Tíminn - 22.12.1962, Qupperneq 3
Kennedy býður Frökk-
im Polarís-eldflaugar
NTB—Nassau, 21. des.
Kennedy forseti hefur sent
de Gaulle Frakklandsforseta
bréf, þar sem hann býður
Frökkum Polaris-eldflaugar
meS sömu skilmálum og Bret-
ar eiga að fá þessar eldflaug-
ar, en Macmillan forsætisráð-
herra hefur gengið að tilboði
Kennedys um að fá Polaris-
eldflaugar í stað Skybolt-eld-
flauganna, sem Bandaríkja-
menn höfðu áður heitið Bret-
um.
f fréttum frá Nassau segir, að
talið sé líklegt, að Bandaríkja-
menn verði nú að afhenda öðrum
ríkjum innan NATO Polaris-eld-
flaugar, ef þau óska þess. Þá hef-
ur einnig verið um það rætt á
fundum þeirra Macmillans, að
smátt og smátt verði hluti herja
NATO-landanna sameinaður og
með þeim byggður upp her búinn
kjamorkuvopnum.
Kennedy hefur heitið Macmill-
an, að Bandaríkin leggi Bretum
til Polaris-eldflaugar, en þeim er
bæði hægt að skjóta af landi og
úr kafbátum undir yfirborði sjáv-
arins .Geta eldflaugarnar hitt í
mark í 2.896 km. fjarlægð frá
þeim stað, þar sem þeim er skotið
upp. Eldflaugar þær, sem Banda-
ríkjamenn ætla að afhenda Bret-
um verða ekki búnar kjarnorku-
sprengjum, heldur verða Bretar
sjálfir að sjá sér fyrir þeim. Þá
hafa Bandaríkin lofað að aðstoða
Breta að einhverju leyti við að
smíða sérstaka kafbáta, sem nauð-
synlegir eru fyrir Polariseldflaug-
arnar, en annars verða Bretar að
mestu að sjá um smíði þeirra, og
er hér um aukakostnað að ræða,
sem Bretar höfðu ekki gert ráð
fyrir í sambandi við uppbyggingu
kjarnorkuhers síns. Ekki er enn
vitað hversu marga kafbáta Bret-
ar munu þurfa, eða hversu margar
eldflaugar þeir fá. Bátamir verða
byggðir í brezkum verksmiðjum,
og þeir verða mannaðir Bretum
og undir brezkri stjórn.
Kennedy forseti gerði Macmillan
forsætisráðherra það ljóst á með-
an á viðræðunum þeirra stóð, að
ekki kæmi til greina, að Banda-
ríkin héldu áfram að framleiða
Skybolt-eldflaugarnar á eigin
kostnað. Forsetinn kvaðst fús að
samþykkja, að þær yrðu fram-
leiddar á reikning Breta og Banda
ríkjamanna sameiginlega, en því
tilboði hefur Macmillan hafnað, en
er þó sagður ætla að velta því
maður bandarísku nefndarinnar er
Louis Truman hershöfðingi, en
hann er skyldur Truman fyrrver-
andi forseta Bandarígkjanna.
Ótrúlegt cr, að stjórnin geti tek-
ið afstöðu til þessarar tillögu
st.iórnarandstöðunnar fyrr en í
Bókasalan míkil
Framhald af 1. síðu.
fílar og Mínir menn þar næstar.
Blaðið ta'.aði við nokkra forleggj
ara, sem til náðist í dagsins önn
og spurðist fyrir um úthaldið hjá
þeim:
Leiftur — Gunnar Einarsson:
Þetta gengur vel og betur en í
fyrra svo ekki þarf ég að gráta.
Söluhæstu bækur útgáfunnar eru
Ást í myrkri, sem seldist upp á
nokkrum dögum; Guðrún frá
Lundi, eins og vant er; Leiðsögn
til lífshamingju og í ljósi minn-
inganna.
Bókfellsútgáfan — Guðmundur
Guðjónsson: Svipað og í fyrra og
sami bókafjöldi. Kristmann efst-
ur, Valtýr næstur.
Skuggsjá — Oliver Steinn: Sátt-
ur, og hef á tilfinningunni að nú
muni vel farnast. Söluhæstar eru
Líf að loknu þesu og Tvísýnn leik
ur.
Menningarsjóður — Gils Guð-
rcundsson: Góður gangur og all-
miklu betri en í fyrra. Hæstar í
sölu Lundurinn helgi, Þúsund ára
sveitaþorp og Hundrað ár í Þjóð-
minjasafninu, sem er að verða
búin hjá forlaginu.
Heimskríngla — Einar Andrésson:
Svipað og í fyrra og þó betur.
Ljóðaþýðingar Jóns Helgasonar
exu hæstar í sölu.
Helgafell — Böðvar Pétursson:
Svipað og i fyrra og hittiðfyrra.
Prjónastofan Sólin langhæst í
sölu.
Ið'unn — V'aldimar Jóhannesson:
Ánægður, gengur samkvæmt áætl
un. Ódysseifur hæstur, búinn hjá
forlaginu.
Setberg — Arnbjörn Kristins-
son: Mjög þokkaleg vertíð í heild
cn dauft síðustu daga. Veðrið hef
ur spillt fyrir Fimm konur hæst.
uppseld hjá foriaginu.
ísafoldarprentsmiðja — starfs-
æaður: Mjög gott úthald. Við elda |
Jndlands hæst í sölu.
nánar fyrir sér. Hann hafnaði til-
boðinu upphaflega sökum þess,
að ekki er fullkannað, hvað Sky-
bolt geta í raun og veru, og einn-
ig vegna þess, að óvíst er, hvenær
hægt yrði að ljúka við framleiðslu
þeirra eða, hvað mikið þær myndu
kosta. Bagt er að framleiðslu Pol-
aris ætti að vera lokið einhvern
tíman fyrir 1970.
Þriggja daga viðræðum Kenne-
dys og Macmillans er nú lokið,
og hefur brezka stjórnin sam-
þykkt skýrslu forsætisráðherrans
um viðræðurnar, en næsta mál-
ið á dagskrá verður að rannsaka
hversu mikið það á eftir að kosta
Breta að framleiða hina sérstöku
kafbáta fyrir eldflaugarnar.
næstu viku, en áður en það hef-
ur verið gert er hægt að senda
bréf þingsins um málið til Thants.
Að baki bessarar tillögu stend-
ur Gabriel Yumbu, sem er foringi
þess flokks, sem styður Gizenga.
Svo virð'ist, sem mestur hluti full
tvúa stjórnarandstöðunnar á þing-
inu styðji Yumbu, en stjórnar-
andstæðingar hafa fleiri fulltrúa
en stjórnin sjálf í þinginu.
Bandaríska sendinefndin kom til
I.eopoldville í dag, og í tilkynn-
ingu, sem send var út í því tilefni
segir, að ætíunarverk hennar sé
að kynna sér, hvers konar hernað
arlegan útbúnað SÞ-hermennirn-
ir kunni að þurfa á að halda, eða
geta notað.
Margir hjálparþurfi
Framhald af 1. síðu.
þarfnast því aukinnar hjálpar af-
lögufærs fólks. Þær taka enn við
gjöfum, og er Vetrarhjálpin til
húsa í Thorvaldsensstræti 6, sími
10785, en Mæðrastyrksnefnd í
Njálsgötu 3, sími 14349.
Það er raunar talsvert alvar-
legt mál, ef lífskjör hinna verst
settu fara jafn ört versnandi og
hjálparbeiðnirnar benda til.
JÓLABLAP
ÍHALDSINS
Á AKRANESI
Keykjavík, 21. des.
Sjálfstæðismenn á Akranesi
hafa ekki treystst til að gefa út
biað, síðan þeir töpuðu hundrað
atkvæðum í síðustu bæjarstjórnar
kosningum, fyrr en nú, að þeir
gáfu út jólablað. Er það nær ein-
göngu helgað Jesú og Daníei
Ágústínussyni, og fær þó sá síð-
arnefndi mim meira rúm í blað-
inu.
Hefur útgáfa þessi vakið mikið
umtal á Akranesi. Ábyrgðarmað-
ur blaðsins er Jón Árnason, al-
þingisma'ður.
Sievenson ánægður
með gerlir Sovét-
stjórnarínnar
NTB-New York, 21. des.
Stevenson fulltrúi Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði í dag, að
hann væri ánægður með
það, hvernig Sovétríkin
hefðu uppfyllt samning
þann, sem þau hefðu gert
við ÍBandaríkin um Kúbu,
og lýsti hann því um leið
yfir ,að hann byggist við að
málið yrði leyst fyrir jól.
Reiknar ekki meö
að Rússar hætti
NTB-Genf, 21. des.
Aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna á Afvopnunarráðstefn-
unni í Genf, Arthur Dean,
sagði við blaðamenn áður
er hann hélt til New York í
dag, að hann reiknaði með
því, að Sovétríkin myndu
halda áfram að gera tilraun
ir með kjarnorkusprengjur,
en'ekki vissi hann, hvort til-
raunir yrðu gerðar nú um
áramótin.
Stjórnmálamenn frá Vest-
urlöndum álíta, að Sovét-
stjórnin muni gefa út til-
kynningu um að hún láti
hætta tilraunum með kjarn-
orkuvopn, ef Vesturveldin
gefa út_ sams konar yfirlýs-
ingu.
Allsherjarverkfall
sjómanna í Brazilíu
NTB-Rio de Janeiro, 21. des.
Allur brazilíanski verzl-
unarflotinn er nú lamaður
af verkfalli, sem hófst í
morgun. Það er sjómanna-
samband Brazilíu, sem
stendur fyrir verkfallinu, og
skýrði forseti þess frá því
í dag, að verkfallið væri
algerlega ópólitískt, og til-
gangur þess væri það eitt
að síyðja kröfur sjómann-
anna um hærri laun. Stjórn
landsins hefur skipað sjó-
hernum um að gæta þess að
allt fari fram með ró og
spekt í landinu þrát fyrir
verkfallið.
Wicht látinn laus
NTB-Karlsruhe, 21. des.
í dag var látinn laus vest-
ur-þýzki ofurstinn Adolf
Wicht, sem tekinn var
höndum, grunaður um land
ráð í sambandi við Spiegel
málið. Wicht er annar
tveggja ofursta, sem hand-
tekinn var í sambandi við
málið.
Formælandi vestur-þýzka
hæstaréttarins sagði í dag,
að Wicht hefði verið látinn
laus, þar eð engin ástæða
væri til þess að hann væri
lengur í fangelsi, en rann-
•sókn á Spiegelmálinu stend-
ur nú yfir.
Uppskeran betri
en áöur
NTB-Briissel, 21. des.
Uppskeran í EBE-löndun-
um 6 varð mun meiri í
haust, en búizt hafði verið
við. Kornuppskeran, að und
anteknum hrísgrjónum, nam
57,7 milljónum lesta, og er
það 8 milljónum lesta meira
en.á síðasta ári.
Búnaðarbanka-
útibú á
Blönduósi
Hinn 1. janúar næst komandi,
tekur til starfa á Blönduósi nýtt
bankaútlbú frá Búnaðarbanka ís-
lands. Tekur útibúið við öllum
innláns -og útláns viðskiptum
Sparisjóðs Húnavatnssýslu. Úti-
búið verður fyrst um sinn rekið í
húsakynnum Sparisjóðsins, en á
næsta vori er áformað að hefja
húsbyggingu við Blöndubrú fyrir
útibúið og ýmsa starfsemi hrepps
og sýslu. Útibúið annast öll venju
leg innlend bankaviðskipti og fyr-
irgreiðslu við aðalbankann í
Reykjavík.
tibússtjóri hefur verið skipaður
Hermann Þórarinsson, sparisjóðs-
stjóri á Blönduósi.
Þetta er þriðja úlibú Búnaðar-
bankans úti á landi, en hin eru á
Akureyri og í Egilsstaðakaup-
túni.
Fréttatilkynning.
Mótmæla komu
nefndarinnar
NTB—Leopoldville, 21. des.
Stjórnarandstaðan í þinginu
í Kongó krafðist þess i dag,
aS sambandsstjórnin bæri
fram mótmæli við U Thant
framkvæmdastjóra SÞ, vegna
þess, aS Bandaríkjastjórn hef-
ur sent hernaSarlega sendi-
nefnd til Kongó til þess aS
athuga ástandiS þar.
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar
sögðu, að þessar aðgerð'ir væru
ógnun við sjálfstæði Kongó. For-
Tvær árásir
Framhald af-1. sfðu.
og ber lýsingum þeirra á
manninum heim við lýsingar
þeirra, sem áSur liöfðu skýrt
frá bekkingum þessa náunga.
Samtals eru þá spurair um níu
konur, sem hafa orðíð fyrir
barSinu á manninum, eða séð
hann með annarlegt látbragð
í framrni.
BlaSið hefur fregnaS, að
nokbur geigur sé í kvenfólki,
sem þarf snemma í vinnu cða
scint heim á svæðinu þar sem
maSurinn licfur haft sig í
frammi, enda sýnt, að hér er
um geðtruflun að ræSa.
13.1 RQDINNI
JK—Reykjavík, 20. desember
Samkvæmt nýútkominni
fiskiskýrslubók fyrir árið 1961
eru íslendingar 13. mesta fisk
veiðiþjóð í heimi, ef miðað er
við heildarmagn en ekki höfða
tölu. fálendingar veiddu þá 0,7
milljón lestir af fiski. Mesta
fiskveiðiþjóð heims eru Jap-
anir, sem hafa 6,7 mlljójj lesta
afla. Þá kemur Perú með 5,2
milljón iestir. Kína með 5 millj.
lestir (ágizkað), Sovétríkin með
3,2 og Bandaríkin með 2,9.
Noregur hefur 1,5 milljón lest
ir, Kanada, Spánn og Suður-
Afríka með eina milljón hvert,
Sndland með 0,96, Dmnmörk
með 0,76 og Indónesia með
0,73 milljón lestir. Næst fyrir
neðan fsland er Vestur-Þýzka-
land með 0,62 lestir og Frakk
land með 0,57 lestir. — Af
öllum þessum afla er mest af
síld og skyldum fiskum, 12,6
milljón lestir, þorskur og ýsa
5,1 milljón, vatnafiskur 4,4 og
flatfiskar 1,3 milljón lestir.
T í M I N N, laugardagurinn 22. des. 1962. —
3