Tíminn - 13.05.1961, Síða 12
12
T í MIIV N, laugardaglnn 13. mtíi 1985.1
Knötturinn hafnar í Valsmark-
inu. Ingvar Elísson, sem skoraði
markið, sést ekki á myndinni, en
félagi hans, Jóhannes Þórðarson,
fylgist spenntur með, er knött
urinn lendir i netinu.
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
VALUR SÓTTI MEIR
Valsmenn komu talsvert á ó-
vart með því að sækja mun meir
í fyrri hálfleiknum, en enginn
þeirra var á skotskóm í leiknum,
og i því fór svo, að þrátt fyrir
sæmileg tækifæri, tókst þeim
ekki að skora. Verst fór þó Björg
vin Daníelsson með gott tæki-
færi, þegar hann spyrnti knett-
inum framhjá marlcinu, eftir að
hafa ko'mizt einn inn fyrir vörn
Akurnesingar sigruðu Val í
slökum afmælisleik með 1-0
Bakveröir Vals, Árni Njálsson, tíl vinstri i markinu, og Þorsteinn
Friðþjófsson eru vel staðsettir, þegar Guðjón Einarsson tók þessa
mynd af einu upphlaupi Akurnesinga. Gunnlaugur markvörður
Hjálmarsson hefur hlaupið út og slær knöttinn frá Aðrir á mynd-
inni eru Halldór Halidórsson, Hans Guðmundsson, og hinir ungu
sóknarmenn Akurnesinga, Skúli Hákonarson og Jóhannes Þórðarson.
„Það er ekki hægt fyrir
leikmenn að gefa jarðarknetti
með neinu öryggi, vegna þess
hve völlurinn er slæmur,"
sagði Helgi Daníelsson, fyrir-
liði Akurnesinga, eftir afmæl-
isleik Vals við Akurnesinga á
uppstigningardag. Og hann
bætti við og glotti. „Ég er viss
um, að ef 1. flokkur KR hefði
átt að leika þá hefði völlurinn
verið valtaður, en því var nú
ekki að hejlsa að þessu sinni."
Og það er rétt, sem Helgi seg-
ir um völlinn. Það er ekki hægt
að sýna knattspyrnu, sem heitið
getur því nafni, á Melavellinum
í dag, og auðvitað einkenndist
afmælisleikur Vals alveg af þess-
um lélegu aðstæðum. Leikurinn
í heild var slakur og spenna lítil
og völlurinn svo þungur, að nokk
ur hraði að ráði er óhugsanlegur.
Akurnesingar sigruðu með eina
markinu í leiknum, en jafntefli
eða jafnvel öllu heldur sigur
Vais hefði gefið rétt^ri mynd um
gang leiksins.
Akurnesinga. Akurnesingar áttu
nokkur snögg upphlaup, og tvisv-
ar skaut Þórður Jónsson hörku-
skotum, en rétt framhjá, en í báð
um tilfellum hefði verið betra
að gefa fyrir markið, þar sem
Þórður var í mjög vonlítilli að-
stöðu til að skora.
KLAUFAMARK GUNNLAUGS
Þ*egar um 10 mín. voru af síð-
ari hálfleik tókst Akurnesingum
að skora sitt eina mark í leikn-
um. Eftir nokkuð sæmilegt upp-
hlaup fékk Ingvar Elísson knött-
inn í vinstra vítateigshorninu, lék
aðeins nær og spyrnti síðan í mót
stætt markhorn. Spyrnan var ekki
föst, en áhorfendum til undrunar
rann knötturinn framhjá Gunn-
laugi og í mark. Þetta voru slæm
mistök hjá honum, og leiðinlegt,
að Gunnlaugi skyldi verða þetta
á, því hann sýndi að öðru leyti
ágætan leik, og ætti með góðri
tilsögn að geta orðið langfremst-
ur íslenzkra markvarða. Hann hef
ur allt til að bera í stöðuna, get-
ur kastað knettinum jafnlangt út
og aðrir spyrna, hefur góð grip
og snöggur í meira lagi.
Þrátt fyrir markið sóttu Vals-
menn lengi vel meir í hálfleikn-
um og það var ekki fyrr en síð-
ustu 15 mínúturnar, að Skaga-
menn náðu yfirhöndinni. Þó tókst
þeim ekki að skora fleiri mörk,
en Valur var nærri að jafna rétt
fyrir leikslok, en Hörður Felix-
son spyrnti yfir markið af tveggja
metra færi, og rétt áður hafði
Helgi Dan. varið gott skot frá
Skúla.
NOKKUR VONBRIGÐI
Eftir þeim fréttum, sem farið
hafði af Akurnesingum, urðu á-
horfendur fyrir nokkrum von-
brigðum með leik liðsins — en
auðvitað er ekki hægt að gera
sér grein fyrir styrkleika þess
við þær aðstæður, sem voru í
leiknum. Helgi Daníelsson var
öruggur í markinu, og varði létt
sem kom á markið. Vöm liðsins
er nokkuð losaraleg, þó Kristinn
Gunnlaugsson væri sterkur . á
miðjunni. Sveinn Teitsson íék
skemmtilega sem framvörður og
verður greinilega jafn góður í
sumar og undanfarin ár. Ingvar
Elísson er að verða mjög
skemmtilegur leikmaður, fylginn
sér og dreifir spilinu vel. Þórð-
ur Jónsson átti góða spretti fram
an af og Jóhannes Þórðarson er
nettur leikmaður. Hins vegar
skortir nokkuð á hjá innherjum.
Valur er að, fá ágætt lið og það
eru margir leikmenn,. sem I$eppa
um sumar stöðurnar. Matthías,
Bergsteinn og Björn Júlíusson
léku ekki með í þessum leik, en
þetta eru allt leikmenn, sem eru
á góðum mælikvarða hér. Halldór
Haildórsson lék nú með. Val að
nýju, og átti ágætan leik, þrátt
fyrir litla æfingu. En fyrir Val
er mjög mikill styrkur að fá Hall-
dór með að nýju. Þá átti Árni
Njálsson einnig ágætan leik í
vörninni. Ormar Skeggjason er
mjög drjúgur framvörður og
Hans Guðmundsson, sem lék
vinstri framvörð, er bráðefnileg-
ur leikmaður. Flestir leikmenn í
framlínunni hafa sæmilega knatt-
meðferð, en hraða og ákveðni
skortir. Skúli Skúlason lék á
vinstra kanti — en hann lék í
fyrra með Keflavíkurliðinu — og
virðist falla mun betur í Valslið-
ið. Einleikstilraunir hans eru þó
oft rpiklar. En aðalgalli framlín-
unnar var hve innherjarnir eru
svifaseinir.
Dómari í leiknum var Jörundur
Þorsteinsson og þurfti lítið að
grípa til flautunnar, enda leikur-
inn mjög prúðmannlega leikinn.
Fram vann
Þrótt 4 - 0
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu
hélt áfram á miðvikudagskvöld og
léku þá Fram og Þróttur. Leikur-
inn var mjög daufur og lið Þrótt-
ar sýndi lítinn baráttuvilja, Fram
fór með öruggan sigur af hólmi,
skoraði fjögur mörk gegn engu.
f hálfleik var staðan 1—0. Staðan
í mótinu eftir þennan leik er
þannig:
1. Fram 3 2 0 1 7—3 4
2. Valur 2 110 7—3 3
3. K.R. 2 10 1 3—3 2
4. Víkingur 3 1 0 2 2—6 2
5. Þróttur 2 0 11 2—6 1