Tíminn - 13.05.1961, Side 16
Laugardaginn 13. maí 1961.
107. Ma».
Bazar og kaffi-
sala á sunnudag
Sunnudaginn 14. maí halda
konur í Styrktarfélagi vangef-
inna bazar og kaffisölu í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut.
Konurnar hafa undanfarna
vetur haft með sér fundi einu
sinni í mánuði. Þessir fundir
hafa stuðlað að auknum kynn-
um og samvinnu mæðra og:
annarra aðstandenda vangef-
ins fólks. Margar aðrar konur
hafa sótt fundina af einskær-
um áhuga og hjálparvilja. Baz-
arinn í dag er eins og þeir sem i
áður hafa verið haldnir, árang-
ur af miklu og óeigingjörnu
starfi þessara kvenna. Kven-
félög úti um land hafa einnig
sent marga muni á bazarinn
og sýnt þannig áhuga og skiln-
ing á þessari starfsemi.
Félagskonur í Styrktaifélagi
vangefinna eiga sér sjóð. í hann
renna allar tekjur af fjáröflunar-
starfsemi þeirra. Fé úr sjóðnum á
aðallega að verja til þess að búa
núverandi og tilvonandi vistheim-
ili vangefins fólks húsgögnum
(Framhald á 2. síðu).
Ingimar í Fagrahvammi skoðar Ijónsmunnabreiðu í einu gróðurhúsa Gunnars Björnssonar að Álfafelli.
Reykvíkingar kaupa 80
þúsund blóm á morgun
SÍLD upp í
fjörusteinum
Staðarsveit, maí.
Síldarbátarnir hafa verið
hérna fyrir framan sveitina,
og á kvöldin glampa skær Ijós
þeirra vinalega í vorblíðunni.
Margur landkrabbinn opnar
þá gjarnan tækið sitt og hlust-
ar á, hvernig gangi með sild-
ina þarna fyrir framan!
Símon bóndi í Ytri-Görðum,
tjáði undirrituðum frá því, að 4.
maí hefði hann séð allmikla síld
artorfu vaða mikinn framundan
bæ sínum, um 50 faðma frá landi.
Væri því stutt á miðin, ef einhver
væru til veiðarfærin.
S. I. þriðjudag buðu garð-1
yrkjubændur blaðamönnum i
austur í Hveragerði til þess að J
skoða þar gróðurhús. Svo sem
kunnugt er, er mæðradagur-
linn á morgun, sunnudag, og
er þá venjulega mikið að gera
hjá þeim, sem rækta og selja
blóm, enda telja kunnugirj
menn, að 60—80 þúsund blóm j
seljist þennan dag í Reykjavíkj
einni.
i
Mæðradagurinn er helgaður I
mæðrunum, sem bera þyngstarj
byrðar heimilislífsins, og tíðkast
það um allan heim, að eiginmenn
og börn gleðji mæðurnar með
því að gefa þeim blóm.
Gleðjið mæðurnar meí blómum um leitJ og gott
málefni er styrkt
Gróðurhúsinu var
breytt í sundlaug
Það var árið 1929, að Sig-
urður heitinn Sigurðsson, bún-
aðarmálastjóri, byggði fyrsta
gróðurhúsið í Fagrahvammi á
bökkum Varmár í Hveragerði.
Að Fagrahvammi býr nú Ingi-
mar, sonur Sigurðar, og hinu
aldna gróðurhúsi hefur nú
verið breytt í sundlaug.
Þeim, sem að Fagrahvammi
koma, verður oft að orði, að þar
sé Paradís á jörðu. Þar blasa við
augum vel hirtar grasflatir, hejj-
armikil gróðurhús, glæsilfiít íbúð
arhús, og umgengni er öll til slíkr
ar fyrirmyndar, að unun er á að
horfa.
Myndin hér að neðan sýnir
grunn gróðurhússins gamla, sem
Ingimar hefur nú breytt í sund-
laug.
Blómvendir fyrir 20 kr.
í Hveragerði og í Mosfellssveit
er framleitt megiixmagn þeirra
blóma, sem á markað koma í
Reykjalvik. Úrvalið verður með
hverju ári meira og betra, og er
verðinu mjög stillt í hóf. Þannig'
verður til dæmis hægt að kaupa
mjög snotra blómvendi fyrir 20
krónur á sunnudaginn, og getur
það vart talist dýrt.
Blómaúrvalið er að sjálfsögðu
misjafnt eftir árstíðum. Þau
blóm, sem nú eru helzt á mark-
aðinum eru levkoj, ljónsmunni,
rósir, baunablóm, gerbera, nell-
ikur, gladiolur, ixia og iris. Þá er
einnig hægt að fá mikið úrval af
pottablómum, bæði grænum plönt
um og blómstrandi.
Ingimar í Fegrahvammi ræktar rósir nær einvöröungu á 2000 fermetrum
undir gleri. Hér má finna rósir í öllum litum.
Blómaverzlanir í Reykjavík,
sem margar eru í Alþjóðasam-
bandi blómaverzlana, og geta ann
azt blómasendingar um heim all-
an, verða opnar frá kl. 10—3 á
sunnudaginn.
Hófst 1934
Það voru tvær konur í Reykja-
vík, sem innleiddu mæðradaginn
á íslandi um 1934, þær Ólafía Ein
arsdóttir og Ásta Jónsdóttir, sem
þá ráku verzlunina Blóm og ávext
ir. Siður þessi var þá mjög tíðk-
aður erlendis, m.a. í Danmörku,
og reynslan hefur orðið sú, að
íslendingar hafa ekki síður kunn-
að að meta þennan sið, en aðrar
þjóðir.
Blómaræktun hefur á síðari ár-
um orðið all umfangsmikill at-
Eggjataka
í kvöld
Eins og skýrt hefur verið frá
bér í blaðinu fyrr í þessari viku,
verður farið í eggjatöku-ferð á
Akrafjall á vegum Ferðaklúbbs
F.U.F. i Reykjavík í kvöld. Þátt-
taka er þegar orðin svo mikil að
fleiri komast ekki með. Þátttak-
endur þurfa að sækja farmiða
sína í dag í skrifstofu Fulllrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Framsókn
arhúsinu. Farið verður frá Fram-
íóknarhúsinu i ferðina kL 22.00 í
kvöld. Það skal tekið fram, að
leyfi eru fengin til eggjatökunn-
ar.
vinnuvegur. Þannig rækta nú til
dæmis 30 garðyrkjubændur blóm
í Hveragerði og 12 í Mosfells-
sveit. Sumir þessara bænda rækta
einnig grænmeti o.fl., en leggjq
aðaláherzluna á blómin.
Sá, sem stærst gróðurhús á í
Hveragerði er Gunnar Björnsson,
bóndi að Álfafelli. Hann ræktar
blóm eingöngu á 3000 fermetra
svæði undir gleri. Má sjá, að hér
er um umfangsmikinn rekstur að
ræða, þar eð fermeterinn af gróð
urhúsi kostar um 700 krónur. Ýms
ir bændur aðrir eiga einnig stór
gróðurhús, t.d. Ingimar Sigurðs-
(Framhald á 2. síðu)
Aðalsteinn Steindórsson,
starfsmaður að Lækjarbakka, með
fangið fullt af blómum.