Tíminn - 14.01.1962, Side 3
FLYJA
KLÚBBUM
í Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna, eru nokkrir
ákaflega virðulegir klúbbar,
sem áratugum saman hafa
haft innan sinna vébanda
marga af þekktustu mönnum
landsins í stjórnmálum og vís-
indum. Nú er hins vegar risið
upp mál, sem getur riðið þess-
um klúbbum að fullu, en það
er svertingjavandamálið.
Meðlimanefnd hins gamla Cos-
mos Club hafnaði um daginn til-
lögu um, að aðstoðarutanríkisráð-
herrann Carl Rowan verði tekinn í
klúbbinn, en hann er negri.
Kennedy dró sig til baka
Þetta olli' hvirfilbyl í klúbbnum.
Tillaga lá fyrir nefndinni um
inntöku Kennedys Bandaríkjafor-
B-listinn sigraði
Fyrir nokkru urðu úrslit kunn
í stjórnarkosningum í Sjómanna-
félagi Hafnarfjarðar. Úr'slitin urðu
þau, að B-listinn, sem borinn var
fram af Einari Jónssyni o. fl.,
hlaut 40 atkvæði en A-listinn, sem
borinn var fram af Kristjáni Jóns-
syni, fráfarandi formanni, hlaut
36 atkvæði. Einn seðill var auður.
Kosningar þessar voru sóttar af
ihinu mesta kappi af hálfu að-
standenda A-listans. Fóru smalar
þeirra hamförum í Hafnarfirði
meðan á kosningunni stóð. Eitt
af tiltækjum þeirra var, að láta
á þrykk út ganga dreifibréf meðal
hafnfirzkra sjómanna, með lygum
og óþverraorðbragði um formanns-
efni B-listans, Einar Jónsson.
Er það hafnfirzkri sjómannastétt
seta í klúbbinn, en hún var um-
svifalaust dregin til baka. Gailbra-
ith, hinn heimskunni sendiherra
Bandarikjanna í Indlandi, sagði
sig úr klúbbnum. Og síðan sagði
sig hver á fætur öðrum úr klúbbn-
um í mótmælaskyni, þar á meðal
EINAR JÓNSSON
til hins mesta sóma, að virða að
vettugi lygaþvælu þeirra komm-
únistanna um Einar Jónsson, sem
með margra ára starfi í þágu hafn
firzkra sjómanna hefur kynnt sig
þar að góðu einu.
Hin nýja stjórn í Sjómannafé-
lagi Hafnarfjai'ðar cr þannig skip-
uð:
Einar Jónsson, form., Sigurður
Pétursson, varaformaður, Björn
Þorleifsson, ritari, Kristján Sig-
urðsson, féhirðir og Hannes Guð-
mundsson, varaféhiiðir.
Varamenn eru þeir Grétar
Pálmason og Bjarni Hermundar-
son.
CARL ROWAN
— inntöku hans var hafnað
sagnfræðingurinn Bruce Catton og
Edward Murow upplýsingamála-
ráðherra. Þeir segjast ekki vilja
vera í klúbbi, sem stundi kynþátta-
hatur.
Robert Kennedy dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna sagði sig
fyrir nokkru úr öðrum klúbbi,
vegna þess að meðlimum var bann-
að að taka með sér svertingja sem
gesti í salarkynni klúbbsins.
Barátta bak við tjöldin
Nú er hafin mikil barátta innan
þessara klúbba milli þeirra, sem
vilja opna þá fyrir svertingjum, og
hinna, sem vilja útiloka þá. Ef hin-
ir síðarnefndu verða ofan á, er
reiknað með allsherjar flótta úr
klúbbunum, en það mundi verða
klúbbunum að falli.
Varð fyrir bíl
í fyrrakvöld varð fimm ára
drengur, Gunnar Gunnarsson, Óð-
insgötu 21, fyiir bifreið á Frí-
kirkjuvegi, skammt frá Fríkirkj-
unni. Hann var fluttur á lækna-
varðstofuna, en reyndist ekki
mjög hættulega meiddur.
Erlendir
fiagfræðingar
á fundum með
ríkisstjórninni
Nefnd hagfræðinga frá
alþjóða gjaldeyrissjóðn-
um í Washingfon og
Efnahagssamvinnustofn-
uninni dvelur nú hér á
landi og situr á stöðug-
'jm fundum með ríkis-
itjórninni.
— Já, mér virtust fjöllin í
Sviss hrikaleg við fyrstu sýn,
en í vitund minni voru þau sem
hnúkar samanborið. við Andes-
fjöllin.
— Er mikil byggð í þessum
dölum?
— Þar er alls staðar eitthvað
af Indíánaþorpum. Þar búa af-
komendur Inkanna.
— Hvernig er þar> umhorfs?
,,v. — Þorpin eru flest lítil, illa
* byggð. Grjótveggir með íklesst-
: um leir og stráþök.
— Svo það er lítið eftir af
hinni fornu byggingarlist.
— Hún varðveitist aðeins
sem menjar. En þarna una þcir
Talaft vi($ Vigfús GuÖmundsson um Perú:
séíanda
skriðuna hef jast
Enn er ekki vitað hve marg-
ar þúsundir manna tortímdust í
skriðufallinu í Perú að kvöldi
þess 10. þessa mánaðar, en tal-
an 7000 hefur verið nefnd.
Skriðan hófst með snjóflóði
efst í Huascaran, sem er hæsta
fjall Perú, 6770 metra hátt, seg-
ir í fyrstu fréttum af þessum
atburði, og eyddi þrjá bæi á
leið sinni niður í farveg árinn-
ar Santa.
í gær hittum við að máli
mann, sem hefur ferðazt um
Perú, en hann er Vigfús gest-
gjafi Guðmundsson. Vigfús var
þarna árið 1957 og feröaðist þá
víða um háfjöllin.
Við spurðum Vigfús um að-
stæður þarna í fjöllunum.
— Huascaran er í fjallgarðin-
um nokkuð norðan við höfuð-
Snjóskriða
á bílalest
Akureyri, 13. jan.
Tvær bílalestir eru nú á leiðinni
til Akureyrar og Reykjavíkur,
önnur á leið suður en hin norður,
og eru 7—8 bílar í hvorri. Klukk-
an 12 í gærkvöldi voru norðan-
bílarnir komnir vestur fyrir Öxna
dalsheiði, en sunnanbílarnir voru
um hádegið í dag^ hjá Geirhildar-
gerði í Öxnadal. í gær féll snjó-
skriða á bílalestina á Öxnadals-
heiði, þá sem var á leið norður,
en svo heppilega vildi til, að hún
féll á milli bila, rétt á hæla þeim,
sem fremstur fór. Skriðan var 6
—7 metra djúp, og varð að fá jarð
ýtu til þess að opna veginn þar
aftur. Þetta var rétt ofan við
Bakkasel, en þar er mög snjó-
flóðahætt. í Öxnadal og á heiðinni
er versta hríðarveður. ED
Rússajeppa stolið
í fyrrinótt var stolið rússajeppa,
sem stóð á Vesturgötunni. Eigand
inn kærði þjófnaðinn þegar og
var leitað í gærmorgun og aug-
lýst eftir jeppanum í útvarpinu.
Skömmu eftir hádegið var lögregl-
unni tilkynnt, að jeppinn væri á
bílastæðinu fyrir ofan KFUM, og
þar fannst hann, óskemmdur
með öllu nema hvað handbremsu-
takkinn var slitinn af og lá á gólf-
inu í jeppanum.
borgina Lima, sem er 12 breidd-
argráðum sunnan miðbaugs,
sagði Vigfús. — Ég kom til
Machu Picchu, sem er gömul
Inkaborg í fjöllunum, nokkuð
sunnan við Huascaran. Banda-
rískur fjallgöngumaður fann
borgina á þessari öld. Hún
stendur hátt í snarbröttu fjalli.
Spánverjar höfðu aldrei fundið
hana, og þv: varðveittist hún ó-
skemmd nema hvað tímans
tönn hefur unnið á henni. Það
er þó furðu lítið. Ég var þarna
í apríl, og þá var haust. Nú hall-
ar sumri á þessum slóðum. Há-
sumar er í desember.
— Hvar er snjólínan þarna í
fjöllunum?
— Um 6000 metra yfir sjáv-
armál. Dalirnir ná uppundir
tindana, og þar eru skriðjöklar.
Ég sé i anda skriðuna hefjast
innst í dalverpi uppvið háfjall-
ið. Þar hefur brotnað af skrið-
jöklinum; það hefur hleypt
skriðunni af stað. Brattinn er
ægimikill og dalirnir þröngir
með hengihlíðar á báða vegu,
allt að 5000 metra háar frá dal-
botninum.
Um svona hlíðar ók ég í bíl-
um, sneiðingar fram og aftur
um hengiflugin, risaleg jökla
gljúfur. Staddur á hlíðarbarmi
heldur maður gjörsamlega ó-
fært niöur. Skynsemin bókstarf-
lega andæfir að þarna liggi
vegir, en þeir liggja þar eigi
að síður. Ég kom í dýpsta dal-
inn af hlíðarbrún i 5000 metra
hæð yfir dalbotninn.
— Þér hefur blöskrað sköpu-
lagið á landinu.
sér. Fjöldinn hefur aldrei kom-
ið í nema borg.
— Af hverju lifa þeir?
— Þeir lifa af akuiyrkju.
Rækta kartöflur í stöllum, mest
kartöflur, og þaðan höfum við
kartöflurnar. Þeir rækta líka
rófnategundir og hafra — og
maís á dalbotnunum. Þeir tala
perúönsku og eiu fátækir.
— Þú sagðir, að hæðarmunur
á hlíðarbarmi og dalbotni væri
allt að 5000 metrar.
— Já, fjallgarðurinn er allt
að 7000 metra hár, Húascaran
er 6770 metrar yfir sjávarmál.
En dalirnir, sem ganga þar inn,
eru 2000—3000 metrar yfir
sjávarmál, dalbotnarnir. Þetta
eru sannarlegir jötunheimar.
Á ferð á hæsta fjallvegi
heims punktaði ég niður hjá
mér í dagbók þann 21. marz fyr-
ir fimm árum: — Vegurinn er
svo mjór á köflum, að ekki er
hægt að mætast nema á stöku
stað, þar sem skápar eru höggn-
ir inn í fjallið til hægri handar
okkur ... Víða eru vinkilbeygj-
ur á veginum og jafnvel ennþá
krappari, og hengiflugið þús-
undir metra niður til vinstri
'dar, en til hægri víða
”igt inn í bergið og þar fyr-
;fan hengiflug líka uppeftir
fjallinu. Vegurinn rúmlega bíl-
breiddin, þar sem mjóst er, og
ekkert til stöðvunar á vegar-
brúninni til vinstri, hvorki
steinar né grindverk ...
Vigfús hristir höfuðið. — Að
ferðast í Perú, það er ekki líkt
neinu öðru, sem ég hef kynnzt.
B. Ó.
TÍMINN, sunnudaginn 14. janúar 1962.