Tíminn - 30.05.1961, Side 6
6
TÍMINN, þriSjudagiim 30. maí 1961.
MINNING:
Jósep Jóhannesson
frá Auðunnarstöðum
Jósep Jóhannesson frá AufSunn
arstöðum í Víðidal andaðist að
heimili sínu á Akureyri 23. þ.m.
'Hann fæddist að Hörgshóli í
Vesturhópi 6. sept. 1886, en þar
bjuggu þá foreldrar hans, Jóhann
es Guðmundsson óg Ingibjörg Ey-
steinsdóttir. Þau fluttust næsta
ár að Auðunnarstöðum og þar ólzt
Jósep upp, ásamt sex öðrum börn
um þeirra hjóna.
Þegar Jósep var um tvítugt fór
hann í búnaðarskólann á Hólum
og lauk þar námi árið 1907. Vorið
1910 kvæntist hann Þóru Guðrúnu
Jóhannsdóttur frá Hofi í Hjalta-
dal. Fyrsta hjúskaparárið voru þau
á Melstað í Miðfirði, en hófu bú-
skap á Múla vorið 1911. Þar
bjuggu þau í þrjú ár, en síðan í
sjö ár á Stórhóíi í Víðidal. Það
var þá mjög túnlítið býli og ó-
hentugt fyrir hjón með mörg böm.
Næst bjpggu þau í fimm ár á
Vatnshóli í Kirkjuhvammshreppi,
en fóru þaðan vorið 1926 að Bergs
stöðum í Miðfirði. Fyrir um það
bil tíu árum fluttust þau svo til
Akureyrar. Þau voru þá bæði
komin á sjötugsaldur, höfðu skil-
að miklu ævistarfi og voru ekki
lengur fær um það erfiði, sem
sveitabúskapnum fylgir. Á Akur-
eyri vann Jósep að ýmsum störfum
sem til féllu, meðan heilsa ent-
ist. Þar áttum við, gamlir sveit-
ungar þeirra hjóna, góðum við-
tökum að mæta á heimili þeirra,
þegar við vorum á ferð í höfuð-
stað Norðurlands.
Jósep og Þóra höfðu barnalán.
Þau eigijuðust átta börn, sem öll
eru á lífi. Fimm þeirra, Jóhann-'
es, Katrín, Zóphonías, Dýrunn og!
Aðalsteinn, eru búsett á Akur-;
eyri. Hin þrjú eru: Ingibjörg, hús
freyja á Reykjavöllum í Mosfells-1
sveit, Hjalti, bóndi á Hrafnagili í;
Eyjafirði og Guðtún, húsfreyja á
Tannstaðabakka í Hrútafirði.
Jósep Jóhannesson var áhuga-
maður um framfarir og félagsleg
ar umbætur. Þegar Vestur-Hún-
vetningar stofnuðu sérstakt sam-
vinnufélag í sýslunni árið 1908,
var hann einn af fimm mönnum,
í fyrstu stjóm þess, þá aðeins 21,
árs að aldri. Hann var ósérhlíf-
inn atorkumaður og vann m.a. að
umbótum á ábýlisjörðum sínum,
eftir því sem ástæður leyfðu.
Fyrir hálfri öld var aðstaða til
búskapar gjörólík þeirri, sem nú
er orðin. Þá skorti mörg þægindi,
sem nú létta störfin á heimilun-
um víðast hvar. Þá var heyfeng-
ur handa búpeningnum að miklu
leyti sóttur á óræktað land, og
áhöldin voru orfið og hrífan. Jós-
ep og kona hans voru í hópi þeirra
sem við þessi skilyrði lögðu fram
krafta sína í strangri lífsbaráttu,
og fóru með sigur af hólmi.
Og nú er bóndinn genginn til
hvílu, eftir annasaman dag.
Jarðarför Jóseps sál.. fer fram
í dag á Akureyri. Sk.G.
99,9% náttiirugiimí
ÞAKKARÁVÖRP
Mínar beztu kveSjur og þakkir sendi ég öllum
þeim, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum
og heillaskeytum á 70 ára afmæli mínu, 24. þ. m.
Ólafur Ólafsson,
Syðstu-Mörk,
Vestur-Eyjafjöllum.
Þökkum öllum þeim, sem við andlát og jaröarför eiginkonu
minnar og móður okkar
Rússnesku hjólbar'ðarnir eru mikift endurhættir og hafa unnið
sér vertJugt lof þeirra bifreiíaeigenda sem oft þurfa atJ aka á mis-
jöfnum vegum eÖa hreinum vegleysum, slitþol þeirra er ótrúlegt,
enda bætii efni og vinna miÖaÖ viÖ aí framleiðslan sé betri en
átiur þekktist. MuniÖ aí spyrja þá, sem reynzlu hafa af þessum
frábæru hjólbörftum einmitt hér, vií hin erfiðu skilyríi, í land-
búnaði, þungaflutningum og einkaakstri.
BETRA VERÐ — MEIRI GÆÐI
MARS TRADING COMPANY
Klapparstíg 20 A— Sími 17373
Guðrúnar Bjarneyjar Valdórsdóttur,
Gimli, Reyðarfirðl,
er andaðist í Landspítalanum 16. apríl s. I., vottuðu okkur samúð
og helðruðu minnlngu hennar. Sömuleiðis læknum og hjúkrunar-
konum, er önnuðust hana á langri sjúkrahússlegu; vinum og kunn-
ingjum, er jafnaðarlega heimsóttu hana og glöddu á marga vegu.
Guð blessi ykkur öll.
Elís Árnason Erla Elíasdóttir
Páll Þ. Elísson Árni V. Elísson
Aðalfundur
Vinna
Setjum í tvöfalt gler. —
Kaupfélags Kjalarnesþings verður haldinn fimmtu
daginn 1. júní í Hlégarði kl. 9 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Kíttum glugga. — Vanir
menn. Sími 32394.