Tíminn - 14.01.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 14.01.1962, Blaðsíða 9
Grænar bæjarrústir eyðibýl- anna víðs vegar í dölum landsins hafa sín sérstöku áhrif á ferða- manninn, sem athugar þær. Þær leita á hugann, og ferðamaðurinn fer að velta því fyrir sér, hvernig það mannlíf hafi verið, sem þar var lifað. En rústirnar eru þögul- ar yfir gleði og sorgum, ást og hatri liðinna kynslóða. Hvaða fólk bjó í þessum bæ? Var það hamingjusamt? Hver var reynsla þess? Allar þessar spurningar leita á hugann. Sennilega hefur fólk eyðibýl- anna átt margar ánægjustundir, þrátt fyrir einangrun og erfið- leika vetiarins. En á sumrum hef- ur það notið fegurðar fjalldal- anna og lifað í nánu sambandi við náttúruna. Þá hefur samband þess við liúsdýrin gert líf þess fyllra og auðugra í einangrun- inni. f íslenzkum þjóðsögum er sagt móðir Guðný Jónsdóttir frá Kelduskógum. Hann missti föður sinn ungur og ólst upp með móð- ur sinni. Sigfús var frábær röskleika- maður og því við brugðið, hve fljótur hann var á fæti. Talið var, að hann hafi stokkið léttilega yfir söðlaðan hest, og honum var það leikur einn að taka stekk- lamb á spretti. Guðjón Brynjólfs- son segir eftirfarandi sögu um hvatleik Sigfúsar: „Dánarbú séra Markúsar Gísla- sonar á Stafafelli var selt við op- inbert uppboð vorið 1891. Vetur- inn áður var hinn bezti og kvik- fénaður því í afbragðs ástandi. Gemlingarnir, sem þar voru seld- ir, voiu ágætlega framgengnir og urðu óþægir í snúningum, þeg- seldfrifast1* Af uppboðsþTnginu Sér lnn eftir F'^austaSada! úr ÁlftaflrSi, allt til Jökulgllstlnda, en handan var fjöldi manns, Og þar á meðal Þeirra og þó nokkru norSar, er Víðidalur milli Hofsjckuls og Vatnajökuls, Sigfús og Jón, sonur hans. Þeg- Þar var býllð Grund, sem frá greinir í þessum þætti. bók og Pétursbók. Þá voru Pass- íusálmar allir sungnir á föstunni. Helztu rímur, sem kveðnar voru, eru þessar: Svoldarrlmur, Númarímur, Bernódusarrímur og rímur af Reimari og Fal. Svoldarrímur voru handritaðar. Þá voru til kvæðabækur Jóns Þorlákssonar og Stefáns Ólafssonar. Þær Ragn- hildur og Helga kunnu mikið af andlegum kvæðum: Veroniku- kvæði, Agnesarkvæði, Ellefu þús- und meyja kvæði og fleira. Þeir Sigfús, Jón og Bjarni, bróðir Helgu, en hann var lengi í Víði- dal, kváðu allir rímur og fólkið tók undir það, sem það kunni. Bjarni átti harmoniku og lék oft á hana og var þá sungið með harmonikunni. Af þessn má sjá, að oft hefur verið glatt í Víðidalsbaðstofu, þótt, langt væri til byggða. Stundum var spilað á spil og Utílegumannadalur milli frá útilegumannadölum inni á milli jökla. Þar var gróðurinn meiri, sauðféð vænna og menn- irnir stærri og sterkari en í byggðinni. Sá dalur, sem hér verður gerður að umtalsefni, lík- ist útilegumannadölunum. Það er Víðidalur í Lóni. í þessu greinar- korni verður ekki sögð saga Víði- dals, en aðeins drepið á nokkur atriði úr reynslu síðustu ábúend- anna þriggja, sem bjuggu þar á nítjándu öldinni. Sumarið 1882 fór Þorvaldur Thoroddsen í Víðidal í rannsókn- arferð sinni um landið. Fylgdar- maður hans var Sigfús Jónsson, sem þá bjó á Hvannavöllum í Múladal, dalabýli, sem hefur ver- ið í eyði, frá því að Sigfús flutti þaðan. Sigfús var bráðröskur ferðamaður og kunnugur á þess- um slóðum. Þegar þeir Þorvaldur og Sig- fús komu í dalinn, var hann vaf- inn í grasi og víðikjarri. Leizt Sigfúsi svo vel á þennan fagra dal, að þegar bóndinn á Múla sagði honum upp ábúðinni á Hvannavöllum síðar um sumarið, ákvað hann að flytja í Víðidal. Hafði hann þá búið í 17 ár á Hvannavöllum. Víðidalur liggur á hálendinu milli Vatnajökuls og Hofsjökuls eystri bak við Geithellna- og Hofs dal. Dalurinn liggur frá suð- austri til norð-vesturs og er á að gizka 15—18 kílómetrar á lengd, en botn hans er talinn 439 metra yfir sjávarmáli. Hann er mjög grasi vaxinn, og í hlíðum hans er birkikjarr, en eftir honum renn- ur Víðidalsá og á grundunum meðfram henni eru víðirunnar á víð og dreif. Þarna er sumarfag- urt, en á vetrum er dalbotninn oftast undir gaddi. Áður en Sigfús flutti í Víðidal höfðu tveir ábúendur búið þar, en báðir stuttan tíma. Stefán Ól- afsson hinn sterki frá Húsavík eystri byggði þar fyrstur, en á eftir honum bjó þar eitt ár Þor- steinn Hinriksson frá Hafursá, en hann fórst þar í snjóflóði, sem féll á bæinn. Er það önnur saga, sem ekki verður sögð hér. Vorið 1883 flutti Sigfús Jóns- son frá Hvannavöllum í Víðidal. Með honum var Ragnhildur Jóns- dóttir, kona hans, ættuð úr Suð- ursveit og Jón sonur þeirra, þá 19 ára að aldri. Öll voru þau sam- taka um að flytja í Víðidal og Voru þar aðeins þrjú fyrsta árið. Faðir Sigfúsar var Jón Guð- mundsson frá Vaði í Skriðdal, en Brot úr sögu byggðar í Víðidal í Lóni á nítjándu öld, Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri, skráði. ar reka átti gemlingana í rétt, sluppu tveir þeirra og voru eltir, en þeir voru miklu meira í lofti en á jörðu. Sigfús stóð og horfði á þóf þetta, en er honum tók að leiðast, fleygði hann frá sér treyj unni og tók á sprett á eftir geml- ingunum. Greip hann þegar ann- an þeirra og afhenti þeim, er næstur var, en síðan gerði hann hinum s'ömu skil. Horfðu menn undrandi á þetta, og það töldu allir víst, að á jafnsléttu mundi hann hlaupa uppi tófu. — Er þetta eitt dæmi af mörgum um snarræði og fimi Sigfúsar. Jón sonur hans, líktist mjög föður sínum um allt atgervi, en mun þó tæplega hafa verið jafnoki föður síns.“ En Sigfúsi var fleira til lista lagt. Hann var einnig ágætur söngmaður. Telja margir, að þeir hafi aldrei heyrt eins fagra söng- rödd, og hann mundi hafa orðið víðfrægur, hefði hann lært söng. Var Sigfús óspar að skemmta fólki með söng, þegar hann var hreifur af víni. Tveir menn eru nú á lífi, sem ólust upp í Víðidal. Annar þeirra er Sigfús, sonur Jóns. Hann er fæddur í Víðidal. Hann er nú á Bragðavöllum í Hamarsdal um sjötugt. Hinn maðurinn, sem einnig á æskuminningar úr Víði- dal, er Helgi Einarsson fyrrv. hreppstjóii á Melrakkanesi í Álftafirði. Hann var í Víðidal í 6 ár frá 6—12 ára aldurs. Man hann því búskaparhætti og heim- ilisbrag allan á þessum afskekkt- asta bæ á íslandi, þar sem dag- leið var til byggða og tveggja daga ferð i kaupstað, þegar farið var til Djúpavogs. Helgi hefur sagt mér ýmislegt af því, sem hér fer á eftir. Frá Hvannavöllum í Víðidal er um 6 klukkustunda lestaferð. Byrjað var að flytja um fardaga- leytið, þegar snjóa leysti, og fluttir alls 80 hestburðir í Víðidal um sumarið, búslóð og byggingar- Þetta er mynd af lltlum hluta f5!a--:-’:or'ts. Sést au-t j'horn ’/atnajökuls og Hofsiökuls eystrl, en þv á —ilidalur, og stóð býliö Grund þar í miðjum dal þar sem kross er gerður. efni. Bjó fólkið fyrst um sig í gömlu húsatóftunum og bjó í þeim fyrsta veturinn. En árið eft- ir byggðu þeir íbúðarhús innar á grundinni, þar sem snjóflóða- hættan var minni og kölluðu bæ sinn Grund. En gripahús voru byggð um sumarið jafnframt flutningum og heyskap. Eigi hafa þeir feðgar þurft að kvarta um atvinnuleysi það sumar. Fjáreignin var ekki mikil eftir harða veturinn 1881. Alls áttu þeir feðgar 60 ær, 15 sauði og 15 gemlinga. Fært var frá 40 ám þetta fyrsta sumar í Víðidal og fleiri síðar. Úr sauðamjólkinni var unnið smjör, skyr og ostar og tryggði það fólkinu gott fæði. Túnið var allt víði vaxið og slægjur engar. Var erfitt verk að hreinsa víðinn úr túninu. Sláttur byrjaði ekki fyrr en í 17 viku sumars fyista árið. Þá var slegið í kringum bæinn og Hvannastóð- in og fengust þar 30 hestar. Alls varð heyfengur aðeins 64 hest- burðir þetta fyrsta sumar. Alls bjuggu þeir Sigfús og Jón félagsbúi í 14 ár í Víðidal. Þeir fluttu þaðan að Bragðavöllum í Hamarsdal 1897. í Víðidal kvæntist Jón Helgu Þorsteinsdóttur og þar fæddust þrír drengirnir þeirra. Fólkinu fjölgaði brátt á bænum, og voru flest árin um 10 manns í heimili. Hagar voiu litlir fyrir fé í Víði- dal á vetrum, og var það því oft- ast haft úti í Kollumúla, nema lömbin voru heima. Hagsæld var góð í Kollumúla. Engin fjárhús voru þar, og þurfti því stundum að gefa því þar á gaddinn, þegar hagleysur voru. Ekki var útvarpið til skemmt- unar í Víðidal og enginn sími til að tala við nágrannana. Þar varð fólkið að skemmta sér sjálft. Og til þess voru ýmsar leiðir. A vetrarkvöldum var helzta skemmtunin að lesa upphátt fyr- ir fólkið og kveða rímur, meðan það sat við vinnu sína. Lásu þeir feffgar til skiptis. Helztu bækur, sem lesið var úr, voru þessar: íslendingasögur, Noregskonunga- sögur, Þjóðsögur Jóns Árnasonar. /Riddarasögur og blaffið Austri. Auk þess voru lesnir húslestrar á hverju kvöldi og helgum dög- um, úr Strums-hugvekjum, Jóns- þá oftast alkort, nema á hátíðum var spilað púkk eða marjas. Þó var aldrei spilað á stórhátíðisdög- um. En fólkið gerði fleira á kvöldin en að lesa, kveða og syngja. Á veturna var unnin ull til vaðmála og í öll nærföt og sokkaplögg. Ekkert var keypt úr kaupstað. Menn gengu eingöngu í heima- unnum fötum. Gerðist ekki eitthvað af dular- fullum fyrirbrigffum þarna í þess um afdal? Það er ekki ólíklegt, að lesandinn spyrji svo. En hvorki hafa þeir Jón á Bragða- völlum eða Helgi á Melrakkanesi talið, að þeir myndu nema eitt atvik slíkt frá verunni í Víðidal. Og hér kemur sagan: Eitt sinn meðan þeir Jón og Sigfús bjuggu i Víðidal lagði mik ið hjarn í Kollumúla, en fé þeirra Viðidalsmanna gekk þar þá úti sem oftar. En þá var fénu talin hætta búin þar af brattlend inu, ef þess væri ekki gætt með- an hjarnið væri. Það varð því að ráði, að þeir Jón og Bjarni færu þangaff að gæta fjáiins. í Kollu- múlanum var göngukofi í svoköll- uðu Stórahnausnesi, skammt frá Jökulsánni. Þar er landslagi þann veg háttað, að ytra megin *við kof ann er hóll víði vaxinn, en skammt fyrir framan hólinn myndast hryggur. í kofanum voru hlóðir er þeir elduðu sér mat á, til eldiviðar var mest við- ur, er tekinn var þar í kring og mest á hólnum. Eina nótt dreymir Jón, að hann sé úti fyrir kofanum, og þeir báð ir Bjarni og hann. Hann þykist vita í draumnum, að þeir séu suð ur í Kollumúla að gæta fjár. — Hann man einnig, að þeir eiga von á Einari Jónssyni í Smiðju- nesi til að sækja kindur, sem voru „úti á milli fluga“ en sá staður er yzt í Múlanpm. Þegar þeir eru þar úti staddir, þykist.Jón sjá, að maður kemur gangandi utan fyrir hólinn inn ölduhrygginn og stefnir til þeirra. Hann þykist þá segja við Bjarna, að þarna komi nú Einar að sækja kindumar. En þegar mað- urinn nálgast, sér hann að þetta er hærri maður en Einar. Þeir bíða svo þarna, unz hann kem- ur. Þegar hann er lcominn nær alveg að þeim, lítur hann til þeiiTa og segir: „Ætlið þið að rífa allt þakið af kofanum mín- um?“ Lengri varð draumurinn ekki, (Framh. á 13. síðu TÍMINN, sunnudaginn 14. janúar 1962. 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.