Tíminn - 30.05.1961, Blaðsíða 12
TIMIN N, þriðjudaginn 30. maí 1961,
: liliiii
|?:p!p;
!f«a
■ M ('MÍi'Í.íií1 j
' HÍ.I ' 1
lir'iri-j
■■
;i. - iljji
. i .
;'i:nii:ri-
KR sigratSi Akureyringa í fyrsta leik íslands-
mótsins meS 6—3 í skemmtilegum leik.
Það er ekki oft, sem við
verðum vitni að níu mörkum í
knattspyrnuleik hér, eins og
varð í fyrsta leik íslandsmóts-
ins milli KR og Akureyringa á
sunnudaginn. Og þrátt fyrir
þessi níu mörk finnst manni
eftir á, að þetta hafi verið leik-
ur hinna glötuðu marktæki-
færa og mörkin í leiknum
hefðu eins getað orðið tuttugu.
Það vantaði því ekki spenn-
andi augnablik og áhorfendur
fengu nóg fyrir peninga sína,
en það gefur einnig til kynna,
að varnir liðanna hafi verið lé-
legar, og það má með sanni
segja, og einkum var létt að
leika í gegn hjá Akureyrar-
vörninni.
Fimmtíu ár -
ekkert gert
Á sunnudaginn hófst fimm-
tugasta íslandsmótið í knatt-
spymu, svo hér var um mjög
merk tímamót að ræða. Ég
bjóst við mikilli viðhöfn,
siuttri ræðu og að leikmenn
lið'anna gengu fylktu liði iiin á
völlinn. Það hefði verið létt,
því leikmenn annarra liða, sem
taka þátt í mótinu, voru á á-
horfendapöllum, jafnt Akurnes
ingar sem Valsmenn, Hafnfirð-
ingar sem Framarar. En ekk-
ert var gert og þetta fimmtíu
ára afmæli gleymdist alveg.
Hér var um það merkilegan at-
burð að ræða, að Knattspymu
sambandið hefði átt að minn-
ast hans veglega, og gera eitt-
hvað til hátíðabrigða fyrir á-
horfendur, sem ár eftir ár
flykkjast á knattspyrnuvellina.
KR-ingar unnu öruggan sigur á
Akui'eyringum í leiknum, 6—3 —
og hefndu því fyrir tapleikinn í
fyrrasumar á Laugai'dalsvellinum
— en leikurinn vhr einn sá ein-
1 kennilegasti, sem hér hefur farið
fram lengi. En skemmtilegur var
|hann, því verður ekki neitað. Ó-
jteljandi marktækifæri á báða
bóga — þó mun fleiri féllu í hlut
KR — gerðu það að verkum, að
spenna var stöðug og jöfn allan
leikinn. KR-liðið sýndi ipun heil-
steyptaii leik og oft góðan sam-
leik, en hjá Akureyrarliðinu var
allt meira tilviljun háð. Leikmenn
liðsins eru fljótir, og hafa sumir
hverjir ágæta leikni, en liðið nýtir
ekki völlinn. Næstum öll upphlaup
ganga upp miðjuna, en kantarnir
lítið sem ekkert notaðir og í þess-
um leik var vörnin ótrúlega léleg.
Það er efniviður í Akureyrarliðinu
og það þarf áreiðanlega ekki að
kvíða falli að þessu sinni, eins og
vofði yfir liðinu í næstum allt
fyrrasumar. Að vísu þarf að hefla
aí mestu vankantana, og það hefst
með góðri æfingu og keppnis-
reynslu.
| KR skorar strax
Það var varla liðin nema rúm
mínúta af leiknum, þegar KR skor-
aði sitt fyrsta mark. KR náði strax
1 upphlaupi, Ellert Schram fékk
knöttinn á miðjum vallarhelmingi
Akureyringa, og sá Þórólf Beck
óvaldaðan á vítateig. Hann sendi
honum þegar knöttinn og Þórólf-
ur lék nær og skoraði óverjandi
fyrir Einar Helgason, markmann
og fyrirliða Akureyrai'liðsins. KR
fékk því byr undir báða vængi
þegar í byrjun, og framan af var
liðið í nær stöðugri sókn, þótt
ekki skoraði liðið annað mark
fyrr en eftir miðjan hálfleikinn.
Einar Helgason, markvörður Akureyringa og fyrirliði, akti mikla athygli og bjargaði hvað eftir annað snilldar-
lega. Hér sést hann góma knöttinn eftir spyrnu frá Gunnari Felixsyni, sem liggur á vellinum. Aðrir leikmenn
á myndinni eru frá vinstri: Akureyringarnir Bjarni Bjarnason, Jón Stefánsson, Magnús Jónatansson og Haukur
Jakobsson, Þá sést Gunnar Guðmannsson lengst til hægri. Ljósm.: Tíminn, G.E.
KR-ingar fóru ijiú aftur að
sækja. Á 20. mín. átti Þórólfur
gott skot, sem Einar varði í horn,
og úr hornspyrnunni spyrnti
Gunnar Guðmannsson yfir. Gunn-
ar var ekki sérlega virkur í Ieikn-
(um, en það merkilega skeði, að
Þegar um 15 mín. voru af leik 1 flestar hættulegustu sendingarnar
skapaðist fyista hættan við mark komu frá honum, enda fékk hann
KR. Skúli Ágústsson, hægri inn-1 nær að leika alveg laus, og Hauk- j
herji Akureyrar — hinn kunnijur Jakobsson, sem lék bakvörð,'
ar„ sem tókst að spyrna framhjá hirða liann kom Hreiðar Ársæls-
á tveggja metra færi fyrir opnu son, bakvörður, aðvífandi, tók
marki. Eftir markspyrnuna náðu knöttinn af Heimi og lagði hann
KR-ingar strax knettinum. beint fyrir fætur Skúla Ágústs-
Sveinn lék upp með hann, dró sonar, sem þakkaði óvenjulega gott
miðvörð Akureyringa að sér og boð og sendi knöttinn í markið.
sendi síðan til Þórólfs, sem átti
skautamaður — fékk knöttinn inn-
an vítateigs, en gott skot hans fór
rétt framhjá. Aðeins síðar átti
Skúli ágætt skot á markið, sem
Heimir varði vel með því að slá
knöttinn yfir markslána. Horn-
spyrnan gaf engan árangur.
kunni lítið í stöðunni og var oft-,
ast sem fjórði framvörðurinn.
Á 26. mín. komst Gunnar G.
enn einu sinni inn fyrir Hauk og
gaf knöttinn til Sveins Jónsson-
greiðfæra leið að marki og skor-
aði Þórólfur örugglega.
Akureyringar skorá
Þegar fimm mínútur voru eftir
til hlésins tókst Akureyringum að
skora sitt fyrsta mark eftir mikil
mistök í KR-vörninni. Knötturinn
var gefinn að KR-markinu, en þeg-
ar Heimir, markvörður, ætlaði að
Marksláin í nyrðra markinu stóð sig oft eins og bezti markvörður í leiknum, og nokkrum sinnum tók húr. ómakið af markvörðunum, eins og t.d.
sést á þessari mynd. Þórólfur Beck hafðl leikið á Einar Heigason, markvörð Akureyringa, en tveir varnarleikmenn, Haukur Jakobsson og Jón Stef-
ártsson, á miðri myndtnni, reyndu að verja markið. Það tókst. Spyrna Þórólfs lenti í Jóni og þaðan í markskma. Ljósmynd: Tím'mn, G.E.
Það var eins og KR-vörnin
færi úr sambandi um tíma eftir
þetta mark, og með smáheppni
hefði Akureyringum átt að tak-
ast að jafna. Þeir sóttu ákaft,
og minnstu munaði, þegar Hörð-
ur Felixson ætlaði að spyrna frá,
en Steingrímur Björnsson spyrnti
á móti, og hrökk knötturinn í
þverslá KR-marksins.
En þetta stóð ekki lengi. Gunn-
ar Guðmannsson fékk langa send-
ingu, Iék upp og gaf fyrir til
nafna síns Felixsonar, sem spyrnti
þegar en rétt framhjá. Strax á
'eftir léku Þórólfur og Gunnar aft-
ur upp vinstpa megin, og enn gaf
Gunnar vel fyrir. Knötturinn hrökk
af öðium bakverðinum til Gunn-
ars Fel., sem skoraði þriðja mark
KR með föstu skoti, sem lenti
undir slá og í mark. Enn hélt KR-
sóknin áfram, og Gunnar G. átti
hörkuskot á markið, sem Einar
varði vel.
Ellert í dauðafæri
Síðari hálfleikur var rétt hafinn,
þegar KR náði sókn og Ellert
fékk knöttinn alveg frír tvo metra
frá marki. Áhorfendur biðu aðeins
eftir því, að Ellert sendi knöttinn
í markið, en eitthvað vafðist fyrir
honum, og þá loks hann spyrnti,
tókst Einari, markverði, að kom-
ast í veg fyrir knöttinn og bjarga.
Þarna fór bezta marktækifærið í
leiknum illa. Einar, markvörður,
^varð aðeins síðar að taka á öllu
sínu, þegar Gunnar Fel. átti gott
skot| á markið, en Einar varði í