Tíminn - 20.04.1961, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, fimmtuðaginn 20. aprfi 1961.
Bíla- og búvélasalan
Ingólfsstræti 11.
QLi ilec^t óumar!
Kaupfélag Vestmannaeyja
QU ^iiec^t óumar!
> Samband ísl. samvinnufélaga
Sjóstangaveföi
(Framhald at 1 síöu.)
um, auk þess fá veiðimennirnir not
af fullkomnum sjóhlífðarfötum.
Sjóstangaveiðin leggur einnig til
beitu í hverja veðiferð. Þátttöku-
gjaldið innifelur auk þess brauð
og kaffi eða te meðan á fexðinni
stendur. Geta menn því komið í
sparifötunum og án alls útbúnaðar
og matar, því fyrir öllu er séð.
Pantanir fyrir einstaklinga og
hópa ber að gera hjá Sjóstanga-
veiðinni h.f. að Tryggvagötu 4, en
sími þar er 16676, en félagið hefur
þar skrifstofur sínar í samvinnu
við Bílaleiguna Falur h.f., sem er
eign sömu manna. Stjórn Sjó-
stangaveiðinnar h.f. er skipuð
Smára Karlssyni flugstjóra, Stef-
áni Gíslasyni flugstjóra og Hákoni
Daníelssyni, sem jafnframt er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
SVR-krían
(Frarnh ai 16. slðu).
og siðan er hún orðin mjög fíkin
í að baða sig. Baðker hennar er
dálítill bakki, og buslugangurinn
er mikill, þegar henni er hleypt
í baðið. Stélið er tekið að vaxa, og
fæturnir eru orðnir gráleitir. En
nefið er enn svart.
KveSjustund í nánd
Nú er hún líka tekin að hoppa
talsvert, jafnvel svo sem metra
í loft upp, og farin að minnast
þess á ný, að hún er fugl með
vængi. Verljstæðismennirnir gera
sér í hugarlund, að hún verði orð-
in fleyg um það þil, er aðrar kríur
koma til landsins, svo að hún geti
þá farið að lifa eðlilegu lífi á
eigin spýtur. Þá búast þeir við,
að hún kveðji gestgjafa sína og
þakki þeim fyrir góða kynningu í
vetur. Þeim er auðvitað eftirsjá
að þessum skemmtilega fugli. En
krían er ekki eign, heldur gest-
ur þeirra. Þess vegna verður
henni ekki meinað að ráðstafa
sér eftir geðþótta í vor. Þó er alls
ekki víst að hún sæki til annarra
fugla í vor. Hennar árgangur kem
ur ekki til landsins á þessu vori,
og ungar frá í fyrra verða ekki
kynþroska í ár. En strætisvagna-
mennirnir geta haft vöxt stélsins
á kríunni sinni til marks um það,
hvenær hún er að komast á kyn-
þroskaaldur.
4 tillögur
NTB—NEW YORK, 19. aprfl. —
Stjórnmálanefnd Sameinuðu þjóð-
anna ræddi Kúbumálið í dag, og
var Raul Roa utanríkisráðherra
viðstaddur. Endurtók hann ásakan
ir sínar í garð Bandaríkjanna.
Fyrir nefndinni liggja fjórar til-
lögur um Kúbu: frá Sovétríkjun
um, að S.þ. stöðvi þegar í stað inn
rás Bandaríkjanna; frá Rúmeníu,
að vopnaviðskipti verði stöðvuð,
aðila ekki getið; frá Mexíkó, að
aðildarriki S.þ. forðuðust alger-
lega afskipti af málefnum Kúbu;
frá 7 Suður-Ameríkuríkjum, að
stofnun Ameríkuríkja verði falið
að finna lausn á málinu. — Víða
í kommúnistalöndum voru í dag
hópgöngur til þess að mótmæla
innrásinni á Kúbu.
Laos
Framhald af 3. síðu.
ríkisstjórnar Boun Oums í Laos,
sagði í dag á fundinum, er hann
tilkynnti, að stjórnin hefði snúið
sér til Bandaríkjamanna til þess
að fá hernaðaraðstoð, að eftir
sókn kommúnista síðustu dagana
horfði geigvænlega fyrir ríkis-
stjórninni. Hlutlausir telja, að ef
Bandaríkjastjórn fellst á beiðnina,
muni það varla hafa annað í för
með sér en það, að þeir Banda-
ríkjamenn, sem nú eru austur þar
að miðla vopnum og þekkingu,
klæði sig í einkennisbúninga. Ut-
anríkisráðherrann Sopsaisana full-
yrti, að 60 þúsund Norður-Víet-
namingar væru nú f bardögum
gegn stjórnarhemum á vfglínunni
í Suður- og Mið-Laos.
Selurinn
(Framhald ht ). síðu.)
andi, að teygjan hafi lent yfir
hausinn á selnum á sundi, og
hann síðan ekki náð henni af sér.
En ótrúlegt er það, og hlýtur að
vakna grunur um, að hún hafi
verið látin á hann af mönnum.
Er slíkt hryllilegur verknaður, en
þó því miður ekki dæmala^, eins
og kunnugt er af illa leiknum fisk
um og fuglum, sem fundizt hgfa.
Gegnir furðu, að til skuli menn,
sem hafa yndi af því að pynta
þannig lifandi skepnur, hrerju
nafni sem nefnast. Það hlýtur að
vekja megnasta viðbjóð alls sæmi
/ lees fólks.
sendir öllum félagsmönnum og öðrum
viðskiptavinum, beztu óskir um
ifeÉiieat
fyieöiiet^l óumar.
og þakkar viðskiptin á vetrinum.
Nú bjóðum við yður ÞVOL á
fallegum, handhægum plastflösk-
um, sem eru sérstaklega gerðar
til þæginda fyrir yður. Eins og
reynslan hefur þegar sannað, þá
er ekkert betra né fljótvirkara við
uppþvottinn en ÞVOL. Fita og
önnur óhrcinindi renna af diskum
og glösum.
ÞVOL er betra en sápuspænir til
að þvo ull, silki og nælon. Það
freyðir vel, þarf litla skolun og
þvær í köldu sem heitu vatnL
ÞVOL inniheldur efni, sem skýrir
lit í ullartaui. ÞVOL er ótrúlgea
drjúgt.
INNIHALD 750 GR
ENGIN VERÐHÆKKUN
SÁPUGERÐIN FRIGG
ÖræfaferÖir
(Framhald af 1. síðu.)
byggingavörur og áburður. Sparar
þetta mikið fé, því flutningar i
lofti eru óhemju dýrir.
Þessar ferðir austur yfir sanda
hafa oft reynzt hinar mestu svaðil-
farir. Hafa bílar og bílstjórar orð-
ið innlyksa milli vatna og jafnvel
orðið að sækja þá úr lofti.
Olíufélagið ætlar að hefja olíu-
flutninga þangað austur eftir
helgina.