Tíminn - 01.08.1962, Síða 4

Tíminn - 01.08.1962, Síða 4
Þegar Arvakur lagðl strenginn TTERMANN EINARSSON tók þessar myndir í fyrradag, þegar vitaskipið Árvakur var að leggja raf- strenginn milli lands og Eyja. Það var mikið umhendis, þegar verið var að koma endanum í land á Krosssandi, og sést aðgangurinn á myndinni hér til hliðar. Á myndinni að néðan sést, hvernig strengn- um var fleytt í land á tunnum og belgjum. Árvakur hefur sérstakan útbúnað til þess að leggja sjávar- strengi, svonefndan „lagningskall“. í fyrrinótt var verkinu lokið. 1 • ‘.•'.•.•.'.y.’.y.y .yyyy.yy.yy' . :: ■ ■ fv* '*> 'á f Maður gránaður á hár, burstaklipptur, grannvax- inn og snöggur í hreyfing- um með glettnisdrætti í andlitinu, leit inn á skrif- stofu blaðsins um daginn. Við áttum von á honum. Þar var kominn Rósmundur Árna- son frá Elfros f Saskatchew- an og í fylgd með honum kona hans, frú Elinóra Árnason. Þau komu hingað í hópferð Vestur-fslendinga þann 13. fyrra mánaðar. Rósmundur sagði okkur þeg- ar í stað, að hann læsi alltaf Tímann. — Mér finnnst þinn stíll nokkuð fjörlegur, sagði hann við einn ritstjóranna, Indriða G. Þorsteinsson. Við báðum hjónin að staldra við og segja okkur tíðindi að vestan, en Rósmundur byrjaði að austan og sagðist fæddur og uppalinn á Akureyri. — Við fórum vestur þrettán saman 13. maí árið 1913 og komum 13. júní til Winnipeg. Og nú er ég aftur kominn, 13. júnf í vor. Rósmundur segir þetta glað- beittur á svipinn, og það er auðséð, að hann er hvergi smeykur vig töluna þrettán. — Hefurðu þá ekki komið til fslands síðan þú fluttist vestur? — Einu sinni, 1953. En El- inóra hefur elcki komið fyrr til íslands. Hún er fædd í Manitoba. Elinóra segir okkur, að for- eldrar hennar hafi flutzt vestur milli 1870 og ’80, en þau voru eyfellsk. —Við fórum norður í Eyja- fjörð stuttu eftir komuna til Reykjavíkur, segir Rósmundur, og höfum verið á Akureyri mest síðan. Við komum líka til Siglufjarðar og sáum snjótrað- irnar uppi á skarðinu. Sannar- leg snjóakista þar. — Þið hafið ekki farið á síld. — Það var nú meiningin, segir Rósmundur. — Ég ætlaði að láta konuna salta og skaffa mér pening. — Ég sneri frá, þegar ég sá, hvað þær voru handfljótar, seg- ir Elinóra og hristir höfuðið. — Fóruð þið víðar um? — Við fórum til Mývatns, segir Rósmundur. Við höfum oftast verið heppin með veður — nema í Dimmuborgum. Það rigndi, þegar við komum þar, og þá söng ég — raun er að vera rassvotur . . . aður, raun er að hafa rýrt í vömb . . . — Nei, nei, segir Rósmund- ur, ég söng það ekki allt. Ég þurfti ekki að syngja meir en við átti. Ég var ekki syfjaður og aldrei með rýrt í vömb, en mér þótti fullmikið af því gert að ýta í okkur góðgerðunum. Það var sálarhressing, sem við þurftum á að halda, frekar en líkamleg næring. Skilaðu til ís- lendinga, að þeir taki þetta til athugunar. — Hvernig hefur frúnni lit- izt á fsland? — O, vel og ekki vel, segir Elinóra. Það er víða fallegt, en nokkuð mikið grjót sums stað- ar. — í Kópavogi, segir Rós- mundur. Henni fannst mikið grjótið í Kópavogi. — Hafið þið séð grjótið á Þingvöllum? gjálífið þangað um daginn. — Gjálífið, — Já, ofan í gjánum. Þar er mikið grjót og fallegt. — Rósmundur, hvað ert þú fyrir vestan? — Ég er sveitamaður, — „sveitó“. — Bóndi? — Ég rækta korn. — Mikið af því? — Ég fæ um 4000 bússel í meðalári. Það er hveiti mest. — Hvað hefurðu stórt land? — Á fimmta hundrað ekrur ræktað og nokkra skanka af ó- ræktuðu. — Er þarna gott að vera? — Ja, víst er það. Annars voru þurrkar síðast liðið sumar og hálfgerður uppskerubrest- ur. Og eftir bréfum, sem við höfum fengið, gæti það orðið svipað í ár. — Svo það er nokkuð mis- jafnt. — Það er tröppugangur á öllu alls staðar. Þú skalt ekki halda, að við séum ánægðir með allt. — Hvað eruð þið ónægðir með? — Ég er nú til dæmis óá- nægður með, að fylkisstjórn- inni hefur ekki tekizt að koma á sjúkrasamlagi, en hún var með það á dagskrá fyrir síð- ustu kosningar. — Hvað hindrar stjómina? — Læknarnir. Þeir hafa ris- ið öndverðir gegn þessu, og meira að segja bandarískir læknar hafa lagt þúsundir dollara í áróðurinn, til að drepa þetta niður. Þeir eru hræddir við sitt heimafólk og halda, að það vilji fá sjúkra- samlag, ef við fáum það. Ann- ars hafa vesturfylkin þrjú spít- alasjúkrasamlög, en við ætluð- um að koma heimilislæknis- hjálp inn í þetta. nm — Og það vilja læknar ekki? — Þeir spilla því eins og þeir hafa tök á. Þeir hafa meira að segja varað lækna frá Englandi við að koma í fylkið og sagt, að þeim mundi gert erfitt fyrir. — Það kom nefni- lega til greina að fá enska lækna í fylkið. — Og hvernig heldurðu að þetta fári, Rósmundur? — Það er ekki gott að spá um það. Ég vona, að þetta komist á. Ef til vill segir stjórn in af sér og efnir til nýrra kosninga um málið. Ef almenn ingur hefði verið látinn af- skiptalaus, hefði verið allt í lagi að kjósa um þetta, en nú er búið að hræra svo í fólk- inu, að maður er ekki viss um, hvernig fer. — Hvers vegna eru læknar svo á móti þessu? — Jú, þeir hafa sjálfir rekið dýrar sjúkratryggingar og hagnazt á því. Þeir vilja auka þær tryggingar og hefðu víst þáð, að þær væru gerðar að skyldu. Og svo tala þeir um frelsi. Það er þannig lagað, að þeir hafa betri aðstöðu til að svíkja undaii skatti en flestir aðrir. Svoleiðis frelsi telja þeir ómissandi. — Annars höfum við sveitarsamlag í Elfros og þurfum ekki að staðgreiða ann að en sérfræðingshjálp, en skattarnir eru þeim mun hærri. Sveitarfélagið borgar heimilis- lækninum kaupið og leggiur það svo á skattgreiðendur. — Hvernig lízt þér á trygg- ingakerfið hér? — Það er gott, ódýrt. Mér lízt vel á það. Þið eruð langt á undan okkur, hvað það snert- ir. — Þið hjónin eruð á förum? — Já, við fljúgum á næst- unni með Loftleiðavél til New York. Og við þökkum íslend- ingum kærlega fyrir móttök- urnar. Við höfum skemmt okk- ur prýðilega, en þú skýtur því að þeim, þessu nim sálina og matinn. ' — B.Ó. — ... raun er að vera syfj- — Já, ég tók hana með mér í RÓSMUNDUR ÁRNASON OG FRÚ. (Ljósm.: TÍMINN-RE). T f MIN N, miðvikudaginn 1. ágúst 1962 4 i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.