
1
I
I
I
i
I