Tíminn - 03.11.1961, Qupperneq 11
N N, föstudaginn 3. nóvember 1961
11
HARRY KARL
- Og veiztu, hvaS þeir
segja annað um hana? Þeir
segja, að hún virði hann ekki
meira en jörðina, sem hún
gengur á, og hann elskar
hana aðeins meira fyrir það.
Konurnar tvœr sátu þétt
saman yfir kaffibollúm á
þekktu kaffihúsi í Holly-
wood, og eins og konur, sem
eru að slúðra um náungann,
höfðu þær þennan illgirnis-
lega og ísmeygilega svip, sem
sýnir svo augljóslega, að
þeim, sem talið snýst um,
verða engin grið gefin.
Skyndilega sagði önnur
kvennanna: — Uss, þarna
kemur hún.
Lítil og grönn stúlka gekk
fram hjá borði þeirra, hún
var bein í baki og bar höf-
uðið hátt. Þegar hún gekk
fram hjá, kinkaði hún kolli
til kvennanna, glotti og
sagði: — Halló, stúlkur,
hvern eruð þið að tæta í ykk-
ur núna?
Konurnar stirðnuðu og
brostu þvingað, en Debbie
gekk í burt með fyrirlitn-
ingarbros á fallegum vörun-
um.
Því að Debbie Reynolds Karl
er orðin vön slíkum atburðum
Slúðrið um Debbie Reynolds
— og sannleikurinn
nú orðið. Einhvern tíma hefði j
hún orðið reiðari og látið eitt-!
hvað verra fjúka við þessar tvær
kjafta'kerlingar, konur samstarfs-
manna hennar. En nú yppir hún
aðeins öxlum og gleymir atvik-
um sem þessum.
Bitbein kjaftakerlinga
N Alltaf síðan Debbie giftist
Harry Karl, sér eldri manni og
mjög auðugum, hefur hún verið t
bitbein kjaftakerlinganna í;
Hollywood, þar sem slúðrið get-
ur verið mjög slæmt.
Áður en hún giftist Harrj
þrábáðu vinir hennar og aðdá-
endur hana um að gera það ekki.
Jafnvel hin fræga Hedda Hopper
gekk svo langt að skrifa opið bréf
í blað sitt til Debbie, þar sem
hún bað hana að gera nú ekki
mistök á ný. Bent var á, að Harry
hefði verið kvæntur fjórum sinn-
um áður, Debbie væri fimmta til-
raunadýr hans í leit að hamingju-
sömu hjónabandi. Sagt var, að
Debbie giftist honum einungis til
að öðlast öryggi og föður handa
börnum sínum. Öll blöðin sögðu,
að Debbie væri alls ekki ástfang-
in af Hariy. Þrátt fyrir þetta vék
Debbie ekki frá ákvörðun sinni.
Andstyggilegt slúður
Og þá komst slúðrið fyrst af
stað. Allir, sem höfðu beðið hana
um að giftast Harry ekki, spáðu,
að hjónabandið myndi ekki end-
ast nema fáa mánuði. Sögur
komust á kreik um, að Debbie
færi á laun út með öðrum mönn-
um. Þær sögðu, að hún vildi ekki
einu sinni fórna manni sínum
einum klukkutíma af degi sínum.
Og það komu jafnvel upp enn
verri sögur, svo slæmar, að þær
eru ekki prenthæfar.
Þetta andstyggilega slúður hef-
ur aðeins bætt nýrri byrði á
þessa stúlku, sem nóg hefur orð-
ið að þo!a um ævina. Bezta vin-
kona hennar hljóp á brott- með
eiginmanni hennar, sem skildi
hana eftir með sæit stolt og tvö
lítil börn. Síðan hlaut hún að
fylgjast með því, hve elskulegur
og góður fyrrverandi eiginmaður
hennar reyndist Liz. Hún varð
fyrir sárindum daglega. Og nú
að síðustu er hún ásökuð fyrir að
reyna að öðlast hamingjuna með
öðrum manni.
Ef til vill er ekki hægt að
segja, að Debbie sé yfir sig ást-
fangin af Harry Karl. En hjóna-1
bandið getur heppnazt fyrir það.
Þeim þykir sannarlega vænt
hvoru um annað, og þau bera
djúpa virðingu fyrir hvoru öðru.
Orðrómurinn um, að Debbie
hefði gifzt Harry vegna auðæfa j
hans, er hlægilegur. Debbie er
ein af auðugustu kvikmynda- j
stjörnunum í Hollywood, jafnvel
þótt hún mundi hætta að vinna
núna.
Harry er dásamlegur
Eðlilega gleðst hún yfir hinum
dýru gjöfum, sém Harry hleður á
hana, einfaldlega af þvi að hún
er kona. En sennilega þætti
henni alveg eins váent um þær, j
þótt þær væru ódýrari og smærri, j
því að það er þó alltaf hugurinn !
á bak við. sem máli skiptir.
Debbie hefur sagt um eigin- j
mann sinn: — Hann er dásam- i
legur gagnvart fjölskyldu minni. I
Forelcjr^f mínir dýrka hann, j
hann, hann er gömlu frænku I
;minni einstaklega góður, og börn- j
um mínum hefur hann reynzt
hinn bezti faðir.
Oft áður en þau giftust fóru
þau út með börnin, og Harry var j
þeim mjög góður, en gaf þeim j
aldrei neitt, án þess að hafa leyfi j
móðurinnar fyrst. Einu sinni I
hellti Todd litli úr fullri flösku
af gosi yfir rándýr silkiföt
Harry’s og brast í óstöðvandi grát
yfir klaufaskap sínum. Harry tók
hann bliðlega í fangið og hugg-
aði hann, áður en hann sinnti
sínu eigin vandamáli.
Harry var alltaf til staðar
Harry skildi hana alltaf, þegar
hún vildi ekki fara út á kvöldin
fyrr en kiukkan níu, því að hún
vildi borða með börnum sínum,
Carrie og Todd, koma þeim í ró
og hlusta á bænir þeirra, áður
en hún fór út.
Og það, sem var bezt af öllu,
Harry var alltaf til staðar, þegar
Debbie þarfnaðist einhvers. Hún
skildi það loksins, að það getur
verið ást, þó að ekki sé neinn
heitur logi og hjartsláttur út af
engu. Hún komst að því, að það
er til sú tegund ástar, sem er
mild og blíð og getur verið marg-
falt meira virði heldur en sú ást,
sem kemur mönnum til að sjá
stjörnur.
Þetta eru aðeins fáeinar af á-
stæðunum fyrir því, að hún gift-
ist Harry Karl. Nú orðið er líf
þeirra svo annasamt, að hún hef-
ur varla tima til að sinna málefn-
um sínum. Og þaðan af síður hef-
ur hún tíma til að fara á laun út
með öðrum mönnum, eins og
slúðurkerlingar gefa í skyn.
Bjartsýnin sigraði
Svo slæmt sem það hlýtur að
hafa verið að þola allt þetta
slúður, hefur Debbie heppnazt að
rísa undir því. í fyrstu grét hún
sárt og spurði sjálfa sig, hvers
vegna fólk gæti ekki látið hana í
friði, hvorl hún hefði ekki orðið
að þola nóg fyrir því. Eðlilega
var hún bitur. Fólkið, sem látið
hafði í Ijós aðdáun á henni fyrir
Skótízkan tekur örum breytingum ekki síður en annað. Þvera táin er á undanhaldl, en mjóa táin heidur velli að mestu. Það, sem mesta eftirtekt
vekur um þessar mundir, er það, hve mjög lakkskór ryðja sér tll rúms.s. Á myndinnl hér að ofan eru lakkskór nýjustu tízku, gerðir af danskri
skóverksmlðju, og litlr þeirra eru, talið frá vinsítri: Kaffibrúnn, skærblár, bleikur, eldrauður.
íj-
/bJjScun
nú sem stendur.
Meðan vio eruni aó tala um skó, getum við litið á þennan hér. Hann
heitir babydoll, og hefur hvorkl oddatá eða þverskorna. Táin á þess-
um skó er í góðan boga og flöt. Efnið er mjúkt skinn, liturinn eldrauð-
ur. — Það er litur, sem virðist ryðja sér mikið til rúms á kvenskóm
DEBBIE REYNOLDS
að standa sig svo vel í raimum
sínum, hafði nú alveg snúið við
henni bakinu.
En smám saman sigraði bjart-
sýnin hjá Debbie. Hún fullvissaði
sjálfa sig um, að ef hún veitti
þessu enga athygli, gæti slúðrið
ekkert skaðað hana. Þegar ein-
hver vinur hennar (því að hún á
vini reyndar enn þá) segir henni
frá einhverri sérlega rætinni
sögu um hána hlær hún aðeins
og segir, að þetta verði hún að
segja Harry, hann muni áreiðan-
lega hafa gaman af því.
Daginn eftir brosti Debbie
Það er ekki auðvelt að vera
léttur í sinni og eðlilegur, þegar
maður veit, að talað er um mann
á bak. En Debbie finnur og hefur
alltaf fundizt, að maður geti sigr-
að næstum hvað sem er með því
að líta á það með kímni. Jafnvel
daginn eftir, að Eddie yfirgaf
hana, sýndu myndir af henni
hana brosandi, en þó með dökka
bauga undir döprum augum. Hún
hélt áfram vinnu sinni og gerði
að gamni sínu, eins og hún var
vön að gera, og fólk dáðist að
henni fyrir það.
H«fur lítíS breytzt
En kímni Debbie kom henni til
bjálpar á fleiri sviðum en í einka
lífinu. Tii þessa hafði hún nær
eingöngu leikið hlutverk lítillar,
yndis-legrar stúlku, sem gáfu
henni ekki mikla möguleika. Nú
þegar betur kom í ljðs, hvílíkum
léttleika og kímnigáfu hún hafði
yfir að búa, voru henni fengin
vamanhlutverk, og hún kom fram
í sjónvarpsþáttum, sem öfluðu
henni geysilegra vinsælda. Allir
hrifust af hinni nýju Debbie.
En sannleikurinn er sá, að
Debbie hefur lítið breytzt. Henni
hefur aðeins verið gefið tækifæri
til að sýna þá hæfileika, sem hún
býr yfir. Kímnigáfa hennar hefur
bjargað henni frá skipbroti.
Mikilvæg sannindi
Það skiptir engu máli nú,
hvaða sögur berast Debbie til
eyrna, hversu slæmar sem þær
eru. Hún aðeins hlær að þeim.
Hún veit hver sannleikurinn er,
og svo lengi sem hún er ánægð
með hann, skiptir það hana engu,
þó að kjaftakerlingar hvískri um
hana yfir kaffibollunum. Og hún
leiðir hjá sér þá karlmenn, sem
brosa vongóðir til hennar vegna
orðrómsins, sem um hana geng-
ur.
Því að Debbie hefur þroskazt
á undaníörnum árum. Hún hefur
lært þau mikilvægu sannindi, að
þegar sorg og mæða drepur á
dyr, skal maður aðeins brosa og
taka öllu létt.