Tíminn - 13.05.1961, Blaðsíða 5

Tíminn - 13.05.1961, Blaðsíða 5
T í MIN N, langardagiun 13. maí 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Frarokvæmdastjóri: Tómas Axnason Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.i, Andrés Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit- stjómar: Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egili Bjamason. - Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305 Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Samvinnutryggingar og árangur þeirra í seinasta blaði var skýrt frá aðalfundi Samvinnu- trygginga, sem var haldinn að Selfossi á þriðjudaginn var. í frásögninni voru birtar nokkrar staðreyndir, sem sýna vel hver hefur orðið árangurinn af þessari starf- semi samvinnumanna. Rekstur Samvinnutrygginga varð hagstæður á síðast liðnu ári og má jöfnum höndum þakka það vaxandi áliti og traustri stjórn fyrirtækisins. Þá mun gengisbreyt- ingin hafa reynzt tryggingafélögunum heldur hagstæð. Alls námu heildartekjur Samvinnutrygginga á síðast liðnu ári 84,7 milljónum króna og höfðu aukizt um 21,3 milljónir frá fyrra ári, eða um 33,5%. Tjónin námu 59,8 milljónum króna, sem er 5,3 milljónum hærri upphæð en árið 1959. Gróðinn, sem varð af starfsemi Samvinnutrygginga, rann hins vegar ekki 1 vasa neinna fárra manna, eins og oft vill verða á þessum vettvangi. Verulegur hluti var end- urgreiddur viðskiptamönnunum, en hitt fór til að styrkja framtíðarrekstur fyrirtækisins, sem er raunverulega sameign margra þúsunda manna í landinu, enda starf- rækt með almannahag fyrir augum. Alls samþykkti aðalfundurinn aS endurgreiða þeim, sem tryggt höfðu hjá félaginu kr. 7.380.906—, sem skiptist þannig á hinar ýmsu tryggingagreinar: Brunatryggingar ............. kr. 2.192.173,00 Bifreiðatryggingar .......... — 1.671.251,00 Dráttarvélatryggingar ....... — 335.666,00 Skipatryggingar ............. — 1.324.724,00 Vörutryggingar .............. — 1.681.628,00 Ferða- og slysatryggingar ... — 78.468,00 Byggingatryggingar ... ...... — 96.996,00 Með þessari endurgreiðslu tekjuafgangs til hinna tryggðu hafa Samvinnutryggingar endurgreitt sam- tals til tryggingartakanna frá því byrjað var að úthluta tekjuafgangi árið 1949, kr. 29.370.940,00. Iðgjalda- og tjónasjóðir félagsins námu í árslok kr. 109,9 milljónum og höfðu aukizt um 24,8 milljónir á ár- inu. Útlán félagsins námu í árslok 62,4 milljón króna. Þær tölur, sem hér eru nefndar, tala glöggu máli um árangurinn af starfi Samvinnutrygginga. Tryggingafé- lagi sem er raunverulega sameign margra þúsunda lands- manna, hefur ekki aðeins komið sér upp gildum sjóð- um, er munu treysta starfsemi þess í framtíðinni og gera því kleift að bjóða betri kjör en ella, heldur hefur það á einu ári endurgreitt viðskiptamönnum sínum 7,4 millj. kr., og alls hefur það endurgreitt þeim 29,4 millj. kr. seinustu 12 árin. Ótalið er svo það, að Samvinnutryggingar hafa átt. stóran þátt í því að bæta tryggingakjörin á þessum tíma. Þetta ér glöggt dæmi þess, hvernig unnt er með sam- vinnustarfinu að veita góða og batnandi þjónustu. og leysa þannig ýms verkefni betur en verða myndi, ef samkeppnin væri eingöngu milli einkafyrirtækja eða ef beitt væri ríkiseinokun, sem lítt myndi taka tillit til viðskiptamannanna, eins og reynsla er fyrir á þeim svið- um, þar sem henni hefur verið beitt hér á landi. / / ) ) ) < / ) ) ) ) $ \ ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) j / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ---------------ERLENT YFIRLíT Verkfallssigur danskra bænda Þeir fengu uppbætur, sem nema 460—500 millj. danskra króna. EINS og 'kunnugt er aí frétt- um, hófu danskir bændur verkfall síðastl. mánudag á þann hátt, að þeir hættu að senda afurðir til vinnslutöðv- anna. Tilefnið var það, að rík- isstjórnin hafði ekki viljað fallast á kröfur, sem samtök þeirra báru fram. Verkfallið stóð í rúma tvo sólarhringa, en þá hafði ríkisstjórnin fallizt á kröfur bænda að langmestu leyti. Danskir bændur unnu þannig nær fullan sigur í fyrsta allsherjarverkfallinu, sem þeir gera, en þátttaka þeiria í því mátti heita alger. Kröfur bænda voru sprottn- ar af því, að landbúnaðar- verkamenn og verkamenn við sláturhús og vinnslustöðvar höfðu farið fram á talsverðar kauphækkanir. Bændur töldu þessar kr'öfur verkamanna ekki ósanngjarnar, en töldu sig ekki geta fallizt á þær, nema ríkis- stjórnin bætti þeim það, ann- aðhvort með uppbótum úr ríkis sjóði eða hæfckun á verði inn- anlands. Bændur töldu sig þurfa fá hækkun, sem næmi samtals 200 millj. kr. til þess að mæta umræddum kaup- hækkunum. Auk þess töldu þeir sig hafa dregizt svo aftur úr öðrum, að þeir þyrftu 350 millj. kr. bætur til að jafna þann halla. Alls námu því kröf- ur þeirra 550 miillj. kr. Ríkiisstjórnin bauðst til að veita þeim bætur, er næmu um 300 millj. kr., en að því vildu bændur ekki ganga. Vegna þess að bændur töldu sig ekki fá viðunanleg svör frá ríkisstjóminni, neituðu þeir að fallast á kauphækkanir til verkamanna á meðan. Verka- menn við sláturhúsin hófu því verkfall. Bændur töldu þá rétt, að þeir létu einnig til skarar skríða og ákváðu að gera alls- herjarstöðvun til þess að knýja stjórnina til þess að taka kröf- ur þeirra til greina. Ríkisstjórnin hafði hótað því, að ræða ekki við bænd- ur meðan á verkfallinu stæði, en féll frá því, er til kom. Hún hóf næstum strax samningavið- ræður við fulltrúa bænda, og Iauk þeim aðfaranótt miðviku- dagsins á þann veg, að stjórnin féllst á að veita bændum bæt- ur, sem taldar eru nema 460— 500 millj. kr. Þær verða veittar á eftirgreindan hátt: RÍKISSTJÓRNIN veitir 210 millj. kr. úr ríkissjóði til sér- stakra uppbóta tij bænda. Upp- bæturnar verða veittar með tvennum hætti eða í fyrsta Iagi, sem ákveðinn styrkur til hvers bús, og í öðru lagi sem ákveðinn styrkur á hverja mjólkandi kú. Styrkur til hvers einstaks bús mun verða milli 800—900 kr., auk 80 kr. fyrir hverja mjólkurkú. Ríkissjóður ver um 75 millj. kr. til styrktar ýmissa fram- kvæmda og aðgerða í þágu út- flutningsframleiðslu landbún- aðarins. Ríkissjóður ver 50 millj. kr. til niðurgreiðslu á áburðar- verði. Ríkisstjórnin gerir ráðstaf- anir til að lækka skatta á land- búnaðinum um 40 miilj. kr. Ríkisstjórnin tekur að sér að sjá um og auka ýmis framlög Karl Skytte landbúnaSarráðherra Dana. til upplýsinga- og eftirlitsstarfa ‘ í þágu landbúnaðarins, einkum hvað, snertir útflutningsfram- leiðsluna. Ríkissjóður skal verj^ a.m.ik. 17. millj. kr. í þéssu- slcyni. Þá skal ríkið veita landbún- aðinum aukna aðstoð og fyrir- greiðslu á ýmsum öðrum svið- um. Loks skal verðlag hækka inn anlands á kjötvörum og land- búnaðurinn fá a.m.k. 50 millj. kr. á þann hátt. Alls er gert ráð fyrir því í samkomulaginu, að bæturnar til landbúnaðarins nemi a.m.k. 460 millj. kr. samkv. útreikn- ingum bændasamtakanna, en 425 millj. kr. samkv. útreikn- ingum ríkisstjómarinnar. Mis- munurinn liggur í því, að erfitt er að áætla suma liðina fyrir- fram. Sumir segja, að þessi framlög geti náð 500 mill. kr. Að sjálfsögðu er hér alls staðar átt við danskar krónur, en ein dönsk króna svarar til 5.50 ísl. kr. MEÐ samkomulagi því, sem hér hefur verið gert, hafa dönsk stjórnvöld fallizt á það í fyrsta sinn í stærri stíl, að veita landbúnaðinum stór fram lög úr ríkissjóði í stað þess að hækka verðlag innanlands. í þessum átökum var það dönskum bændum mikill styrk- ur, að landbúnaður þeirra landa, sem þeir keppa aðallega við, nýtur hvarvetna margvís- Iegra opinberra uppbóta. Þetta gildir t.d. bæði hollenzkan og vestur-þýzkan landbúnað í rík- um mæli. Þá gildir það ekki sízt brezkan landbúnað.'Á fjár- lagaárinu 1960—61 fær brezki landbúnaðurinn um 270 millj. sterlingspunda opinber fram- lög með einum eða öðrum hætti eða um 28600 millj. ís- lenzkra króna. Þar sem þeir, er vinna við brezkan landbún- að, eru taldir um 600 þús., mun láta nærri að þessi fram- lög nemi 45—50 þús. krónum á hvern mann. f höfuðdráttum skiptust þessi framlög í Bret- landi þannig, að 106 millj. sterlingspunda fóru í beina framleiðslustyrki (40 millj. til niðurgreiðslu á áburði, 30 millj. til nautgriparæktunarinn ar sér'staklega og 35 millj. til bygginga og ræktunarstyrkja). Hinn hluti framlaganna fór að mestu leyti í verðuppbætur, þannig fengu enskir bændur t.d. 40% hærra verð fyrir korn vörur en markaðsverðið var. Fyrir danska bændur hefur að sjálfsögðu verið erfitt að keppa á brezka markaðinum undir þeim kringumstæðum, að aðalkeppinautarnir nutu stórfelldra uppbóta. Þess vegna hafa dönsk stjórnarvöld nú einnig orðið að fara inn á þessa braut í stórauknum mæli. Þó njóta danskir bændur enn mun minni aðstoðar í þess- um efnum en bændur í flestum öðrum Vestur-Evrópulöndun- um. Þó er aðstoð þess opin- bera við landbúnaðinn í Vest- ur-Evrópu yfirleitt mun minni en í Bandaríkjunum. Að sjálfsögðu er þessi að- stoð við landbúnaðinn fyrst og fremst veitt til að halda veið- lagi landbúnaðarvaranna niðri og tryggja næga framleiðslu þeirra. Þær eru því raunveru- lega ekki styrkur til bænda, heldur eru beint og óbeint í þágu allra þegna viðkomandi þjóðar. í Bandaríkjunum hafa verið veittir styrkir til landbúnaðar- ins í margs konar formi, m.a. hefur ríkið keypt landbúnaðar- vörur í stórum stíl til þess að koma í veg fyrir verðfall á þeim. Þá hefur bændum einnig verið greitt fyrir að sá ekki í vissan hluta akra sinna og láta þá þannig hvíla sig um skeið. Það er þannig mikill mis- skilningur, sem oft heyrist hér á landi. að íslenzkur landbún- aður njóti meiri opinberrar að- stoðar en þekkist annars dtað- ar. Þ.Þ. •VI-V WiXi-ViX>X» > / ) ) ) ) ) ) ). r ) ) r ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ! / ) ) ) ) ) \ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / (

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.