Tíminn - 27.10.1960, Blaðsíða 3
TÍMINN, finuntudaginn 27. október 1960.
3
Saint John Perse hlaut
bókmenntaverðl. Nobeis
Tíundi Frakkinn, sem fær bessi verílaun
Stokkhólmi—Marseille 26/10
(NTB). — í dag tilkynnti
sænska akademían að franska
ljóðskáldið Saint-John Perse
hefði hlotið bókmenntaverð-
laun Nobels árið 1960. Til-
kynningin um þetta kom
snemma í morgun, og er
blaðamenn flyktust að húsi
skáldsins á Rivieraströndinni
í morgun var þeim sagt, að
skáldið væri ekki heima og
vissi ekkert um að hann
hefði fengið verðlaunin.
Er skáldið kom heim um
kvöldið voru honum sögð tlð-
indin. Hann varð bæði undr-
andi og glaður fyrst í stað.
Hann sagðist hafa heyrt það
kvöldið áður að hann kæmi
til greina sem Nobelsverð-
verölaunahöfundur, en hann
taldi það úr lausu lofti gripið.
Perse sagðist vilja láta í ljós
ánægju sina yfir því, að
Nobelsverðlaunin skyldu falla
ljóðskáldi í skaut. Það er í
anda Nobels, sagði hann.
Fær mikið hrós.
Perse er tíundi Frakkinn,
sem hlýtur bókmenntaverð-
laun Nobels. Af þeim níu, sem
hlotið hafa verðlaunin á und
an honum, er nú aðeins einn
á lífi, skáldið Mauriac. Hann
hefur fært Perse hamingju-
óskir og sagt hann vera mesta
ljóðskáld Frakka.
Formaður evrópska rithöf-
undasambandsins hefur sagt
um Perse, að hann sé eitt
snjallasta ljóðskáld sinnar
tíðar og hafi verðskuldað
fyllilega að fá Nobelsverð-
laun fyrir list sína. Nobels-
verðlaunahafinn frá því í
fyrra, skáldið Salvatore Qua-
simodo, hefur , sent Perse
heillaóskir og farið um hann
hinum lofsamlegustu orðum.
Hvers eiga kartöfl-
urnar að gjalda?
Svalbarðseyri, 26. okt
Svalbarðsströndin er fræg
fyrir sína miklu og myndar-
legu kartöfluakra Uppskeru
þar er nú lokið að þessu sinni
og var afburða góð. En kart-
öfluframleiðendur eru óánægð
ir yfir þvi, að ekkt skuli fást
afurðalán út á þessa fram-
leiðslugrein eins og aðrar að-
alafurðir landbúnaðarins.
Kartöfluuppskera var fá-
dæma góð hér í haust. Mun
hún nema um 11 þús. tunn-
um og er meira en tvöföld á
við það, sem var í fyrrahaust.
Allvíða fengust 20 kartöflur
fyrir hverja eina, sem niður
var sett og geri aðrir betur.
Þetta er að sjálfsögðu veru
leg búbót fyrir framleiðend-
ur því ef það heppnast að
geyma allt þetta magn, svo
sem vonir standa til, þá er
ekki að efa að auðvelt verður
að selja þessa gæða vöru.
Sýking er hér engin í kart-
öflum.
Óþolandi misrétti
Hitt er svo annað mál og
öllu lakara að ekki skuli fást
afurðalán út á kartöflur. Eru
kartöflurnar hin eina stóra
framleiðslugrein landbúnaðar
ins, sem svo er búið að og er
slíkt tillitsleysi og rangsleitni
við kartöfluframleiðendur
næsta furðulegt fyrirbæri. Er
þess að vænta, að hinir vísu
landsfeður geri yfirbót í þess
um efnum hið bráðasta, það
er fullkomið réttlætismál.
S.J.
Langahlí Sin opnuh
Eins og kunnugt er hefur staðið
yfir vegarlagning og jarðvegsskipt-
ing á Lönguhlíðinni f.rá Miklubraut
að Plókagötu í sumar. Vonir standa
nú til að hægt verði að opna aðra
akreinina nú í vikunni og mun ekki
verða unnið frekar við þetta verk
að sinni. Verður vestari akbrautin
látin bíða þar til Hitaveitan hefur
lagt þar stokk, svo að ekki þurfi að
rífa hana upp aftur. Hefur stokk-
lagningin verið boðin út, en endan-
leg ákvörðun ekki tekin um hver
tekur lagninguna að sér.
1468 árekstrar
Síðdegis í gær höfðu 1468 árekstr-
ar verið bókaðir í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur og er það 20 árekstrum
minna en var í fyrra á sama tíma.
Þá voru árekstrar 1488 talsins á þess
um degi-
Tvær aftanákeyrslur
í gær urðu aðeins tveir árekstrar
í bænum, — en báðir á sama hátt —
ekið aftan á næsta b 1 á undan. Hinn
fyrri var í gærmorgun á gatnamót-
um Tryggvagötu og Pósthússtrætis,
þar ók jeppi aftan á fólksbíl af
Mercedes Benz gerð, en hinn síðari
var á Hverfisgötu, á móts við stræt
isvagnastöðina við Hverfisgötu 71.
Þar renndi lítill Moskvitsj aftan á
strætisvagn, sem nam þar staðar.
Skemmdir voru fremur litlar í bæði
skiptin.
Þegar Danakóngur og drottning hans voru í Bandaríkjunum nú fyrir skemmstu, heimsóttu þau meðal annars
hinn fræga stað Disneyland. Þar var þeim færður að gjöf fáni með Mikka mús, og er ekki annað sýnna en þeirn
líki gjöfin dável. Skyldi nú Mikki mús eiga eftir að biakta við hún á konungshöll'nni dönsku?
Brenndist af gufu
og lézt litlu síðar
Bræðslumaðurinn af Sólborgu lézt af
slysförum í Þýzkalandi
Svo sviplega vildi til í
Þýzkalandi á mánudaginn, að
bræðslumaðurinn af togaran-
um Sólborgu skaðbrenndist
svo af gufu, að hann lést
skömmu síðar af völdum sára
sinna.
Vetrarsíldveiðin er nú að
hefjast og fer misjafnlega vel
af stað í einstökum verstöðv-
um, eftir því sem blaðið hefur
fregnað. í Vestmannaeyjum
og á Akranesi virðist byrjunin
lofa góðu en annars staðar,
eins og t. d í Keflavík er veiði
tregari, enn sem komið er.
Annars er erfitt að spá þegar
önnur eins duttiungaskepna
og síldin er á í hlut en sjálf-
sagt er að vona hið bezta og
enn má heita að hinn venju-
legi vetrarsíldarveiðitími sé
allur framundan.
Vestmannaeyjum
Mikil síld hefur verið lóð-
uð hér við eyjar og virðist hún
vera komin upp í landsteina.
Nokkrir bátar eru að byrja
veiðarnar en aðrir að týgja
sig í tuskiö. Verður ekki ann
aö af þessari byrjun ráðið en
Blaðinu er ekki nákvæm-
iega kunnugt um tildrög slyss-
ins, en togarinn mun hafa ver-
ið að landa afla sínum er þetta
skeði.
Maður þessi hét Jón Biarna-
son og var héðan úr Reykja-
að vel líti út með síldveiðina
og búa menn sig af kappi und
ir að veita síldinni verðugar
viðtökur.
Akranesi
Hér lítur ágætlega út með
síldveiðina. Milli 10 og 20 bát
ar eru byrjaðir veiðar en gert
er ráð fyrir að þeir verði rúm
ir 20, þegar allt er komið í
gang, þar af 9 með hringnót,
en hinir með reknet. Síldin er
yfirleitt fremur smá en feit.
Það af henni, sem ekki er
hægt að frysta, er saltað.
Keflavík
Héðan eru 17 bátar byrjað-
ir síldveiðar. Af þeim eru 6
með herpinót en hinir með
reknet. Reknetaveiðin er lé-
leg en heldur líflegra hjá
herpinótabátunum. Afli hring
nótabátanna hefur verið frá
100-—270 tunnur í róðri. Þeir
hafa verið djúpt út af Jökli
(Framhald á 2. síðu).
vík. Hann var á sextugsaldri.
Hann var samstundis fluttur í
sjúkrahús, er slysið varð, en
var of skaddaðar til þess að
læknum tækist að bjarga hon-
um, og lézt mjög fljótlega af
völdum brunasáranna. — Lík-
ið er væntanlegt heim með
Sólborgu á næstunni.
Togarinn var með 105 lestir
og seldi fyrir 80 þús. mörk.
GS.
r---"..................*\
íslenzkum
fiski ekki
landað í Hull
Hull 26/10 (NTB). — Það
hefur verið tilkynnt í Hull,
að löndun á íslenzkum tiski
úr flutningaskipum skuli
hætt, þar til lokið er samn-
ingaviðræðum um fiskveiði-
deiluna í Reykjavík
Samtök togaraeigenda
hafa mótmælt því, að hald-
ið verði áfram að landa
fiski úr íslenzkum flutn-
ingaskipum, Einum slíkum
farmi hefur þegar verið
skipað á land í Huil og ann-
ar er á leiðinnj þangað. En
honum og ekki fleirum
verður skipað á land segir
í fréttinni. Fyrst skal Ijúka
samningsviðræðunum áður
en íslendingar landa meiri
fiski í brezkum höfnum.
Síldveiðiri mis-
jöfn að venju
Byrjunin lofar gótiu í Vestmannaeyjum og
á Akrainesi