Tíminn - 29.04.1962, Síða 2
Stærsta uppeldisvandamál
f Ameríku nú á dögum er,
hvernig ber að aga börnin.
Dr. Milton J. E. Senn, sem er
forstöðumaður hinnar frægu
uppeldisfræðistofnunnar við
Yale háskólann, hefur greint
frá því, að foreldrar, sem
leiti ráða hjá honum, komi
með fleiri spurningar varð-
andi aga en nokkurt annað,
sem viðkemur barnauppeldi.
Þó eru margir foreldrar — að'
maður minnist nú ekki á barn-
laust fólk — sem telja sig vera
sérfræðinga í því, hvernig aga
ber börn.
Eftirfarandi spurningar, sem
settar eru fram af sérfræðingum
í barnauppeldi, eru allar byggð-
ar á ofur venjulegum atvikum,
sem hljóta að koma fyrir hjá
flestum foreldrum eða barnaupp-
alendum. Þær eru ekki eingöngu
settar fram fyrir ameríska for-
eldra, heldur foreldra um allan
heim, og eiga að hjálpa til að
skilja á hlutlausan hátt afstöðu
barns og fullorðins gagnvart
hvort öðru.
Skyldir ÞU ekki hafa gagn af
því líka!
Spurningar
1. Þú átt sex ára gamlán patta,
sem þú hcfur neitað um rjóma-
ís, rétt fyrir hádegisverðinn.
Hann i'eiðist, grenjar, segir að
þú sért nízk(ur), og að hann hati
þig. Mundir þú:
a) . senda hann upp í herbergi
ásamt hótun um, að hann fái
ekki að borða með hinu fólk
inu?
b) . .bíða róleg(ur), unz óveðrinu
slotar og ræða þá málið í
næði?
c). .neita honum um rjómaís það-
an í frá?
2. Sjö ára gamalt barn þitt
segir orð, sem kemur þér til að
roðna. Og þú:
a) . .þværð munn þess með sápu?
b) ..lætur sem þú heyrir það
ekki?
c) .. segir því, að þú þolir ekki
slíkan talsmáta?
3. Fimm ára gamall sonur þinn
er alltaf að lúskra á leikfélaga
sínum. Mundir þú:
a) ..senda leikfélaga hans heim?
b) ..segja leikfélaga hans að
lúskra á synL þínum í stað-
inn?
c) ..koma þeim til að leika ein-
hvern leik, sem ekki leiðir til
slagsmála?
4. Sex ára gömul dóttir þín
heimtar að fá að taka þátt í leik
með níu ára gamalli systur sinni
og leikfélaga hennar. En leikur-
inn er of erfiður fyrir hana, auk
þess sem eldri börnin vilja ekki
hafa hana með. Mundir þú:
a) ..biðja eldri börnin að leika
einhvern einfaldari leik?
b) . .hjálpa þeirri litlu til að|
finna upp á einhverju, sem
hún getur gert í staðinn?
c) . . segja henni, að hún sé of
ung og skuli láta eldri börn-|
in í friði?
5. Sjö ára gamalt barn þitti
hnuplar peningum úr skúffu
þinni. Mundir þú:
a) ..flengja það og segja því, að
fólk, sem stelur, lendi í fang
elsi?
b) ..taka frá því eitthvað, sem
því er kært til þess að leiða
því fyrir sjónir, hve slæmt
það er fyrir þann, sem tekið
er frá?
c) . .læsa skúffunni og skýra fyrir
barninu, að með því viljir þú
hjálpa því til að muna, að
það mcgi ekki taka pening-
ana?
6. Tólf ára son þinn langay til
að sjá sérstakan þátt í sjónvarp-
inu og hann segir þér, að hann
sé búinn að læra undir morgun-
daginn. En næsta morgun sérð þú
hann vera að lesa bækurnar fyr-
ir morgunverðinn.( Hann er e. t.
v. ekki vanur að skrökva, en í
þetta sinn gerði hann það vissu-
lega. Mundir þú:
a) ..ræða um þetta við hann í
næði eftir skólatíma og láta
hann vita, að þú sért ekki
ánægð(ur) með slíka hegð-
un?
b) . láta kyrrt liggja, af því að
slíkt kemur svo sjaldan fyr-
ir?
c) láta hann viðurkenna, að
hann hafi skrökvað og segja
honum, hvað þú ert leið(ur)
yfir þessu?
7. Níu ára gamall sonur þinn
er alltaf að skipa sex ára bróður
sínum eitt og annað, og Sá litli
verður auðvitað fokreiður. Mund-
ir þú:
a) .banna eldri drengnum að
leika við bróður sinn, þangað
til hann hættir að vilja ráða
yfir honum?
b) . segja yngri drengnum, að
hann sé minni og verði því
að taka því, að honum sé
stjórnað?
c) . .kenna eldri drengnum, hvern
ig hann á að stjórna, án þess
að vekja reiði?
Svör
1. (Rjómaís fyrir miðdegis-
verð). b) Með því að vera róleg-
(ur), sýnir þú, að þú ert þolin-
móð(ur) og ástrík(ur), þó að þú
teljir það nauðsynlegt að neita
honum um það, sem hann langar
í, segir dr. Allan Fromme, virtur
barnasálfræðingur. Rólyndi gagn
vart ofsa kennir barninu, að upp
reisn hefur engin áhrif.
2. (Ljót orð). c) Þegar barn
segir Ijótt orð í fyrsta sinn, er
óviturlegt að bregðast reið(ur)
við. Með því freistar þú bamsins
til að nota orðið aftur til þess að
ná sér niðri á þér, segir ameiísk-
ur uppeldisfræðingur. Réttast
er að láta barnið vita það ákveð-
ið, að siðað fólk noti ekki slík
orð og að þú bannir því að nota
þau.
3. (Lúskrar á leikfélaganum).
a) Uppeldisfræðistofnunin við
Yale háskólann telur, að sé barn
inu refsað með því að senda leik
félagann á brott, þá neyðist það
til að hugsa um það, sem það
hefur gert, og það mun skilja
hverju það tapar með hegðun
sinni.
4. (Leika sér við eldri börn).
b) A. D. Buchmueller, kunnur
uppeldisfræðingur: — Það er yf-
irleitt óviturlegt að biðja börn
að leika sér á einfaldari hátt, svo
að yngri börn geti verið með. Sé
yngra barninu vísað frá, verður
það sært. Auðvitað getur ' þú
reynt að fá eldri börnin til að láta
yngra barnið hafa eitthvað hlut-
verk í leiknum, sem það getur
ráðið við. En bezt er að fá það
til að leika sér upp á eigin spýt-
Stjórn Áburðarverksmiðjunnar
eða meirihluti hennar hefur riú
loks birt ákvörðun sína um verð
tilbúins áburðar á þessu vori og
lætur blöðin flytja „skýringar“
sínar á því. Allt er þetta nokkuð
síðbúið miðað við ákvæði laganna
um Áburðarverksmiðju, er mæla
svo fyrir að áburðarverðið skuli
I ákveðið fyrir 1. marz.
; En verkið var torsótt og vand-
gert, enda var að því unnið viku
eftir viku af hinum rcikningsfæ^-
ustu mönnum, með hinum full-
komnustu reikningsvélum — þó
ekki rafeindaheilum — þar til
loks að „hagstæð" niðurstaða
fékkst, nærri tveimur mánuðum
síðar en ákveðið er.
Það sem menn taka fyrst eftir
í auglýsingunni um verðið, er hin
stórfellda hækkun þess frá síðasta
ári, sem nemur upp undir tuttugu
af hundraði eða nærri einum
fimmta verðsins, sem þá gilti. —
Nánar tiltekið 16.25—19,20%
Þrífosfat hækkar um kr. 380,00
úr kr. 2320,00 í kr. 2700,00
Klórsúrt kali hækkar um kr. 260.00
úr kr. 1600,00 í kr. 1860,00
Br.steinssúrt kali h. um kr. 430,00
úr kr. 2350,00 í kr. 2780,00
Blandaður áb. h. um kr. 480,00
úr kr. 2500,00 í kr. 2980,00
Tröllamjöl hækkar um kr. 620,00
úr kr. 3340,00 í kr. 3960,00
Er hér alls staðar miðað við
eina smálest.
Menn rekur í rogastanz, er þeir
sjá þessar tölur eftir allar yfir-
lýsingarnar um lækkun á áburð-
arverðinu fyrir tilverknað áburð-
arverksmiðjustjórinarinnar, sem
ur eða finna því leikfélaga á svip
uðum aldri.
5. (Hnuplið). c) Margir for-
eldrar eru afar skelfdir yfir
fyrsta hnuplinu. En það er nú
samt sem áður algengt, að börn
frá 5—8 ára aldurs „finna“ ýmis
legt, áður en það „týnist". Sér-
fræðingar segja, að í flestum til-
fellum vari þetta hnupltímabil
fremur stutt. Svo að bezta ráðið
er að læsa hlutina niðri og skýra
fyrir barninu, að þú viljir hjálpa
því að muna, að það má ekki taka
þessa hluti.
6. (Fyrsta lygin). a) Dr. Barn-
ey Katz, sálfræðingur, telur, að
aldrei eigi að neyða börn til að
viðurkenna, að þau hafi sagt
ósatt. Auðmýking leiðir aldrei til
góðs. Barnið skal vissulega látið
vita, að vitneskja er fyrir ósann-
sögli þess, en ekki er rétt að ýkja
ástandið. Bezt er að sýna barn-
inu fram á, að það getur vænzt
skilnings hjá foreldrinu.
7. (Stjórnsemi eldra bróður).
c) I tilfellum sem þessum er
eldra barnið vissulega að reyna
að koma fram eins og fullorðinn,
vera þýðingarmikill og hjálpsam-
ur, en fer ekki rétt að. Sálfræð-
ingar telja réttast að beina stjórn
seminni inn á réttar brautir.
Einkunn
Og nú geturðu athugað, hversu
góður uppalandi þú ert. Gefðu
þér tíu stig fyrir hvert rétt svar.
Þú kynnir að bregðast við á ann-
an hátt en talið er upp í liðum
a), b) og c), þegar svipuð atvik
koma fyrir með þín börn, en þá
skaltu miða við það, sem stend-
ur því næst.
Fáirðu 60—70 stig, ertu hrein-
asti snillingur við að ala upn
böm! 30—40 stig þýða, að þú ert
nokkuð góður uppalandi. En inn-
an við 20 stig benda til þess, að
nær lagi væri að segja, að börnin
ælu þig upp!
meðal annars ko;m skýrt fram í
hinni frægu „fréttatilkynningu“
hennar í febrúar.
Og enn talar þessi sami stjórn-
armeirihluti um lækkun frá í
fyrra, í sömu andránni og hin
mikla verðhækkun er tilkynnt.
Annað atriði í „skýringum“
stjórnarhlutans sem vekur eftir-
tekt, er „verðjöfnun" sem gerð er
milli hinna erlendu áburðarteg-
unda. Eru engin rök fyrir henni
færð, en aðeins sagt, að verðjöfnun
milli teg. sé talin æskileg“. En
skýringar á því, hvers vegna hún
sé það og af hverjum hún sé tal-
in það eru engar af hálfu stjórn
arinnar.
Verðjöfnun þessi er þannig
gerð að þrífosfat er lækkað í
verði sem nemur eftir frásögn
framkvæmdastj. verksmiðjunnar,
rúðlega 1.4 millj. króna en allar
hinar erlcndu tegundirnar eru
hækkaðar í verði um tæplega 1.3
millj. króna. Einkum er það bland
aður áburður og brennisteinssúrt
kali sem bera hækkunina. Engar
sérstakar ástæður eru kunnar fyr
ir verðjöfnun þessari og virðist
því gerð alveg út í bláinn.
. Allur áburðurinn er keyptur á
því verði, sem markaðurinn býð-
ur, og engar ástæður til annars
en það komi fram hér í sömu lilut
föllum, og án allra sjónhverfinga.
Markaðsverðið á að njóta sín á
hverri tegund sem er seld.
Verksmiðjustjórinn segir að af
tilfærslum þessum eigi „hvorki að
verða hagnaður né tap fyrir á-
(Framhald á 12. síðu)
Nýlega gafst meSllmum frægs íþróttafélags í Moskvu kostur á því aS raeSa við rússnesku þióóhetjurnar Yuri
Gagarin og Gherman Titov, geimfara. — Hér sést íþróttakonan Larisa Latinina, á tali v!3 hetjurnar.
Jón ívarsson:
Aburðarverðið hækk-
ar stórkostlega
2
T 1 )1 I N N, sunnudagur 29. aprfl 1962