Tíminn - 01.08.1962, Side 15
FRÁ SÍLDARÚTVEGSNEFND
Á FUNDI sínum hinn 27. þ- m.
áhvað Síldarútvegsnefnd að stöðva
alla síldarsöltun frá miðnætti þann
sama dag, að undanskildum eftir-
stöðvum af sérverkaðri síld.
Gripið var til þessa úrræðis,
vegna þess að þegar höfðu verið
saltaðar um 55 þús. tunnur cut-
síldar umfram sölusamninga, þar
af tvo síðustu dagana um 23 þús.
tunnur, þrátt fyrir það að Síldar-
útvegsnefnd hafði þá sent út til-
kynningu til saltenda um að full-
saltað væri upp í fyrirfram samn-
inga og áframhaldandi söltun
væri á ábyrgð og áhættu síldarsalt-
enda.
Síldarútvegsnefnd þafði boðið
til Sovétríkjanna 100 þús. tunnur
af cutsíld og samningaumleitanir
farið fram milli fulltrúa aðila um
fjögurra vikna skeið, án þess að
nokkur árangur næðist, þar sem
að fulltrúar kaupenda léðu ekki
máls á að kaupa meira magn en
7 9þús. tunnur og aðeins fyrir
sama verð og í fyrra.
Hins vegar hafði verð á cutsíld
til annarra helztu kaupenda verið
hækkað verulega frá fyrra árs
verði, þótt verðið, sem þeir
greiddu í fyrra væri hagstæðara
fyrir íslenzka framleiðendur, en
Rússlandsverðið, miðað við til-
kostnað.
Áframhaldandi söltun þýddi að
Það kostar
tugthús
HvaSa refsingu fær maSur,
sem hefur veriS sviptur öku-
réttindum, fyrir aS aka bíl,
aS þvi viSbættu aS bíllinn er
stolinn og maSurinn fullur?
Við spurðum umferðardeild
rannsóknarlögreglunnar að gefnu
tilefni. Svarið var tugthús. Það er
tugthússök að aka bíl eftir svipt-
ingu ökuréttinda, þótt ölvun ^og
þjófnaður komi ekki til. Dómur-
inn þyngist að sjálfsögðu við marg
földun brotsins, og ef viðkomandi
veldur tjóni, þarf hann að bæta
það með fjárútlátum.
Þannig vann maður noklcor,
sviptur ökuréttindum, sér fyrir
tugthúsvist í annað sinn á sunnu-
dagsmorguninn. Hjá Rauðavatni
ók hann á Skodabíl, sem var á
leið úr Reykjavík. Mennirnir fjór-
ir, sem voru í Skodabílnum, sluppu
við alvarleg meiðsl, en bíllinn er
ónýtur. Hitt farartækið, stol-
inn sendiferðabíll, sem fylliraftur-
inn ók, er einnig stórskemmdur.
Fyrir nokkru var sami maður
handtekinn fyrir að aka bíl drukk-
inn. Hann hafði þá verið sviptur
réttindunum, en lét ekki kyrrt
liggja-
Akfó s;á!f
nýjum bíl
Almenna bifreiðaleigan h.f.
Hringbraut 106 — Simi 1513
Keflavík
allar horfur væru á, að eftir tvo
daga yrði búið að salta að fuUu
upp í þá samninga, sem Sovétríkin
höfðu léð máls á að gera. Horfur á
viðbótarsamningum við aðra að-
ila eru óvissar og ekki um að ræða
nema takmarkað magn.
Nefndin taldi að ekki væri
fært að salta meira magn af ó-
seldri cutsíld að svo stöddu, en
umræddar ca. 55 þús. tunnur.
Á undanförnum árum hefur aldr
ei verið um eins mikið magn af
óseldri cutsíld að ræða sem nú.
Af biturri reynslu hafa íslending-
ar forðast að framleiða mikið magn
af óseldri saltsíld. Má segja að
teflt hafi verið á tæpasta vað með
því að salta svo mikið magn af
óseldri síld, þar sem markaðs-
möguleikar eru jafn takmarkaðir
og nú, ekki sízt þegar veiðihorfur
eru mjög góðar og allar líkur til
að auðvelt verði að salta á skömm-
um tíma það viðbótarmagn, sem
takast kann að selja umfram þá
síld, sem þegar hefur verið sölt-
um upp í væntanlega samninga.
(Tilkynning frá Síldarút-
vegsnefnd).
SNO6H0JI
|FOLKEH0JSKOLE
pr. Frcdcricia
IbiiiI danmark
1111
r n t a fl 1 F’l
Alm. hBjskole med sprog og nordisk-europæisk hold.
Lærere og elever fra hele Norden.
Poul Engberg
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
Ms. Esja
fer austur um land i hringferð
6. ágúst. Vörumóttaka á mið-
vikudag til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarð'ar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðis-fjarðar,
Raufarhafnar og Húsavíkur. —
Farseðlar seldir á föstudag.
Ms. Herðubreið
fer vestur um land í hringferð
4. ágúst. Vörumóttaka á mið-
vikudag til Kópaskers, Þórs-
hafnar, Bakkafjarðar, Vopna-
fjarðar, Borgarfjarðar, Mjóa-
fjarðar, Stöðvarfjarðar, Breið-
dalsvíkur og Djúpavogs. — Far-
seðlar seldir á föstudag.
Kópavogur
Hefi til sölu góða fokhelda
íbúðarhæð í Vesturbænum.
Gæti verið 2 íbúðir.
Hefi kaupendur að 3ja og 4ra
herb. íbúðum í Kópavogi og
nágrenni.
HERMANN G. JÓNSSON hdl.
Lögfræðiskrifstofa .
Fasteignasala
Skjólbraut i, Kópavogi
Sími 10031 , heima 51245,
AKI0
SJÁLF
NÝJUM BÍL
ALM BIFREIÐALEIGAN
Klanparstij? 50
SÍMI 13776
Hjartkær eiginkona mín,
Brynja Guömundsdóttir,
andaðist i Hamborg mánudaginn 30. júií.
Skarphéðinn Árnason og dæ'tur.
KcrflögSu 2000
ferkílómetra
Framhaid af 1. síðu.
á afréttirnar, í stað þess að nota
beitilöndin af handahófi.
Beitarþolsrannsóknirnar hafa
tvöfalt gildi. Þær tryggja það, að
ekki sé ofbeitt á afréttirnar og
einnig að jafna megi beitinni bet-
ur niður og jafna þannig fallþung-
ann á haustin. Beitarþolsrann-
sóknirnar miða þannig að því að
fá. úr því skorið, hvernig á að nota
beitilandið eins og það er, en einn
ig miða þær að því að skapa mögu-
leika á því að auka gróðurinn.
Skipta með sér verkum
Ingvi er jafnframt með tilraun-
ir með túngresissáningu og áburð-
ardreifingu á afréttunum. Þær til-
raunir eru hliðstæðar tilraunum
Sturlu Friðrisksonar, sem sagt var
frá í blaðinu í gær, en þeir skipta
með sér verkum þanngi, að Sturla
er með auðnirnar, en Ingvi með
það land, sem einhver gróður er
fyrir á.
Ljúka við Suðurland
í sumar
Þeir fjórmenningar í kortagerð-
inni ætla að Ijúka við að kort-
leggja allar Suðurlandsafréttir í
sumar, nema Gullbringu- og Kjósa
sýslu, allt austur úr Skaftafells-
sýslu og vestur á Kaldadal. Á
fimmtudaginn kemur fara þeir í
svæðið upp af Skaftártungu og 15.
á.gúst byrja þeir að kortleggja
Hrunamannaafrétt.
Þessar beitarþolsrannsóknir
byrjuðu árið 1956, en nú í sumar
fengu þær í fyrsta sinn styrk, úr
Landgræðslusjóði, og hefur það
gert sérfræðingunum kleift að
vera jafn stórvirkir í sumar og
■aun ber vitni.
Síldar víöa vart
Framhald ai 16. síðu.
Síldarbræðslan þar hefur unnið
mefi toppafköstum í gllt sumar, og
komizt upp í 900 tii 1000 mál á
sólarhring, en annars er hún að-
eins gerð fyrir um 800 mál. Alls
mun vera búið að taka á móti um
20 þúsund málum á Eskifirði, og
saltað hefur verið í 3700 tunnur.
Nokkur síld hafði borizt til
Reyðarfjarðar í gær. Gunnar kom
meff 450 tunnur, sem fóru í frysti.
Þá kom Snæfugl með 900 tunn-
ur í fyrrakvöld, og átti að reyna
að salta eitthvað af síldinni í sér-
verkanir, en hún reyndist ekki
nógu góð. Fóru 120 tunnur í frysti,
en skipið fór með afganginn annað
í bræðslu. Hins vegar var síldin,
sem Gunnar kom með, bezta síld, ]
sem borizt hefur til Reyðarfjarð-
ar í sumar. Hún var að meðaltali
25% feit, en sumt af aflanum var
29 % feitur.
Drápu jafnaldra
Framhald af 16. síðu.
hvað gerzt hafði, og voru þá báð-
ir drengirnir teknir höndum. —
Eldri drengurinn fannst uppi á
þaki nábúans, þar sem hann sat
á nærklæðunum einum saman, ut-
an við sig af skelfingu. Eftir rétt-
arhöldin í dag var eldri drengur-
inn úrskurðaður í fjögurra vikna
fangelsi, en sá yngri er nú í hönd-
um barnaverndar. Réttarhöldin
fóru fram fyrir luktum dyrum.
Aðils.
Danir óttasf
Frarnhxir1 •- i iK síðu
komið niður á fleiri löndum en
þeim, sem aðild eiga að EBE.
Árlegur útflutningur fyrir 100—
150 milliómr króna hefur verið
stöðvaður og ríkir nú óvissa um.
hvenær og að hve rniklu leyti hann
getur hafizt aftur. Og eftir um það
bil misseri vprða fleiri danskar út
flutningsvörur i hættu. þegar EBE
kemur á hinum nýju áktfæðum um
kjöt og mjólkurafurðir. — Aðils.
■ Trúlofunarhringar
Fljót afgreiðsla.
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiSur
Bankastræti 12.
Simi 14007
Sendum gegn pöstkröfu.
Laugavegi 146 — Sími 11025
í DAG OG NÆSTU DAGA
bjóðum við yður sérstaklega
hagkvæm kjör á Volkswagen-
bifreiðum:
Volkswagen 1962 með óvenju
góðum kjörum.
Volkswagen 1961 með 80 þús.
kr. útb.
Volkswagen 1960 með alls kon-
ar greiðsluskilmálum.
Volkswagen 1959 á 90 þús. kr.
og greiðslusamkomulagi.
Volkswagen 1959 á 85 þús. kr.
Volkswagen 1958 á mjög hag-
stæðu verði.
Volkswagen 1957 á 70 þús. kr.
Volkswagen 1956 á 65 þús. kr.
Volkswagen 1955 á 60 þús. kr.
með greiðslusamkomulagi.
Volkswagen 1954 á 55 þús. kr.
Höfum allar árgerðir í fjöl-
breyttu úrvali af Volkswagen-
gerðum, við allra hæfi.
Auk þessa bjóðum við yður:
Taunus fólksbifreið 1962 lítið
ekna, skipti óskast á Taunus
statioh
Volvo Station 1961, nýr bíll
Mercedes Benz Disel bíll 1960
Opel Caravan 1955. góður bíll.
Lcitið upplýsinga um bíiana hjá
okkur.
Kynnið yður hvort RÖST hefir
ekki rétta bíiinn handa yður.
ÞÉR GETIÐ REITT YÐUR A
RÖST
Leggjum áherzlu á góða þjón-
ustu og fuilkomna fyrirgreiðslu
Þér ráðifi leiðina tii RASTAR
RÖST s/f
Laugavegi 146 — Sími 11025
'ÍSL
toilasoila
Bergþérueötu 3. Sfmar 19032, 20070
Hefur ávc llt tii sölu allar teg-
iiridn biireiða
röknm oiireiðrr i umboðssölu
Óriiggasta bjónustan
HfflT
G UO MUNDAR
BercÞérugötu 3. Slmor 19032, 20070.
TÍMINN, miðvikúdaginn 1. ágúst 1962
sækjum heim !4 tonn eSa
meira. Talið við okkur
sem fyrst.
SINDRi
Sími 19422.
Bíla - og
búvélasalan
selur
Heyhleðsluvél
Ámoksturtæki á
Dautz 15 D alveg ný
Garðtætara með
sláttuvél
Múgavélar
Sláttuvélar á
Massey-Ferguson
8 tonna dráttarvagn
góðan fyrir búnaðarsam
band
Loftpressur
Krana á hjólum:
Blásara
Dráttavélar
Ámoksturstæki á Oliver
Farmal Cub '58
Dautz 15 A '60
Zetor áraerð '60
Verð aðeins kr. 50.000,—
Fordson major '58 og '59
með allskonar fylgitækjum,
hentugt fyrir búnaðarsam-
bönd
Massey Ferguson með
ámoksturstækjum árg. '59.
Bíla & búvélasaian
Eskihlíð 'B v/Miklatorg,
sími 23136