Tíminn - 27.10.1960, Síða 5

Tíminn - 27.10.1960, Síða 5
9 TÍMINN, fimmtudaginn 27. október 1960. t-------------------------------------------------------------' Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdast.ióri: Tómas Arnason Rit- stjórar Þórarinn Þórarinsson láb.i, Andrés Kristjánsson Fréttastjóri: Tómas Karlsson. Auglýsmgastj Egill Bjarnason Skrifstofur i Edduhúsinu — Símar- 18300 -18305. Auglýsmgasími: 19523 Afgreiðslusími: 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f w.................................................../ Enn skal ólin hert í útvarpsumræðunum við fyrstu umræðu fjárlaga s.l. mánudagskvöld ræddi Evsteinn Jónsson ýtarlega um sparnaðarblekkingar þær, sem ríkisstjórnin setur nú fram, og benti á hvernig fjárlagafrumvarpið er blátt á- fram við það miðað að halda hinni skefjalausu opinberu eyðslu áfram en kreppa æ meira að atvinnuvegunum og lífskjörum fólksins 1 landinu. Um innfiutningssölu- skattinn sagði hann m.a.: „Það stingur strax í augu, að í frumvarpinu er gert ráð fyrir, að nýi innflutningssöluskatturinn, sem á að gefa í ríkissjóð a. m. k. 168 millj. haldist áfram Ríkis- stjórnin var þó óþreytandi í fyrravetur að lýsa þvi yfir, að þessi skattur væri aðeins til bráðabirgða og yrði ekki framlengdur, enda var þetta böggull sem komið var með eftir að aðalefnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar var lögð fram. Hér kemur því í ljós, að farið hefur verið aftan að mönnum í fyrra 1 þessu efni, og er það í samræmi við fyrirheit stjórnarflokkanna fyrr og siðar og þær efndir, sem á þeim hafa orðið. Það vekur athygli, að í þessu fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir nærri sömu heildarteicjum í ríkissjóð á næsta ári af þeim álögum, sem mokað var á almenning s.l. vetur, og á þessu ári. Þó gilda álögurnar á næsta ári fyrir heilt ár. Hér eru því tekiur af þessum tolla- álögum áætlaðar raunverulega lægri en nú Það er sem sé gert ráð fyrir áframhaidandi sam- drætti í þjóðarbúskapnum og því minnkandi ríkistekj- um af stórhækkuðum álögum. Fátt sýnir betur búskipu- lagið, sem nú er upp tekið, en einmitt þetta. Og þetta sýnir þá einnig, hversu mikið hald er í þeim blekking- um stjórnarflokkanna og ríkisstjórnarinnar annað veifið, að ráðstafanir þeirra eigi ekki að nafa og hafi ekki í för með sér stórfellda kjaraskerðingu fyrir almenning. Innflutningsáætlunin fyrir árið 1960, sem núverandi tekjuáætlun er byggð á, gerir ráð fyrir minni heildar- innflutningi til landsins en varð fyrir 2 árum. Þessi átti samdrátturinn að verða í ár vegna kjaraskerðingai og minnkandi framkvæmda. og nú er sýnilegs gert ráð fyrir að herða enn ólina, og samdrátturinn á að verða enn meiri, ef ríkisstjórnin fær að ráða. Strandferðirnar Hæsti „sparnaðarliðunnn“ á fjárlagafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar er sem kunnugt er 5 millj. kr. lækkun á framlagi til strandferða, og einnig á að lækka framlag til hafnargerða um nær 2 millj. kr. Þannig er sparnaður þessarar ríkisstjórnar. Samt hafa heildarútgjöld fjárlaga hækkað um 750 millj síðan 1958. Petta er kveðjan til fólksins sem verst er sett í samgöngumálum og vinnur að framleiðslu þjóðarinnar við erfiðust skilyrði Um þetta fórust Eysteini Jónssyni orð á þessa leið í útvarps- ræðu sinni: „Er ekkert um það að efast, að þarna er á ferð sú hugmynd að draga stórlega úr strandferðaþjónustu, hvað sem látið er í veðri vaka til að byrja með um skipulags- breytingu og annað því líkt. Er þess skemmst að minn- ast, að þegar raforkuáætlunin var skorin niður um marga milljónatugi var þvi blygðurarlaust haldið tram um leið að þar væri ekki um minnkaðar framkvæmdir að ræða, en það reyndust hreinar rdngfærslur. Svo er okkur nú sagt. að bláóV:mnugur maður frá norsku hlutafélagi eig: að ráða stranaierðum við ísland.“ Samfelld sigurganga Karlakórs Reykiavíkur í Bandaríkjunum Söngför Karlakórs Reykja- víkur um Bandarikin hefur orðið mikil sigurganga það sem af er. Samsöngvar kórsins hafa hvarvetna verið vel sótt- ir, undirtektir áhevrenda góð- sr og blaðackómar lofsamlegir. Kórinn mun um þessar mund- ir vera staddur í Winnipeg, en heim er hann ekki vænt- anlegur fyrr en undir lok næsta mánaðar. Blaðinu hafa borizt nokkr ar úrklippur úr bandariskum blöðum með umsögnum um söng kórsins. Verða hér á eft ir rakin nokkur ummæli gagn rýnendanna. Karlakórinn söng fyrst í borginni Wilmington, og 5. október segir blaðið Journal- Every Evening m.a. að söng- skráin hafi verið vel valin, létt og skemmtileg, raddfeg- urð og nákvæm þjálfun kórs- ins hafi vakið hrifningu, en .aðdáanlegust hafi þó verið meðferð kórsins á hinum nor- rænu lögum á söngskránni Þannig lætur gagnrýnandinn í ljós sérstaka aðdáun sina á túlkun kórsins á tveimur vöggukvæðum, og enn frem- ur Brennið þið vitar, eftir Pál ísólfsson og rímnalögum Jóns Leifs. Söngstjórinn, Sig urður Þórðarson hlýtur mik- ið lof fyrir frammistöðu sína og kórinn allur, hann sé vel þjálfaður og lúti nákvæmri stjórn, en þó sé söngur hans alltaf lifandi og áhrifamik- 111. Þá ber gagnrýnandinn mik ið lof á einsöngvara kórsins, þá Guðmund Guðjónsson, Guðmund Jónsson og Krist- in Hallsson, en einkum er liann hrifinn af Guðmundi Jónssyni. TILKOMUMIKILL SÖNGUR Þær blaðaúrklippur með blaðaumsögnum sem Tíman- um hafa borizt ná aðeins til tíu fyrstu daganna í ferð kórsins eftir fyrstu söng- skemmtun hans í Wilming- ton. Taka gagnrýnendur í öðr um borgum flestir í svipaðau streng. og sá sem áður er vitnað í. Blaðið Sandusky Register segir m.a. þann 10. okt.: Þeir sem vandlega hlust uðu gátu lært góða lexíu af kórnum. Engin goluleg pían issimó eða stríð forte tii að baga hinn listræna tilgang! Allt raddsvið kórsins frá á- reynslulausum, klingjandi tenór til flaueilsmjúks bass- ans var hagvýtt til fullnustu af stjómandanum. — Vafa- laust ’hefur hver áheyrandi átt þarna sitt uppáhaldslag. En vöggukvæðin tvö, Svanur inn eftir Jamfeldt og Sólar- lag eftir Botniansky voru til fyrirmyndar um mildileik karlakórs. Og Landsýn eftir Grieg, sem stendur nærri hjörtum söngmanna, var sung inn af þeim hátíðleik sem á við anda þess. Hig tilkomu- mikla Kyrie eftir söngstjór- ann, Sigurð Þórðarson, g.af tenorsöngvaranum Guðmundi Guðjónssyni gott tækifæri t.il að beita sinni glæsilegu rödd. í lögum eins og Sígaunalíf eftir Schumann, Tarantella eftir Barraja og hinu hrika- fagra tékkneska þjóðkvæði, Kvæðið um trumbuna birtist ótrúleg taktfesta kórsins. — Enn segir í greininni að auk Guðmundar Jónssonar hafi gefið að heyra tvo af beztu söngvurum íslands, Guðmund Guðjónss. og Kristin Hallss., og báðir hafa aukjð ánægju kvöldsins. Einkum er nefndur söngur Guðmundar í Hraustir menn og Kristins í O Culd I Have Expressed In Song. 19. ALDAR BLÆR Kórinn söng næstu daga í borgunum Goshen, Indiana, og Benton Harbourg Alpena, Michigan. Umsagnir um kór inn birtust m.a. í blöðunum The News Palladium, Bent on Harbour, The Alpana News og The News Goshen, og ljúka allir :gagnrýnendur nær einróma lofi á söne- stjóra, einsöngvara og að eins og hinir fyrrgreindu eru þeir ekki minnst hrifnir af hinum íslenzka hluta söngskrárinnar. Gagnr.ýn- andi The News kvartar þó yfir því að of mikill 19. ald- ar blær hafi verið á söng- skránni, flest viðfangsefnin hafi verið frá 19. öld og hin fáu nútímaverk sungin á ö- þarflega fornfálegan hátt. Að öðru leyti tekur hann í sama streng og aðrir gagn- rýnendur, lofar kórinn, cg lætur einkum í ljós aðdáun sína á Guðmundi Jónssyni. Kennslubók í staf- setningu komin út Nýlega er komin út hjá ; Ríkisútg námsbóka Kennslu- bók í stafsetningu eftir Árna Þórðarson skólastjóra og Gunnar Guðmundsson yfir- kennara. í notkun heíur verið alllengi kennslubók í þessari grein eftir sömu höfunda. Var hún víða not- uð jöfnum höndum í barna- og framhaldsskólum. Höfundar hafa nú samið sérstaka bók fyrir hvort þessara skólastiga. Á síðasta ári gaf ríkisútgáfan út bókina Staf- setning fyrir barnaskóla og nú Kennslubók í stafsetningu fyrir framhaldsskóla. Efni þessarar nýju bókar og innri gerð er að miklu leyti hið sama og eldri bókar höfunda með saamnefni. Allir æfingakaflar hafa þó verið endursamdir og ýmsu sleppt, er áður var fremur ætlað barnaskólum, en annað aukið, sem meir hentar eldri nemendum. í bókinni eru öll prófverkefni í stafsetningu, sem notuð hafa verið við unglingapróf og miðskólapróf (landspróf), síðan byrjað var að þreyta þessi próf, en þau eru lands próf á báðum þessum stigum. Einnig fylgja þarna einkunnastig- ar, sem notaðir eru við þessi próf. Bókin, sem er 133 bls., er prent- uð í ísafoldarprentsmiðju h/f. Kápumynd og skreytingar í bókina teiknaði Bjarni Jónsson listmálari.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.