Tíminn - 27.10.1960, Side 1
Þetta fannst Ijósmyndara blaðsins óvenjuleg sjón, er hann
átti leið um Lækjargötuna í gær. Hún er, sem kunnugt er,
vandlega malbikuð, og sama er að segja um flestar götur þar
í grennd. En eigi að síður birtist þarna stór og vígalegur
veghefill, og virtist albúinn til hverra stórræða sem vera
vildu! (Ljósm.: TÍMINN, K.M.).
Sæstrengur til
Eyja að sumri
Framkvæmdir við lagningu rafstrengs-
ins til Vestmannaeyja munu hefjast í
júlí næsta sumar
Bruni í
Vogsósum
Þorlákshöfn, 26. okt.
í gær kviknaði t heyhlöðu í
Vogsósum í Selvogi. Töluverð-
ar skemmdir urðu á bygging-
um og heyi. Slökkvilið frá
Þorlákshöfn kom á vettvang
og tókst því að ráða niðurlög-
um eldsins.
Nánari tildrög eru þau, að fros-
ið hafði á súgþurr'kunarmótor, sem
var í skúr við annan gafl hlöðunn-
ar. Var verið að þíða á mótornum
með opnum eldi og við þær til-
raunir kviknaði í skúrnum. Fóru
(Framh. á bls. 15.)
Ingólfur Jónsson raforku-
málaráðherra svaraði í gær á
Alþingi fyrirspurn um lagn-
ingu sæstrengs til Vestmanna-
eyja. Fyrirspurnin var frá
þeim Karli Guðjónssyni, Birni
Björnssyni og Ágúst Þor-
valdssyni, Samkvæmt 10 ára
rafvæðingaráætluninni áttu
Vestmannaeyjar að tengjast
við orkuveitukerfi rafveitna
ríkisins á þessu ári. — Ráð-
herra sagðl að framkvæmdir
myndu hefjast í júlí næsta
sumar.
Ingólfur Jónsson raforkumála-
ráðherra kvað málið hafa tafizt
vegna þess að lagning sæstrengsins
þyrfti mikinn tæknilegan undir-
búning. Las ráðherrann bréf frá
Eiríki Briem rafmagnsveitustjóra
um málið. Skýrði Eiríkur í því að
nauðsynlegum undirbúningi væri
(Framhald á 2. síðu)
Enn upplýst um
ný vörukaupalán
Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra svaraði í gær fyrir-
spurnum frá Eysteini Jónssyni um lántökur ríkisins og vöru-
kaupalán í Bandaríkjunum. Upplýstist þá enn um hinar stór-
felldu lántökur, sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir. Við-
skiptamálaráðherra háfði áður upplýst, að ríkisstjórnin hefur
tekið 433 milljónir króna að láni til tveggja til þriggja ára.
Að stjórnin hefur leyft lántökur opinberra aðila og einka-
aðila að upphæð 70 milljónir króna og að leyfð hafa verið
vörukaupalán til þriggja mánaða fyrir 158 milljónir.
Er fjármálaráðherra svaraði fyrirspurnum Eysteins Jóns-
sonar í gær upplýstist enn um lántökur stjórnarinnar. M. a.
kom eftirfarandi fram:
'tr'k'k 1. Að óráðstafað er enn rúmlega 100 milljónum af 6
milljón dollara láninu, sem vinstri stjórnin undirbjó.
★★★ 2. Að óráðstafað verður til útlána innanlands miðað við
árslok a. m. k. 80 milljónum króna af því fé, sem
hér hefur safnazt vegna vörukaupalán frá Banda-
ríkjunum (PL 480).
★★★3. Að vörukaupalán frá Bandaríkjunum svokölluð PL
480-lán munu nema um 90 milljónum á þessu ári, ef
svo fer, sem horfir, og áætlað er á næsta ári, að
þessi lán nemi rúmlega 80 milljónum.
★★★ 4. Að ríkisstjórnin ráðgerir enn nýjar lántökur, enda
þótt þjóðinni væri sagt í fyrra að kjaraskerðingin
byggðist á því, að íslendingar gætu ekki gert ráð
fyrir að hafa neitt erlent lánsfé til framkvæmda á
næstu árum.
Einn liður í fyrirspurn
Eysteins Jónssonar um lán-
tökur ríkisins hljóðaði svo:
„Er ríkisstjómin að leita fyrir
sér um nýjar lántökur, og ef
svo er, þá hverjar og í hvaða
skyni?“ Sagði Eysteinn að
þpssi fyrirspurn væri kominn
fram vegna sterks orðróms um
(Framhald á 2. síðu)
Nazistafram-
boð í Heim-
dalli í gær
í gærkvöldi var haldinn að-
alfundur Heimdallar, félags
ungra íhaldsmanna og gerð-
ust þau tíðindi merkust á
fundinum að fram kom fram-
boð þriggja manna við stjórn-
arkjör auk nokkurra annarra
(Framhald á 2. síðu).
Nauðsyn að ákveða næstu
orkuvirkjun fyrír árslok
Ljúka verður rannsóknum á vatnasvæð
um Hvítár og Þjórsár sem fyrst
Heppilegast mun vera að
virkja Þjórsá með 11 virkjun-
um og mundu þær gefa sam-
tals um 8 þúsund milljónir
kílóvatta. Hvítá yrði hag-
ikvæmast að virkja með 7—10
virkjunum og myndu þær
skilja 2.700 milljónum kíló-
vatta.
Þessar upplýsingar las raforku-
málaráðherra úr skýrslu raforku-
málastjóra á Alþingi í gær, er ráð
herrann svaraði fyrirspurn frá
Birni Fr. Björnssyni, Ágústi Þor-
valdssyni og Karli Guðjónssyni um
það hvað liði vir'kjunarrannsókn-
um á vatnasvæðum Hvítár og
Þjórsár.
Knýjandi framfaramál
Björn Fr. Björnsson mælti fyrir
fyrirspurninni og minnti á að raf-
orkuþörfin yxi hr'öðum skrefum
jafnframt því, sem dreifingarkerf-
ið stækkaði. Þjóðinni fjölgaði með
hverju ári og ólíklegt væri að
höfuð atvinnuvegirnir, landbúnað-
ur og sjávarútvegur gæti tekið við
þeirri fólksfjölgun allri. Upp yrði
að rísa iðnaður og iðja. Áburðar-
og Sementsverksmiðjurnar eru
gott fordæmi og hvöt til frekari
átaka_ og framsóknar í þeim efn-
um. Áður en r'áðizt væri í stórvirkj
anir þyrfti að ljúka umfangsmikl-
um rannsóknum, því væri fyrir-
spurnin borin frarn.
10.700 mUtjón kílóvött
•
Ingólfur Jónsson raforkumála-
ráðherra las upp skýrslu Jakobs
Gíslasonar raforkumálastjóra um
rannsóknir þær, sem staðið hafa
yfir á vatnasvæðum Hvítár og
Þjórsár um nokkurt skeið. Aðal-
lega hafa íslenzkir ver’kfræðingar
annazt rannsóknir þessar, en 1959
komu hingað bandarískir verkfræð
ingar þeim íslenzku til ráðuneytis
og aðstoðar. Niðurstöður rannsókn
anna eru þær eins og áður getur,
að heppilegast muni vera að virkja
Þjórsá með 11 vrikjunum og Hvítá
með 7 til 10. Samtals myndu
Þjórsá og Hvítá fullvirkjaðar skila
um 10.700 milljónum kílóvatta
orku.
40 milljónír króna
Svo unnt sé að hef ja framkvæmd
ir er nauðsynlegt að gera enn frek
ari og nákvæmari athuganir. Þær
rannsóknir myndu kosta um 40
milljónir króna. Undanfarin ár
hafa verið veittar 4 milljónir á
ári til þessara rannsókna. Þeim
yrði því ekki lokið fyrr en að 10
árum liðnum, ef fjárveiting verð
ur ekki aukin. Nauðsynlegt er að
Ijúka rannsóknum þessum sem
fyrst. Leggur raforkumálastjóri til
(Framhald á 2. síðu).
islenzkur sjómaður ferst — bls. 3
tsmiaKZBaæ&Ksmsgsm
TlinilTliríTlii iyWlllinnl'HMI HllinTllllPlir lllll>IIIIHIIM*|il|l>MlllllllllhlllWHIHiy——l1