Tíminn - 18.05.1961, Qupperneq 1
111. tW. — 45. árgangur.
—■■»mW«HHIMIWiyiiH»lW— —HH!—■III——
FlúSir og Grafar-"
hverfi, bls. 9.
Gamlr bærinn í Stóradal, sem brann í gær.
.... - i i 11 .——.1» i
Eyjabátar fara með
jólamat til Svía
Vestmannaeyjum, 17. maí. — Héðan eru nú þrír bátar á J
siglingu með fisk á erlendan markað. Tveir þeirra, Marz og
Stígandi, eru á leið til Svíþjóðar, líklega Gautaborgar, og hafa
mestmegnis ísaða löngu í lestinni, og munu Svíar snæða hana
sem lútfisk á jólunum.
Annar báturinn er með 50 en hinn 30 lestir, og er mcst j
þeirra eigin afli á línu í vor, en nokkuð hefur útgerðin keypt
tíl viðbótar af öðrum bátum. Þeir gera ráð fyrir að fá rúma
sænska krónu fyrir kflóið úti, og borgar þetta sig þá vel. tílr
heima fæst ekki nema eitthvað á þriðju krónu.
Athyglisverð nýjung
Þessi lönguveiði er nýjung í íslenzkum sjávarútvegi, sem
ástæða virðist til að gefa gaum að. íslenzkir fiskibátar hafa
oftast varla sinnt öðru en netaveiði á meðan danskir, sænskir
og norskir fisMbátar hafa verið á lönguveiðum með línu í
nánd við Vestmannaeyjar á vorin og hafa talið sig hafa gott
af. — Marz mun rétt kominn að því að selja, en Stígandi Or
á siglingu. S.K,
Gamli bærinn í
Stóradal brann
Blönduósi 17. maí. Snemma
í morgun brann hinn mikli og
virðulegi gamli bær að Stóra-
dal í Húnavatnssýslu til kaldra
kola. í bænum áttu heimili
sín tvær fjölskyldur, samtals
tólf manns, og komust allir
undan, en ekki mátti þó miklu
tæpar standa. Öll hús bæjar-
ins brunnu, og því nær ekk-
ert bjargaðist innan stokks.
Fátt bjargaðist
Eldsins varð vart á sjötta tím-
anum í morgun, og vaknaði fólk-
ið við læti og gelt huudanna, sem
ekki komust út úr bænum, og fór
raunar svo, að tveimur hundanna
varð ekki bjargað ,og brunnu
þeir inni.
Engin slys urðu á mönnum, en
bærinn brann gervallur, og ekk-
ert bjargaðist af innanstokksmun
um. Af klæðnaði fólks bjargað-
ist það eitt, sem það' gat hrifsað
með sér í flýti, er það flýði úrj
bænum. Bærinn í Stóradal var i
gamall, reisulegur torfbær með |
burstum og timburstafni, einn |
fegursti af sínu tagi, sem enn var i
búið í norðanlands. Hann brann j
til ösku á nálega klukkustund.
Veður var milt, vestanátt en
fremur lyngnt, Um eldsupptökin
er ekkert vitað með vissu, en j
gizkað er á, að þau hafi orðið i'
eldhúsi.
Margt í heimili
Tveir bræður eru í Stóradal, og
bjuggu báðar fjölskyldurnar í
gamla bænum. Þeir eru Jón Jóns
son, ásamt Guðfinnu Einarsdótt-,
ur, konu sinni, fjórum börnuu og i
aldraðri móður, og á hinu heimil
Drengsins, sem átti að hafa hjól-
að í sjóinn, er leitað sem ákafast,
og hugur allra við Reykjavíkur-
höfn snýst um þennan ímyndaða
dreng. Kafari er að koma upp
eftir árangurlausa leit. (Ljós-
mynd: Sveinn Þormóðsson).
verður í Hvalfirði
— sagði Robert Dennison, flotaforingi
inu Sigurgeir Hannesson ásamt
Hönnu Jónsdóttur, konu sinni, og
þremur bömum. Eru þetta sam-
tals 12 manns. Allt heimilisfólk
mun hafa verið heima ,er eldur-
inn kom upp, enma Jón Jónsson,
er var við Reykjaskóla í Hrúta-
firði við kennslustarf.
Jón Jónsson bóndi og Hanna
Jónsdóttir húsfreyja eru börn
Jóns heitins Jónssonar alþingis-
manns ,er bjó í Stóradal. Þótt mik
ill skaði sé um gamla bæinn og
eignir fólksins, er þar bjó, en
enn ótalið það tjón, sem varð á
bókum. í Stóradal var mikið safn
gamalla bóka og sumra verð-
mætra og dýrmætra, úr eigu Jóns
alþingismanns og fleiri, og týnd-
ist það alLt í eldinum. S.A.
í gærmorgun boðuðu Sam-
tök um vestræna samvinnu til
blaðamannaviðtals við Robert
Lee Dennison, yfirforingja At-
lantshafsflota Bandaríkjanna,
en hann kom sem kunnugt er
hingað til lands í fyrradag.
Skýrði hann svo frá, aðspurð-
ur af blaðamönnum, að sá orð-
rómur, sem uppi væri, að At-
lantshafsbandalagið hyggðist
koma upp kafbátastöð í Hval-
firði, ætti ekki við rök að
styðjast.
Pétur Benediktsson, formaður
Samtaka um vestræna samvinnu,
bauð blaðamenn velkomna til
fundarins, en síðan ávarpaði
flotaforinginn þá. Hahn lagði á-
herzlu á, að Atlantshafsbandalag
ið væri til hagsbóta fyrir allar
þjóðir, sem í því væru, og hvert
land væri hlekkur í því.
Þegar flotaforinginn hafi lokið
stuttu ávarpi, spurðu blaðamenn
hann ýmissa spuminga. Meðal
annars var hann spurður, hvort
hæfa væri í því, að Atlantshafs-
bandalagið ætlaði að koma upp
kafbátastöð í Hvalfirði.
Flotaforinginn kvað það úr
(Framhald á 2. síðu).
Skröksaga
veldur uppnámi
Verkfall á annan tíma viíJ höfn-
ina, vegna sögu um dreng, er átti
að hafa hjóIaÖ í Reykjavíkurhöfn
Nær tveggja stunda verkfall varð við
Reykjavíkurhöfn í gær, er lögregla og frosk
maður leituðu árangurslaust að dreng, sem
10 ára drengur hafði tilkynnt, að hjólað
hefði í höfnina. Leitin bar ekki árangur,
enda viðurkenndi að lokum drenghnokk-
inn, sem frá þessu sagði, að hann hefði
skrökvað þessu.
Nánari atvik voru þau, að um hálftíuleytið í
gærmorgun sagði maður nokkur lögreglunni, að
tíu ára gamall drengur hefði tjáð sér, að hann
hefði séð dreng hjóla í höfnina í krikanum við
austurbakkann, beint fram af pósthúsinu.
Lögreglan brá við og hélt á staðinn. Engir
aðrir sjónarvottar höfðu verið að „slysinu“, enda
hafnarverkamenn í kaffihléi á þessum tíma. Dreng
LFramhald á 2. síðu).