Tíminn - 12.08.1961, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, laugardaginn 12. ágúst 196:
Stökk í fallhlíf
út úr geimfarinu
NTB—Moskvu, 11. ágúst.
Hermann Títoff majór sagði
í dag blaðamönnum frá hinni
merku geimför sinni á blaða-
mannafundi, sem haldinn var
í hátíðasal Lomonossoff-há-
skólans í Moskvu. Voru þar
blaðamenn, ljósmyndarar,
kvikmyndatökumenn og sjón-
varpsmenn, svo að skipti þús-
undum- víðs vegar að. Sjón-
varpað var frá fundinum,
meira að segja til Bretlands.
Títoff sagði, að ekki myndi
Thoroddsen
vitnar í
ritninguna
Gunnar Thoroddsen, fjár-
málaráðherra, vitnar í biblíuna
í grein sinni í Vísi í fyrradag
gengisfellingu sinni til stuðn-
ings. Gunnar segir:
„Þegar vanda ber að höndum
í — svo mikinn, að velferð heill-
ar þjóðar er í veði — þá verð-
ur sá ríkisstjórn, sem heldur
um stjórnvölinn, að bera gæfu
til að taka ákvörðun — og það
strax.
Það, sem þú gjörir, það
gjörðu fljótt, sagði postulinn
Páll“.
Svo mörg eru þau orð, en
þótt skjótræði sé gott, getur
það orðið fljótræði til miska,
herra fjármálaráðherra.
Það var víst ekki Páll postuli,
sem mælti þessi orð, heldur
sjálfur Jesús Kristur við Júdas,
er hann vissi um, hvað hann
hafði í huga.
f Jóhannesarguðspjalli 13.
kap. 26.—27. versi stendur skrif
að: „Þá gvaraði Jesú: Það, sem
þú gjörir, það gjör þú skjótt“.
En það er alveg rétt hjá
Gunnari, að tilvitnunin er í sínu
fulla gildi, þótt hún sé rang-
feðruð — á jafnvel enn þá bet-
ur við. — Og satt er það, að
rikisstjómin gerði þetta skjott
— eins og Júdas.
Flæktist í spil
í gærmorgun varð það slys í ^
nýja búnaðarfélagshúsinu, að ung-:
ur maður, Tryggvi Eyvindsson, I
Eskihlíð 20, flæktist með vinstri |
hendi í spili, sem er notað til að |
lyfta sementspokum, og meiddist
hann verulega.
Spilið er rafknúið og stendur á
jörð, en sementspokarnir liggja á
palli, sem er festur í taugina, sem
leikur í spilkoppnum. Verið var
að lyfta tveimur pokum af sem-
enti upp á áttundu ht'ð, en
Tryggvi stóð við spilið og beið
þess að pallurinn væri losaður.
Maður, sem stóð við hlið hans,
vissi ekki fyrr til en Tryggvi var
kominn með hendina í spilið,
milli koppsins og kaðalsins. Hann
var þegar losaður og fluttur á
Landakotsspítala, en búizt var við
að hann hefði handleggsbrotnað.
Eigandi spilsins segist hafa not-
að það í 11 ár, án þess að slys
kæmi fyrir, og vinnufélagar
Tryggva tblja hann mjög gætinn.!
líða á löngu áður en menn
settu upp geimstöðar og færu
frá þeim vítt út um geiminn.
Títoff var öruggur í framgöngu
og hress í bragði, er hann tók sér
sæti frammi fyrir fréttamönnun-
um, sem brunnu í skinninu ■ að
heyra hann sjáSían segja frá hinni
sögulegu og viðburðaríku ferð
sinni 17 sinnum umhverfis jörð-
ina.
Vel fyrir kallaður
„Eg var svo vel fyrir kallaður,
að ég tók þann kostinn að stökkva
út og lenda í fallhlíf, þrátt fyrir
að ég hefði getað verið kyrr í
geimfarinu og lent því örugglega
á jörðu niðri“, sagði Títoff ákaf-
ur í skapi, er hann sagði frá. Hann
sagðist hafa mátt velja um, hvom
háttinn hann hefði á í lending-
unni.
Um þyngdarleysið sagði hann,
að hann hefði ekki orðið var við
neina breytingu á líðan sinni
vegna þess. „Þegar ég komst fyrst
í þyngdarlaust ástand, var bók-
staflega eins og ég hefi fæturna
uppíloft, en þetta breyttist fljtt.
Jafnvel þegar ég kom aftur inn
í þyngdarsvið jarðar, varð ég ekki
var við neina skyndilega breyt-
ingu“. j
Talsamband allan tímann
Geimfarinn skýrði annars frá;
því, að hann hefði allan tímann
haft radíósamband við jörðu, jafn
vel þegar hann var lengst frá
henni, í yfir 250 km, fjarlægð.
Kotelnikov prófessor sagði við
þetta tækifæri, að menn hefðu
nú vissu fyrir því, að geimfarar
framtíðarinnar myndu geta haft
talsamband við jörðina á ferðum
sínum til annarra reikistjarna,
auk sjónvarpsins.
Svaf yfir sig og fór
í leikfimi
„Eg gat sjálfur stýrt geimfar-
inu, sagði Títoff, og ég fann, að
þag lét að stjórn minni. Eg gat
alltaf séð til jarðarinnar, og ég
átti ekki í neinum örðugleikum
með að greina ræktað land frá
órækt. Máninn leit út nákvæm-
lega eins og séður úr ökutæki á
ferg á jörðunni um bjarta nótt.
Títoff borðaðj tvisvar á ferð
sinni, en sagðist ekki hafa verið
svangur vegna þyngdarleysisins.
Fyrst í stað átti hann einnig ofur
lítið örðugt með svefn, en þegar
hann hafði vanizt aðstæðunum,
svaf hann vært, „og ég svaf líka
yfir mig“, bætti hann við. Á leið
inni kringum jörðina gerði hannj
nokkrum sinnum leikfimiæfingar, j
eins og ákveðið hafði verið fyrir-l
fram. Á síðustu ferðinni settil
hann bremsumar á og fór ag búa
sig undir lendinguna. Þá birti
mjög upp kringum geimfarið
vegna loftmótstöðunnar, er farið
kom inn í gufuhvolfið. Títoff kaus
eins og fyrr segir, að nota útbún-
aðinn til að skjóta sér út úr geim
farinu áður en það lenti, og sveif
síðan sjálfur niður í fallhlíf.
Hann hefði alveg eins getað lent
í geimfarinu sjálfu.
Utanríkisráðherrar leggja
drög að friðarsamningunum
Reynt að hef ta f lóttamannastrauminn
NTB—Berlín 11. ágúst. —
Seint í haust munu utanríkis-
ráðherrar Varsjárbandalags-
ríkjanna koma saman til fund
ar til nánara undirbúnings
friðarsamningum Ráðstjórnar
innar við Austur-Þýzkaland.
Austur-þýzka þingið sam-
þykkti í dag ráðstafanir til
þess að hindra hinn gífur-
Yfir 100 þús. mál
til bræðslu á
Yopnafirði
Vopnafirði, 10.8. — Búið er
að taka á móti yfir 100 þús-
und málum síldar til bræðslu
hér á Vopnafirði.
Söltun fer enn fram, en mest
af aðkomufólkinu, sem unnið hef-
ur að söltuninni, er nú farið. Salt-
að hefur veríð á þremur plönum.
Nokkuð af síld hefur farið í fryst-
ingu.
Um verzlunarmannahelgina var
haldin skemmtun hér í kauptún-
inu og fór hún vel og friðsamlega
fram. Kiljanskvöld var hér á
þriðjudaginn og létu menn vel
yfir.
Þurrkflæsur hafa komið hér
undanfama daga og hefur þá
bjargast mikið af heyjum, en þau
lágu víða undir skemmdum eftir
undanfarandi votviðri.
Góð huraarvertíð
Þorlákshöfn 11. ágúst. — Hum-
arvertíðinni er nú að ljúka, og
má segja að aflinn í heild hafi
verið góður. Þó hefur hann verið
heldur lélegur nú undir lokin.
Talsvert mikið hefur verið um
byggingar hér í sumar. Hefur
verið byrjað á 8 íbúðarhúsum, og
bygging tveggja í viðbót verður
væntanlega hafin innan skamms. j
Einnig er áformað að reisa nýja
fiskverkunarstöð, og er nýlega
byrjað á því verki.
Flestir bátar munu fara á drag
nót nú að lokinni humarvertíð-
inni, en einhverjir verða með
fiskitroll. Ef sætmilega veiðist,
verður hér næg atvinna við
vinnslu aflans. Á.B.
lega straum flóttamanna til
V-Þýzkalands.
Austur-þýzka þingið samþykkti í
dag einróma ályktunartillögu, sem
gefur stjórn Ulbrichts vald til þess
að hefja framkvæmd ályktana
þeirra, sem Varsjárbandalagsfund-
urinn, er haldinn var nýlega í
Moskvu, gerði um Berlínarmálin
og Þýzkaland.
Aukið eftirlit
Þingið lagði einnig blessun sína
yfir yfirlýsingu frá Lothar Bolz,
utanríkisráðheira, og ráðstafanir
þær, sem stjórnin hefur gert til
þess að stöðva þá svokölluðu
mannaverzlun og höfðaveiðar, sém
rekmar eru af Vestur-Þýzkalandi
og Vestur-Berlín. Á þetta við ráð-
stafanir til þess að reyna að stöðva-.
fólksflóttann.
Fyrirskipunum fylgt
í yfirlýsingu sinni sagði Lothar
Bolz, að fundur meðiimaríkja Var-
sjárbandalagsins hefði mælt svo
fyrir, að gerðar skyldu allar nauð-
synlegar stjórnmálalegar og efna-
hagslegar ráðstafanir til undirbún-
ings friðarsáttmála við Þýzkaland.
Einnig yrði að sjá um, að ákvæð-
um friðarsáttmála yrði fylgt, og
gilti þetta einnig um ákvarðanir
um, að Berlín skuli verða óher-
vædd, frjáls borg.
Bolz skýrði samtímis frá því,
að utanríkisráðherrar Varsjár-
bandaiagsins myndu koma sam-
an með haustinu til þess að at-
huga, hvernig þetta undirbún-
ingsstarf hefði gengið. Undirbún
ingurinn er þegar hafinn, sagði
hann, einkum í efnahagsmálun-
um, og hans eru þegar farin að
sjást merki út á við.
Sovézkir vísindamenn skýrðu
frá því á fundinum, að rannsókn
arefnið frá ferð þcssari yrði alit
birt svo skjótt sem unnið hefði
verið úr því, og fengju vísinda
menn allra landa aðganig að því.
Forseti rússncsku akademiunn-
ar kvað erlenda fréttamenn
myndu fá að vera viðstadda, er|
Sovétríkin sk.ytu á Ioft geim-
fari cinhvern tíma áður en langt
um liði. i
Síldin
(Framhald ai 1 siðu.;
Þeir bátar, sem fengu síld í
nótt, dreifu aflanum á Austfjarða
hafnirnar. Til Neskaupstaðar
komu þessi skip með síld: Ófeig-
ur VE 600 mál, Akurey SF 700,
Vrðir SU 1100, Steinunn 850, Sig-
urfari AK 500, Einar Þveræing-
ur 500, Muninn 550 og Hafaldan
NK með 250 tunnur í salt. V.S.
Seyðisfirði 11. ágúst. — Mikil
síld barst hingað í gærkvöldi,
sennilega um 10—12 þúsund mál
frá 10—12 bátum. Síldarflutninga
skipin Thalis og Aska eru að
lesta síld, sem fer til Hjalteyrar
en Jolita er á leið til Siglufjarðar
meg síld. Veiðihorfur eru góðar,
Veður gott, en dálítil þoka sums
stað'ar á miðunum. L.H.
5 héraðsmót Framsóknar-
manna um þessa helgi
V estur-Skaf taf ellssýsla
Héraðsmótið verður að Kirkjubæjarklaustri n. k. laugardag og
hefst það kl. 9 s.d.
Mótið setur Jón Helgason, Seglbúðum. Ræður flytja Ágúst
Þorvaldsson, alþm. og Helgi Bergs, verkfr.
Árni Jónsson, óperusöngvari, syngur með undirleik Skúlg
Halldórssonar, tónskálds. Ómar Ragnarsson fer með gaman-
vísur. Þá verður dansað.
Norður-Þingeyjarsýsla
Mótið verður haldið að Skúlagarði í Kelduhverfi n. k. laugar-
dag og hefst kl. 8.30 s. d.
Ræður flytja alþingismennirnir Eysteinn Jónsson og Karl
Kristjánsson.
Fluttir verða söngvar úr óperettum. Söngvarar Björg Bald-
vinsdóttir og Jóhann Ögmundsson.
Að lokum verður dansað.
Skagafjarðarsýsla
Héraðsmótið verður að Sauðárkróki n. k. sunnudag og hefst
kl. 8 s. d.
Ræður flytja alþingismennirnir Ólafur Jóhannesson og
Skúli Guðmundsson.
Hinn vinsæli Smárakvartett frá Akureyri syngur og Ævar
R. Kvaran leikari skemmtir.
Síðan verður dansað.
Eyjafjarðarsýsla
Mótið verður að Laugaborg í Eyjafirði n. k. sunnudag og hefst
kl. 8.30 s. d.
Ræður flytja alþingismennirnir Eysteinn Jónsson og Karl
Kristjánsson.
Einsöng syngur Erlingur Vigfússon.
H.H.-kvintettinn leikur fyrir dansi.
r
Arnessýsla
Framsóknarmenn i Arnessýslu halda hina árlegu héraðshátíð
sína að Aratungu. Biskupstungum, sunnudaginn 13. ágúst n.k.
og hefst hún kl. 9,30 e. m.
Að vanda verður þessi héraðshátíð fjölbreytt. Verða þar
fluttar ræður, Árni Jónsson óperusöngvari syngur með undir-
leik Skúla Halldórssonar tónskálds. Ómar Ragnarsson fer með
sínar vinsælu gamanvisur. Enn fremur .yerður dansað.
Nánar ver?ur sagt frá dagskránni í blaðinu eftir helgina.