Tíminn - 12.10.1961, Qupperneq 2
1
TÍMINN, fimmtudaginn 12. október 1981.
Guðmundur Sentsíus Jónsson
Spörkuðu sig úr „steininunf
(Framhald af 1. síðu).
með í vasanum. Hins vegar má
gera rág fyrir, að menn þessir geti
ekki setið lengi á sér að brjótast
inn eða stela, ef þeir ganga lausir.
Hvort annars verra má vænta frá
þeirra hendi skal ekki fullyrt, en
blaðinu er þó kunnugt, að Jóhann
réðst á mann víg Reykjavíkur-
höfn í sumar, sló hann og tók af
honum brennivinsflösiku.
Erindi?
Götulögregilán hóf þegar leit
ag strokuföngunum, Tveir rann-
sóknarlögreglumenn tóku þátt i
leitinni í gær. Þeir Jóhann voru
ófundnir um miðjan daginn.
Rannsóknarlögreglumaður, sem
blaðið hafði tal af, sagði, að ó-
mögulegt væri ag gera sér í hugar
iund, hvað þessir náungar ætluð
ust fyrir. Kannski hefðu þeir ætl-
að að skreppa og hitta vinkonur
sínar og koma svo í leitirnar án
þess að láta hafa mikið fyrir sér.
Hvag sem því líður, er víst, að
lögreglan leggur allt kapp á að
finna þessa menn.
Notuðu fæturna
Þeir Jóhan.n og Guðmundur
voru geymdir í nálægum. klefum
í austurtálmu fangahússins. Þar
er hægt að kallast á, enda er hús-
ið hljóðbært. Báðir notuðu sömu
aðferðina til að komast upp á
geymsluloftið, sem er yfir fanga
klefunum. Þeir lögðust á bakið í
gluggakisturnar og spörkuðu í
loftfjalirnar, sem eru huldar
þunnu pússningarlagi. Ilvort þeir
hafa notið annars við en fótanna,
er ekki vitað, en kojur þeirra
voru heilar. Ein hurg er á milli
geymsluloftsins og bæjarþi.ngstof-
unnar. Hana rifu þeir upp og földu
sig á bæjarþimgstofunni, unz aðal-
dyr fangahússims voru opnaðar um
morguninn. Þá læddust þeir nið-
ur stigamn og út á Skólavörðustíg.
Fjárlögin
(Framhald af 1. síðu).
um" og ennfremur að
lækkuð sé f járveitingin
vegna væntanlegra breyt-
inga á niðurgreiðslum.
★ Stórfelld útþensla er í rík-
iskerfinu í stað sparnaðar
og ráðdeildar á því sviði,
sem marg lofað var.
★ Það nýstárlega „bókhald"
er upptekið tii þess að
leyna greiðsluhallanum á
frumvarpinu, að telja ekki
með útgjöldum í frum-
varpinu lögboðnar greiðsl-
ur „af því að þær verði
greiddar með skuidabréf-
um" eða lánumil!
Flokksstarfið úti á land
ARNESINGAR
j
Framsóknarfélag Selfoss er nú að hefja vetrarstarfseml sína. Annað
kvöld verður haldin á vegum félagslns kvöldskemmtun og hefst
hún kl. 9 s.d. Aðalskemmtiatriðið er, að hin vinsæla og þekkta listakona
HALLBJÖRG BJARNADÓTTIR, skemmtir.
Hljómsveit Óskars Guðmundssonar lelkur fyrir dansl.
Kennsla í meðferð
björgunarbáfa
Á mánudaginn í næstu viku
munu hef jast námskeið á veg-
um Slysavarnafélags fslands,
þar sem kennd verður og æfð
meðferð gúmmíbjörgunar-
báta. Munu námskeiðin standa
daglega frá klukkan 6 eftir
hádegl, og er gert ráð fyrir,
að á hverju kvöldi komizt að
um 20 til 30 manns. Þess er
vænzt, að sjómenn og forráða-
menn skipa noti þetta tæki-
færi til þess að læra að fara
með bátana.
Námskeiöiiii rnuinu fara fram í
húsi Siysavarnafélagsins á Granda
garöi. Kennslu oig æfingar á nám-
ökeiöunum munu annast þeir Óli
Bárödal, löggiltur eftirlitsmaöur
gúmmíbjörgunarbáta, og Ásgrim-
ur Bjömsson, sem kennt hefur
meö'forö gúmmíbjörgunarbáta í
Stýrimannaskólanum, Þeir, sem
vilja taka þátt í þessum námskeið
um, skulu hafa samband við skrif
stofu félagsins í síma 14897 og
Mta skrá þátttöku sína. Ef skips-
hafnir óska eftir aö fá tilsögn á
öðrum tóma, en að framan grein-
ir, mun félagið reyna að útvega
tíma í samræmi við óskir þeirra.
Þessum námskeiðum verður hald
ið áfram svo lengi sem aðsókn
verður að þeim. Slysavarnafélag
ið hefur gúmíníbát til umráSfl. til
þess að sýna f raun, hvérnTg' pregð
Sjómenn hvattir til þátttðku
Hvað gerir
Salan ?
NTB—París, 11. okt.
Af öryggisástæðum gerði
lögreglan í Algeirsborg hús-
rannsókn í miðbænum. Náði
hún til um það bil 1000
manna. Tilgangurinn var eink-
um sá að freista þess að hafa
hendur í hári forustumanna
leynihreyfingarinnar OAS, en
hún er bönnuð í landinu.
Þetta var gert, þar eð jafnvel
var búizt við einhverjum aðgerð-
um af hálfu OAS. Ólgan er mest
í Oran í Vestur-Alsír. Frönsk
yfirvöld hafa sent þangað öryggis
sveitir og aukinn liðstyrk til að
vera við öllu búin. í gærkvöldi
voru sprengdar þar sex plaist-
sprengjur, og auk þess notuðu
uppreisnarmenn sprengiefni í of-
beldisárás, sem þeir frömdu þá
um kvöldið. en þar að auki
kveiktu þeir i verzlunum Múham-
eðstrúarmanna og stóðu i slags-
málum við þá. Formaður nefnd-
arinnar, sem styður de Gaulle,
særðist, er ungir Evrópumenn réð
ust á hann. Samkvæmt heimild-
um, sem standa mjög nærri
frönsku stjórninni, er talið, að
mjög bráðlega megi búast við al-
varlegum aðgerðum af hálfu
Raoul Salan, hins afdankaða hers
höfðingja, sem nú er aðalforingi
OAS-manna, og fylgismanna
hans. En yfirvöldin bíða nú á-
tekta og virðast við öllu búin.
Þessl mynd er af skipbrotsmönnunum af Sleipnl í gúmmíbjörgunarbátn-
um, sem bjargaðl lífi þeirra.
ast Wal við í hinum erfiðustu
björgunaraðstæðum, og einnig
munu verða haldnar kvikmynda-
sýningar, sem sýna meðferð bát-
anna, Að þessum námskeiðum
loknum mun félagið halda sams
konar námskeið á öllum helztu
verstöðvum landsins og leitast vig
að hafa þau á þeim tímum, þegar
sem flestir sjómenn eru þar að
störfum, Öll þessi námskeið mun
Slysavarnafélagið sjálft kosta.
Einnig mun félagið gangast fyrir
námskeiðUiip á næstþnni, þar sem
leiðbeint verðúr um slysavarnir
í heimahúsum, hjálp í viðlögum
og slysavarnir á vmnustöðum.
Verða þessi námskeið auglýst sér
staklega. Auk þess hefur Slysa-
varnafélagið í smíðum kvikmynd,
sem sýnd verður í barnaskólum
í vetur. Fjallar kvikmyndin um
það, hve il'la getur farið, þegar
maður gætir sín ekki sem skyldi
í umferð'inni. Það eru þeir Gestur
Þorgrímsson kennari og Oddur
Ólafsson ljósmyndari, sem annast
munu gerð kvikmyndarinnar.
Mannslífið er dýri
Það er brýn nauðsyn, að allir
þeir, sem fást við sjómennsku um
lengri eða skemmri tíma, læri með
ferð gúmmíbjörgunarbáta. Bæði
líf þeirra og annarra getur riðið
á því, að þeir kunni að fara með
þessi tæki. Það er ekki nóg, að
nokkrir menn á hverju skipi
kunni meðferð þessara björgunar-
báta, því að það er enga-n veginn
víst, ag það komi í þeirra hlut að
gera þá tii reiðu, þegar slys ber
að höndutn. Aðstæður geta verið
þannig, að það verði einmitt hlut-
skipti þess, sem ekki kann með-
ferð þeirra. Sjómenn verða skii-
yrðislaust að kunna meðferð bát-
anna, og það hlýtur að vera sið-
ferðileg skylda hvers skipstjóra,
að sjá um að svo sé.
Mannslífið er dýrt, svo dýrt,
að það verður aldrei bætt, ef það
týnist. Þess vegna verða allir að
gera það, sem í þeirra valdi stend
ur til þess ag bjarga því.
Islenzkur heim
ilisiðnaður
Laufásvegi 2
Hefur til sölu úrval af góð-
um ullarvörum.
£
Ihaldsm.
þinga í
Brighton
NTB—Brighton, 11. okt.
Brezki utanríkisráðherrann,
Lord Home, sagði á lands-
fundi íhaldsflokksins í Bright-
on í dag, að ef reynt yrði að
hindra samgöngur við Vestur-
Berlín, gæti það leitt til bar-
daga og ógerlegt væri um það
að segja, hvort það gæti orðið
til að koma af stað kjarnorku-
stríði.
„Ég held, að okkur hafi tekizt
að sannfæra Gromyko um, að
slíkt ástand megi alls ekki skap-
ast“ bætti hann við. Lord Home,
sem flutti ræðu sína á flokksfund
inum fáeinum klukkustundum
eftir fundinn með Gromyko,
sagði að það, sem læra mætti af
þeim viðræðum, sem átt hafa sér
stað fram að þessu, væri m. a.,
að á sama tíma og Vesturveldin
mættu ekki hlífast við að gera
allt, sem þau gætu til að hajda
við friði í heiminum, yrðu þau þó
að vera viðbúin að leggja allt í
sölurnar fyrir frelsið.
Meðal annarra ræðumanna á
flokksfundinum voru þeir Iain
Macloyd, fyrrverandi nýlendu-
málaráðherra, sem nú tekur við
formennsku í flokknum, og innan
ríkisráðherrann, Richard Butler.
Ýmsar samþykktir hafa verið
gerðar á fundinum og mörg mál
rædd. þ á m. innganga Breta í
Sameiginlega markaðsbandalagið
og ýmis vandamál samveldisland-
anna í sambandi við það, Enn
fremur var rætt um afstöðu
Breta til nýlendumála og ástand-
ið í Kongó og víðar í Afríku.