Tíminn - 02.07.1961, Qupperneq 2

Tíminn - 02.07.1961, Qupperneq 2
/ TÍI.IINN, sunnudaginn 2. júli 1961. íslenzkur stóll Framhald af 3. síðu. Bæjaralands. Af 30 gullverðlaun- uim, sem veitt voru á sýningunni, voru aðeins tvenn veitt fyrir hús- gögn, og hlaut ísland önnur og Ítalía hin. Sýningin vakti óskipta athygli, og kom bersýnilega fram mikill áhugi á íslenzkum iðnaðarvörum. Ljósmyndari TÍMANS brá sér í alþingishúsið í gær eftir hádegið, þegar hnútar verkfallsins voru um það bil aS rakna. Sumir aðilar höfðu þegar undirritaS samningana, en aSelns biSu þess, aS þeir gætu tekiS sér pennann í hönd. Og meS því aS menn höfðu haft þarna langa vist, voru sumir að raka sig, áður en þelr færu út á götuna. Á stærri myndinni er hópur fulltrúa iðnaSarmanna og meistara, sem bíða eftir lyktum samningsgerðarinnar, en hér til hllSar sést Óskar Hallgrímsson, formaður rafvirkjafélagsins, í óða- önn að raka sig. Yegirnir verða lengi að ná sér Aðalakvegirnir kringum Reykjavík hafa farið mjög illa út úr verkfallinu, sem kom í veg fyrir, að nokkuð væri dyttað að þeim í nærri mánuð. Máttu sumir þeirra heita ófær- ir og stórhættulegir flestum veikgerðari farartækjum, því að holurnar voru orðnar bæði stórar, djúpar og margar. Undir eins, sömu nóttina oig lausn fannst á verkfallinu, fóru heflar vegagerðarinnar af stað, og LeiSrétting í grein eftir Svein Sveinsson frá Fossi, í blaðinu í gær, misritaðist nafn Bjama Jenssonar læknis, og var Ijann kallaður Bjarni Jónsson. Er beiðzt velvirðingar á þessu. í gær var búið að hefla alla helztu 'vegi í niágrenni bæjarins, sem verst voru leiknir, en það voru Reykjanesbraut suður fyrir Straum, austurleiðin upp að sýslumörkunum fyrir ofan Sand- skeið' og Mosfellssveitarvegurinn upp að Álafossi. Aninars þarf hér meiri muna við, að því er vega- málastjóri tjáði blaðinu í gær. Vegirnir eru svo il'la farnir, að það tekur nokkurn tíma að koma þeim í amt lag með smáviðgerð- urn hér og þar. Steypiregnið, sem koim í nót.t, kom sér illa og gerir viðgerðarstarfið erfiðara. i Héraðsmót Framsóknarmanna á Austurlandi Framsóknarmenn á Austurlandi halda sína árlegu héraðshátíð í Aflavík um næstu helgi (8. og 9. júlí). Laugardagskvöldið kl. 9 hefst dansleikur. Fyrir dansinum leikur H.S.-sextettlnn frá Neskaupstað. Á sunnudaginn hefst svo aðal samkoman kl. 2. Meðal dagskrárliða verður: Ræður: Eysteinn Jónsson, alþm. og Helgi Bergs, verkfr. Árnl Jónsson, óperusöngvari, syngur, Ómar Ragnarsson fer með gamanvísur og Ævar R. Kvaran leikari flytur sjálfvalið efni. Síðan verður dansað. Mótatimbur * smíöatimbur Fyrirliggjandi ýmsar breiddir ois: hvkktir af furu. BYGGINGAVÖRUSALA S.I.S. við Grandaveg. Símar 17080 og 22648. Sýruker NÝ BÓK. NÝ BÓK. Sagnaþættir Benjamíns Sigvaldasonar, 3. hefti, kemur út á morgun. Þar sem upplagið er afar lítið, verður hún aÖeins seld hjá útgefanda. ' \ FORNBÓKAV. KR. KRISTJÁNSSONAR, Hverfisgötu 26. Sími 14179. (Framhald at 1 síðu) bóndann þar um svaladrykk. Fór bóndi heim eftir drykknum, en jötunninn varpaði af sér byrðinni og kiappaði holu í móbergið með staf sínum á meðan hann beið. Sagði hann síðan bónda, að hann skyldi geyma sýru í keri því, er hann hafði gert þessa stund, og myndi hún hvorki frjósa né bland ast vatni, en hundraðsmissir yrði í búi haos, ef hanm vildi ekki nota kerið. í raun og veru hefiur sýra verið geymd í kerinu um langan aldur. Er gert yfir það og er um litiar dyr inn að fara. Sjálft er kerið kringlótt og hálfkúlulaga, og sjást í því för eftir járn það, sem not- að hefur verið til að höggva mó- bergið. Þótt vatn komist í það, situr það ofan á sýrunni, en bland ast henni ekki. Það er.ein af reglunum um um- gengni við þetta dulmagnaða ker, að skipta verður árlega um sýru í þyí, ef ekki á illt að hljótast af. Á Bergsstöðum býr aldraður bóndi, Sigurfinnur Sveinsson, og hefur hann oftast nær séð svo upi, að þetta væri gert. Þó hef.ur þhð farizt fyrix þremur sinnum, og segir dr. Haraldur í árbókinni, að í öll skiptin hafi hlotnazt af stór óhöpp. í eit.t skiptið missti Bergs- staðabóndi 150 fjár, í annað fjöru- tíu kindur o>g siðastliðið ár allar kýr sínar. AtJfarir refsins (Framhald af L síðu). aði, að halda tóunni niðri og jafn vel útrýma henni alveg. Sama gild j ir um miinkinn, segir Tryggvi, i nema varla muni gerlegt að' losna alveg við hann. En fækka megi' stofninum s.vo, að ekki þyrfti að verða stórtjón af homum. Það tefur ofit mjög fyrir grenjaleit, þegar lítt eða óæfðir sportveið'i- j m©nn æðá um oig skjóta á báðar hendu.r. Þeir hafa ekki þá þekk- ingu né þolinmæði, sem þarf til að fást við hinn slaegvitra ref. Það rnun kosta um 3Ö þúsund krónur að koima sér upp þeirn tækjum, sem til grenjaleitar þarf, fyrir ut- an hunda, sem Tryggvi nú í seinni tíð notar við refaveiðar, ekki síður en minkaleit. Oft fyl'gir þessu vosbúð og harðræði. Einar, sonur Tryggva, skaut sinn fyrsta ref, þegar hann var 14 ára. Síða.n hefur hann fellt marga og aldrei geigað skot. Við Tryggvi höfum gleymt okk- ur við frásagnir hans af ótrúleg- um ævintýrum á fjöllum íslands með byssu eða stöng á langri vgiði mannsæfi. Hvellt hróp Ei.nars hinum meg in við ána vekur okkur til veru- leikans á ný. Við lítum upp. Það syngur í hjólinu, þegar línan renn ur út. f vatnsskorpunni glitrar á ugga, og nú lyftir fiskurinn sér, silfurgljáandi og stæltur. Það bregður eitt andartak fyrir stoltu Miki í auga Try.ggva, þegar hann sér handtök sonar síns, síðan var- fæmi hins vana veiðimanns. En pilturinn veit hvað á að gera. Stundarkorni síðar dregur hann að landi níu punda hæng. Fýrsti lax sumarsins. A.Þ. Rússar (Framhald aj 1. síðu). utanríkisráSherra Sovétríkj- anna, tilkynnti brezka sendi- herranum í Moskvu strax í marzmánuði, að sovézka stjórn in hefði í hyggju að segja samningnum upp. Samninguri'nn, s©m gerður var 1956, tók gildi þann 12. marz 1957. Fól hann í sér leyfi fyrir brezka togara til þess að mega stunda fis'kveiðar allt inn að þriggja milna landhelgi, en fiskveiðilög- saga Sovétríkjanna er 12 mílur, eins- og kumnugt er. Ákvæði voru í samningnum um það, að hvort ríki um sig mætti segja upp samningnum einu ári áður en gildistími hans væri út- runninn, en hann var 5 ár. Brezka stjórnin hefur þegar látið þá ósk sína í ljós,4 að nýjar samninga-; viðræður hefjist milli hennar og Sovétríkjanna, og fullyrt er i Lon don, að Sovétríkin séu fús til þess að hefja samningaviðræður, en engin opinber tilkynning hefur enn verið gefin út þess efnis í Moskvu. Það er mál manna í London, að þessi uppsögn Sovétríkjanna á fiskveiðisanmingnum standi í nánu sambandi við viðurkenningu Breta á 12 mílnal fiskveiðilögsögu ís- lendinga, sem kemst í framkvæmd eftir nokkur ár, eins og sagt er orðrétt í þessari frétt frá NTB. Vökunætur (Framhald aí 16. síðu). Þorkell virðist enn vera í fullu fjöri, þótt hann sé orðinn 82 ára, a.m.k. lét hann ekki sitt eftir liiggja í smalainennskuinni. Hann segir að flest sé þetta fé frá Litla- Botni, en þar voru á 3. hundrað ær á fóðrum í vetur. Eimnig er hér allmargt frá Stóra-Botni, enda eru menn þaðan í smöluninni hér. Einn maður er hér líka frá Þyrli. Þar var rúið í gær, og eru nokkr ar ær þaðan komnar hér í hópinn. Bændur um þess!ar slóðir hafa samvinniu um rúninginn, hjálpa hver öðrum við smölun og rýja allt fó, sem kemur í þeirra rétt. Smalafólkið heldur heim ti.l hæj ar. Það er orðið mál að fá sér matarbita. Smölunin hófst um há- degi, og nú er dagur að kvöldi kominn. Ekki verður byrjað að rýja fyrr en eftir góða stund. Lömbin eru öll ómörkuð og verð'a því að fá tíma til að finna mæður sínar, svo hægt sé að marka þau réttu marki. — Áður fyrr, segir Þorkell, var alltaf rekið saman og mar'kað, áð- ur en smalað var til rúnings. Þá var heldur engin öninur viinna en við skepnurnar. Nú er ómögulegt að fá mann til Reins. Þess vegna eru nú flestir horfnir að því ráði að hafa girðingu við réttiina, eins og hér er, geyma féð þar, meðan lömbin eru að finna mæður sín- ar, reka að í smáhópum, og marka síðan um leið og rúi.ð er. Meðan fólk borðar og drekkur í bænum, styttir upp að mestu. Brátt verður tekið til við rúning- inn. Honum verður ekki lokið fyrr én einhvern tíma á morgun, þótt unnið verði í alla nótt. Það eru nokkur handtök við að rýja 200 ær og marka emn fleiri lömb. Lík lega verður þetta smáa vinnufólk, sem hér er, sofnað áður en morgn ar. En enn er það fuilt eftirvænt ingar. Bændurnir reka hóp inn í rétt ina, draga eina ána inn f krók tiTr' þess að rýja hana. Einn heldur í hana, annar er handfljótur að klippa af henni reyfið. Lambið, s'em elt hefur móð'ur sína, fylgist undrandi með þeirri breytingu, som skyndilega verður á henni. Hún, sem áður var svo stór og lagðsíð, er mú allt í einu orðin eit.t hvað undarleg, mjóslegin og höf.uð stór. Og ekki tekur betra við, þegar lambið er gripi.ð og klippt úr eyra þfcss, svo að blóð remnur niður kjammana. Það hristir haus inn og kann ekki almennilega við þetta. Svo nasar það af þessari nýju og undarlegu móður. Eitt- hvað kannast það við lyktina, og þegar það er komið á spenann og sýgur volga móðurmjólkina, er enginn vafi á því lemgur, að allt er eins og það á að vera. Ullarreyfinu er fleygt á réttar- vegginn. Þar hlaðast þau upp, , verða siðan sett í poka og send í kaupstaðinn. Þar verða þau veg- in og unnin, og þar eiga þau eftir að breytast í alls konar vefnað. Það er ekki gott að segja. En blaðamenn og ljósmyndarar mega ekki vera að því að rýja fé í alla nótt, þótt það gæti svo sem verið nógu gaman. Þess vegna kveðja þeir fólk og fé og halda burt frá réttinni. Jarmur fénaðarins og kli.ðurinn frá réttinni fylgir þeirn á leið og ómar í eyrum þeirra, þótt hann í reynd sé langt að baki. Á ein- hvern dularfullan hátt flytur hann blaðamanninum löngu liðinn rúningsdag, þegar hann var sjálf ur barn og átti í réttinni heims- , i.ns fallegasta lamb. Það lamb er víst löngu horfið, og slíkir rúningsdagar koma aldrei aftur. En í minningunni verða þeir alltaf til og vitja manns á einhverjum öðrum rúningsdegi í einhverri annarri rétt, eða jafn- vel aðeins við hljóm hinna gömlu töfraorða: Einu sinni var..... — Rún.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.