Tíminn - 11.04.1963, Side 15

Tíminn - 11.04.1963, Side 15
leggja mikið í Dr. Halldór Pálsson, búnað- a-rmálastjóri er nýkominn úr Englands- og írlandsför, og hittum við hann að máli um helgina, spurðum frétta af ferðalaginu. — Ég fór til að flytja erindi á vetrarfundi hrezka búfjárrækt arfélagsins. Það var í haust er leið, að mér barst boð um að koma á þenna fund og flytja þar aðalfyrirlesturinn. í félagi þessu eru allir þeir brezkir vís- indamenn, sem vinna að rann- sóknum og tilraunum til efling- ar búfjárframleiðsiu, og heitir félagið réttu nafni British Socie ty of Animal Production. — Hvar var fundurinn hald- inn, og um hvað fjallaði fyrir- lestur þinn? — Fundurinn var haldinn í London dagana 27. og 28. marz. Að ósk félagsins ræddi ég í er- indi rnínu um nútímaþekkingu á vexti og þroska búfjár til kjöt framleiðslu. Fyrra hluta fundar dags var varið til erindis míns og umræðna um það, og þá fluttu að auki tveir brezkir vís- indamenn stutt erindi u-m skyld efni. Annar ræddi um áhrif hor móna á kjötframleiðslu, hinn um áhrif vaxtar á kjötgæði. — Fleiri vísindamenn sögðu frá niðurstöðum tilrauna sinna, og var einkar fróðlegt að hlýða á frásagnir af ýmiss konar fóðrun artilraunum og því, hvaða áhrif mi'smunandi uppeldi gripa hefði á kjötgæði, erindi og um ræður um efnarannsóknir og ýmsar aðferðir til að mæla kjöt gæði á sem fyrirhafnarminnstan hátt. Og síðast en ekki sízt vakti athygli mína er brezkir vísinda menn á fundi þessum sögðu frá tilraununum sínum og gerðu samanburð á mismunandi hús- vist búfjár og því að láta fénað inn liggja úti. — Tclur þú niðurstöður þessara rannsókna geta haft raunhæft gildi hér á landi? — Já. Til að mynda var þarna sagt frá tilraunum, sem gerðar voru meg lambær, þar sem þeim var vcitt skjól með -görð- um eða þaki og athugað, hvern- ig ærnar og lömbin bæru sig eftir því. Þessar tilraunir leiddu í Ijós, að í þurrakulda hirtu ærnar ekkert um skjólið. Lömb in fyrstu tvær vikurnar eftir burð drógu sig ætíð í skjól, en þriðju og fjórðu vikurnar eftir burð virtust lömbin ekki meta skjólið að neinu. Aftur á móti í miklu úrfelli ^óttu bæði lömb in og ærnar undir þak. Hér á landi orkar ekki tvímælis, að skjólleysi háir unglömbum oft á tíðum í kuldatíð. Einkum er hætt við því á sléttum túnum, að unglömb líði af kulda. Gæti verið lieppilegt að láta ruðn- inga upp úr skurðum mynda skjólgarða fyrir vindátt, þegar tún eru ræktuð og áformað er að nota til beitar fyrir sauðfé á vorin. — Hvað er fleira frétta af fundinum, sem hér mætti draga lærdóma af? — í Bretlandi er kjarnfóður notað mikið handa mjólkurkúm. Telja margir, að það sé notað í óhófi. Þag hefur orðið að á- vana þar í landi síðan á árun- um milli heimsstyrjaldanna, þegar Bretar gátu útvegað svo ódýrt kjarnfóður, að gefa há- mjólka kúahjörðum kjarnfóður á sumrin, þótt kúnum sé beitt á ræktað land. Á þessum vetrar fundi brezka búfjárræktarfé- lagsins var lýst cinni mikilli Rætt viS dr. Halldór Pálsson, eftir Esiglands- og Irlandsför Leikfélag líópavogs: MÁÐUR OG KONA Það er góðra gjalda vert, að Leikfélag Kópavogs hefur ráðizt í að flytja Mann og konu, þennan lífseiga forngrip íslenzkrar skáld sagnagerðar í leikritsformi. Raun- ar er verkið ærið þunglamalegt á okkar mælikvarða, en það er í því viss kjarni, sem fellur ekki úr gildi. Sá kjarni er af allt öðrum toga en hinn rómantíski kjarni Skugga-Sveins, sem virðist ódrep- andi og verður að lí'kindum ekki ráðinn af fyrr en búið er að gera Skugga að óperettu. Kjarninn í Manni og konu eru klækir Sig- valda prests og viðskiptin við hina frómu sveitunga, góður og gildur reyfari með inntak mannlegra sam skipta. En það er misráðið að íþyngja slíkri sýningu með svið- búnaði fram yfir aðstæður hvers ieikhús'S. Klækir Sigvalda prests og frómleiki sveitunganna þarfn- 'ist ekki jafn viðamikilla leiktjalda og Hafsteinn Austmann hefur kom ið upp í félagsheimili Kópavogs. Stjórn leikfélagsins kveðst hafa dregið það við sig að sýna Mann og konu vegna þrengsla á sviði, tn látið verða af því, þegar annar /eggur sviðsins var opnaður. í .eikskrá er tekið fram, að vegna skiptinga á sviði verði ekki hjá því komizt að hafa 5—10 mínútna hlé þrisvar sinnum fyrir utan lengsta hlé. Þetta rýfur sýning- una og dregur hana óhóflega á langinn, en sýningin öll tekur um hálfa fjórðu klukkustund. Ég sagði áður, að verkið væri þung- lamalegt og mátti því sízt við þessu. Leiktjöldin sjálf eru hins vegar mjög sómasamlega gerð, sérstaklega stofan á prestsetrinu, en tilkoma þeirra er á kostnað sýn ingarinnar í heild. íhaldssemi í leiktjaldagerð er nauðsynleg að vissu marki, þegar slík verk eru annars vegar, en verður að miðast við aðstæður á sviði. Mér dettur ekki í hug að Hafsteinn Austmann hafi ráðið þessu einn. Hér hlýtur að vera um sameiginlegan mis- skilning hans og leikstjórans og stjórnar leikfélagsins að ræða. Félagarnir í Kópavogi hafa lagt það á sig að æfa á næturnar, eftir að búið er að nota félagsheimili þeirra sem bíó. Sýningin ber þess líka nokkur merki, að undirbún- ingurinn hefur verið knappur og erfiður. Haraldi Björnssyni leik- stjóra hefur tekizt vel við þetta fólk, hvað snertir undirstöðuatriði •svo sem skýra framsögn, því segja má, að hvert orð nái til áheyrenda. En nokkuð bar á því á frumsýn- ingu, að lei'karar kynnu ekki rullu sina nógu vel. Tilfinnanlegri var þó skortur á viðbrögðum í sam- leik, til dæmis í uppgjörinu við Sigvalda prest. Það er í verka- hring leikstjóra að sjá um, að leik arar standi ekki eins og þvörur, þegar þeir hlýða á tal annarra um brýnustu mál þeirra sjálfra. Frammistaða leikaranna er vita skuld upp og ofan, þar sem margt áhugafólk kemur fram. Gestur Gíslason skarar fram úr í hlut- verki séra Sigvalda, enda góður leikari og fremur á atvinnumæli- kvarða en amatöra. Ásmundur Guðmundsson fer vel með hlut- verk Egils meðhjálpárasonar, sér- staklega eftir að klerkurinn hefur gift þau Staðar-Gunnu, en sam- leikur feðganna er ýktur meir en góðu hóff gegnir, sérstaklega frá hendi Sigurðar Jóhannessonar í hlutverki Gríms. Karl Sæmunds- son fer skemmtilega með hlutverk Hallvarðar Hallssonar og hin skop ræna ýking Staðar-Gunnu er vel við hæfi. Auður^ Jónsdóttir fer með hlutverkið. Árni Kárason er stórskemmtilegur í hlutverki Hjálmars tudda. Guðrún Þór ger- ir hlutverki Þórdísar húsfreyju tilraun, sem gerð var til þess að komast að raun um, hvort hagur væri í því að gefa kúm kjarnfóður frá maímánuði og fram í október. Kom í Ijós, að enda þótt hægt væri að auka meðalnyt á tilraunaskeiði um tæp 300 kg. þá var fjarri lagi, að sú nythæð borgaði kjarnfóð- ursgjöfina. Við höfum hér á landi gert tilraunir um sama efni í Laugardælum. Þær leiddu í ljós, að kjarnfóðurgjöf me ð góðri túnabeit svarar alls ekki kostnaði. — Heimsóttir þú ekki til- raunabú að lokum í London? — Eftir fundinn var mér bog ið til írlands, sem ég þáði og var ég nokkra daga þar í landi til að skoða búfjárframleiðslu- deild Rannsóknastofnunar land búnaðarins í írska lýðveldinu. Það var býsna fróðlegt að kynn ast þessum máum þar. írar eru nú að gera mikið átak í rann- sóknum og tilraunum á ýmsum sviðum landbúnaðarins. Fyrir 3—4 árum endurskipulögðu þeir tilraunamál sín, sem áður höfðu verig lítt skipulögg og í molum. Nú hafa þeir komið á fót einni mjög ’myndarlegri tilraunastofnun og varið til hennar miklu fjármagni. Stofn un sú er nokkuð sjálfstæð, enda þótt hún fái allt fjármagn sitt frá ríkinu. Höfuðstöðvar henn ar eru í Dublin, og hafa þeir 300 hektara tilraunabú 25 km. frá borginni. Auk þess hafa þeir viðunanleg skil. Helgi Guðmunds-1 Aðrir búningar og hárgreiðsla er son fer viðvaningslega með hlut- ^ með miklum ágætum. Förðun er verk Þórarins stúdents og sama | misjöfn. Sem dæmi um góða förð verður að segja um Sigurbjörgu un má nefna Staðar-Gunnu, Hall- Magnúsdóttur í hlutverki Sigrún-^varð I-Iallsson og Hjálmar tudda. ar. Hlutverkin eru að vísu dauf í Förðun meðhjálparafeðganna er gerðinni, en leikstjórinn hefði óhófleg. þurft að fjörga þau Sigurbjörgu Ljósanotkun er einföld. Gunnar töluvert. Loftur Ámundason fer; Harðarson ljósameistari gerði rétt stirðlega með Sigurð bónda, en : á frumsýningu, þegar hann kveikti viðvaningsleg framsögn Sigríðar, í salnum yið skiptinguna eftir Einarsdóttur i hlutverki Þuru | fyrstu sýningu í fjórða þætti og gömlu verður enn bagalegri, þar; eftir þann þátt. Það er nógu dauf- sem hún gegnir þýðingarmiklu legt að sitja og bíða eftir nýjum hlutverki í upphafi leiksins. Lín- tjöldum, þótt ljós brenni í salnum ey Bentsdóttir fer mjög þokkalega á meðan. Þjóðháttalýsingin er þar með hlutverk Staðarhúsfreyju og '■ á kostnað ieiksýningarinnar. Hitt Guðmundur Gíslason er hressileg '■ fer ekki á milli mála, að leikfélag ur Bjarni á Leiti. Einar Torfa- ar í Kópavogi hafa sýnt mikinn son ber sig þolanlega í hlutverki, dugnað og ósérhlífni með því að Finns. Hlutverk vinnuhjúanna í flytja þetta gamla verk. Hlíð eru smá og ekkert út á þau að setja nema búning smalans. Baldur Óskarsson. nokkur útibú stofnunarinnar víðs vegar um landið. Þótt stofnunin sé ung, hefur hún á að skipa mörgum vel mennt- uðum, áhugasömum og stór- huga vísindamönnum. Hef ég óvíða komið í slíka stofnun, þar sem vísindamenn voru jafn samhuga um að vinna stórvirki í þágu andbúnaðarins. Enda er reynt að skapa þeim góð starfs skilyrði. Sérstaklega er lögð á- herzla á að láta vísindamennina fá nægilegt landrými og nógu margar skepnur til umráða, svo að verk þeirra verði ekki ein- ungis stofuvísindi. í búfjár- ræktardeildinni leggja þeir kapp á hvers konar tilraunir til að auka framleiðslu eftir hvern hektara lands og eftir hvern mann, sem að framleiðsl- unni vinnur. Enn fremur er lögð áherzla á ýmiss konar beit ar-, fóðrunar- og ræktunartil- raunir. írar gera sér Ijóst, að árangur slíkrar starfsemi verð ur ekki fullnýttur nema bænd- ur hafi full tök á að beita bú- fcnaði á hagkvæman hátt til að nýta landið sem bczt. Landbún aður íra er enn að ýmsu leyti með fornum hætti, og þurfa vísindamenn að leysa úr fjöl- mörgum viðfangsefnum. Ein deild rannsóknarstofnunarinnar vinnur að tilraunum með land- þurrkun. Á írlandi er mikið af mýrum, og munum við geta ýmislegt lært af reynslu íra á þessu sviði Útbeð Tilboð óskast í að- leggja 120ií m. langan kafla af Hellissandsvegi um Ólafsvíkurenm. Útboðsgögn verða afhent á vegamálaskrifstofunni laugardaginn 13 apríl kl. 10—12 og eftir páska gegn 1000 kr. skilatryggmgu. Vegamálastjóri 15 7 í M I N N, fimmtudagurinn 11. apríl 1963

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.