Tíminn - 23.08.1962, Blaðsíða 14

Tíminn - 23.08.1962, Blaðsíða 14
um það hafði ekki verið að villast um morguninn úti á flekanum og hvað hafði Mario sagt: „Hefur hann sannað yður, aS hann sé sá, sem hann læzt vera?“ Sannað, nei, hún hafði aðeins orð hans fyrir því að hann var John Graham. En hver annar gat hann verið? Hún var orðin alvarlega óróleg. Rose líkaði heldur ekki við hann, jafnvel þótt hún segði að það væri aðeins hugboð. En Elenor taldi þag gæti ekki verið siður rétt. Hún var kona sjálf. Mamma henn- ar var sífellt að fá hugboð og oft- ast hafði hún rétt fyrir sér, þegar á reyndi. Og allt í einu fylltist hún heimþrá, löngun eftir að sjá foreldrana, en þá fór hún líka að hugsa um föður sinn og alla þá vinnu, sem hann hafði lagt í rann sóknir sfnar og hún kerti hnakk- ann. Don Manuel, sprengingar, byltingar og ógnanir — ekkert skyldi koma í veg fyrir að hún fyndi manninn, sem hún leitaði að og afhenti honum skjölin. En Jeffrey? Henni hafði verið sagt, að hann væri einn gáfaðasti starfsmaður stjórnarinnar brezku, en hingað til hafði hún ekki orðið mikið vör við gáfur hans. Hvað var það, sem Ray Evans sagði við hana kvöldið í Kingston? Hún strauk hendinni um ennið og reyndi að muna það. Það var eitt- hvað í þá átt, að hann lifði sig inn í hlutverkið, sem hann lék hverju sinni. Enginn heilvita mað ur gat sagt, að Jeffrey Greene væri sérstaklega sannfærandi Ijós myndari. Að vísu hafði hann eytt deginum í borginni með ljósmynda vélar sínar, en þegar ólætin hóf- ust, flúði hann eins og fætur tog uðu. Og Elenor brosti fyrirlitlega, er hún minntist þess, sem hann hafði sagt. Auðvitað hefði hann getað særzt, en það gat Mario líka, þegar hann stoppaði til að hjálpa öðrum, sem slasaðir voru í borginni. Og voru blaðamenn og Ijósmyndarar ekki alltaf fyrstu menn á vettvang þar sem eitthvað var um að vera? Bylting á þessari litlu eyju hlaut að teljast til frétta, eða hvað? Hún strauk aftur þreytu lega um ennið. Ekkert kom heim og saman. En hann hlaut að vera John Graham, sendur til Santa Felice til að veita henni alla þá aðstoð, sem hún þarfnaðist. En henni líkaði illa við hann og því meira sem hún hafði saman við hann að sælda, þess sannfærðari varð hún um ódugnað hans. Hún heyrði skothvelli ekki langt í burtu og hún reis upp af rúm- inu og lagði við hlustir. En fleiri skot heyrðust ekki og loks af- klæddjst hún og lagðist fyrir. En eins og allir aðrir gestir í Palace hóteli svaf hún órólega og laust þessa nótt og var langt frá því að vera útsofin um morguninn. Hún var með höfuðverk, þegar hún fór á fætur og ekki batnaði skapið, þegar hún opnaði pakk- ann, sem Mario hafði munað eftir að sækja fyrir hana kvöldið áður. Hún horfði hugsandi á verðlapp- ann innan í þar sem verðið var þrem shillingum lægra en utan á pappímum, svo varp hún mæðu- lega öndinni. Mario hafði þá tekið þrem skildingum meira en hon- um bar, en það var vissulega ekki stór fjárupphæð, en minnti hana á, að hann var bara leiðsögumaður og þrátt fyrir að hann hafði reynzt henni vel, var hans eina hugsun að útvega sér peninga með ein- hverju móti. Hún var vonsvikin og sjálfri sér rejð, þegar hún gekk niður til þess að snæða morg unverð. Og hún varð þegar vör við að andrúmsloftið var hlaðið spennu eins og kvöldið áður. Matsveinninn hafði að vísu hert upp hugann og tekizt að framreiða skikkanlega máltíð og allir gest- irnir tóku duglega til matar síns. — Kannske fær hann annað taugaáfall fyrir hádegisverðinn, sagði Terry afsakandi, þegar hann fékk sér í fjórða sinn. Elenor brosti ekki ei'nu sinni ag spaugi hans og Rose íeit spyrj andi á hana. — Þú ert ekki glað- leg, Elenor, sagði hún vinalega, — svafstu illa? — Já, sagði hún. — Eg hef aldrei verið stödd þar sem gerð hefur verið bylting fyrr og það er undarleg tilfinning, einkum vegna þess að vita, að við kom- umst ekki héðan. Svo er ég reið út í Mafio. Hann lagði á sig að sækja þvottinn minn í gærkveldi en sýnir þá frekju að hafa af mér þrjá shillinga! Jeffrey leit til hennar yfir rönd ina á kaffibollanum. — Sagði ég þér ekki, að treysta ekki þessum náungum, sagði hann hrokafullur. — Þeir myndu glaðir myrða ömmu sína fyrir fáeina pesosa. Rose, sem var mjög elsk að leið- sögumanninum, tók þegar upp vörn fyrir hann: — Þegar öllu er á botninn hvolft, fær hann ekki aðra peninga en þá, sem þú borg ar honum, Elenor, og hann hlýtur að eiga fullt í fangi með að fæða sig og klæða fyrir það, kannske þarf hann Ifka að sjá fyrir fjöl- skyldu. — Kannske, en hann hefur eng an rétt til að gabba peninga af þeim, sem ráða hann til sín, sagði Jeffrey kuldalega. Elenor lejt á hann og óskaði af öllu hjarta, að hún hefði ekki minnzt orði á þessa árans peninga. Jeffrey tók að segja Terry frá öllum þeim skjptum, þegar reynt hafði verið ag snuða hann hér á eyjunni. Og Elenor ýtti stólnum harkalega frá og reis upp — Eg fer út í bílinn, tautaði hún við Rose, — sé ykkur á eftir. Gremja hennar dvínaði, þegar hún opnaði dyrnar að skúrnum og sá alla benzínbrúsana. Hún gat fyrirgefið Mario mikið vegna þeirra, hugsaði hún, þegar hún losaði tappann á þeim fyrsta og lyfti honum upp til að hella benzín inu á bilinn. Hún flýtti sér sem hún g»t, en brúsarnir voru þung- ir og ómeðfærilegir og þegar tank urinn var loks orðinn fullur, setti hún hina brúsana aftur í bílinn. Mario kom inn og var að rifna af morili. — Ó, senora Clarence sagði mér, að þér væruð hérna, hrópaði hann glaðlega, — var senorita ánægð að fá benzínið?_ — Þakka þér fyrir, Mario. Hún þurrkaði sér lauslega um hend- urnar á skítugum tvisti, sem hún fann. — Og er það hérna, sem á að hella því? — Eg er búin að fylla tankinn, Mario. Honum hnykkti við, — Þér hefð uð átt að bíða. Eg, Mario, hefði gert það, ef þér hefðuð sagt mér, hvar átti að hella. Brúsamir voru alltof þungir fyrir senoritu. Rödd hans var ásakandi, en svo varð hann þess var, hve kuldaleg hún var og leit forviða á hana. — Er senorita áhyggjufull í dag? Elenor sneri í hann baki og furðaði sig á að hún skyldi vera svona fjúkandi vond út af þessum þrem skildingum, sem hann hafði ^puðað hana um. Mario hafði sagt ag henni væri óhætt að treysta honum fullkomlega og leggja líf sitt í hans hendur og svo sýndi hann þá dæmalausu ósvífni fáein- um stundum síðar að snuða hana um fáeina vesala skildinga! — Þvotturinn, byrjaði hún og hann leit undan. — Hvað borgaðir þú þeim, sem þvoði, mikið? — Þag stóð á umbúðunum, taut aði hann og horfði niður á tærnar á sér. — Það var verðmiði innan í, svaraði hún, — og þar var verðið þrem skildingum lægra. Hann svaraði ekki og fáein sek- 139 grámunkinn, sem verið hafði leið- sögumaður okkar og ókum aftur til Lydda flugvallarins. Þagan lögðum við af stað til Cairo og komum þangað um hádegisverðar- leytið. Við komu okkar til flug- vallarins fengum við þær fréttir, að forsetinn og forsætisráðherrann væru væntanlegir eftir nokkrar mínútur . . . Það verkefni, sem enn var óleyst, var útnefning yfirmanns, er stjórna skyldi „Overlord“-árás- inni yfir Sundið. Og þar sem hann skyldi vera Bandarikjamaður, þá var ákvörðunin að mestu undir Roosevelt komin. Einnig þurfti ag ákveða, hvaða ráðstafanir skyldi gera til að styðja Tyrkland, en nú þótti orðið ólíklegt að hægt yrði að telja það land á að fara í stríð ið. Þar var aðeins Churchill sem enn var þrjózkulega bjartsýnn og jók með því tortryggni Bandarikja manna um allan helming. Loks þurfti að afla nægilegra árásar- skipa til þeirra hernaðaraðgerða á Indlandshafi, sem Chiang Kai shek hafði verið lofað að skýldu gerðar, til árásar yfir Sundið og landgöngu á Suður-Frakklandi. 3. desember. Cairo. Byrjuðum með herráðsfundi til að reyna að greiða eitthvað úr mestu flækjun- um. Fór svo klukkan 12,30 e. h. tjl fundar við forsætisráðherrann og komst að raun um, að hann hafði verið að spilla möguleikum okkar með því að stinga upp á því við Leahy, að ef vig gerðunv ekki árás á Rhodes, þá gætum við a. m. k. svelt staðinn til uppgjafar. Við borðuðum svo hádegisverð með forsætisráðherranum og fór- um aftur klukkan 2,30 e. h. á fund með bandarísku herráðsforingjun- um. Við urðum nær orðlausir af undrun, er okkur var tjáð, að fund inum yrði að ljúka í síðasta lagi á sunnudag (á fjörutíu og átta klukkustundum), þar sem forset- inn væri á förum. Engar afsakan- ir — ekkert! Þeir hafa algerlega eyðilagt fundinn með því að sóa tíma okkar í þras við þá Chiang Kai-shek og Staíin, áður en við höfðum útkljáð nokkurt mál við þá. Og nú, meðan enn hefur ekki náðst samkomulag um neitt, er máli skiptir, hyggjast þeir hverfa út í buskahn frá öllum meginmál- um ráðstefnunnar hálfköruðum. j Þetta virðast vera ein þ^u verstu j hrekkjabrögð, sem ég hef verið, vitni að . . . “ „Sein'na: Eg er hræddur um, að ég hafi verið óþarflega dómharð- ur um bandarísku herráðsforingj- j ana. Eg tek aftur allt, sem ég sagði ,um „hrekkjabrögð" og \er sann ! færður um það, að Marshall hefði | ekki þolað neitt, sem kallazt gæti j því nafni. Eg hef sjaldan á - lifs- leiðinni kynnzt vandaðri og áreið- j anlegri manni en honum 4. dssember, Fyrst herráðsfurd ur til þess að athuga og ákveða, hvernig trezt væri að fást við hina amerísku vini okkar. Fundurinn stóð yfir frá klukkan 9,45 til 10,15 f. h. en þá fórum við að finna for- sætisráðherrann. Hann var í æstu skapi vegna síðasta skeytis frá Dickie Mountbatten, sem bað um liðsauka til að hertaka Andaman- eýjarnar. Fór svo klukkan 11 f. h. til frétta t viðtals við forsætisráðherrann ogj forsetann. Forsætisráðherrann! hélt langa ræðu og bað mig því næst að gera grein fyrir mínum! sjónarmiðum. Eg sagði. að þessij ráðstefna hefði verið mjög ófull-j nægjandi. Venjulega höfðum við á öllum þessum fundum, unz við komum okkur saman um ályktún, sem við lögðum fyrir forsætisráð- herrann og forsetann til samþykkt ar eða umbóta. í þetta skipti hafðj | slík málsmeðferð verið ómöguleg Okkur hafði verið skellt fyrirvara-! Sigur vesturvetía, eftír Arthur Bryant Heimildir: laust og án undirbúnings á ráð- stefnu með Kínverjunum líenni hafði svo naumast verið lokið, þegar við vorum. i skyndi sendir til Teheran á áþekka ráðstefnu með Stalin. Við héldum fram þeirri skoðun okkar, að æskilegt væri að hæt'.a við fyrirhugaða árás á Andaman- eyjarnar, til þess að einbeita okk ur að vígstöðvunum í Evrópu, en þar mættum v;ð strax stjórnmála- legum erfiðleikum. Forsetinn hafði hei.tið Chiang Kai-shek hern aðaraðgerðum þar og vildi ekki ganga á bak orða sinna . . Flýtti mér heim og snæddi há- degisverð með þejm Sosokowski og Anders. Fóru því næst klukkan 2,30 e. h. aftur á ráðstefnu með Ameríkumönnum, sem bar lítinn árangur. Borðaði loks miðdegis- verð með Winston einum og ræddi við hann aðkallandi herstjórnar- mál. Forsetjnn háfði í dag ákveð- ið, ag Eisenhower skyldi hafa á hendi yfirstjórn hernaðaraðgerð anna í Evrópu. Eg stakk upp á því, að „Jumbo“ Wilson yrði yfir hershöfðingi Miðjarðarhafsherj- anna, Alexander æðst.j stjórnari landhérsins á Italíu, Paget i Mið Austurlöndum, Mountgomery vara maður hans og Oliver Leese vara- maður Montys. Winston var ekki frá því að fallast á þessar tillögur mínar, en sagðist um tíma hafa ætlag mér yfirstjórn Miðjarðar- hafshersins, enda, þótt sennilega væri bezt, að ég yrði kyrr þar sem ég nú væri. ^ Eg viðurkenndi, að það myndi I vera bezt, þar sem „Jumþo“ Wil- son væri manna kunnugastur á Miðjarðarhafi. Eg vona, að hann ski.pti ekki aftur um skoðun. Forsætisráðherrann var mjög þreyttur þetta kvöld og það var með erfiðismunum að mér tókst að fá viðtal við hann. Eg hafði þaulhugsað það, sem ég þurfti að ræða um við hann og gert mér glöoga mynd af því í huga mér. í fyrsta lagi, þá var útnefning Eis- enhowers í stað Marshalls góð ráð- stöfun. Eisenhower hafði nú öðl- azt talsverða reynslu sem hers- höfðingj og var byrjaður að fá fast land undir fótum, ef svo mætti segja. Á hinn bóginn hafði Mar- shall aldrei stjórnað neinu i stríði, nema — að því er ég held einu herfylki í fyrri heimsstyrjöldinni. Bxottflutningur Ikes frá Miðjarð arhafinu olli skarði, 'sem erfitt var að fylla aftur. Ég vildi hvorkF setja Alex né Monty í það, þar eð ég taldi þá ómissandi vi.ð hern- aðaraðgerðirnar á Ítalíu. Eg kom þess vegna þvi til leiðar, að „Jum- bo“ Wilson var skipaður eftirmað ur Ikes . . . 5. desember. Cairo. Mjög erfið- ur dagur með hcrráðsforingjafundi og fundi með Bandarfkjamönnum en samningar náðust ekki, þar sem við lýstum okkur algerlega andvíga árás á Andaman-eyjar, en forsetinn taldi sig hins vegar skuld bundinn til að vera henni fylgj- and vegna loforða sinna við Chiang Kai-shek. Það sannaðist svo að ekki varð um deilt, að við höfðum haft rétt fyrir okkur, þegar við kröfðumst þess (án árangurs) að Chiang Kai-shek kæmi í fundarlok en ekki byrjun hans. Síðdegis annar herráðsforingja- fundur, þar sem þeir Stopford og Troubridge voru mættir til þess 14 T f MI N N , fimmtudaginn 23. ágúst 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.