Tíminn - 30.08.1962, Qupperneq 4
Mureyrarétfáfan
í sambandi við hin miklu
hátíðahöld á Akureyri vegna
100 ára kaupstaðarafmælis
staðarins hefur Akureyri skip-
a'ð mikið rúm í dálkum blaða
og tímarita. Fjögur Reykja-
víkurdagblöð gáfu t.d. í gær
út sérstök aukablöð í tilefni
afmælisins.
Akureyrarblaðið Dagur hefur
gefið út sérstaklega vandað 56
síðna hátíðarblað í tilefni afmæl-
isins. í blaðinu eru m. a. 18 grein-
ar um hina ýmsu þætti atvinnu-
lífs og menningarmála á Akureyri,
auk greina um sögu staðarins. —
Magnsú E. Guðjónsson bæjarstjóri
skrifar fremstu greinina: „Öld er
runnin“ og Gísli Guðmundsson al-
þingismaður skrifar um forustu-
Afurðalánin
'HIN FRÆGA AGATHA CHRISTIE, höfundur fjölda vinsælla leynilög-
reglusagna, er alltaf jafn mikið lesin. Um síðustu helgi heimsótti hún
Þýzkaland til þess að hlusta á tónleika. Myndin er tekin af henni á flug-
vellinum í Niirnberg.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í fréttum, voru samþykktar
tvær athyglisverðar ályktanir á
fundi Búnaðarsambands Suður- og
Vesturlands í Borgarnesi á mánu-
daginn. í gær var sagt í Tíman-
um frá ályktuninni í verðlagsmál-
um.
í afurðamálum var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:
„Fundurinn skorar á stjórn
Stéttarsambands bænda, að beita
sér fyrir því við landbúnaðarráð-
herra að landbúnaðurinn njóti
jafnréttis vig sjávarútveginn varð-
andi afurðalán, þannig að tryggt
verði að veitt verði 70% lán út á
birgðir allra landbúnaðarvara.
Fram til ársins 1959 um nokk-
urra ára skeig voru veitt 67% lán
út á birggir landbúnagarafurða.
Var hér um að ræða Seðlabanka-
lán.
Árin 1960 og 1961 voru afurða-
lánin miðuð við sömu tölu og haust
ið 1959. Vegna aukins afurða-
magns og hækkandi verðlags hafa
lánin hlutfallslega lækkað á hverju
ári þessi þrjú ár og haustið 1961
voru lánin komin niður í 55% að
meðaltali, en væntanlegur kjötút-
flutningur til áramóta var ekki
meðtalinn í birgðum. Og engin lán
Skdgræktarmenn þinga
Aðalfundur Skógræktarfé-
lags íslands var haldinn að
Bifröst, Borgarfirði dagana
24. og 25. ágúst s.l. Fulltrúar
mættu frá flestum héraðs-
skógræktarfélögunum og sátu
um 100 manns fundinn.
Hákon Guðmundsson formaður
félagsins stýrði fundinum. — En
skýrslur um starf félagsins og hér-
aðsfélaganna gáfu þeir Hákon
Bjarnason og Snorri Sigurðsson.
Haukur Ragnarsson flutti erindi
um gróðurfar og breytingar á því,
svo sem fyrir áhrif veðráttu, beit-
ar og búsetu í löndum. Ýmsar til-
lögur voru afgreiddar á fundinum.
Aðalfundurinn taldi nauðsyn-
legt, að lögteknar verði nákvæmar
reglur um framkvæmd sinubrenna,
og kom til greina refsingar, ef ekki
er farið eftir þeim reglum.
Aðalfundurinn lýsti yfir ánægju
með, að tveir þriðju hlutar norsku
þjóðargjafarinnar fara í að reisa
tilraunastöð í skógrækt.
Aðalfundurinn þakkaði Braath-
en útgerðarmanni í Oslo fyrir ómet
anlegan stuðning við skógrækt á
íslandi fyrr og síðar.
Aðalfundurinn skoraði á einstök
Síldin
i um 75 þúsund tunnur, og á vakt-
inni milli 6 og 12 í gærmorgun
. , , hafði verið tekið á móti 300 þús-
Síldin ut af Rifsbanka er nu | un(j m^ium j bræðslu á staðnum,
stöðugt að færast lengra og lengra , var þti meðtalinn úrgangur.
frá landi, og í gærkvoldi voru | pr- páskiúðsfirði bárust þær
skipin, sem þarna voru, allt að 90, fróttir - gærj að þangað hefðu
sjómílur undan landi. Hins vegar
var tölverð síld við sunnanverða
Austfirði, en þar fann Ægir all-
mikið síldarmagn í fyrradag.
Um kl. 19 í gærkvöldi höfðu
engin skip tilkynnt um afla sinn
til síldarleitanna á Raufarhöfn og
Siglufirði. Var talið, að ástæðan
væii sú, að þeir hefðu enn ekki
fengið söltunarhæfa síld. Síldin,
sem veiddist út af Rifstanga var
orðin nokkuð blönduð millisíld,
smásíld og jafnvel kolmunna.
Á Raufarhöfn er búið að salta
komið óvænt 3 bátar með söltunar
síld. Ver kom með 250 tunnur,
Ljósafell með 300 og verið var að
salta úr Gunnólfi, síðast þegar til
fréttist, en hann var með 1100
tunnur, sem þó yrði ekki allt salt-
að. Verið var að fylla allar þrær
sildarbræðslunar, en hún hefur
nú tekið á móti 53 þúsund málum
Saltað hefur verið í 7000 tunnur
á Fáskrúðsfirði.
Síldin út af Austfjörðum er
nokkuð blönduð og í henni nokk-
uð af kræðu.
félög að haga störfum sínum þann
ig, að þau nýttust sem bezt, vegna
takmarkaðs fjármagns skógræktar-
innar.
Báða dagana fóru fulltrúar og
gestir fundarins í skógarferðir. —
Fyrri daginn að Stálpastöðum í
Skorradal og í Norðtunguskóg. í
Skorradal var skoðaður uppvax-
andi nytjaskógur. En þar hefur
þegar yerið gróðursett í 80 ha.
lands. í Norðurtungu var skoðað-
ur græðireitur og þegnar veiting-
ar í boði Skógræktarfélags Borgar-
fjarðar.
Seinni daginn var Jafnaskarðs-
skógur skoðaður.
Ríkti mikil ánægjá meðal manna
um árangur skógræktar í skógum
þessum.
Úr stjórn félagsins áttu að ganga
þeir Hermann Jónasson og Haukur
Jörundarson og voru þeir báðir
endurkosnir.
í varastjórn var endurkjörinn
Jóhann Hafstein til 3ja ára, en
Daníel Kristjánsson til eins árs í
stað Ingvars Gunnarssonar er lévt
á s. 1. ári.
Kvöldvaka var haldin að fur.di
loknum. Hana sátu allmargir borg-
firzkir gestir. Var þar skemmt sér
við söng, ræðuhöld og dans. Kir.n-
ig fór fram afhending skógræklar-
verðlauna en þau hlutu að þessu
sinni þeir Guðmundur Karl Péturs
son, yfirlæknir á Akureyri og
Tryggvi Sigtryggsson, bóndi, Lauga
bóli Reykjadal.
hafa verið veitt út á garðávexti og
sölumjólk.
Samkvæmt áætlun framleiðslu-
ráðs, mun verðmæti landbúnaðar-
afurða enn aukast á þessu hausti.
Ef halda á sömu venju og s.l.
þrjú ár, þ.e. að lána aðeins sömu
krónutölu og 1959 má gera ráð
fyrir, að afurðalánin fari niður í
jafnvel 40% af verðmæti.
Fundurinn mótmælir harðlega
því óréttlæti, sem í þessari þróun
felst, Er það skoðun fundarins,
að landbúnaðinum sé stefnt í
mikla hættu, ef bændur fá ekki
greiddan mestan hluta afurðaverðs
ins, strax og þeir hafa skilað af-
urðum sínum til sölumeðferðar.
Fundurinn vekur athygli á því, að
nútímabúskapur byggist meira og
meira á fjármagni. Rekstrarvör-
ur eru að verða stærri liður í út-
gjöldum bóndans, en á hinn bóg-
inn er bilið, sem brúa þarf frá því
lekstrarvörurnar eru keyptar og
afurðir koma til sölumeðferðar,
mjög langt, sérstaklega þó í sauð-
fjárbúskap.
Til stuðnings mótmælum gegn
minnkandi afurðalánum og þar
með lengri bið eftir launagreiðsl-
um til bænda, vísar fundurinn til
þeirrar staðreyndar, að sjávarút-
vegurinn fær nú lánað út á birgð-
ir sjávarafurða til dæmis freðfisks,
sem hér segir:
55,12% Seðlabankalán.
16,53% Viðskiptabankanlán eða
30% af Seðlabankaláni eða sam-
tals 71,65%.“
Ályktun þessi var samþykkt með
atkvæðum allra atkvæðisbærra
fundarmanna. í nefndinni, sem
samdi tillöguna, voru þessi menn:
Gunnar Guðbjartsson, Hjarðarfelli
Grímur Arnórsson, Tindum, Þór-
hallur Guðjónsson, Fagradal, Þór-
ir Steinþórsson, Reykholti, Einar
Halldórsson, Setbergi, og Sigur-
jón Sigurðsson, Raftholti.
hlutverk Akureyrar. Um útgáfu
hátíðablaðsins sá Erlingur Davíðs-
son, ritstjóri Dags.
Tíminn gaf í gær út 24 síður
aukalega og var þá alls 40 síður.
Þar skrifar m. a. Þorsteinn M.
Jónsson mjög fróðlega sögu Akur-
eyrar, og viðtöl eru við ýmsa framá
menn í atvinnulífinu. Fjöldi mynda
frá Akureyri eru í blaðinu.
Morgunblaðið gaf í gær út 20
síðna aukablað um Akureyri, Al-
þýðublaðið og Vísir sitt hvort 12
síðna aukablaðið.
OJALDHEIMTA
GJALDHEIMTAN í Reykjavík
tekur til starfa nú um mánaðamót-
in, og verða húsakynni hennar að
Tryggvagötu 28, væntanlega opnuð
n. k. laugardag, en eins og kunn-
ugt er af fyrri fréttum, verður
í þeirri stofnun sameiginleg inn-
heimta ríkissjóðs, borgarsjóðs
Reykjavíkur og Sjúkrasamlags
Reykjavíkur.
Hið nýja innheimtufyrirkomulag
er mikið hagræði fyrir gjaldend-
ur, þar sem þeir greiða nú gjöld á
einum stað í stað þriggja áður. Eft
irstöðvar hinna ýmsu gjalda frá
1961 og eldri, tekur Gjaldheimtan
einnig að sér að innheimta, og
ber þeim, sem þannig eru í van-
skilum, að gera skil hjá Gjald-
heimtunni, hvort sem um er að
ræða ógreidd þinggjöld, útsvör eða
sjúkrasamlagsgjald.
Þegar menn fara nú til Gjald-
heimtunnar og greiða þar inn á
gjöld, þá eru þeir ekki að greiða
neitt sérstakt gjald, heldur er upp
hæðinni skipt eftir reglum á hina
ýmsu gjaldaliði. Næsta ár ber svo
gjaldendum að greiða fyrirfram
upp í gjöld ársins 1963 fjárhæð,
sem svarar helmingi gjalda yfir-
standandi árs, með 5 jöfnum af-
borgunum frá 1. febr. til 1. júní,
og er sú fjárhæð tiltekin samtals
og einnig sundurliðuð eftir gjald-
dögum á gjaldheimtuseðil 1962.
Gjaldheimtustjóri er Guðmund-
ur Vignir Jósefsson.
Stéttarsambands-
fundur
AÐALFUNDUR Stéttarsambands
bænda verður haldinn að Bifröst í
Borgarfirði dagana 4. og 5. sept-
ember næstkomandi.
Hðrð flugkeppni
Mikill mannfjöldi fylgdist á
sunnudaginn með flugkeppn-
inni á Reykjavíkurflugvelli.
Eftir harða keppni sigraði
Gunnar Arthúrsson, flugmað-
ur hjá Flugsýn, en aðstoðar-
maður hans var Kristján Karl
Guðjónsson. Annar í röðinni
var Sveinn Eiríksson, sjálf-
stæður atvinnuflugmaður, og
Vignir Norðdahl, aðstoðarmað
ur hans.
Keppendur voru 20 talsins á 10
flugvélum. Fyrst gerðu keppend-
ur flugáætlun, og síðan flugu þeir
með löngu millibili til Selfoss, Þing
valla og aftur til Reykjavíkur. Á
leiðinni áttu þeir að taka eftir
sex kennileiíum, stórum lérefts
veifum. Yfir Reykjavíkurflugvelli
áttu þeir að henda niður kubb og
hitta í hring með fimm mptra radí-
us. Flestir hittu mjög nálægt
hringnum.
Siðast var keppt í tveimur mark
lendingum, annarri nauðlendingu
en hinni með vélar í gangi. Urðu
keppendur að lenda innan vissra
marka á brautinni.
Gefin voru þrenns konar stig fyr
ir frammistöðuna, fyrir flugáætl-
un, lendingar og sérþrautir. Stiga-
hæstur var Gunnar hjá Flugsýn og
hlaut hann því Shell-bikarinn.
Mikla athygli vakti flugmódel-
sýningin, sem fór fram jafnframt. ,
Þar sýndu 15 drengir um 40 módel.
4
T I M I N N, fimmtudagurinn 30. ágúst 1962