Tíminn - 20.01.1963, Síða 15
Útsala
Utsala
Útsala
Seljum næstu daga karlmannaföt, staka jakka og sfakar buxur, í Sýningarskálanum, Kirkjustræti 10.
ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ.
v , '■*
GEFJUN — IÐUNN
Sjötugur:
Olafur Björnsson
bóndi, Núpsdalstungu
„Og Kormákur orkti hér ást-
þrungin ljóð,
sem öll voru um Steingerði
í Tungu.“
Svo kvað Jón Bergmann.
Byggð mun hafa haldizt í Núps-
dalstungu um allar aldir, síðan
Kormákur sat þar á tali við Stein-
gerði, en sendi húskarla að leita
sauða á háísum og heiðum. Nú
hefur sama .ættin búið á þeirri
jörð í 144 ár, allt frá 1819 er
Bjarni Rafnsson fluttist þangað
austan úr Vatnsdal.
Ölafur Björnsson, bóndi í Núps
dalstungu, er 70 ára í dag, 20.
janúar. Hann er fæddur á þeim
bæ og hefur ,alið þar allan sinri
aldur. Bjarni Rafnsson, sem nefnd
ur er hér að framan, var lang-
afi hans. Foreldrar Ólafs voru
hjónin Björn Jónsson og Ásgerð-
ur Bjarnadóttir. Þau byrjuðu bú-
skap í Núpsdalstungu 1889 og
bjuggu þar í um það bil hálfa
öld. Björn lézt 1938 en Ásgerður
1942. Þau áttu mörg börn og á
fyrri búskaparárum þeirra var
fjödmennt heimili í Tungu, eins
og víðar í sveitunum á þeim tíma.
Ólafur kvæntist árið 1921, Ragn
hildi Jónsdóttur frá Fosskoti í
Miðfirði. Þau hófu búskap í Núps
dalstungu það sama ár og hafa síð
an rekið þar gagnsamt bú, fyrst
1 sambýli við foreldra Ólafs en
síðustu 20 árin hafa þau haft alla
jörðina til ábúðar. Börn þeirra
Ólafs og Ragnhildar eru þrjú:
Kjartan, Jón og Elísabet. Þau eru
öll gift o.g búsett' í Reykjavík og
Kópavogi.
Ólafur Björnsson hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
sveitunga sína og héraðsbúa. M.a.
var hann lengi oddviti hrepps-
nefndar í sveit sinni ,og hefur átt
sæti I fasteignamatsnefnd Vestur-
Húnavatnssýslu. — Þá hefur hann
komið mjög við sögu samvinnu-
mála í sýslunni, sem deildarstjóri
kaupfélagsins um langt skeið og
fulltrúi á fundum þess.
Öllum þeim störfum, sem Ólaf-
ur tekur að sér, er vel borgið,
því að hann annast þau af alúð
og samvizkusemi. Hann er greið
vikinn maður og góður heim að
sækja. Glaður og reifur.
Eg óska Ólafi sjötugum allra
heilla, og með þessum línpm vil
ég einnig flytja honum beztu þakk
ir fyrir liðnu árin og fyrir ágæta
samvinnu að sameiginlegum áhuga
málum fyrr og síðar.
Skúli Guðmundsson.
Sveinn Hjörieifs
F.amhald at 16 síðu
og hálfa milljón króna, en
kostaði næstum 5,7 milljónir
Ég seldi gömlu Kristbjörgu,
en verðið, sem ég fékk fyrir
hana, var ekki nærri því eins
hátt og verðhækkunin, sem
varð af gengisfellingunni.
Þetta var erfitt, því er ekki að
neita, en bankinn hljóp undir
bagga, og svo hefur gengið
skínandi vel með þetta skip,
við höfum alltgf aflað vel.
— Já, það er fleira en geng-
isfellingin. Ekki hefur vaxta-
hækkunin heldur farið ésrjega
vel með mann. Vextirnir af
lánum úr Fiskveiðasjóði hafa
hækkað úr 4%% í 6Vz%. Svo
er verðið, sem við fáum fyrir
aflann, heldur ekki nærri nógu
hátt miðað við tilkostnaðinn.
ein nót kostar nú um 900 þús
undr og kraftblökk frá 200
—250 þúsundum.
— Já, okkur hefur gengið á-
gætlega á síldveiðunum núna í
vetur, þegar við höfum getað
verið að, en það bilaði hjá mér
11 beztu dagana í haust. Samt
erum við komnir með um 9.300
tunnur síldar. Við fengum
núna um 2000 tunna kast, en
urðum að sleppa miklu magni
aftur. Já, þessi Kristbjörg er
líka að verða of lítil. Það er
hart að þurfa að sleppa svn
miklu verðmæti aftur í sjó-j
inn.
Kína
Framhald af 9 síðu
sjálfsmorðum. Minningin um
þetta veldur nú því, að ýmsir
menntamenn virðast ekki þora
að notfæra sér það takmarkaða
frelsi, sem boðið er, af ótta við
hefnd.
En ásfandið nú er þó ekki hið
sama og 1957. Þá var flokkur-
inn öruggur í sessi og bauð
menntamönnum meira frelsi,
vegna þess að hann taldi sig
færan um að sæta gagnrýni.
Um þessar mundir biður hann
fremur um stuðning í vanda.
í ræðu þeirri, sem vísaði veg-
inn inn á hina nýju braut, hélt
Ohen Yi því frani. að það væri
ástin á flokknum og hin „djúpa
pólitíska kennd“ hjá mennta-
mönnum. sem gerði það fært
að slafca á hinum pólitísku
kröfum. Hann gleymdi að geta
þess, að þessi frjálslyndisstefna
stafar líka af undanhaldi fyrir
andstöðunni og hinnj þögulu
mótspyrnu menntamanna. Báðir
hafa skilið, að þeir þarfnast
stuðnings hins — einna líkast
því eins og þegar verkamenn
og vinnuveitendur ganga til
samkomulags eftir verkföll og
átök og viðurkenna með því
hin nauðsynlegu tengsl sín á
milli.
Atburðir þessa síðasta árs
hafa sýnt, að flokkurinn getur
ekki stjórnað án stuðnings
menntamanna. Með fáum und-
antekningum reyna þeir að
vejra stiórninni trúir — ekki
aðeins vegna öryggis sjálfs
sín, heldur vegna þess að þeir
telja, að slík samstaða sé eina
von landsins. Þeim er ljóst, að
enn heíur ekki tekizt að iðn-
væða neitt land í heiminum, án
þess að mistök og kreppur séu
því samfara. Þeir vita líka, að
margt það, sem áunnizt hefur
á síðustu tólf árum, mundi al-
veg glatast, ef Kína neyddist
til þess að byrja aftur. Hver
getur komið fótum undir not-
hæfa skipan í stað núverandi
stjórnarhátta? Slíkur ástands-
bundinn þegnskapur vex varla (
við nærgöngulli, pólitrskan á-;
róður. En unnt er að stýra fram
hjá ýmsum beinum tilefnum ó-
ánægjunnar með þeirri eftir-
gjöf, sem nú á sér stað.
(Copiright Dagens
Nyheter og Tíminn)
HEILSURÆKT „ATLAS"
13 æfingabréf með 60 skýringar-
myndum — allt í einni bók. Æf-
ingakerfl Atlas er bezta og fljót
virkasta aðferðin til að efla heil-
brigði, hreysti og fegurð. Æfinga
trmi 10—15 minútur á dag. —
Árangurinn mun sýna sig eftir
vikutíma. — Pantið bókina strax
í dag — hún verður send um
hæl. — Bókin kostar kr. 120.00.
Utanáskrift okkar er:
HEILSURÆKT ATLAS, PÓST-
HÓLF 1115, REYKJAVÍK.
Ég undirritaður óska eftir að
mér verði send eitt eintak af
Heilsurækt Atlas og sendi hér
með gjaldið, kr. 120,00 (vinsam-
lega sendið það í ábyrgðarbréfi
eða póstávísun).
Nafn: ............................
Heimili: .........................
Heilbrigði,
hreysti,
fegurö.
um frá 18 löndum verið boð
ið þátttaka, og stunda þeir
allir nám við stóra háskóla
vestanhafs, að undanskild-
um Jóni. en Macalester
Collegc er fremur fámenn-
ur háskóli, sem þó nýtur
mikils álits vestra.
Stúdentarnir munu eiga
óformlegar viðræður við
bandaríska þingmenn, og
dómara hæstaréttar, og einn
ig munu þeir heimsækja
Hvíta húsið.
Jón H. M.
Framhald it >6 síðu
þessi allan kostnað af dvöl
hans í Washington. Forseti
. FSSC er William 0. Douglas,
háyfirdómari i Hæstarétti
Bandaríkjanna.
Aðalumræðuefnið á nám
skeið nu er „Seperation of
Poweis inUS. Government".
Hefur 20 erlendum stúdent-
Binni í Gröf
FramhaJd af ‘6 síðu
— Nú ætla ég ah liatdi- á-
fram á síldinni og ekki fara
neitt á línu. Eg held, að það
megi veiða síld allt árið hér
fyrir sunnan land. Við höfum
haldið okkur þar undanfarin ár
og oft orðið varir við mikla
síld, árið um kring. Við höfum
oft séð hana vaða við Ingólfs-
höfða á sumrin.
— Það er mikil búbót að fá
blessaða síldina hérna. Það er
bara verst, að manni verður
ekkj nándar nærri nóg úr
henni. Aðstaðan í landi er ekki
nógu góð. Það verður að bæta
hana með ein-hverju móti.
þeir, sem framkvæmdu hjarta-
hnoðið voru Páll Gíslason, yfir-
læknir, Bragi Níelsson og Óli
Bjöm Hannesson.
Það er ekki nýtt, að hjartahnoð
sé reynt við sjúklinga hérlendis,
en hitt því miður^mjög sjaldgæft,
að það berj árangur. Ekki töldu
læknar, sem blaðið spurði um
þessa hluti, að hér mynd; um al-
gert einsdæmi að ræða hérlendis,
er. tók fram, að allavega væri
hér um mjög sjaidgæfan atburð að
ræða.
Hiartahnoð
Framhald al I síðu.
með hjartahnoði.
Þegar komið var með Inga á
sjúkrahúsið á Akranesi, var
hjarta hans hætt að slá, hann var
dáinn. Læknar sjúkrahússins hófu
þá tilraunir til þess að vekja hann
til lífsins á ný, með hjartahnoð-
inu Þær tilraunir báru árangur
og Ingi vaknaði aftur til lífsins
Síðan var hann skorinn upp og
líður nú orðið sæmfflega. Læknar
®ularfull jeiki
Framha.d itf hls 1.
var þreyttur, en hann hafði átt
mjög annrikt áður. Linnet
sagði, að brottfaarrtími lóðsbáts-
íns hefði verið ákveðinn með til-
ltti til að mæta togaranum undan
Dyrhólaey. Þá sagði hann, að
næstum öll skipshöfnin hefði ver
ið undirlögð af veikinni, en miklu
meir þeir, sem voru í lúkamum
I ikur benda til einhvers konar
citrunar en ókunnugt af hverju
hún stafar. Læknirinn minntist þó
á. að hásetainir í lúkarnum nota
óþéttan vatnsdunk. Tveir skipverja
liggja nú á sjúkrahúsinu i Vest-
mannaeyjum, annar þungt hald-
inn.
Jens Jónsson, skipstjóri, sagði að
t.ogarinn mundi leggja af stað
frá Vestmannaeyjum í dag og
koma til Reykjavíkur á morgun,
sunnudag. Togarinn fór á veiðar
frá Reykjavík eftir hádegi s.l.
þriðjudag, og'hafði því verið þrjá
daga úti.
Röðull var með vistir héðan og
Irá Þýzkalandi. Borgarlæknir hef-
ir fengið kostlistann til athugun-
->r og munu ransaka skipverja. Þá
sterfHur réttarkrufning á líki Snæ-
bjarnar Aðils fyrir dyrum.
T í M I N N, sunnudagur 20. janúar 1963. —
15
J
I