Tíminn - 14.03.1962, Blaðsíða 15

Tíminn - 14.03.1962, Blaðsíða 15
GJÖFTILSTÓRÓLFS HVOLSKIRKJU f nóvembermánuði s.l. barst Stórólfshvolskirkju vegleg og fög- ur gjöf frá Ljósasjóði Stórólfshvols kirkju, en hann var stofnaður til minningar um Margréti Þorsteins- dóttur, sýslumannsfrú, sem andað- ist á síðastliðnu vori. Hlutverk sjóðsins skyldi vera fjársöfnun til kaupa á ljósatækjum í Stórólfs- hvolskirkju. Fmmkvæði og forystu við stofnun sjóðsins ’áttu þær Ingi- björg Rristjánsdóttir, Hvolsvelli, og Margrét Sæmundsdóttir, sím- stöðinni Hvolsvelli, og leituðu þær framlaga hjá vinafólki Margrétar heitinnar bæði innan héraðs og utan og varð vel ágengt. Síðan aðstoðaði kaupfélagsstjór- inn hér á Hvolsvelli, Magnús Krist jánsson, við útvegun á 18 ljósa loft hjálmi, hinum mesta kjörgrip, sem afhentur var kirkjunni að gjöf við hátiðlegt tækifæri um miðjan nóv ember s.l. Sóknarnefnd Stórólfshvolskirkju biður Tímann að færa gefendum og þeim, sem önnuðust útvegun og uppsetningu á ljósahjálminum, allt án endurgjalds, beztu þakkir og nýjársóskir. Víðavangur (Framhald af 2. síðu). framleiðsluvörur þeirra brutto, eða 2% beinn skattur á tekjur þeirra og þótti þó mörgum nógu hart gengið að bændum með hinum rangláta verðlags- grundvelli. Þessar aðfarir kall- ar Mbl. „eitt stærsta hagsmuna- mál bændastéttarinnar“.------ Fer bændum nú varla að dylj- ast lengur, að stærsta hags- munamál bændastéttarinnar er að hnekkja meirihlutavaldi nú- verandi ríkisstjórnar. Hvers gætu þjóðskáld krafizt? 'Framhald af 16 síðu) með orðréttum tilvitnunum, þar sem greinarhöfundur gefur orð ið hverjum framangreindra 11 ljóðskálda, og hvert sinn til samanburðar tekur hann sýnis- horn úr ljóðabókum Jóns ú Vör og Matthíasar Jóhannessen. í greinarlok birtir hann nokkur sýnishorn úr lofsamlegum dóm- um um rit Matthíasar Jóhann- essen: „Hólmgönguljóð". Sjálf- ur virðist greinarhöfundur kom ast að gagnstæðri niðurstöðu, og nefnir, máli sínu til stuðn- ings, að enginn syngi þessi ljóð eða rauli fyrir munni sér. Leir- burður þessi sé andvana fædd- ur, þó að Ríkisútvarpið hafi álpazt til að verðlauna kveð- skapinn. Af þessu er fullljóst, að hér er um ritdóm að ræða, og það jafnvel hvassan ritdóm. Stefnandi telur, að umbj. m. Hjálmtýr Pétursson, hafi birt 4 ljóð eftir Matthías Jóhannessen í umræddri blaðagrein. Umbj. m. mótmælir þessu sem röngu. I fyrsta lagi sé ekki hægt að nefna þessa samsetn- ingu ljóð, og þó að svo yrði tal- ið, af hinum virðulega dómstóli, þá er varla hægt að segja, að hin 4 erindi, sem í sé vitnað, geti hvert um sig talizt sjálf- stæð Ijóð. Fyrsta tilvitnunin með orð- unum: „Þú ert viti guðs á göml- Hádegiskliíbburinn kemur ekki saman í dag. Næsti fundur miðvikudaginn 21. marz. um freknóttum himni og horf- ir á eftir okkur í golgrænt skol- ið“, ætti þá að teljast fyrsta Ijóðið, og birting þess sennilega bakað höfundi 500 króna tjóni, að skoðun Rithöfundasambands íslands. Næsta tilvitnunin: „Þú ert morgunblað og þeir senda þig upp úr hádegi til fisksalans á framnesvegi“, o. s. frv., heldur lengra að vöxtum, á þá að vera annað Ijóðið. Tjón af birtingu kr. 500.—. Þriðja tilvitnunin: Þú ert i kompaníi við allífið og yrkir eins og þú heldur að guð og Þórbergur gerðu", o. s. frv. er þá þriðja, lögverndaða ljóðið, sem umbj. m. á að greiða fyrir að birta almenningi 500 krónur. Fjórða tilvitnunin, í réttri röð: „Þú ert skip og siglir inn í nóttina“ o. s. frv. ætti þá einn- ig að leiða til 500 kr. skaðabóta greiðslu. En hvað þá um fimmtu til- vitnunina? Hví voru Ijóðin að- eins talin fjögur? Vill Rithöf- undasamband íslands ekki kannast við að fimmta tilvitn- unin njóti lagaverndar: „Þú ert samvizka óðins þegar hann fer til annarrar konu sem gleypir lim hans eins og gráðugur stein bítskjaftur eins og hafið sólina, svalar þorsta hans eins og vatns þró,“ o. s. frv.? Þetta er óljóst í stefnunni. Staðr'eynd er, að ljóðin eru nefnd fjögur talsins, og skaða- bótafjárhæðin alls kr. 2000.— svo að jafnaði virðist greinar- höfundi ætlað að greiða skáld- inu kr. 500.— fyrir brotlega birtingu hvers ljóðs. En fimmta „Ijóðið" ætti þá að vera frjálst til birtingar, hvert þeirra, sem það nú er. Ekki er heldur leitazt við að skýra það í stefnu, hvers vegna „tjónið" er metið nákvæmlega á kr. 2000.— né í hverju tjónið er fólgið. Er það tjón fyrir Dav íð Stefánsson, ef vitnað er orð- rétt í ljóð hans í ræðu eða riti, eða ef ein-hver Iærir kvæði hans og fer með þau, að honum for- spurðum, svo að aðrir hlýða til? Eða verður hann fyrir tjóni við orðréttar tilvitnanir í ljóð hans, þegar einhver ritar blaðagrein um skáldskap hans? Allt þetta og reyndar nokkuð fleira í þessu sambandi er nauð synlegt að fá skýrt fram hjá stefnanda, áður en dómur fell- ur í máli þessu. Af því tilefni er hér með skorað á stjórn Rit- höfundasambands íslands, stefnanda málsins, að koma fyr ir rétt og tjá sig um framan- greind atriði, málinu til skýr- ingar. Sérstaklega er nauðsyn- legt að stjórnarmenn, hver um sig, gefi skýringu á því, hvers vegna þeir telja tilvitnanir um- bj. m. birtingu á fjórum Ijóðum Matthíasar Jóhannessen, hvers vegna þeir telja að grein umbj. m. geti ekki talizt dómur um verk hans (ritdómur), og á hverju þeir byggja skaðabóta- fjárhæðina. Ástsælustu ljóðskáld á fs- landi hafa hlotið lárviðarsveig af alþýðu manna með tignarheit inu þjóðskáld. Allt fram til þessa hefur það verið keppi- kefli íslenzkra Ijóðskálda að komast i tölu þjóðskálda. Sagt er að Bjarni Thorarensen hafi á banasænginni, mælt til Jónas ar Hallgrímssonar: „Þegar ég dey, verður þú eina þjóðskáldið okkar, Jónas minn“. Þessi orð þarfnast ekki skýringar. Þjóð- skáld voru þeir einir, sem ortu Ijóð, sem almenningur unni og kunni, og sem verða þess vegna óaðskiljanlegur hluti af is- lenzkri menningu. Rithöfundasamband íslands, stefnandi í máli þessu, virðist fylgja allt annarri stefnu, ef dæma á eftir máltilbúnaðj þeim sem hér liggur fyrir. í stað þess að hingað til hefur verið talið hverju skáldi mest virði, að verk þess séu kynnt atmenn- ingr, svo að þau verði lesin og lærð, þá er þessu máli hampáð sem rökum fyrir skaðabótum, að skáldi sé miski gerður með þvi að vitnað sé orðrétt í ljóð þess í blaðagrein. Miðað við hin ar smávægilegu tilvitnanir í ljóð Matthíasar Jóhannessen i nefndri blaðagrein hafi bakað honum 2000 króna tjóni, hlýt- ur tjón þjóðskálda, vegna sí- felldra tilvitnana í verk þeirra, í ræðu og riti, að nema árlega milljónum króna. Liggur í aug- um uppi, hvílík fjarstæða þessi kenning er. Fullyrðing stefnanda um að grein umbj. m. hafi verið eitt- hvað annað en ritdómur, er al- veg út í hött, enda órökstudd. Hvað annað en ritdómur er blaðagreinin? E. t. v. ljóð í nú- tímasniði? Svo sem stefnandi sjálfur við urkennir, taka höfundar ekki gjald vegna tilvitnana í ritdóm- um, enda virðast landslög ekki ætlast til þess, sbr. 15. gr. 1. nr. 13 frá 1905. Þess vegna er eng- inn grundvöllur fyrir stefnu- kröfunni. Þrátt fyrir það hefur verið farið nokkrum orðum um efni og anda kröfugerðarinnar, vegna þess, hve fjarstæðukennd hún er, og víti til varnaðar fyr- ir íslenzka rithöfunda. ítreka gerðar kröfur og legg málið í dóm. Reykjavík, 12. marz 1962, Páll S. Pálsson. Verðlækkun á ¥OLVO -tJUÆXf Kostar nú kr. 175.000.00 SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS RÍKISÚTVARPIÐ TÓNLEIKAR í Háskólabíóinu fimmtudaginn 15. marz 1962, kl. 21.00. Stjórnandi: JINDRICH ROHAN Einleikari: EINAR VIGFÚSSON Efnisskrá: Beethoven: Egmont-forleikur, op. 84 Tschaikowsky: Rococortilbrigði fyrir celló og hljómsveit. Sibelius: Tapiola, op. 112 Mendelssohn: Skozka sinfónían, op. 56, a-moll. ★ Aðgöngumiðar í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar, bókaverzlun Lárusar Blöndal á Skólavörðu- stíg og í Vesturveri. Jörð til sölu Jörðin Kalastaðakot á Hvalfjarðarströnd, er til sölu ásamt allri áhöfn og tækjum. Laus til ábúðar á næsta vori. Leiga kemur einnig , til greina. Nánari upplýsingar gefur ábúandi Guðbrandur Thorlacius. Flaíningsmenn óskast FISKVINNSLUSTÖÐ JÓNS GÍSLASONAR Hafnarfirði. Símar 50165 og 50865. Húsgagna- og húsasmiðir Vantar 2 húsgagna- eða húsaámiði strax. — Helzt vana verkstæðisvinnu. Löng vinna framundan. Kraftmikil vél. Bólstrað mælaborð 4 hraða hljóðlaus gírkassi. Öflug miðstöð. Öryggisbelti. Rafknúin rúðusprauta. Endursöluverð á VOLVO | er hærra en á flestum öðr- j um bifreiðum. j GUNNAR ÁSGEIRSSON hf. ! Suðurlandsbraut 16 Sími 35200. Söluumboð á Akureyri MAGNÚS JÓNSSON. Sími 2700. BYGGIR H.F., sími 34069. ÞAKKARÁVÖRP Innilegustu þakkir mínar flyt ég öllum þeim, sem heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöfum og skeytum á áttræðisafmæli mínu, 10. marz s.l. Guð blessi ykkur öll. Ingunn Jónsdóttir, Skálafelli. Öllum þeim, er glöddu okkur með stórhöfðingleg- um gjöfum og heimsóknum á 50 ára afmæli okkar, sendum við innilegustu þakkir og árnaðaróskir. Hólmfríður Jóhannesdóttir, Ársæll Jóhannsson, Jórvík. Jeppabifreið með kerru til sölu. Mjög hagstætt verð. Innrlegar þaklcir fyrlr auSsýnda samúð og vlnarhug, í minningu Birgis Guðmundssonar, sem fórsf með m.b. Stuðlabergi. Upplýsingar í síma 36485. Valdís Valdimarsdóttir börn og aðrlr aðstandendur T í M 1 N N, miðvikudagur 14. marz 1962. 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.