Tíminn - 03.01.1963, Side 4

Tíminn - 03.01.1963, Side 4
BOKMENNTUNUM HEFUR ÞJÓDARSÁLIN VARDVEITZT Góðir íslendingar, nær og fjær! Við hjónin óskum yður öllum, konum og körlum, ungum og gömlum, gleði- legs nýárs og þökkum innilega gamla árið! Sú mikla hátíð, sem nú stend- ur yfir, frá fyrsta jóladegi til Þrettánda, hefir fylgt þjóð vorri frá upphafi vega og borið sama nafn, jólin, jafnt í heiðni sem kristni. Jól rfmar við sól, og þó vísast sé enginn skyldleiki milli orðanna sjálfra, þá er þó náið samband á milli sólar og jóla, og mun svo hafa verið frá örófi alda. í dimmasta skammdeginu höldum vér Ijóshátíð. Eftir vetrarsólstöð- ur, fer sólin aftur að hækka á lofti, og vér sjáum Ijósið skfna í myrkrunum. Jólin boða oss mik- inn fðgnuð. Bókhlaða á Bessastöðum. Nýársdagurinn hét til skamms tíma Áttadagur jóla. Ég kalla það í þessu sambandi, til skamms tfma þó tvær aldir séu um liðn- ar. En nú er öll áherzla á þvf, að við þennan dag miðum við upp- haf nýs árs, að þessu sinni ársins 1963, eftir Krists burð. Á ára- mótum lftum vér bæði aftur og fram í tfmann, bæði einstakling- ar, fjölskyldur, og þjóðin f heild. Vér stingum hendinni f eigin barm, hugleiðum gleði og sorg — og alla afkomu hins liðna árs. Atburðir og afkoma þjóðarheild- arinnar er rakin af ýmsum öðrum um þessi áramót, og fara dóm- arnir jafnan nokkuð eftir þvf, á hvaða sjónarhól menn standa. Fjarlægðin er enn ekki nóg fyrir fullnaðardóm sögunnar. Ég læt það nægja að þakka forsjóninni fyrir gott ár! Góðærið er ótvf- rætt, og ekki mun ég ræða um neina sérstaka óáran f mann- fólkinu. Héðan frá Bessastöðum tel ég rétt og tilhlýðilegt, að flytja þingi og stjórn þakkir fyrir sér- staka fjárveitingu, þó ekki séu um stórt atriði að ræða fyrir þjóðarbúskapinn, heldur öllu fremur þjóðarmetnað vorn. í fjárlögum þessa nýbyrjaða árs er hálf milljón króna veitt til bygg- ingar bókhlöðu hér á staðnum. Bókhlaðan verður reist í húsa- garði við hlið nýju álmunnar, og veldur engri trufiun á svip stað- arhúsanna. Til innréttingar og bókakaupa þarf síðar viðbótar- fjárveitingar. Hér er séð fyrir þörf, sem ekki verður látin í ask- ana, eins og gamla máltækið seg- ir. Úrval íslenzkra bókmennta á að mæta hér hverjum nýjum for- seta til afnota, og gestum, inn- lendum og erlendum, til augna- gamans. Gestir, einkum þeir út- lendu, óska þess oft að fá að sjá bókasafn staðarins. Þeir hafa stundum rekið upp stór augu við það svar, að bókasafn fyrirfinnst ekkL — Ég hlakka til þeirra sninder, þegar hægt verður að gefa jákvætt svar. Hér eiga bók- niewntíruar sjálfsagðan samastað. Hvemlg væri nú komið um ís- lenzkt þjóðerni og sjálfstjórn, ef ekki væri sagan og bókmennt- irnar? Við eigum fátt fornminja, en í bókmenntunum hefir þjóðar- sSlin varðveizt. ísland og hinar ungu þjóðir. Undirstaða sjálfstjórnar og vel- gengni vor íslendinga er hvorki vopn né mannafli, heldur bók- menntir, saga, Aiþingi og kraftur FORSETA í kögglum. Vor bezti arfur og auð ur er gott ættemi, sjálfur kyn- stofninn. Það er var öðrum en kunnugum ljóst, hve fámennt hið fullvalda íslenzka ríki er. Það var á fundi hinna Sameinuðu þjóða,/ sem indverskur sessunautur spurði mig, hve fjölmennir ís- lendingar væru. I minni barna- skóla landafræði stóð, að vér værum áttatíu þúsund, svo ég þarf stundum að hugsa mig um hina rnýrri tölur. „Eitt hundrað", byrjaði ég, og staldraði við — en Indverjinn kom strax til hjálpar og sagði: „Eitt hundrað milljónir. Það er ekkert að skammast sín fyrir“ Hann fór nær um smæð okkar, útlending- urinn, sem hélt því nýlega fram, að slík dvergþjóð sem íslending- ar ættu ekki að hafa rétt til að fljúga um Norður-Atlantshafið, auk þess sem það væri rán, að halda uppi ódýrum flugsamgöng- um. Sem betur fer er það fáheyrt að oss sé lagt fámennið til ámæl- is, og sfzt af nágrönnum vorum. Það væri og nærri höggvið líf- taug eyjarskeggja £ miðju úthaf- inu, að torvelda þeim samgöngur. Eigin floti í lofti hefir nú álíka gildi fyrir þjóðina og samgöngur á sjó frá upphafi vega. Farsæld íslendinga á hverri öld má að ÍSLANDS miklu leyti mæla við það, hvern- ig gengið hefir að halda uppi eig- in samgönguflota við umheiminn, áður á legi og nú einnig í lofti. Ég nefni þetta einstaka dæmi ekki vegna þess, að mikil hætta sé á ferðum, heldur til að minna á, að vér eigum jafnan mikið undir hugarfari og skilningi ann- ara þjóða, og þá einkum ná- granna vorra í austri og vestri. Nýlendustefnan gamla er úr sög- unni. í því efni höfum vér ís- lendingar notið betri kjara og fyrr en flestar aðrar nýlenduþjóðir og skattlönd. Það tók að vísu lang- an aidur, að verzlun landsmanna yrði algerlega frjáls og innlend, en telja má, að lokamarkinu væri náð þegar sæsímasamband- ið komst á við útlönd, árið 1907. Upp frá því fluttist einnig heild- salan inn í landið. Sjálfstæðisbaráttan tók einnig langan tíma, en altaf miðaði í áttina, og þjóðin æfðist stig af stigi í sjálfstjórn, þar til fullveldi var náð upp úr hinu fyrra stríði, 1918. Um líkt leyti náðu fleiri hinna smærri þjóða sama lang- þráða marki. En ekki skal sú hryggilega saga rakin, að flestir þeir jafnaldrar vorir eru nú úr sögunni. Á síðari árum hafa tugir ný- lenduþjóða í öðrum heimsálfum árlega fengið fullveldis viður- kenningu og heldur sú þróun á- fram hröðum skrefum. Vér ís- lendingar fögnum þeirri þróun heimsmálanna, og er þó ekki fyr- ir að synja, að daglega berast fréttir um óeirðir, mar.ndráp og annan ófögnuð, sem fylgir þess- um fæðingarhríðum. Og ekki er það allt að kenna gömlum hús- bændum, og skiljanlegt þó, að flestir kjósa heidur lélega heima- stjórn en erlenda, þó misjafnlega reyndist. Það er ekki ófróðlegt, að bera oss sjálfa saman við sumar ný- frjálsar þjóðir í nokkrum grein- um. Þetta er að vísu ærið sund- urleitur hópur, en ýmsir drættir þó mörgum sameiginlegir. Víða er fátækt mikil, þéttbýli meir en landið fær fætt og klætt, og auð og völdum stórlega missikpt, þjóðin ósamstæð, trúarbrögð sundurleit. Einnig má nefna ó- glögg og breytileg landamæri, og væringar kynþátta og höfðingja á undan tilkomu hins hvíta manns. Góð þjóðarafkoma. Hjá oss Islendingum verður af- koma alls almennings að teljast góð, og jafnbetri en víðast hvar meðal annarra þjóða. Þjóðin er samstæð, tungan ei nog trúar- brögð valda ekki stjórnmálaátök- um. Landamærin eru skýr, blá- fjötur ægis og yfir haf að sækja til framandi þjóða. Þetta er allt oss í hag, og skýr- ir að nokkru leyti tiiveru vorrar fámennu þjóðar og tilverurétt. En þó kemur annað til, sem mestu varðar, Saga ýmsra ný- frjálsra þjóða er óskýr og ilia varðveitt. Soldánar og aðrir höfðingjar með annarlegum titl- um, hafa áður ráðið ríkjum, en ólæs almenningur hristir klafann og heimtar íhlutun. Þar við bæt- ist frumstæður her, stoltir karlar í nýjum einkennisbúningi, sem er stundum hættulegri í innanlands átökum en fyrir erlenda óvini. Landamæri, stjórnskipun og það, hverjir fari með ríkisvaldið, er viða óútkljáð baráttumál. Hjá oss íslendingum horfir öðru vísi við. Hér var þjóðveldi komið á og Alþingi stofnað fyrir meir en þúsund árum, svo fljótt sem fyrst mátti vænta í ný- byggðu landi. Alþingi er enn við líði. Stjórnskipun er hér líkari því, sem hún var fyrir þúsund árum, en í nokkru öðru lýðræðis- landi. Það er meira virði, að Al- þingi hefir varðveizt en þó önd- vegissúlur Ingólfs og ýmsir aðrir dýrir og heigir dómar úr sögu þjóðarinnar, sem hægt væri að geyma i söfnum, væru enn til sýnis í höfuðstaðnum. Þingræði er rótgróið, og engrar byltingar þörf, nema ef það væri af hálfu harðsnúinn minnihluta, sem vildi hrifsa völdin. En slíkt þarf ekki að óttast. Alþingi er vettvangur þjóðmál- anna, en ekki vígvöllur. Sagan lifir í nútíðinni, og á ríkan þátt í að tryggja og skapa framtfðina. Það er til frásaga af karli, sem misti vinnumann sinn í sjóinn „en bátinn rak óbrotin með öll- um farvið,“ sagði hann, „svo eig- inlega var það bara pilturinn, sem týndi lífinu." Þessu er öfugt farið í vorri sögu. Bátur og farviður hinnar ytri menningar hefir að miklu leyli týnst, en sjálft lífið hefir bjargazt og varðveizt í skráðri sögu, bókmenntum, hér- aðsstjórn og á Alþingi. Þetta er sú staðreynd, sem útlendum mönnum er helzt kunnug um vora þjóð, og mun varðveita orð- stýr hennar, ef vel er á haldið. Á þessu hvílir öryggi íslands, langri og samfeldri sögu, virð- ing annara þjóða, góðu nágrenni, og skilningi vor sjálfra á utanrík- ismálum. Sá skilningur er oss nauðsynlegur og engin ofætlun. Enginn stóð Snorra Sturlusyni framar á hans tfma í stjórnmála- sögu. Um það ber „Heims- kringla" vitni. Heimskringlan er nú að vísu stærri, en fréttir þó allar fljótteknari fyrir þegn og þingmann. Fyrirmyndarþjóð um manndóm og menning. Þinghelgin er mikil og rfk, og þó stendur jafnan nokkur styr um störf Alþingis. Er það að vonum um þá stofnun, sem sker úr um helztu hagsmuna- og hug- sjónamál þjóðarinnar. Nú standa kosningar fyrir dyrum um næstu sólstöður á sumri, og mun sú barátta að sjálfsögðu setja sinn blæ á þjóðlífið á næsta misseri hækkandi sólar. Enginn fárast 1 um það, þó að sjóði á keipum j undir kosningar. Kosningar eru i kappsigling og áróður. Það er ! hinn sífelldi stormbelgingur heil- j langt kjörtímabilið, sem er þreyt- j andi fyrir þjóðina, og mætti vafa- laust spara á þeim lið rfflega, | frá því sem verið hefir um langt skeið. En hvað sem þvl líður þá óskum vér öll, að komandi kosningar verði þjóðinni til heilla, og að sú stjórn, sem þar eftir fer með völd megi sem bezt njóta sín, og þjóðin hennar. Almennar kosningar og stjórn- arskipti samkvæmt úrslitum þeirra, er ein mesta framför síð- ari tíma í þjóðfélagsmálum. Vér lítum með hrylling til þeirra tíma, þegar menn voru líflátnir fyrir hugsun sína og skoðanir, og stjómarskipti fóru fram með af- töku þeirra, sem ósigur höfðu beðið. Vér fögnum breyttum hugsunarhætti og vaxandi mann- úð í skjóli þingræðis og lýðræð- is. Vér gleðjumst af hinum mörgu góðu og hollu minningum, sem saga vor hefir varðveitt, og lítum vonglaðir fram í tímann f þvf trausti, að íslendingum megi auðnast að verða fyrirmyndar- þjóð um manndóm, menning og góða sambúð, inn á við og út á við. Guð gefi oss öllum gott ár. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson. NÝÁRSÁVARP

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.