Tíminn - 13.05.1961, Síða 7
TÍMINN, laugardaginn 13. maí 1961.
7
Alþýðuskólanum á Eiðum var
slitið 30. apríl s.l. Eftirfarandi
upplýsingar um starfsemi skólans
komu fram í skýrslu Þórarins Þór
arinssonar, skólastjóra, sem flutt
var við það tækifæri.
í skólanum voru í vetur 96
nemendur, þar af aðeins 2 úr öðr
um landshlutum. Úr N-Múlasýslu
voru 27, úr S-Múl. 62, frá Seyðis-
firði 4 og frá Neskaupst. 1. Má því
segja að skólinn hafi verið full-
skipaður Austfirðingum og hrökk
þó ekki til, því að fjölda um-
sókna var ekki hægt að sinna s.l.
haust. Nemendur skiptust þannig
milli deilda:
í framhaldsdeild alls 45: lands
prófsdeild 12, bóknámsdeild 14 og
verknámsdeild 19. — í eldri deild
22. í yngri deild 29.
Nemendur voru álíka margir
og undanfarna vetur þrátt fyrir
brunann s.l. sumar, en mun
þrengra var í heimavistum en áð-
ur, t.d. bjuggu 22 piltar í 2 fjöl-
býlisstofum, 11 í hvorri.
Heilsufar var gott framan af
vetri, en laklegt seinni partinn.
Fjarvistarstundir vegna veikinda
urðu að jafnaði um 30 stundir
á nem., og er það nokkuð mikið
miðað við það, sem veri hefur
áður.
Félagslíf var gott. Árshátíð
skólans var haldin í marz. Þá var
m.a .sýndur sjónleikurinn ráðs-
kona Bakkabræðra undir stjórn
Erlings Halldórssonar, leikstjóra
frá Bandalagi ísl. leikfélaga, einn
ig var kórsöngur og sundsýning.
Farið var með leikinn og söng-
inn á Reyðarfjörð 25. marz og
sýnt þar við góðar undirtektir.
Það bar til tíðinda í þeirri för, að
það gekk í byl sýningarkvöldið,
96 nemendur voru í
Eiðaskóla sl. vetur
og urðu allir veðurtepptir og urðu
að gista, alls um 100 manns, því
að flestallir nemendur og nokkrir
kennarar og starfsstúlkur voru í
förunni. Vill skólinn, þótt seint
sé, flytja Reyðfirðingum kærar
þakkir fyrir framúrskarandi mót-
tökur.
Mikill áhugi var á íþróttum í
skólanum, einkum sundi, frjáls-
íþróttum og knattspyrnu, enda
viðraði óvenju vel fyrir útiíþrótt
ir í vetur. Afreksstigi í sundi
náðu 22 nemendur.
Dvalarkostnaður varð nokkru
hærri en s.l. ár vegna verðhækk-
ana á útlendum matvörum í febr.
1960, en kom ekki fram á fæðis-
kostnaði þá, þar sem vörur allar
1 eru keyptar að haustinu. Þessi
| hækkun nam röskum 10%, og
! varð dagfæði pilta kr. 33,00 en
| stúlkna kr. 28,00.
Viðurkenningar og styrkir úr
þeim sjóðum skólans, sem til
þeirra hluta eru ætlaðir, hlutu
eftirtaldir nemendur (þess ber að
geta, að flestir þessara sjóða eru
gamlir og sú upphæð, sem áður
var vænn styrkur, er ekki lengur
mikil sem slík, enda yfirleitt
veitt nú sem viðurkenning fyrir
góðan viðgang í námi fremur en
sesn efnahagsaðstoð):
1. Minningarsjóður Sigurðar Haf-
steins Emilssonar, fyrir háttvísi
og prúðmennsku í trúnaðar-
starfi: Laufey Jörgensdóttir frá
Hellisfjörubökkum í Vopna-
: firði. (Hún var hringjari).
2. Afmælissjóður Eiðaskóla — sá
Skólanum sagt upp 30. apríl s.l.
Tilboð óskast
í jeppabifreiðir, sendibifreið, fólksbifreið og pick-
up bifreið er sýndar verða í Rauðarárporti mánu-
daginn 15. þ. m. kl. 1—3. .
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama
dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
ALLT Á SAMA STAÐ
PAYEN
PAKKNINGAR
PAKKDÓSIR
í FLESTA BÍLA
Sendum gegn kröfu
Egill Vilhjálmsson h. f.
Laugavegi il8 — Símt 22240
Stúlkur
óskast. Upplýsingar í verksmiðjunum ICjörgarði,
efstu hæð, og á Súðavogi 7.
Ultima
Alþýðuskólinn að Eiðum.
4.
sjóður var gefinn af fyrrver-
andi nem. á 75 ára afmæli
skólans, og skal verja til verð-
launa fyrir beztan árangur
eldri-deildarnem. í íslenzku og
íslandssögu: Þórunn Stefáns-
dóttir frá Berunesi við Reyðar-
fjörð.
Stryktarsjóður Jónasar Eiríks-
sonar og Guðlaugar M. Jóns-
dóttur: Sigríður Runólfsdóttir
frá Stöðvarfirði.
Styrktarsjóður H. P. Hansens:
Jón Sigfússon frá Krossi í Fell'
um.
Styrktarsjóður Helga Ólafsson
ar frá Hrærekslæk — sá sjóð-
ur er einkum ætlaður^ nemend
um úr Hróarstungu: Ásta Sig-
urðardóttir frá Fremraseli og
Björn Ágústsson frá Klepp-
járnsstöðum (bæði úr Hróars-
tungu).
Prúðmennskuverðlaun (Veitt
fyrir prúðmannlega framkomu,
og velja námsmeyjar þann,
sem hljóta skal, með leynilegri
atkvæðagreiðslu: Sigurður
Björgvinsson frá Víðilæk í
Skriðdal.
Farandbikar fyrir bezta afrek
1 sundi: Haraldur Benediktsson
frá Búðum í Fáskrúðsfirði.
Árspróf yngri deildar þreyttu
28, og stóðust allir prófið. Hæstu
einkunnir hlutu:
í bóklegum greinum:
Björn Ágústsson Kleppsj.st. 9,02
Karl Stefánss. Kirkj. 8,81
Andrés Filippuss., Dvergast. 8,74
í öllum greinum samanl.:
Björn Ágústss. Kleppj.st. 8,74
Karl Stefánsson, Kirkjubæ 8,40
Andrés Filippuss. Dvergást. 8,23
Burtfararprófi (sem svo er kall
að af gamalli hefð, þótt nemend
ur þeirrar deildar komi flestir í
framhaldsdeild) eldri deildar,
luku 22 nem. Hæstir urðu:
í bóklegum greinupi:
Þórunn Stefánsd. Berunesi 8,24
Jón Sveinsson, Stöðvarfirði / 7,68
Hákon Halldórss., Dalatanga 7,53
í öllum greinum samanl.:
Þórunn Stefánsd., Berunesi 8,20
Jón Sveinsson, Stöðvarfirði 7,57
Hákon Halldórsson, Dalat. 7,62
Nemendur framhaldsdeildar
hafa ekki lokið prófi og eru enn
í skólanum .Bóknáms- og verk-
(Framhald á 6. síðu) 1
..-V.VVV .X*v 'X •X.X.X'-
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 107., 108. og 109. tbl. Lögbirt-
ingablaðsins 1960 á hluta í Eskihlíð 18, hér í bæn-
um, eign dánarbús Sigurðar Jóás Ólafssonar, fer
fram eftir kröfu Kristins Ó. Guðmundssonar hdl.,
og Landsbanka íslands á eigninni sjálfri miðviku-
daginn 17. maí 1961, kl. 3,30 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík
Aðalfundur
Langholtssafnaðar
verður haldinn í safnaðarheimilinu sunnudaginn
15. maí kl. 2 e. h. )
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosningar.
Byggingarmál.
\ , Önnur mál.
Safnaðarnefnd.
'•,X»X*X'X*X.X*X*X*X'X*X*X*X*X»X‘X*V»X*X IX*X*X»X*X*X»X»X«X I
Á víðavangi
Aldrei Iogið í 25 ár
Alþbl. segir í leiðara sínum
sl. fimttntudag, að Hálfdán
Sveinsson bæjarstjóri á Akra-
nesi hafi tekið þátt í opinberum
málum í aldarfjórðung og hann
hafi aldrei verið kallaður ósann-
indamaður fyrr en nú að Tíminn
hafi gert það. Tíminn harmar
það, að Hálfdán skuli á gamals
aldri og eftir alla þessa dyggu
þjónustu við Akranes taka upp
á því nú þegar allt Ieikur í
lyndi í bæjarmálunum og hann
gegnir þessu mikilsverða em-
bætti og kratar meira að segja
í ríkisstjórn, að fara að ljúga
á hinn lúalegasta hátt. Það er
furðulegt þegar menn taka slík
uin sinnaskiptum. Það skyldi þó
ekki vera að um hugarfarsbreyt-
ingu sé EKKI að ræða, heldur
sé það bara giftan, sem hefur
snúið við honum baki. — Eftir
því sem AlþbL segir er þetta
í fyrsta skipti, sem kemst upp
um manninn og það krefst vægra
dóma og skilorðsbundinna. Það
var nú reyndar ekki Tíminn,
sem kvað upp dóminn um bæj-
arstjórann heldur dr. Jón Vest-
dal, forstjóri Sementsverksmiðju
ríkisins, en liann sagði í viðtali
við Tímann, að ekki væri vott-
ur af sannleika í yfirlýsingu
sem bæjarstjórnin hefði gefið
á bæjarstjórnarfundi.
Hvaí sagíi dr. Jón
Vestdal á Hótel Borg?
Hálfdán segir svo í yfirlýsingu
um málið í Alþbl. í fyrradag,
að dr. Jón Vestdal hafi gefið
loforð um þetta í selskap á Hót
el Borg, og manni skilst að
þetta hafi verið all fjölmennur
selskapur. Verður ekki af yfir-
Iýsingu Hálfdáns annað séð, en
gengið hefði verið frá lánstím-
anum til 15 ára, að vextir yrðu
aðeins 6%, sem eru kostakjör
nú í vaxtaokrinu (á sama tíma
cg Sementsverksmiðjan þarf að
greiða 11% af miklum hluta
sinna lána) — allt sbr. yfirlýs-
ingu bæjarstjórans á bæjarstjórn
arfundi. Augljóst er að annar
hvor, Hálfdán Sveinsson eða dr
Jón Vestdal, segir ekki satt
Tíminn hefur fremur tilhneyg
ingu til að treysta dr. Jóni Vest
dal, sem er almenn talinn mað
ur, er efnir meira en hann lof
ar. — Hvort þetta er í fyrsta
skipti scin Hálfdán Siveinsson
lýgur eða ekki, skiptir minna
máli, en varlega skyldu menn
þó trúa Alþbl. að þessi dánu-
maður hafi aldrei logið í 25 ár.
Kornræktin
Nú eru menn að sá korninu
og tekst það vonandi fyrir miðj-
au mánuðinn eins og vera þarf.
Augljóst er að kornræktin verð-
ur vaxandi liður í landbúnaði og
þjóðarbúskap. Áfram þarf að
halda til að framleiða sem mcst
af fóðurbætinum innanlands.
Þetta minnir á, að kornræktin
er ekki jafnmikið studd af þjóð
félaginu og önnur ræktun. Úr
þessu þarf að bæta sem skjótast.
f því skyni hafa þeir Ásgeir í
Ásgarði og Páll Þorsteinsson
flutt frumvarp á tveimur þing-
um í röð um að styðja kornrækt-
ina meira en áður og sambæri-
lega við aðra ræktun. Stjórnar-
liðið hefur á þessum tveimur
þingum svæft málið. Veldur því
vafalaust sambland af þeirri kyrr
stöðu og tregðu, sem einkennir
stjórnarstefnuna og þeirri minni
máttarkennd, sem veldur því að
stjórnarflokkarnir hafa ekki
manndóm til að samþykkja eitt
cinasta mál, sem ekki er flutt
af þeim sjálfum. En Pramsókn-
armenn munu halda áfram bar-
áttu fyrir stuðningi við kornrækt
ina þangað til sigur vinnst.