Tíminn - 16.05.1961, Qupperneq 16

Tíminn - 16.05.1961, Qupperneq 16
Dauðagildrur við Hafravatn Það gerist mörg sorgieg saga, sem talar átakanlegu máli um kæruleysi og skort á mannúð. Enn eru til menn, þótt þeir séu vonandi orðnir fáir, sem drepa eitthvað af fénaði sín- um úr hor á nálega hverju ári. Enn eru til menn, sem láta sér sæma að aflífa skepn- ur á annan hátt en lögboðið er. Og sumir eru þeir, sem virðast ganga alveg blindandi fram hjá hættum í búfjárhög- um sínum, þótt þær séu þess eðlis, að unnt væri að fjar- lægja þær. Starfsmenn Tím- ans urðu vitni að því á laug- ardaginn. Úranus með lélega sild Togarinn Úranus seldi í fyrri viku síld í Bremerhaven fyrir lítið verð. Hann seldi 221 lest fyrir 30.700 vestur-þýzk mörk. Nóg síld var fyrir á markaðinum, þegar Úranus seldi, og yfirfylltist markaður- inn við sölu hans. Auk þess var síldin ákaflega léleg, öll étin af átu. Úranus hafði tekið síldina hjá síldarbátum í Reykjavík. Síldin var alveg ný, þegar togarinn lest aði hana, en átan kom upp í henni á leiðinni út. Þessi síld var veidd við Snæfellsnes, en síldin, sem togarinn Sigurður seldi nokkru fyrr í Þýzkalandi, var Faxaflóa- síld, laus við átu. í sauðfjárhögum eru gamlar vír dræsur hinar verstu gildrur. Þær verða með tímanum samlitar jörð- inni, en í skjóli við vírflækjumar grær jörð oft fyrr en annars stað- ar á vorin, þegar féð er síðullað- ast og því mest hætta búin af gaddavírnum. Lendi kindur í stór- um vírflækjum, læsast gaddamir í ullina sitt á hvað, unz kindin er ósjálfbjarga og fær ekki frartiar risið á fætur. Bíður hennar þá hungurdauði, ef hún finnst ekki í tæka tíð. Dauðagildrur af þessu tagi munu vera víða í nágrenni Reykjavíkur, án þess að kunnugt sé, að gerð hafi verið gangskðr að því að fjar- lægja vírdræsurnar. f brekkunum í grennd við Hafravatn er hver flækjan við aðra — helzt í gras- lautum milli kletta — kolryðgaður gaddavír, sem virðist hafa legið þama árum saman, líklega síðan á styrjaldarárunum. f vor hafa menn, sem þarna hafa verið á ferð, komið að að- þrengdum kindum, föstum í vír, og kunnugt er blaðinu um kind, sem losuð var úr slíkri gildru, en hljóp jafnskjótt í aðra vírflækju, sem þó var ekki fyrirferðarmeiri, en svo, að hún gat dregið hana. Á laugardaginn í síðustu viku var maður úr Reykjavík þarna á ferð með bónda norðan af Möðru- J dalsöræfum. Komu þeir þá að gemlingi, sem lá aðframkominn,. i margumvafinn gaddavír. Hafði i |hann sýnilega legið mjög lengi í þessum fjötium. Hann var orðinn ;bólginn og blóðhlaupinn á þeirri jhliðinni, sem niður sneri, og hafði .rótað holur í svörðinn, þar sem ,hann náði til með klaufunum. Mennirnir munu tafarlaust hafa gert viðvart á næstu bæjum, og jafnframt brugðu þeir við og létu Tímann vita um þetta. Þegar sendi menn blaðsins komu á vettvang síðar um daginn, var nýbúið að aflífa kindina. En ekki hafði það Iþó verið gert á lögboðinn, mann- júðlegan hátt. i (Framhald á 13. siöu í vírflækju Efri myndirnar tvær sýna gemlinginn, sem kvaldist langtím um saman í gaddavírsfiækjunum í brekkunum upp frá Hafravatni reif upp svörSlnn meS klaufunum á meSan hann hafðl mátt tll og var aS lokum ailur crSinn bólg- inn og blóShlaupa á þehrl hliS- inni, sem niSur sneri. — NeSsta myndin er af einni af óteliandi gadavfráflækjum, sem llggja á víS og dreif á þessum slóSum, án þess aS þær séu fjarlægSar, og munu vafalaust verSa flefrl lctnd- um aS aldurtila meS jafnhörmu- legum hætti, ef ekki verður gerS gangskör aS því aS hreinsa þær burt. (Ljósmynd: TÍMINN, GE.) Hnupl í sumar- bústað Á uppstigningardag brutust I tveir ungir drengir inn í sumar- J bústað skammt frá Gunnarshólma. [ Fólk, sem sá til ferða drengjanna i við sumarbústaðinn, telur, að ann i ar þeirra hafi verið 14 ára gam- | all, klæddur Ijósum buxum og j dökkri úlpu, en hinn hafi verið ! 10 ára. f sumarbústaðnum var j brotin rúða, og skriðu drengirnir ! þar inn. Hnupluðu þeir svipu- i skafti, kjörgrip, merktum „Lóa“ á I hausnum, svo og ýmsu smádóti. i — Þeir, sem kynnu að vita deili j á máli þessu, eru vinsamlega beðn ir að snúa sér til rannsóknarlög- I reglunnar. Húsvíkingar eru duglegir ao synda I _ Nýja sundlaugin rekin með hagnaði. §aUieÍnaSt Jjrjár Sýslur UHI stofnun byggðasafns? Húsavík, 14. maí. — Iþrótta-j félagið Völsungar efndi tii fyrsta sundmóts Húsavíkur í gær. Mótið fór hið bezta fram.1 Veður var mjög gott, og áhorf- endur skemmtu sér mjög vel við hina fögru sundlaug. Keppendur voru margir og ung ir; yngsti keppandinn aðeins 8 ára. Aðeins t£u mánuðir eru nú liðnir síðan sundlaug Húsavíkur var tekin í notkun, en á þeim tíma hafa um 200 börn og ungl.ing ar komizt á flot í henni. Aðsókn að lauginni hefur verið góð. Vil- hjálmur Pálsson íþróttakennari hefur veitt lauginni forstöðu, og hefur stjóm hans á henni verið með miklum ágætum. Þess má geta, sem óvenjulegt mun vera við rekstur sundlauga á íslandi, að rékstur sundlaugarinnar á Húsavík hefur skilað hagnaði þá mánuði, sem liðnir eru síðan hún tók til starfa. Vilhjálmur Pálsson er nú að hætta störfum sem for- stöðumaður laugarinnar, en við tekur frú Sigríður Böðvarsdóttir, íþróttakennari. — Þormóður. Sýslufundur A-Húnavatns- sýslu var haldinn á Blönduósi 29. apríl til 4. maí. Jafnað var niður sýslusjóðsgjaldi að fjár- hæð 560 þús. krónum. Fund- , urinn samþykkti eftirfarandi fjárveitingar: Til héraðsspítal- ans á Blönduósi 100 þúsund, til félagsheimilis 90 þúsund, til húsmæðraskólans 45 þús- und og ti' ^lönduóssbryggju 50 þúsund, auk margra smærri fjárveitinga. Á fundinum var ráett um stofn- un byggðasafns, og var sú skoðun ríkiandi að heDnileeast. mvndi verða, að Húnavatnssýslur báðar og Strandasýsla sameinuðust um ag koma upp safninu. Fulltrúar frá Húnvetningafélaginu í Reykja- vík sóttu fundinn til viðræðu um þetta mál, e nfélaginu er málið mikið áhugaefni. Helzt var rætt um Reyki í Hrútafirði sem ákjós- anelgan stað, en þar er aðstaða (Framhald á 13, siðu.j

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.