Tíminn - 12.08.1961, Blaðsíða 12
12
TIMINN, laugardaginn íz. agusi zoti.
jfyr^Ofr tímímr .
.. sigrum í kvöld
RITSTJORl HALLUR SÍMONARSON
sagfö Helgi Daníelsson fyrir leikinn í fyrrakvöld
og þeir sigruðu KR3:
t
„O, við sigrum þá núna,'
sagði Helgi Daníelsson, er
undirritaður mætti honum á
götu uppá Skaga rétt fyrir
leik ÍA og KR. Ekki hefur
Helgi því verið sarna sinnis
og sá, sem setti klausunn í
blaðið í gær, að „úrslitin
hefðu komið á óvart." En eins
og kunnugt er, sigruðu Akur-
nesingar í þessum leik 3:1. ,
Óhlutdrægt hugsa ég þó, að það
hafi verið fleiri sem héldu, að KR
mundi sigra í þessum leik, þótt
ekki væri annað haft til hliðsjón-
ar en leikir Ilafnfirðinga við þessd
tvö félög. En það ættu menn að
vera farnir að læra af reynslunni,
hvað knattspyrnu viðkemur, að
aldrei er hægt að segja fyrir um
úrslit í leik.
í upphafi leiksins var augsýni-
legt að liðin voru nokkuð yfir-
spennt, og leikmenn áreiðanlega
haf.t ofarlega í huga hversu þýð-
ingarmikill þessi leikur var. KR-
'ingar gátu með þessum leik svo
að segja tryggt sér sigurinn í mót
inu, en Akurnesingar aftur á
móti urðu að sigra til þess að
þeir ættu að geta varið titil sinn.
Leikurinn var í fyrstu mjög
harður og upphlaupin á báða
bóga. Þó voru KR-ingar ekki hættu
legir er að vítateig kom, þar brotn
aði sóknin áberandi oft. Virtist
enginn í framlínunni gera sér
ljóst, að til að sigra, þarf að
skora mörk.
1—0
Á 10. mínútu eíga Akurnesing-
ar leiftursókn upp vinstra meginn,
Þórður Þórðarson fær knöttinn út
á hægri kanti og leikur á þrjá
■<aenn upp að endamörkum og gef
ur vel fyrir markið til Jóhannes-
ar, sem skoraði viðstöðulaust
fyrsta mark leiksins. Þetta var vel
gert hjá Þórði, og sýndi hann,
þann stutta tíma sem hann var
inná, að Akranesliðinu er mikill
styrkur af nærveru hans, en hann
varð að fara út af vegna meiðsla
á 27. mínútu. Aftur á 25. mínútu
er Þórður Þórðarson með knött-
inn, iék bæði Garðar og Hörð af
sér, spyrnti hann að markinu en
laust, beint á Heimi, sem átti auð'
velt með að hirða knöttinn.
2—0
Rétt eftix þetta upphlaup varð
Þórður að yfirgefa völlinn, eins
og fyrr segir, og varð sókn Akur-
nesinga allt önnur en áður.
Léku nú Akurnesingar aðeins
með 10 mönnum nokkra stund,
meðan læknir var að reyna að
gera að meiðslum Þórðar. En
þetta dugði ekki, því Akumesing
ar börðust mikinn og á 35. mín-
útu átti Þórður Jónsson hörku-
skot, sem fór aðeins framhjá og
utan í hliðarnetið.
Þrjár tilraunir gerði Þórður
Þórðarson til þess að leika með
en árangurslaust, og rétt í lok
hálflelksins kom varamaður inná.
Ei.tt tækifæri áttu KR-ingar í
þessum hálfleik og það var á fer-
tugustu mínútu. Helgi var kom-
inn út, Gunnar Pelixson skallaði
að markinu, en knötturinn fór í
þverslána.
Á 44. mínútu gera svo Akurnes-
ingar annað mark sitt í þessum
hálfleik og gerði það Ingvar Elías
son, sem hljóp Hörð Felixson af
sér, náði knettinum á markteig
og spyrnti Ingvar knettinum auð-
veldlega í netið. Fyrri háifleik
lauk þvi 2—0, en hefði eftir gangi
leiksins átt að enda 2—1 fyrir ÍA.
2—1 og 3—1
Strax á fyrstu mínútum síðari
hálfleiks' gera KR-ingar harða hríð
Helgi fylgist vel meS hér á myndinnl. ÞaS eru tveir Akurnesingar og einn KR-ingur, sem eigast þarna
Garðar Árnason var vel með í leiknum. Hér er sókn að KR-markinu, en var bjargað. (Ljósm.: Ingim. Magn.).
að marki Akurnesinga og skora ganga upphlaupin nokkuð jafnt á
eina mark sitt í leiknum. Gerði báða bóga, en Akurnesingar voru
það Gunnar Felixson. Fyrstu 17
mínúturnar af síð'ari hálfleik
hættulegri í sínum upphlaupum.
Á 17. mínútu kemur knötturinn
hátt inn fyrir varnarvegg KR-inga
og hleypur Ingvar á eftir knett-
inum og skallar í netið yfir Heimi.
Þetta var óskiljanlegur klaufa-
skapur hjá KR-vörninni, þó svo að
þeir hafi álitið Ingvar rangstæð-
an, þá er það dómarinn sem gef-
ur úrskurð'inn, og í þessu tilfelli
kostaði það mark að ætla að
itramiiaio a 10 siðui
Þetta er annar þjálfarlnn, Ernzt Hlersfelt, sem áttl um tíma heimsmet í kúluvarpl, og með honum er Hoffmann
sem keppir í kúluvarpi í landskeppninni. Guðjón Einarsson tók þessa mynd á Melavelli í gær, er Þjóðverj-
arnir voru að liðka sig eftir Þingvallaferð.
Landskeppn-
in kl. 4 í dag
Klukkan fjögur í dag liefst á hefur verið færð fram. Stangar-
Laugardalslcikvanginum lands- stökkskeppnin verður einnig í
’-.eppni A-Þjóðverja og fslendinga dag og þar mætir Valbjörn Þor-
í frjálsíþróttum. Þetta er í annað Iáksson, en eins og menn vita, var
kiptið sem þessar þjóðir mætast. óttazt, að hann gæti ekki verið
í fyrra skiptið urðu úrslit þau, að með vegna meiðsla, sem hann
V-Þjóðverjar sigruðu með fjöru- hlaut í Osló fyrir skömmu.
íu stiga mun. Það er ekki að efa, að um góð
afrek verður að ræða innfrá á
í dag verður keppt m.a. í þrí- Laugardalsvelli nú um helgina og
tökki, þar sem VUhjálmur mæt- fólk ætti ekki að láta þetta ein-
ir Richbourn, en þeir hafa stokk- stæða tækifæri iganga sér úr greip
ið álíka langt í sumar, þó Þjóð- um til þess að sjá frjálsar íþróttir
verjinn aðeins Iengra. Þessi eins og þær gerast beztar í Evr-
i keppni var ráðgerð á mongun en ópu í dag.
/