Tíminn - 01.09.1961, Side 2

Tíminn - 01.09.1961, Side 2
15 ÁRA STARFSEMI SAMVINNUTRYGGINGA Aukin spenna í alþjóðamálum Fyrirtækió gefur fimmtíu þúsund krónur til blmdraheimilis í Reykjavík Samvinnutryggingar hófu starfserrvi sína 1. september 1946 og eru því 15 ára í dag. Samband ísl. samvinnufélaga, undir forstjórn Vilhjálms Þór, hafði forgöngu um stofnun þ’eirra og lagði fram fyrsta starfsfé. í samþykktum Samvinnutrygg- inga segir svo: „Eige-ndur stofnun arinnar eru þeir, sem á hverjum tíma tryggja hjá henni.“ Af þessu grundvallarákvæði leiðir eðlilega að öll starfsemi miðast við hags- muni hinna tryggðu. Lýðræðisleg hlutdeild þeirra er m.a. tryggð' með 15 manna fulltrúaráði, kosnu úr ýmsum stéttum og frá öllum landshlutum. Það kemur saman a.m.k. einu sinni á ári. Auk þessa fulltrúaráðs ræður fyrirtækinu 5 manna stjórn, manna úr öllum stjórnmálaflokkum, og frá árs- byrjun 1955 sérstök 3ja manna framkvæmdastjórn. Þá má og geta þess í beinu áframhaldi varð andi fhlutunarrétt eigenda, að sérhverjum tryggingartaka hjá Samvinnutryggmgum, er heimilt að leggja tillögur sínar fyrir aðal- fund. Fólkið x landinu hefur tekið starfsemi Samvinnutrygginga og f jölmörgum nýmælum í sambandi við hana eindæma vel. Þegar eftir 5 ár voru Samvinnutryggingar orðnar annað stærsta trygginga- félag landsmanna, og eftir 10 ára starfsemi það stærsta og hafa ver ið það síðan. Síðustu megintölur, fyrir árið 1960, gefa nokkra hug- mynd um afgang starfseminnar. Það' ár námu iðgjaldatekjur,nar 84.8 milljónum kr. Nálega 60 millj. kr. voru greiddar í tjónbæt ur, um liy2 millj. kr. lagðar í ið- gjaldasjóði og ca. 7.4 millj. kr. voru beinlínis endurgreiddar til tryggingartaka á því eina ári, auk bónusgreiðslna, og er það mesta iðgjaldaendurgreiðsla, sem verið hefur á einu ári, en samtals nema beinar iðgjaldaendurgreiðsl ur á liðnum starfstíma um 30 millj kr. Samvinnutryggingar hafa innleitt fjölmörg nýmæli í tryggingarstarf semi landsmanna til hagsbóta hin um tryggðu ýmist beint eða ó- beint, enda viðskiptamenn hinna | tryggingarfélaganna einnig notið þeirra í ríkum mæli. Samvinnu- tryggingar uiðu fyrstar til þess að veita farsælum ökumönnum, ' sem ekki valda tjóni, raunhæfa viðurkenningu í verki með hag- 1 kvæmari tryggingakjörum. Er iðgjaldaafsláttur (bónus) til þess- I aði erlendis og jafnframt taka sí- j aukinn þátt í endurtryggingum ! fyrir útlend tryggingafélög og j gera þannig þau viðskipti sem hag- stæðust íslendingum. f árslok 1960 námu iðgjalda- og tjónasjóðir Samvinnutrygginga 109,9 millj. kr. Vegna þessara heil- brigðu og nauðsynlegu sjóðsmynd- ana hefir fyrirtækinu m. a. verið kleift að lána allmikið fjármagn til einstaklinga og fyrirtækja víðs vegar á landinu. Námu þau útlán (Framhald af 1. síðu.) verið rekinn löðrungur, sem vinna vilja að tryggingu friðar, og auk- in alþjóðaspenna sé fyrirsjáanleg. í blóra við samþykkt S. Þ. í höfuðstöðvum SÞ hélt Adlei Stevenson, fulltrúi Bandaríkjanna fund meg nánustu samstarfsmönn um sínum, ’og hjá þjóðasamtök- unum , New York vilja menn ekki útiloka þann möguleika, að grípi til einhverra ráðstafana í sam- bandi við ákvörðun Rússa. Bent er á, að hún er í blóra við sam- þykktir SÞ. í desember í fyrra var samþykkt á allsherjarþinginu hvatning til kjarnorkuveldanna að halda áfram stöðvun tilrauna af eigin hvöt, og greiddu Sovétríkin atkvæði með þessu. Bandaríkin og Bretland hafa þegar lagt málið að á sunnudaginn myndu þeir gangast fyrir mótmælagöngu að . sovéska sendiráðinu í London. f ''kvöld ætlaði John Collins, form. félagsskaparins, að afhenda í sendiráðinu bréf til Krustjoffs með beiðni um að taka ákvörðunina um sprengingar til nýrrar yfir- vegunar. Kennedy bíö- ur um sinn Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Samvlnnutrygginga. Erlendur Einarsson, fyrsti fram kvæmdastjóri Samvinnutrygginga. ara ökumanna nú 30% eftir eitt tjónalaust ár. Bónuskerfi þetta, sem í fyrstu mætti harðri mót- spymu, hefur síðan verið viður- kennt af öllum og önnur trygg- ingafélög tekið það upp. Auk þess var bifreiðatryggjendum endur- greiddur 10% tekjuafgangur vegna sl. árs. Geta fyrirtækisins í þessu efni fer að sjálfsögðu eftir tjóna- bótum frá ári til árs. Þá hafa Samvinnutryggingar | unnið að því að losa um gamla tryggingarfjötra, eins og t. d. brunatryggingar á fasteignum sem, áður voru í einkarétti eins félags, og hafði það í för með sér stór- fellda lækkun brunatryggingaið- gjalda á húsum utan Reykjavikur, en höfuðstaðarbúum var mei-nað að njóta slíkrar lækkunar eins og efni gátu staðið til. Samvinnutrygg ingar hafa einnig beitt sér fyrir og haft forgöngu um fjölbreytni og nýmæli á tryggingasviðinu til samræmis við það, sem bezt gerist erlendis. Má þar nefna til dæmis heimilistryggingar. sem eru mjög n'ðtækar, jafnframt því að vera ódýrar, enda vinna þær hylli al- ^ennings í æ ríkara mæli. Öryggismál hafa Samvinnutrygg ingar létið mjög tii sín taka, t.d. með útgáfu tímarits og bæklinga, brunavarnaeftirliti, verðlaunaveit- ingu fyrir tillögur um meira ör- yggi í umferð o. s. frv. Eitt af því, sem Samvinnutrygg- ingar hafa unnið markvisst að, er að draga úi^ endurtryggingakostn á sama tíma 62,4 millj. kr. Frá upphafi hefur verið lögð stund á hagkvæmt starfsskipulag, tækniþróun og hagsýni í rekstri. Hefur-þessi viðleitni borið sýni- legan árangur, þegar borið er sam- an við reksturskostnað hliðstæðra fyrirtækja — einnig erlendra. Stjórn Samvinnutrygginga hefur verið þannig skipuð frá upphafi: Vilhjálmur Þór, bankastjóri, var fyrsti stjórnarformaður: frá 1946— 1954. Síðan hefur Erlendur Ein- arsson, forstjóri, verið formaður stjórnarinnar. Aðrir stjórnarmenn hafa verið óslitið frá upphafi: Jakob Frimannsson, kaupfélags- stjóri, Akureyri, ísleifur Högna- son, forstjóri, Reykjavík, Karvel Ögmundsson, útgerðarmaður, Ytri- Njarðvík, og Kjartan Ólafsson frá Hafnarfirði. Framkvæmdastjórar Samvinnu- trygginga hafa verið þrír: Erlendur Einarsson frá 1946 til ársloka 1954, þá Jón Ólafsson hrl. til 1. ágúst 1958, en síðan Ásgeir Magnússon, cand jur. Auk hans eru í framkvæmdastjórn deildar- stjórarnir Björn Vilmundarson frá brunadeild og Jón Rafn Guðmunds son frá sjódeild. Aðrir deildar- stjórar eru: Ólafur Kristjánsson fyrir b'freiðadeild og Valur Arn- þórsson t'yrir endurtryggingadeild. í tilefni af 15 ára afmæli Sam- vinnutrygginga hefur stjórn þeirra ákveðið xð gefa kr 50.000,00 til Blindraheimilisins í Reykjavík. Kennedy Bandaríkjaforseti sendi í dag út aðra yfirlýsingu sína á einu dægri vegna ákvörð- unar Ráðstjórnarinnar. Hann sagðist þar sannfærður um, að bandarísk kjamorkuvopn væru bæði í stærð og styrkleik full- nægjandi til að tryggja frelsi Bandaríkjanna og liins frjálsa heims. í yfirlýsingu þessari var ákvörðun Rússa túlkuð sem eins' konar atóm-kúgun, ógnanir í stað röksemda til þess að hafa sitt mál fram. Ilann ráðgaðist í dag við helztu ráðgjafa sína, þeirra á meðal Rusk utanríkisráðherra. Ekkert hefur verið sagt um það af hálfu1 Bandaríkjastjórnar, hvort hún taki upp tilraunir sínar að nýju, en umæli Rusks, er hann kom af fundi með Kennedy, eru túlkuð á þann veg, að Bandaríkin muni bíða með slíkt eins lengi og Kennedy þyki stætt á gagnvart bandalagsþjóðum sínum, en úr ýmsum áttum koma fram kröfur um slíkt. Af áróðursástæð'um þyk ir Bandaríkjamönnum betra að láta Rússa eina um andúð friðar- sinna fyrst um sinn. Genfarráðstefnan Framhald af 3. síðu. : Home utanríkisráðherra", sagði j hann. Þessi ákvörðun Rússa sagði | hann að væri tekin á þeirri stundu \ er vesturveldin legðu sig fram við nýjar tilraunir til samkomulags um bann við öllum kjarnorkutil j raunum. Dean sagði við brottför : sína, að Bandaríkin legðu enn á það mikla áherzlu að komast að samkomulagi og hefðu ekki gefið upp alla von um, að Genfarviðræð umar yrðu teknar upp að nýju. Hann neitaði því, að samningavið- ræðurnar væru rofnar fyrir fullt og allt. Fulltrúi sinn, Charles Stelle yrði um kyrrt í Genf. Verkfræðingar (Framhald af 3. síðu) inga og lyfjafræðinga í launamál- um, og lyfjafræðingar hafa enn ekki boðað til vinnustöðvunar. Að dómi verkfræðingafélagsins hafa atvinnurekendur ekki enn gert félaginu raunhæft tilboð Sáttasemjari hefur deiluna til með ferðar, en viðræðufundir hafa ver ið fáir. Ekki hafði verið boðað til nýs fundar í deilunni í gærkvöldi, er blaið aflaði sér þessara upplýs- inga hjá framkvst. Stéttarfélags verkfræðinga. — Framkvæmda- stjórinn gat þess, að verkfræð- ingar hafi gert sér Ijóst, er þeir hófu verkfallið, að deilan myndi verða langvinn og erfið. Sjövik fram á lista allsherjarþingsins, er kemur saman 19. sept. Vísinda- nefnd allsherjarþingsins kom í dag saman til lokaðs fundar, og var þvi engin ummæli að hafa úr þeirri átt. Um umræðuefnið leik ur varla vafi. Kínverska fréttastofan sendi í dag út yfirlýsingu, þar sem lýst j var fullum stuðningi við ákvörð- un Ráðstjórngrinnar. Austur- þ. stjórnin gerði »hið sama Nehru, forsætisrh. Indlands, sem nú er í Belgrad, kvað Indverja hins veg ar fullkomna andstæðinga allra kjarnorkuvopnatilrauna, hverjir. sem gerðu þær. og talsmaður ut- anríkisráðuneytis Indlands í New Delhi tók í sama streng. Mótmæli í Lorríon Forystumenn brezku hreyfing- arinnar, sem berst f'yrir kjarnorku afvopnun, skýrðu í dag frá því (Framhald af 1. síðu.) nauðsynlegt að halda skipinu vel stöðugu, og var hásetinn við stýrið með allan hugann við stýrið og hafði augu á áttavitanum. Varð ekki forðað Miðunin tók um tíu mínútur. Allt í einu sáu skipverjar norska skipið örskammt framundan, og var þá stýrið lagt hart á stjórn- borð og olíugjöf tekin af vélinni. En þá var það um seinan, því að áreksturinn varð í sömu andrá. Norðmennirnir sáu aftur á móti til Seleyjarinnar, en héldu, að á- höfnin ætlaði aðeins að hyggja að aflanum. Á síðustu stundu settu svo Norðmennirnir vélina á fulla ferð áfram, en áreksturinn varð, þegar hún var í þann veginn að taka við sér. Höggið mun þó hafa komið aftar á skipið en ella vegna þessa. Báðir aðilar herma, að skipið hafi verið sokkið að fullu eftir fimmtán mínútur. Skyggnið Um skyggnið ber aðilum ekki fyllilega saman, og er það rangt, sem áður hefur verið sagt, að það hafi verið ágætt eða eins og bezt var á kosið. Loft var þokufullt. Báðir aðilar telja, að skyggnið I hafi ‘verið breytilegt. Seleyjan sigldi fram hjá þremur bátum nokkurri stundu áður en árekst- urinn varð, og telur stýrimaður- inn, að skyggni hafi þá verið 3— 500 metrar, en vélstjórinn ætlar það 300—400 metra, litlu áður en áreksturínn varð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.