Tíminn - 03.11.1961, Qupperneq 2
2
T í MIN N, föstudaginn 3. nóvember 19S1
Flokksstarfið úti á landi
„Menn geri sér hug-
mynd um þau ósköp,
sem dunið hafa yfir”
Fyrsta kjarnorki!S!prsngjan var sprengd í
Japan undir lok sííustu heimsstyrjaldar. —
Eftir þann atburS skrifuíu ýmsir í hópi ís-
lenzkra kommúnisfa miki'8 um hinar geig-
vænlegu afleiíingar slíkra sprenginga. Sem
dæmi skal hér nefna, atS 1945 gaf Björn
Franzson m.a. þessar skýringar á ]iví máli:
„Fáar fregnir hafa vakið
meiri athygli meðal almennings
en fregnin um kjarnorku-
sprengjuna. Hinn 6. ágúst í
sumar (þ. e. 1945) var tilkynnt,
að bandarísk flugvél hefði þá
um nóttina varpað slíkri
sprengju á japönsku borgina
Hiroshima. Það fylgdi fregn-
inni, að sprengja þessi hefði
sprengimagn, sem væri 2000-
falt sprengimagn stærstu tund-
ursprengju, er notuð hefur
verið i þessari styrjöld. Einnig
er þess getið til samanburðar,
að eyðingarmáttur þessarar
nýju sprengju, sem er raunar
tiltöluiega smá, sé eins mikill
og 20.000 lesta af sterkustu
sprengiefnum, sem þekkzt hafa
til þessa. Menn hugsi sér sextán
skip á stærð við Eimskipafé-
lagsskipið Gullfoss, sem allir
kannasl við, fullhlaðin sprengi-
efni og allur sá farmur sptyngi
í loft upp í sama vetfangi. Með
því móti má gera sér nokkra
hugmynd um þau ósköp, sem
dunið hafa yfir hina japönsku
borg.“
Tímaiit Máls og mepningar
1945, bls. 274.
Nú hafa Rússar framkvæmt
stöðugar kjarnorkusprengingar
um tveggja mánaða skeið.
Sprengjur þeirra eru marg-
falt geigvænlegri en sú, sem
sprengd var í Japan 1945.
Stærsta helspvengja Rússa,
sem sprengd var yfir Norður-
íshafi fyrir fáum dögum, jafn-
gildir að styrkleika a. m. k.
2500—3000 sprengjum af þeirri
gerð, sem reynd var í apan
undir lok styrjaldarinnar.
Menn hugsi sér 40—50 þús-
und skip á stærð við flutninga-
skip Eimskipafélags fslands í
einum hnapp, öll fullhlaðin
sprengiefni, og að það sé allt
sprengt í einu vetfangi.
Slík fimbulorka er leyst úr
læðingi með einni helsprengju
Rússa.
'Með því að hugleiða þetta má
gera sér nokkr'a hugmynd um
þau ósköp, sem dunið hafa yfir.
Fordæma
tilraunir
Á fundi stjórnar Fulltrúaráðs
verkalýðsféiaganna í Reykjavík,
sem haldinn var í dag, var gerð
eftirfarandi ályktun:
„Stjórn Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna í Reykjavík harmar það,
að Sovétríkin skuli hafa rofið
samkomulag stórveldanna um að
hefja ekki tilraunir með jarnorku-
vopn að nýju. Telur stjórn Full-
trúaráðsins sig mæla fyrir munn
allra launþega í Reykjavík, þegar
hún fordæmir hin heimshættu-
legu helsprengjuskot Sovétríkj-
anna, sem stefnt er gegn öryggi
allrar heimsbyggðarinnar, hags-
munum, menningu og lífi allra
jarðarbúa.
Skorar stjórn Fulltrúaráðrins á
alla íslendinga, samtök og einstak-
linga, að tjá andúð sína á þessum
viðurstyggilega verknaði með öll-
um tiltækilegum ráðum og leggja
á þann hátt fram sinn skerf til
þess að hindra frekari tilraunir
með kjarnorkuvopn."
Á efri myndinni er Ragnar ÞórSarson gestgjafi að ræSa við frönsku kokkana sína, skeggjaða yfirkokkinn og
stromphúfukiæddan aðstoðarmann hans. Á neðri myndinni sést yfir veitingasalinn í „Giaumbæ" (Ljósmyndir:
Tíminn, G.E.)
Innrás osr flótti í Katanga
Mótmælir kjarna-
sprengju Rússa
Verkamannafélagið Hlíf í Hafn-
arfirði hélt fund s. 1. þriðjudag
(31. okt.) Var þar samþykkt eftir-
farandi:
„Fundur haldinn í Verkamanna-
félaginu Hlíf þriðjudag 31. okt.
1961, samþykkir að segja upp
kaupgjaldsákvæðum samninga við
atvinnurekendur, í þeim tilgangi
að leita eftir lagfæringum um að
kaupmáttur launanna veiði eigi
lægri en hann var, eftir að samn-
ingar voru gerðir á s. 1. sumri.“
Fundur haldinn í Verkamanna-
félaginu Hlíf 31. okt. 1961 mót-
mælir harðlega kjarnorkuspreng-
ingum Rússa og þá sér í lagi risa-
kjarnorkusprengju þeirri er þeir
sprengdu að morgni 30. þ. m.
Þá lýsir fundurinn yfir andstöðu
sinni við allar kjarnorkuspreng-
ingar stórveldanna, hvar sem þær
eru framkvæmdar. Fundurinn lýsir
yfir stuðningi sínum við barátt-
una fyrir algeru banni tilrauna
með kjarnorkusprengingar og bar-
áttunni fyrir útrýmingu á dráps-
tækjum.
Fundurinn skorar á ríkisstjórn-
:r,a að hlutast til um að aldrei
verði geymd kjarnorkuvopn í
landinu.
Þá var á fundinum kosin upp-
stillinganefnd: Jón Jóhannesson og
Halldór Helgason og í kjörstjórn
Sigurður T. Sigurðsson (eldri).
NTB—Leopoldville og Eliza
bethville 2. nóv. — í dag var
tilkynnt í Leopoldville, að
herir miSstjórnarinnar í
Kongó hefðu í morgun hafið
innrás í Katanga. Mobuto
sagði þá, að herihn væri þeg-
ar kominn 50 km inn í hér-
aðið, og sókn hans yrði ekki
stöðvuð fyrr en Katanga hefði
verið sameinað Kongó. Utan-
ríkisráðherra Katanga, Evar-
iste Kimba, sagði í kvöld, að
herir Kongóstjórnar væru nú
alls staðar á undanhaldi.
Kimba sagði, ar$ miðstjórnar-
hérirnir hefðu verið reknir á
flótta í Kaminahéraði um 800 km.
norðvestur af Eiísabethvil'le. Jafn
framt skýrði hann frá því, að
kröfur þær, sem Mobuto gerði
nú, væru hreinar firrur. Hann
sagði, að m.a. hefðu miðstjórnar-
herirnir sent 300 óeinkennis-
klædda hermenn sína til að ráð-
ast á þorp eitt í Kongolo, og þeir
hefðu veri.g' reknir á flótta. Kimba
sagði, að Katangaher hefði verið
skipað að berjast gegn mistjórn-
arherjunum strax og frétist um
imnrásina. Sömuleið'is sagði hann,
að ef S.Þ. hefðu ekki tekið þátt
í innrásinni, hefðu þær a.m.k.
Samkoma í
Næturklúbbnum
Framsóknarfélögin í Reykja-
vik efna til samkomu í Fram-
sóknarhúsinu næst komandi
sunnudagskvöld klukkan 20,30.
Hallbjörg Bjarnadóttir fer með
skemmtiþátt, Árni Jónsson
syngur einsöng með undirleik
Skúla Halldórssonar. Þar næst
verður spilað Bingó. Meðal
vinninga verður farmiði til
Kaupmannahafnar og til baka,
fimm þúsund króna vöruávísun,
útvarpstæki og fleiri úrvals-
vinningar.
Upplýsingar og aðgöngumið-
ar fást á skrifstofunni í Eddu-
húsinu, síma 12942 og 16066.
Tryggið ykkur aðgang strax,
því marga mun fýsa að sjá þær
breytingar, sem orðið hafa á
húsinu og heyra og sjá hina
góðu listamenn, sem sjá um
•kemmtiatriði.
Skemmtinefndin
stutt miðstjórnina og ákvörðun
hennar. Kimba gaf þessar upplýs
ingar á blaðamannafundi í Elísa-
bethvi'lie eftir að hann hafði rætt
við ýimsa erlcnda ræð'ism'einn í
borginni og gagnrýnt afstöðu
margra landa til landamærastríð-
anna. Tshombe, forseti Katanga,
sem staddur er í Genf um þessar
mundjr, sagði, að Katangamenti
mundu standa fastir fyrir, þegar
honum var skýrt frá tilkynningu
Mobutos um innrásina. „En þessi
árás er ekki neitt nýmæli,“ sagði
hann. „Hún hófst í raunimni hinn
18. okt.“
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins
Spiluð verður Framsóknarvist í Ungmennafélagshúsinu, Keflavík,
ANNAÐ KVÖLD, 3. nóv. n.k.
Góð verðlaun. — Dans á eftir.
Samkoman hefst kl. 8.30 s.d.
Kjördæmisþing á Sauðárkróki
Framsóknarmenn í Norðurlandskjördæmi vestra, halda kjördæmis-
þing sitt á Sauðárkrók! n.k. sunnudag, og hefst það kl. 2 e.h.
Þingmenn flokksins i kjördæminu munu mæta á þinginu.
Fundur verður í Félagsmálaskóla Framsóknarflokksins
á mánudagskvöld kl. 8.30
Erindl flytur EYSTEINN JÓNSSON, form. þlngfl. Fram
sóknarmanna, og talar um stjórnmálastefnur ( sfðara
erindt.
Fundurinn verður haldinn i EDDUHÚSINU, II. HÆÐ,
og er allt Framsóknarfólk, eldra sem yngra, velkomlð.
Keflvíkingar — Suðurnesjamenn