Tíminn - 16.05.1961, Side 3
TÍMINN, þriðjudagimn 16. maí 1961,
3
Hafrannsóknaskipið Johan Hjort. (Ljósm.: TÍMINN, G.E.)
Norskt hafrannsókna-
skip í Reykjavík
Síðdegis í gær kom norska
hafrannsóknaskipið Johan
Hjort inn í Reykjavíkurhöfn.
Blaðið hafði tal af Drattberg
leiðangursstjóra og aðstoðar-
manni hans. Kváðu þeir skipið
vera að koma úr Grænlands-
leiðangri og vera á heimleið.
Þeir hafa um nokkurra vikna
skeið stundað þar hafrann-
sóknir, mælt hita og seltu
sjávar, og einnig veitt á línu
til þess að hyggja að fiski-
magni.
Johan Hjort verður í Reykja-
víkurhöín næstu viku, en leið-
angursmenn ætla á meðan að hafa
samráð við fiskifræðinga hér. Síð
an munu þeir leita síldar fyrir
vestan fsland í nokkra daga, áður
en þeir halda heim á leið. Leið-
angur skipsins til Vestur-Græn-
lands var liður í alþjóðlegum haf
rannsóknum á Norður-Atlantshafi,
John Hjort er eitt af tveimur
systurskipum, sem Norðmenn
eiga til hafrannsókna. Það er
þriggja ára gamalt og mjög lag-
legt skip eins og sjá mé á mynd
inni.
Guðbjartur
Olafsson
látinn
Guðbjartur Ólafsson, forseti
Slysavarnafélagsins, andaðist í
fyrrinótt, 72 ára að aldri. Hann
var ættaður úr Barðastrandar-
sýslu, lagði ungur stund á sjó-
mennsku og lauk stýrimannaprófi
1911. Varð hann fljótt skipstjóri
á fiskiskipum, og þjargaði hann á
skipstjórnarárum sínum fjórum
skipshöfnum, 38 mönnum, úr
sjávarháska á einum og sama
degi.
1929 gerðist hann hafnsögumað
ur í Reykjavík, og tók upp frá
því mikinn þátt í samtökum sjó-
manna, og formaður Slysavarna-
félagsins var hann allar götur
síðan 1940.
Hittast Kennedy
og Krústjoff?
NTB—Washington, 15. maí.
Síðustu dagana hefur verið
þrálátur orðrómur uppi um
það, að haldinn verði innan
tíðar fundur leiðtoga Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna til
þess að hindra það, að Genfar
| anna og Bandaríkjanna sé undir
' viðbrögðum sovézka nefndar-
mannsins á Genfarráðstefnunni,
I Tsarapkin, kominn, en hann hef-
ur hótað því að yfirgefa ráðstefn
una, ef Frakkar hætti ekki þegar
í stað tilraunum sínum með kjarn
orkuvopn.
ráðstefnan um bann við til-
raunum með kjarnorkuvopn
fari út um þúfur.
Eftir pólitískum aðilum í Was
hington er það haft, að frásagn-
irnar um það, að Kennedy og
Krustjoff muni hittast, væntan-
lega í byrjun júní, séu eitthvað
orðum auknar. Hins vegar er það
undirstrikað rækilega, að slíkur
fundur æðstu manna Sovétríkj-
Richard Nixon, fyrrv. varafor-
seti Bandaríkjanna og keppinaut-
ur Kennedys forseta í síðustu for
setakosningum, hefur eindregið
hvatt forsetann til þess að koma
á slikum fundi með Krustjoff, og
tveir öldungadeildarþingmenn
demokrata, Mike Mansfield og'
Hubert Humphrey, hafa sömuleið
is lagt að forsetanum að fara inn
an tíðar til fundar við Krustjoff
í Evrópu.
19 ára pilt-
ur öruknar
Féll í sjóinn af trillubát undan Kjalarnes
töngum á laugardag
Alþýðusamband Norðurlands
hyggst knýja fram kjarahót
Um helgina var háð á Akur-
eyri 7. þing Alþýðusambands
Norðurlands, og sóttu þingið
34 fulltrúar frá 15 samhands-
félögum ásamt forseta Alþýðu
Efnt til
mannsafnaðar
Ósamkomulag í miðnefnd
Samtaka hernáms
andstæíiinga
Tímanum barst í gær fréttatil-
kynning frá Samtökum hemáms-
andstæðinga, þar sem m.a. var
skýrt frá því, að þau myndu efna
til mannsafnaðar við stjórnarráðs
húsið síðdegis í dag, þegar
Robert L. Dennison aðmíráll, yfir
foringi Atlantshafsbandalagsins á
Norður-Atlantshafssvæðinu, ræðir
við ríkisstjórnina.
í tilefni af þessu átti Tíminn
viðtal í gærkveldi við Sigurvin
Einarsson, alþingismann, sem á
sæti í miðnefnd Samtaka hernáms
andstæðinga. Hann kvað ágreining
hafa verið um þetta í miðnefnd-
inni og hefði hann lýst sig ein-
dregið andvígan því, að efnt yrði
til mannsafnaðar í sambandi við
komu þessa manns, þar sem hann
teldi slík vinnubrögð óheppileg.
sambands íslands, Hannibal
Valdimarssyni.
Mikilsverðustu umræðurnar á
þinginu voru, sem vænta mátti,
um kjara- og atvinnumál. Voru
samþykktar ýtarlegar ályktanir
um bæði þessi mál.
Það kom glöggt fram á þing-
inu, að fulltrúarnir töldu óhjá-
kvæmilegt, að knúnar yrðu fram
kjarabætur á þessu vori, og var
lögð áherzla á, að félögin hefðu
sem nánast samstarf með sér um
allar aðgerðir í þessum efniun,
m.a. ef grípa yrði til verkfaUs-
aðgerða. Það kom fram, að tvö
félög á sambandssvæðinu hafa
þegar boðað verkfall, og að fleiri |
myndu gera það á næstunni, ef
samningar takast ekki án þess.
Á þinginu voru einnig gerðarj
ályktanir um landhelgismál og her |
stöðvamálið og samþykktar ýmsar|
tillögur um smærri mál. Þinginuj
lauk á sunnudagskvöldið. Tekin
voru í sambandið þrjú verka-
kvennafélög, sem sótt höfðu um
upptöku á árinu. Voru það Orka á
Raufarhöfn, Aldan á Sauðárkróki
og Báran á Hofsósi. Þingforsetar
voru Gunnar Jóhannsson frá Siglu
firði og Þorgerður Þórðardóttir
frá Húsavík. Forseti sambandsins
er Tryggvi Helgason á Akureyri,
en með honum í miðstjórn eru:
Björn Jónsson varaforseti, Freyja
Eiríksdóttir ritari og Jón Ingimars
son og Stefán Snæbjörnsson, með-
stjórnendur.
Um sexleytiS síðdegis á laug
ardaginn varð það slys undan
Kjalarnestöngum, að 19 ára
gamall piltur, Valmundur
Sverrisson, Norðurgötu 51 á
Akureyri, drukknaði af trillu-
bátnum Örnólfi.
1 um, og leitaði því aðstoðar báta,
sem nærstaddir voru. Leituðu bát
j arnir Valmundar lengi, en án ár-
; angurs.
, Lúðvík hélt þá í höfn við svo
j búið og tilkynnti lögreglunni slys
ið um níuleytið.
Með Valmundi var á _bátnum Farnír að veiða
annar maður, Lúðvík Árnason,
Karfavogi 39 »ér í bæ.
Hvarf útbyrðis.
Báturinn var sem fyrr segir
staddur út af Kjalarnestöngum,
og var Lúðvík að reyna að koma
vélinni í gang er slysið bar að
höndum. Þegar hann leit upp frá
vélinni, var Valmund hvergi að
sjá í bátnum og vissi Lúðvík ekki,
með hvaða hætti hann hafði horf-
ið. Sá hann hvergi til hans í sjón
Drengur fyrir bíl
Drukkinn ökumaður
á f erð í Keflavík
Ók á tvo bíla og ljósastaur og sofnatSi síðan
undir stýri
Um hálfeittleytið aðfaranótt
sunnudagsins var Keflavíkur-
lögreglunni sagt frá ölvuðum
bílstjóra, sem valdið hafði
talsverðum usla með akstri
smum.
Skömmu fyrir kluikkan sex í
gærdag varð það slys á mótum
Suðurlandsbrautar og Grensás-
vegar, að sjö ára gajnall drengur',
Þórhallur Kárason, Álfheimum 40,
varð fyrir bíl. Sjúkrabíll fluttij Ökumaður þessi var að koma
Þórhall á slysavarðstofuna. Kvart-j af dansleik, sem haldinn var í
aði hann um eymsli í fæti, en ekki' samkomuhúsi Njarðvíkur. Ók
er blaðinu nánar kunnugt um1 hann fyrst utan í tvo bíla, sem
meiðsli. i stóðu hjá samkomuhúsinu, og
skemmdi þá nokkuð. Síðan hélt
hann áfram för sinni niður í bæ-
inn, og á leiðinni ók hann utan
í ljósastaur. Skemmdist bíllinn
mikið, bæði bretti og hurðir öðru
megin. Staurinn gekk nokkuð til,
og ljósastæðið datt í götuna og
brotnaði. Hélt maðurinn enn á-
fram ferðinni, en nam staðar inn
an skamms. Lögreglaumenn komu
á vettvang nálega tveimur mínút
um eftir að ökuþórinn nam stað-
ar, og var hann þá þegar sofnað-
ur, enda öfurölvi.
humar
Hornafirði 15. maí. — Allir
bátarnir hérna eru nú hættir
vetíðarróðrum, en þess í stað
eru nú hafnar humarveiðar.
Báturinn Sævaldur, sem var
vélarlaus í lamasessi í vetur,
er búinn að fara fyrsta humra
róðurinn, og féklc 70 körfur
á hálfum öðrum degi. Þykir
það dágott.
Það cru mörg handtökin við
verkun humarsins, en það er mik-
ill kostur, að hægt er að setja
hann inn á frysti og taka hann
þaðan eftir hendinni til þess að
jafna vinnuna. Talsvert magn af
humar barst hér á land í fyrra,
en þá var þetta ný útvegsgrein
hér. Þá lögðu bátar af Austfjörð
um hér upp humarafla, og má
búast við hinu sama einnig í ár,
því að miðin eru hér vestur und
an. Líklegt er, að fleiri heima-
bátar sigli einnig í kjölfar Sæ-
valds á humarmiðin. Þessi nýja
ativinnugrein virðist ætla að
reynast vel. A.A.
í gær var það slys á Faxabraut í
Keflavík, að tæplega þriggja ára
gömul telpa, Brla Þorbjörnsdóttir,
varð fyrir bíl. Telpan meiddist
ekki að ráði, en hlaut skrámu á
enni.