Tíminn - 30.05.1961, Síða 2
F2
T f MIN NT, þrigjpflaginn 30. mai 196g
tíl Hellissands
Fyrir nokkru festi ungurj
reykvískur flugmaður, Daníel
Pétursson, ásamt fleirum,
kaup á tveggja hreyfla brezkri
Rapide-flugvél. Flugvél þessa'
átti áður flugskólinn Þytur,
og hefur hún undanfarin ár
verið notuð til síldarleitar
fyrir Norðurlandi.
Flugvélina, sem reynzt hefur
hin bezta og öruggasta, notar
Daníel nú til leiguflugs með vör-
ur og farþega. Getur vélin borið
um 600 kíló af flutningi eða sex
farþega. Auk leiguflugsins hefur
Daníel tekið upp áætlunarflug til
Hellissands og flýgur nú þangað
einu sinni í viku, á föstudögum.
íbúar Helissands hafa tekið þess-
ari áætlun af miklum fögnuði,
euda hefur áætlunarflug legið
irfiðri þangað, frá því Flugfélag
fslands. Jiætti að fljúga þangað,
en staðurinn mun hafa verið tal
inn of lítill til þess að það svar-
aði kostnaði að fljúga þangað flug
vélum af stærð þeirri, sem F.í.
uotar til innanlandsfl.ugs,
Fargjöld með flugvél Daníels
eru mjög lág, og má geta þess, að
fargjaldið til Hellissands er að-
eins 50 krónum hærra en fargjald
með áætlunarbíl.
Þá hefur Daníel í hyggju að
taka upp fastar áætlunarferðir til
Hólmavíkur og Gjögurs, en þessir
staðir hafa einnig verið afskiptir
með innanlandsflug. Er ekki að
efa, að fþstar flugferðir yrði hin
mesta samgöngubót fyrir þessa
staði.
Flugvél sú, sem Daníel flýgur,
er sérlega ódýr í rekstri og mjög
örugg. Hún getur lent og hafið sig
til flugs á s>ttum flugbrautum,
og hentar því vel til ferða á ýmsa
staði, þar sem flugvallaraðstæður
eru slikar. Kostar vélin um 1000
krónur á ki jtkustund.
Eins og fyrr getur hefur flug-
vélin vérið uotuð við sildarleit
fyrir Norðurl^jdi á undanförnum
árum. í sumar hefur síldarútvegs
nefnd hins vegar fengið sjúkra-
flugvélina á Akureyri í síldarleit
arflug.
Daníel hefur þegar flogið all-
mörg leiguflug á þessari flugvél,
og fór m.a. til Vestmannaeyja með
póst f><r póststjórnina síðdegis
í gær, og kom til balca með fulla
vél af farþegum frá Eyjum.
Daníel Pétursson var í tvö ár
við flugnám í Sviss og lauk þaðan
atvinnuflugmannsprófi. Undan-
farna vetur hefur b>nn o? dvalið
við nám í Bandaríkjunum. — All-
ar nánari upplýsingar um leigu-
flugið geta menn fengið í síma
14870.
Leið yfir Zeller
NTB—París, 29. maí. Yfir-
heyrslur yfir aðalforsprökk-
um herforingjabyltingarinnar
í Alsír fyrir skemmstu hófust
í París í dag og munu standa
í 3—4 daga. Hér er um að
ræða réttarhöld með níu
manna dómi, sem sett eru
yfir hershöfðingjunum Maur-
ice Challe og André Zeiler,
sem sakaðir eru um föður-
landssvik.
Sannist ákærurnar á hendur
þeim, virðist ekkert bíða, þeirra
nema dauðinn, því að dauðarefs-
ing er fyrir brot það, sem þeir eru
eakaðir um.
Vesturveldin í hættu
Mikill viðbúnaður var fyrir rétt-
arhöldin í dag til þess að koma í
veg fyrir' hugsanlegar óeirðir. Með
al annars stóðu lögreglumcnn
vörð um dómhúsið, vopnaðir riffl-
um.
Challe, hershöfðingi, var fyrst
yfirheyrður, og sagðist hann fyrst
hafa tekið ákvörðun um að hrinda
þessari byltingu af stað eftir
blaðamannafund með de Gaulle
forseta 11. apríl s.l, Sagði hann,
að öryggi vesturveldanna hefði
verið stofnað í hættu vegna stefnu
frönsku stjórnarinnar í Alsír, og
því hefði verið nauðsyn róttækra
ráðstafana.
Sagði Challe, að það hefði verið
rangt af frönsku stjórninni að
hefja viðræður við fulltrúa al-
sírsku útlagastjóniarinnar í Evían,
og að þær viðræður gætu dregið
hættulegan dilk á eftir sér.
Féll í ómegin
Næst kom röðin að Zeller til
yfirheyrslu. Varla hafði hann
byrjað að svara spurningum ákær
anda, er hann náfölnaði og stundi
upp: „Ég er þreyttur, þreyttur“.
Féll hann síðan í ómegin, og varð
að fresta réttarhöldum í tíu mín-
útur. Er Zeller raknaði við, var
honum veitt leyfi til að tala úr
sæti sínu, en hann féll von bráð-
ar í ómegin á nýjan leik, Var þá
réttarhöldum frestað alveg þann
daginn.
Rapid-flugvél Daníels
Áfallasöm heimferð
Knattspyrnumennirnir á Ak
ureyri, sem háðu fyrsta leik
fyrstudeildarkeppninnar á
þessu ári við KR á Laugardals
vellinum síðdegis á sunnudag-
inn, reyndust afar seinheppn-
ir í ferðalagi sínu norður á
heimaslóðirnar, eftir að þeir
höfðu tapað fyrir Reykjavík-
urliðinu með sex mörkum
gegn þremur.
Þar sem verkfall átti, að skella
á um miðnætti, hugðust knatt-
spyrnumennirnir hraða heimferð-
inni sem mest. Þeir stigu upp í
flugvél um kvöldið og svifu norð-
ur yfir fjöll. Komust þeir yfir
heimabæinn, en ekki fengu þeir
að sjá hann í það sinn. Komin var
þoka og dimmviðri, og gat flug-
vélin ekki lent á Akureyrarflug-
velli. Flaug hún með íþróttamenn-
ina aftur til Reykjavíkur.
Ferðalangarnir fengu nú lang-
ferðabíl hjá Norðurleið, og lögðu
af stað í honum norður um, hálfri
stundu eftir miðnætti. Hugðust
þeir verða heimkomnir um klukk-
an 10 næsta morgun. Segir nú
ekki af ferðum þeirra fyrr en þeir
komu á Öxnadalsheiði. Þar fjaðr-
arbrotnaði ökutækið á brú einni
og hallaðist þá svo mjög, að það
lagðist á eina tvo steypta stólpa
og handriðið og braut hvort-
tveggja niður. Varð bílnum ekki
þokað þaðan. Enginn maður
meiddist við hnjask þetta.
Nú var ekki annað til ráða en
að bíða, þar til einhver bíll ætti
leið yfir heiðina og gera þá ráð-
stafanir til að hópurinn yrði sótt-
ur frá Akureyri. Að nokkrum tírna
liðnum kom vörubifreið frá Akur-
eyri á vesturleið. Með henni
reyndist unnt að draga bilaða bíl-
inn af brúnni, og ökumaðurinn
hringdi síðan frá Kotum í Norður-
árdal til Akureyrar. Þaðan var síð-
an send bifreið frá ferðaskrifstof-
unni að sækja knattspyrnumenn-
ina, sem komu í bæinn klukkan
að ganga þrjú í gær. Var þá loks
lokið þessari óhappaför.
Sjávarafurðir fyrir 17,4 milljónir
Aðalfundur Kaupfélags Suð
urnesja var haldinn í ung-
mennafélagshúsinu í Keflavík
laugardaginn 27. maí. 40 full-
trúar frá öllum deildum félags
ins sóttu fundinn, auk stjórn-
ar, kaupfélagsstjóra, deildar-
stjórna og endurskoðenda.
Formaðu'r félagsstjórnar, Hall-
grímur Th. Björnsson, setti fund-
inn og bauð fulltrúa velkomna.
Fundarstjórar voru kjömir Svavar
Árnason og Guðni Magnússon og
fundarritarar Arngrímur Vilhjálms
son og Ásgeir Einarsson.
Þá flutti formaður skýrslu fé-
lagsstjórnar og kaupfélagsstjóri,
Gunnar Sveinsson, útskýrði reikn-
inga félagsins, er lágu fyrir fund-
inum í prentaðri ársskýrslu. Vöru-
salan á árinu var kr. 2,8 milljónir
og var svipuð og á s. 1. ári.
Tala félagsmanna er nú 922, en
starfsmenn félagsins eru 42. Hinn
árlegi jólatrésfagnaður félagsins
var haldinn á 3. í jólum og sótti
hann að vanda fjöldi fólks.
Framkvæmdastjóri hraðfrysti-
húss kaupfélagsins, Benedikt Jóns-
son, flutti skýrslu þess. Seldar
síldar- og fiskafurðir á árinu námu
kr. 17.388.791,09. Frystihúsið gerði
út 5 báta á vetrarvertíðinni, 2
leigubáta og 3, sem það á sjálft.
Á síldveiðum fyrir Norðurlandi
voru allir bátar félagsins.
Úr stjórn kaupfélagsins átti að
Iganga Ragnar Guðleifsson, sem
I var endurkosinn. Fulltrúar til að
mæta á aðalfund SÍS voru kjörnir:
| Gunnar Sveinsson, Hallgrímur Th.
ÍBjörnsson og Ragnar Guðleifsson.
Að loknum aðalfundarstörfum
, bauð stjórnin fulítrúum til kaffi-
drykkju, en undir borðum ræddi
formaður samvinnustarfið og þýð-
ingu þess fyrir þjóðfélagið.
Söngmót á Dalvík
Dalvík, 29.—5. — Kirkju-
kórasamband Eyjafjraðarpróf-
astsdæmis hélt söngmót hér 1
gærkveldi en fyrr um daginn
höfðu kórarnir sungið á Ak-
ureyri.
Fimm kórar sungu. Söngstjórar:
Áskell Jónsson, Akureyri: Gest-
ur Hjörleifsson, Dalvík; Jakob
Tryggvason, Akureyri; Pál.1 Er-
lendsson, Siglufirði og Sigríður
Schiöth. Undirleikari var Guðrún
Kristinsdóttir, píanóleikari. Hver
kór söng tvö lög og allir sungu
þeir saman átta lög. Söngstjórarn
ir skiptust þá á um stjórn. Söng-
mótið var helgað minningu séra
Bjama Þorsteinssonar, tónskálds,
Björgvins Guðmundssonar, /tón-
skálds og Sigurðar Birkis, söng-
málastjóra. Núverandi söngmála-
stjóri, Róbert A. Ottoson var við
staddur. Á eftir var söngfólkinu
boðið til kaffidrykkju og margar
ræður voru fluttar.
— Pálmi.
Aftur búið í Papey
Djúpavogi 29. maí. — Full
ábúð er nú aftur í Papey eftir
árabil. Gústav Gíslason, sem
er sonur síðasta ábúanda í
eynni, hefur að vísu lengi haft
þar sauðfé og nytjað kosti eyj
arinnar á sumrin, en á vet-
urna hefur hann búið í Horna-
firði.
Nú er hann nýlega fluttur út í
Papey eftir veturinn og hefur á-
kveðið að flytjast ekki í land með
hausti, heldur sitja að búi sínu í
eynni, ásamt systur sinn.i tveim-
ur dætrum og dótturdóttur. Út í
Papey er um klukkustundarferð á
báti. Fé gengur þar gjálfala, og
auk þess er þar dúntekja mikil og
eggja og gnótt mikil bæði af bjarg
fugli og æðarfugli. Þ.S.
Nýr ambassador
aíhendir skilríki
Hinn nýi ambassador Bandaríkj
anna á Islandi, herra James K.
Penfield, afhenti forseta íslands
trúnaðarbréf sitt við hátiðlega at-
höfn hinn 24. þ.m., að viðstöddum
utanríkisráðherra.
Sýning framlengd
Málverkasýning Sveins Björns-
sonar í iðnslcólanum í Hafnarfirði
hefur verið framlengd til þriðju-
dagskvölds. Mjög mikil aðsókn var
að sýningunni á sunnudaginn, og
ákvað Sveinn þá að framlengja.
Þrettán myndir hafa selzt.__
Verkföllin
(Framhald af 1. síðu).
víkur, sem öll telja liðlega þús-
und félagsmenn.
Fyrst um sinn verða leyfðir að-
flutningar, vinnsla og dreifing
mjólkur, þó með því skilyrði, að
þetta megi stöðva með tveggja
daga fyrirvara. Leyfð verður og
dreifing á fiski og brauði, og
sjúkrahús fá að fullnægja þörfum
sínum. Sorphreinsun í Reykjavík
verður einnig leyfð fyrst um sinn.
Benzín verður afgreitt á bifreið-
ar lækna og Ijósmæðra, slökkvi-
liðs og lögreglu og mokkurra
fleiri aðila.
Áburðarverksmiðjan í Gufu-
nesi verður starfrækt fyrst um
sinn og enginn áburður verður
fluttur þaðan á meðan á verkfall
inu stendur.
Allt innanlandsflug stöðvast nú
þegar, en millilandaflug verður
óhindrað til næsta föstudags.
Hádegisklúbburinn
kemur saman á venjulegum sfað á morgun, Mæturn stundvíslega
kl. 12.
KjördæmisþingiS í Suðurlandskjördæmi
Framsóknarmenn í Suðurlandskjördæmi halda kjördæmisþing að
Hvolsvelli n.k. laugardag og hefst það kl. 1 e.h.
Um kvöldið kl. 9 hefst svo vormót með fjölbreyttri dagskrá á
sama stað.