Tíminn - 18.04.1963, Side 1
Bretarfæra út í 61
AÐILS—KAUPMANNA'HÖFN, 17. apríl, — Frá Dublln berast þær
fréttir, að fiskveiðilandhelgi írlands verSi á næstunni færð út og
gerS sex sjómílur. írska flskimálaráSuneytiS hefur um nokkurt
skeiS haft útfærslu í huga, en hingaS til hefur verlS beSiS eftir
aS Bretar tækju sams konar ákvörðun. í síSasta mánuSi ræddu
brezkir ráSherrar máliS viS Lemass, forsætisráSherra írlands, og
þá tilkynntu írar, aS þeir hefSu ákveSiS aS færa landhelgi sína
út í sex mílur.
VARD UTIA
ARNARHÓL
GB-Reykjavík, 17. apríl
Fyrir hádegi í dag fannst mafíur
iátinn undir beru lofti í porti
iyrir norðan Amarhól, og bendir
allt til þess, ag hann hafi orðið þar
úti. Fannst hann af tilviljun, enda
hafði snjóað yfir hann.
Það var laust eftir klukkan ell-
efu, að maður tilkynnti lögregl-
unni, að hann hefði .átt leið um
portig vestan við Sænska frysti-
húsið og komið auga á mann liggj-
andi þar að nokkru undir fönn. Er
lögreglan kom á vettvang, lá hinn
Tjdn af
völdum
FOSSAR Í VETRARHAM
Það var víða vetrarlegt hérlend-
is um páskana, og vonir manna
um blómlegan vorgróður urðu að
engu. Blaðamaður frá Tímanum
var á ferff um Suðurland um helg
ina og tók þá þessar tvær myndir
af þeim þekktum fossum undir
Eyjafjöllum, Seljalandsfossi og
Skógafossi. Eins og sjá má, voru
báðir í sannkölluðum vetrarham,
enda talsvert frost á og snjókoma
með köflum. Á brúnum fossanna
voru svellbólstrar og grýlukerti,
en íshrannir neðra.
(Ljósm.: Tíminn—MB)
látni maður þannig, að svo virt-
ist, sem hann hafi lagzt þar til
svefns upp við skúr í portinu.
Benda líkur til þess, að hann hafi
legið þar a. m. k. síðan í fyrra-
kvöld, eða áður en fór að snjóa.
Bar lögreglan kennsl á manninn
og hefur haft afskipti af honum
nokkrum sinnum sökum ölvunar.
Hann var síðast tekinn úr umferð
fyrir ölvun þann níunda apríl.
Síðan hefur lögreglan ekki haft
spurnir af honum. Hann var bú-
settur utanbæjar. Á ferðum sin-1
um til Reykjavíkur gerðist hann :
tíðum ölvaður hér í borginni, var j
þó stillingarmaður og vel að sér
um margt, en drakk illa, þótt eng '
um gerði hann þá mein. En er
blaðið síðast frétti, hafði lögregl
an ebki komizt í samband við
neinn, er gefið gæti upplýsingar
um síðustu ferðir hans eða hvern-
ig dauða hans bar að höndum.
EYSTEINN JONSSON UPPLYSTII UTVARPSUMRÆÐUM IGÆRKVOLDI:
óveöurs Erlendar skuldir umfram
innstæður meiri en 1958
ÞG-Olkeldu, 17. apríl
Hér í sveit urðu miklar skemmd-
ir af völdum ofviðris aðfaranótt j
föstudagsins langa. Þök fuku af
husum og útihús fuku burt.
Framhald á 15 síðu
ELDHUSIÐ
i KVOLD
TK-Reykjavík, 17. apríl
í „eldhúsumræðunum" í kvöld
verða ræðumenn af hálfu Fram-
sóknarflokksins þeir, Ólafur Jó-
hannesson, Þórarinn Þórarinsson,
Hermann Jónasson og Gísli Guð-
mundsson.
Röð flokkanna verður þessi: Al-
þýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur,
Alþýðubandalag, Framsóknarflokk
ur.
Hver flokkur fær samtals 50 mín
útur til umráða í þremur umferð-
um.
TK-Reykjavík, 17. apríl
'í útvarpsumræðunum í kvöld
upplýsti Ey:iteinn Jónsson, for-
maður Framsóknarflokksins það,
að afkoma i&ndsins út á við væri
nú verri en hún var 1958. Erlendar
skuldir þjóðarinnar umfram er-
lendar innst. hefðu verið meiri
í árslok 1963 en þær voru í árs-
lok 1958. Nánar er sagt frá út-
varpsumræðunum á þingsíðu blaðs
ins, bls. 6.
Eins og kunnugt er hefur ríkis-
stjórnin, flokkar hennar og mál-
gögn mjög gumað af því og talið
það einn meginárangur „viðreisn
arinnar" og sanna ágæti hennar,
að gjaldeyrisstaðan hafi batnað
stórkostlega og heilmiklum gjald-
eyrisvarasjóðum safnað. Er þá oft-
ast talað um gjaldeyrisstöðu bank-
anna einna jafnframt því, sem
íorðast er að minna á stutt við-
skiptalán einkaaðila erlendis, en
þau nema nú samtals um 413 millj-
ónum króna. Slík viðskiptalán
einkaaðila þekktust ekki fyrir daga
núverandi stjórnarflokka. Þ
Sé afkoman út á við í árslok
1958 umreiknuð yfir á núverandi
gengi og borin saman við afkom-
una út á við í árslok 1963 þ. e.
erlendar skuldir að frádregnum
ínnstæðum bankanna erlendis,
verður niðuistaðan þessi:
1958 námu erlendar skuldir
2.227,6 milljónum króna. Innistæð
ur bankanna erlendis námu þá
228,5 miljónum króna og dragast
frá. Skuldirnar námu því samtals
1999,1 milljón króna í árslok ’58.
í árslok 1962 námu erlendar
skuldir (notað lánsfé) samtals
2.768,0 milljónum króna. Stutt er-
lend viðskiptalán vegna vörukaupa
einkaaðila rlendis námu samtals
413 milljónum. Samtals nema
skuldirnar því 3.181,0 milljónum
króna. Frá dragast svo innistæður
bankanna erlendis — eða hinn
margrómaði gjaldeyrisvarasjóður.
Innistæðurnar eru samtals 1.150
milljónir króna. Erlendar skuldir
námu því 2.031 milljón króna í
árslok 1962 — eða afkoman út á
við reyndist 32 milljónur króna
verri í árslok 1962 en hún var
í árslok 1958.
Þetta er nú sannleikurinn um
hina stórbættu stöðu landsins út
á við. — Ríkisstjórnin hefur aukið
skuldir erlendis um meira en sem
nemur aukningu innstæðna!
Þessu má líkja vig það, að mað
ur fari i banka og fái 40 þús. kr.
víxillán. Hann skuldar 30 þús. í
öðrum banka. Hann greiðir nú 30
þús. krónurnar, en afganginn af
40 þús. krónunum leggur hann inn
á þriðja bankann og kallar vara-
sjóð. Maðurinn er ákaflega ánægð
ur með þennan „varasjóð", sem
hann á og telur afkomu sína aldrei
hafa veriff betri, miklu betri en
hún var þegar hann skuldaði 30
þús. krónur, þótt hann skuldi nú
40 þús. krónur. Tæplega 10 þús.
króna varasjóður sér fyrir því. —
Slíkur maður yrði talinn mjög
grannvitur eða vart meg öllum
mjalla. — Þannað fer ríkisstjórn
in að í blekkingaskyni og segist
standa mjög vel.
Það er að vísu gott að eiga
krónur í kassanum, en þegar skuld
irnar vaxa hraðar en innstæðan
í kassanum hljóta allir að sjá, að
hinn raunverulegi fjárhagur hef
ur versnað.
Forsætisráðherra kórónaði svo
þennan hráskinnsleik varðandi af
Framhald á 15. síðu.