Tíminn - 16.05.1961, Blaðsíða 12
12
TÍMINN, þriSjudaginn 16. maí 1961
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
Fyrsta írjálsíþróttámót sumarsins:
Kúluvarp Guðmundar
var Ijósi punkturinn
Fyrsta mark KR í leiknum við Þrótt. — Þórolfur spyrnti á markið af löngu færl, og markmaður Þróttar missti
knöttinn yfir sig í markið. Ljósmynd: Tíminn, GE.
Loks fór KR - vélin í gang
KR sigraði Þrótt með 8—0 í Reykjavíkurmótinu
Gunnar Felixson skoraSi fimm af mörkunum
Þá Ioksins komst KR-vélin
í gang og þótt mótstaða Þrótt
ar i Iciknum f Reykjavíkur-
mótinu á sunnudaginn hafi
ekki verið mikil er þetta þó
fyrsti leikurinn I vor, sem
eitthvað minnir á fyrri getu
liðsins. Mörkin urðu átta,
sem KR skoraði, en sum voru
afar ódýr, og það var ekki
fyrr en KR var marki yfir,
að vel losnaði um leik liðs-
ins. Þetta er sama einkennið
og áður. KR-liðið nær ekki
góðum leik fyrr en það hef-
ur skorað eitt til tvö mörk.
I
I
Fyrsti hálftíxni leiksins var
þófkenndur. KR-ingar voru yfir
leitt alltaf í sókn, en leikur liðs-
ins alltof þröngur, framverðirnir
sóttu og langt fram, sem gerði
það að verkum, að meginhluti
leikmanna var staðsettur við víta
teig Þróttar og því lítið hægt að
skaþa eyður og koma vörn Þrótt-
ar úr jafnvægi. Það eyðilagði tals
vert leikinn, að talsvert rok af
suðri var meðan hann fór fram,
og var því oft erfitt að hemja
knöttinn.
! með föstu skoti, sem markmaður
TVO KLAUFAMORK Þróttar varði aðeins til að missa
Þegar tæpur hálftími var af knöttinn undir sig í markið.
leik skoraði Þórólfur Beck fyrsta
mark KR með góðu skoti frá víta FJÖGUR MÖRK GUNNARS
teig, sem þó hefði átt að vera létt Og síðan tók Gunnar Felixson
að verja. Þórður Ásgeirsson lék. við að skora og á tæpum 25,
ekki í marki Þróttar, en varamað
ur hans stóð ekki í hlutverki sínu.
KR-ingar skoruðu annað mark
fyrir hlé, einnig eftir mistök
cnarkvarðar Þróttar. Hættulaus
knöttur að því er virðist kom að
marki Þróttar, en markmaðurinn
hikaði, sem var til þess, að Ell-
ert Schram náði knettinum og
lagði hann fyrir fætur Gunnars
Felixsonar, sem skoraði auðveld-
lega. '
MUN BETRI LEIKUR
Leikur KR í síðari hálfleik var
mun betri og oft ágætur, þegar
líða tók á hálfleikinn. Sigurinn
var öruggur og aðeins spurning
hve mörkin yrðu mörg.
Og markatalan jókst fljótt. Eft-
ir sex mín. voru mörkin orðin
fjögur. Þriðja markið í leiknum
skoraði Ellert Schram eftir að
Þórólfur hafði leikið á vörnina
og sent til Ellerts, sem aðeins
þurfti að spyrna knettinum í autt
markið, en markmaður Þróttar
var á flani úti í vítateignum. —
Fjórða markið skoraði Þórólfur
mín. skoraði hann fjögur mörk
og uriiu mörk hans í leiknum
því fimm, en hann skoraði eitt
■mark í fyrri hálfleik. Þetta voru
beztu mörk leiksins. Fyrsta
mark sitt skoraði Gunnar eftir
mjög góða samvinnu við Svein
Jónsson, en þeir léku saman
gegnum vörn Þróttar — og
Sveinn átti einnig mikinn þátt
í tveimur öðrum mörkum Gunn
ars. Gunnar Felixson, sem er
yngstur Felixbræðranna, en
Hörður og Bjarni leika einnig
í KR-liðinu, sýndi á þessu tíma
bili glæsilegan leik. Hann er
mjög fljótur og hljóp því vörn
Þróttar létt af sér ,og skot hans
voru föst og hnitmi'ðuð.
Og þess má geta, að Gunnar
skoraði eitt ágætt mark til við-
bótar í leiknum, en vegna kunn-
áttuleysis línuvarðar var það
dæmt af og forsendan rangstaða.
Þeir gleyma því oft línuverðirnir,
að leikmaðurinn verður að vera
(Framhald á 15 síðu).
Fyrsta frjálsfþróttamót
sumarsins var háð á Mela-
vellinum á sunnudaginn og
var kalt í veðri og hvasst og var
því árangur á mótinu heldur
lélegur, og margir lögðu ekki
í að keppa við þær aðstæður.
Bezti árangurinn var kúlu-
varp Guðmundar Hermanns-
sonar, en hann varpaði 15,71
metra.
Nokkrar greinar voru felldar
niður vegna óhagstæðs veðurs og
aðrar voru ekki svipur hjá sjóri
t.d. stangarstökkið og spretthlaup
in, en mikill mótvindur var í
þeim. Helztu úrslit urðu þessi:
Kúluvarp, aukakeppni:
1. Guðm. Hermannsson KR 15,71
2. Gunnar Huseby, KR 14,39
3. Friðrik Guðmundsson KR 13,85
4. Brynjar Jensson HSH^ 13,25
5. Vilhjálmur Einarsson ÍR 12,85
Ekki virðist Gunnar Huseby
beint hafa verið ánægður með
árangur sinn, því hann sást við
æfingar á KR-svæðinu nokkru
eftir mótið.
100 m Jhlaup:
1. Valbjörn Þorláksson, ÍR 11,5
2. Guðm. Hallgrímsson, ÍBK 11,8
3. Vilhjálmur Einarsson, ÍR 11,9
4. Konráð Ólafsson, KR 12,3
100 m. hlaup kvenna:
1. Rannveig Laxdal, ÍR 14,2
2. Guðlaug Steingr.d., USAH 14,9
3. Ásta Karlsdóttir, ÍR 15,1
4. Edida Ólafsdóttir, ÍR 15,4
200 m. grindahlaup:
1. Sigurður Björnsson, KR 27,2
2. Guðm. Hallgrímsson, ÍBK 28,0
3. Sigurður Lárusson, Á 28,2
Fram sigraði
í gærkvöldi léku Fram og Valur
í Reykjavíkurmótinu. Leikar fóru
þannig, aS Fram sigraSi meS S mörk
um gegn 1. Nánar á morgun í biaS-,
inu.
800 m. lilaup unglinga:
1. Friðrik Friðriksson, ÍR 2:13,4
2. Valur Guðmundsson ÍR 2:15,0
3. Þorgeir Guðmundss. KR 2:16,6
4. Daði Jónsson, Breiðb. 2:17,3
Árangur drengjanna, einkum
Friðriks, er athyglisverður miðað
við veður.
3000 m. hlaup:
1. Kristleifur Guðbj.s. KR 9:11,2
2. Agnar Leví, KR 9:34,0
3. Már Hallgrímsson ÍBK 9:50,8
Hástökk:
1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 1,90
2. Sig. Lárusson, Á 1,75
Stangarstökk:
1. Valbjöm Þorláksson, ÍR 3,80
2. Brynjar Jensson, HSH 3,70
3. Valgarður Sigurðsson, ÍR 3,70
Kringlukast:
1. Hallgrímur Jónsson Á 47,25
2. Þorsteinn Löve, ÍR 46,00
3. Friðrik Guðmundss. KR 45,90
4. Guðjón Guðmundsson KR 42,41
4x100 m. boShlaup:
1. ÍR 46,1
2. KR 46,3
3. Ármann 47,0
GUÐMUNDUR HERMANNSSON
— bezti árangurinn
Akureyri sigraði
Norðurlandamethafi í skriðsundi
keppir í Sundhöllinni í kvöld
Á laugardag var Gísli Halldórs
son, formaður ÍBR staddur á
Akureyri og við þa'ð tækifæri af-
henti hann Sundráðl Akureyrar
skjöld, sem Vélasalan h.f., Reykja
vík, gaf til keppni milli Akur-
eyrar, Hafnarfjarðar og Reykjavík
ur innan ramma Norrænu sund-
keppninnar s.l. sumar.
Er þetta í þriðja sinn, sem
slík keppni milíi þessara þriggja
bæjarfélaga fer fram, en fyrstu
keppnina vann Hafnarfjörður og
hlaut til eignar bikar, sem Véla-
salan gaf einnig, en 1957 sigraði
Akureyri og hlaut til eignar bik
ar, gefinn af íþróttabandalagi
Hafnarfjarðar.
S.l. sumar syntu 24,9% af Akur
eyringum í Norrænu sundkeppn-
inni, í Hafnarfirði nam þátttakan
21,9% og í Reykjavík 18,4%. —
Vann Akureyri skjöld Vélasölunn
ar til eignar.
Formaður sundráðs Akureyrar,
Hermann Stefánsson, veitti skild-
inum viðtöku' Viðstaddir afhend-
ingu voru Magnús Guðjónsson,
bæjarstjóri Akureyrar og Her-
mann Sigtryggsson, varaformaður
ÍBA. i
Á sundmeistaramóti Reykja
víkur, sem hefst í kvöld kl.
8.30 í Sundhöllinni, keppa
meðal annars tveir sænskir
gestir við bezta sundfólk okk
ar að undanskilinni Hrafn-
hildi Guðmundsdóttur, sem
slasaðist fyrir nokkrum dög-
um, eins og skýrt hefur ver
ið frá hér á síðunni.
Bezta skriðsundkona Svía á
styttri vegalengdum, Karin
Grubb, se:n er Norðurlandamet-
hafi í 100 m. skriðsundi á 1:04,1
mín. keppir á þeirri vegalengd
við Ágústu Þorsteinsdóttur, sem
er íslenzkur methafi og er met
— Tveir sænskir sundmenn keppa á Sund-
meistaramóti Reykjavíkur, sem hefst í kvöld
hennar mjög gott eða 1:05,6 mín.
Ágústa hefur æft vel að undan-
förnu og gæti ef til vill gefið
þeirri sænsku keppni, og fáir eru
meiri keppnismenn en Ágústa.
Hinn sænski glesturinn er
bringusurjdsmaðurinn Roland Sjö
bergs, sem hefur náð bezt í 200
m. bringusundi 2:41,0 mín. —
eða aðeins betra en Sigurður
Sigurðsson frá Akranesi. Auk
Sigurðar keppa aðrir beztu
bringusundsmenn okkar við Sví-
ann eins og Guðmundur Samúels
son, Akranesi, Einar Kristinsson,
Á, og Hörður Finnsson, ÍR. —
íslenzku keppendurnir eru svo
jafnir, að ómögulegt er að spá um
hver þeirra verður fremstur, og
ættu þeir að geta gefið Svíanum
harða keppni. Slæmt að ekki eru
nema fjórar brautir í Sundhöll-
inni.
Á mótinu verður keppt í 12
greinum, og munu þær vek.ia
mesta athygli, sem að framan
eru nefndar, en keppni í öðrum
greinum ætti einig að geta orðið
skemmtileg og má búast við
góðri kvöldstund í Sundhöllinni.