Tíminn - 18.04.1963, Síða 7
ttttt
Utgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN
Fraraikvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Hetgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs-
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur i Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur Bankastræti 7: Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingar, sími 19523. — Aðrar skrif-
stofur, sími 18300. — Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innan
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Gott mál misnotað
Það hefur lengi verið áhugamál margra manna á landi
hér, að gerð yrði áætlun um framkvæmdir, sem ættu að
ganga fyrir öðrum til þess að tryggja sem bezta notkun
þess fjármagns sem þjóðin getur varið til fjárfestingar.
Framsóknarmenn hafa oft flutt um þetta tillögur á Al-
þingi.
Af þessum ástæðum, var því yfirleitt vel tekið, þegar
núv. rikisstjórn tilkynnti fyrir meira en þremur árum að
hún yrði að láta semja slíka áætlun. Jafnframt var gefið
til kynna, að síðari ár yfirstandandi kjörtímabils yrði unn-
ið eftir þessari áætlun.
Svo hefur þó farið, að hvert árið hefur liðið eftir annað
án þess að umrædd áætlun hafi birzt. Fyrst nú í þinglok-
in, þegar tæpir tveir mánuðir eru eftir til kosninga, er
hún látin sjá dagsljósið.
Þá kemur jafnframt í ljós, að hér er um allt aðra áætl-
un að ræða en menn höfðu átt von á.
Þegar undan eru skildir þeir níu mánuðir, sem eru
eftir af þessu ári, er ekki að finna í áætluninni neina
sundurliðun á framkvæmdunum, svo að menn eru jafn
ófróðir um það eftir sem áður, hvaða verkefni skuli
sitja í fyrirrúmi á komandi árum. Þá er ekki heldur að
finna neinar tillögur um það, hvernig framkvæmdir skulu
tryggðar. M. ö. o.: Menn eru einskis vísir um framtíðina
eftir sem áður.
Hvað snertir áætlunargerðina fyrir níu mánuði þessa
árs, er það að segja, að þar er ekki heldur um neina
nýjung að ræða. Svipað yfirlit hefur verið gert árlega
um langt skeið. Eini munurinn er sá, að nú er þetta
yfirlit birt opinberlega með skrumi og hvalablæstri og
reynt að láta líta svo út, eins og hér sé eitthvað nýtt og
stórmerkilegt á ferðinni!
Sannleikurinn er sá, að ríkisstjórnin hefur gefizt upp
við að láta gera hina raunverulegu framkvæmdaáætlun.
en reynir í staðinn að blása út hið árlega framkvæmda-
yfirlit, sem lengi hefur verið gert, tii þess að blekkja
menn fyrir kosningar.
Hér er illa haldið á gagnlegu máii. Raunhæf og vei
unnin framkvæmdaáætlun gæti verið mjög gagnleg. En
núv. ríkisstjórn, hefur bersýnilega ekki áhuga fyrir slíkri
áæílun. Hún hefur bersýnilega aldrei ætlað sér annað en
að nota þetta mál til kosningaáróöurs.
Undanþágurnar
Morgunblaðið iátar i forustugrein 11. þ.m., að í Bret-
■andi séu ,,ákyeðnir hagsmunahópai- sem vafalaust myndu
vilja gera slíka kröfu“ þ. e að fá rramlengdar undan-
bágurnar tii veiða fyrir brezka togara innan fiskveiði-
landhelgi íslands
Hingað til hefur Mbl. neitað því. að slíkar kröfur yrðu
gerðar
Það er ekki aðeins, aNð framangreindir hagsmunahópar
séu til í Brgtlandi. heldur jiefur það hvað eftir annað
«ýnt sig, að þeir eru svo ráðamiklir að brezka stjórnin
hefur gengið ennda þeirra, nú semast í deiiunni við
kæreyinga.
Það er því enein fjarstæða að gev'a ráð fvrir bví, að
^öfur um framlenginÞU undanþáganna verði bornar
^m: begar bær eiga að falla úr gild' á næsta ári.
Orf hver ?etur bá trevst ríkisstmrn. sem einu sinn’
hefur veitt þessar undanþágur0 Eina iirugga ráðið til að
afstýra framlengingu, er að steypa snorninni úr stóli.
THE9 FíNDAHL: i" " ■■■ ■■■ ■ ” ■■
Ný Hollywood í Rdmaborg
Ævintyralegur vöxtur ítölsku kvikmyndageröarinnar,
Á ÍTALÍU er 'hinn mikli upp-
gangur ítalskrar kvikmyndagerð
ar settur í beint samtoand yið
ævintýralega þróun iðnaðarins
almennt í landinu eftir stríðið.
Ef til vill kynni einhver að segja,
að þetta væri sönnun þess, að
kvikmyndagerðin sé hreinn iðn-
aður og ekkert annað. ftalir vilja
þó ógjarnan sjálfir flokka kvik-
myndagerðina undir skemmtiiðn
að. Þeir vilja flokka hana undir
hinar fögru listir, en þó er þeim
ljóst, að í engri listgrein gegn-
ir iðnaðurinn, vélarnar og tækn-
in, jafn mikilvægu hlutverki og
í kvikmyndagerðinni.
Óhjákvæmilegt er að hafa
fyrsta flokks vélar til að gera
fyrsta flokks kvikmynd. Hi-n
sterka aðstaða ítala stafar ekk‘
sízt af því, að þeir geta boðið
kvikmyndafélögunum, bæði
ítölskum og erlendum, allan
tæknibúnað, sem til kvikmynda-
gerðarinnar þarf.
En maður má ekki gleyma,
segja ítalir, að mikilvægustu
„hráefni" til kvikmyndagerðar-
innar eru listrænir hæfileikar,
smekkur og hugmyndaflug. Skýr
ínguna á því „kraftaverki", að
ítalskar kvikmyndir eru heims-
frægar í dag, er að finna í góð-
um útbúnaði, frábærum lista-
smekk, ágætu skipuiagi á sölu
og auglýsingastarfsemi og vin-
samlegri stefnu af hálfu ríkis-
ins í garð kvikmyndaiðnaðarins.
Kvikmyndir eru mikilvægur út-
flutningui- á Ítalíu o-g gefa mik-
inn erlendan gjaldeyri í aðra
hönd.
KVIKMYNDAGERÐARBÆR-
inn Cinecittá er miðstöð kvik-
myndagerðarinnar á Ítalíu. Þar
eru 18 kvikmyndaver. Tvö þeirra
reisti Mussolini árið 1937. Þau
eyðdögðust í -síðari heimsstyrj-
öldinni, en voru endurbyggð á
árunum 1950—1960.
Tvö kvikmyndaveranna eru
geysistór. 12 miðlungsstór og 4
lítil. Auk þessa er opið svæði.
300 þús. fermetrar að stærð.
Þar eru þrjú gríðarstór tjarn-
stæði, þar sem teknar eru orr-
ustumyndir í stórum kvikmynd-
um, bæði af orrustum landhers og
sjóhers. Alexandría Faróonna,
Rómaborg keisaranna, borgir frá
miðöldum og endurreisnartíman
um hafa verið byggðar og rifnar
aftur hvað eftir annað i Cine-
cittá. Þessi mikla miðstöð, sem
hvergi á sinn líka í Evrópu, er
í eigu ítalska ríkisins. í Róm
eru margar minni stöðvar í
einkaeign og alls eru 48 kvik-
myndaver í landinu.
í CINECITTÁ er allt á ferð
og flugi vor, sumar og haust.
Komið hefur fyrir, að þar hafi
verið starfað að töku þrettán
kvikmynda samtíipis. Leikararn-
ir geta dvalið í bænum dag eftir
dag, ef þörf krefur. Beztu stjörn
urnar hafa fallegar þriggja her-
bergja íbúðir til umráða, en þeir
leikarar, sem minna eru frægir.
verða að láta sér nægja þrengra
húsrými. En allir njóla nútím3
þæginda.
Að vetrinum er hljótt og
kyrrt í Cinecittá, en segja má.
að enn kenni enduróms gaura-
gangsins frá því að verið var að
taka stórmyndina Kleópötru ár-
>n 1961 og 1962. Enn er talað um
Elizabetu Taylor. sem kom fram
ítalska kvikmyndaleikkonan
Sophia Loren
sem hin sanna drottning Egypta-
lands, — hvað sem Nasser nú-
tímans leið, — og bandarísku
kvikmyndaframleiðendurna, sem
rifu hár sitt af skelfingu, þegar
þeim bárust reikningarnir frá
hirð drottningarinnar.
Ungfrú Taylor dvelur nú langt
frá Ítalíu, en myndin um Kleó-
pötru er enn ekki fullgerð. Marg
ar orrustumyndanna verður að
en-durtaka og það verður gert á
Spáni, þar sem Franco einræðis-
herra leggur fram hermenn og
hesta án endurgjalds, að þvi að
mér er sagt, og það er meira en
bandarísku , kvikmyndafélögun-
um hefur tekizt að fá ítölsku rík
isstjórnina td að gera
ÍTALSKA ríkisstjórnin hefur
verið mjög hjálpsöm við kvik-
myndaiðnaðinn og lagt sig fram
um að örva hann. Banca Nation-
ale del Lavoro, stærsti banki á
Ítalíu og meðal hinna stærri í
heimi, hefur á sínum vegum sér-
stakan sjóð, seiii lánar til kvik-
myndagerðar. Framleiðendurnir
njóta stuðnings ríkisins í hlut-
falli víð tekjurnar af aðgöngu
miðasölu í kvikmyndahúsum
landsins, og þetta kerfi hefur
verið við líði allt frá dögum
Mussolinis, eða frá árinu 1938
Framlag ríkisins til kvikmynda
framleiðendanna er nú 16%, og
er það tekið af 30% skattinum
af sölu aðgöngumiða að kvik-
myndahúsum.
Á þennan hátt afsalar ríkið
sér skatti til kvikmyndaframleið
endanna svo að nemur milli 6
og 7 milljörðum líra á ári. Þetta
kann að virðast ofboðsleg fjár-
hæð, en þegar þess er gætt, að
líran eru knappir sjö aurar ís-
lenzkir, dettur dálítið af núll-
um aftan af upphæðinni. Engan
mun því undra, þó að töluvert
sé til af milljónamæringum á
ftalíu.
UNITALIA nefnist sú stofnun
sem hefur það hlutverk með
höndum að dreifa fræðslu um
ítalskar kvikmyndir um heiminn
og veitir kvikmyndagerðinni i
landnu ómetanlegan stuðning
með því móti. Unitalia hefur
starfað allt frá árinu 1950 og
annast allt, sem getur orðið til
þess að auka hróður ítalskra
kvikmynda í útlöndum, svo sem
þátttöku í alþjóðlegum kvik-
myndahátíðum og „ítalskar kvik
myndavikur" víðs vegar um
lönd.
Samkvæmt upplýsi-ngum frá
Unitalia er meðalkostnaðurinn
við töku kvikmyndar á ítalíu um
9 milljónir ísl. króna. Framleidd
ar eru um 200 myndir á ári, svo
að allur kostnaður kvikmynda-
framleiðendanna er þá um 1800
milljónir ísl. króna á ári. Um
helmingur teknanna af þessari
fjárfestingu kemur frá útlönd-
um — 35 milljónir dollara árið
sem leið — og er mjög mismun-
andi fyrir hinar einstöku mynd-
ir. Sagt er, að „La dolce vita“
sé arðsamasta fyrirtæki, sem ráð
izt hefur verið í í kvikmynda
heiminum.
ÁGÓÐINN, sem sigursæld
ítalskra kvikmynda hefur gefið
í aðra hönd, hefur freistað
margra ítala til þess að taka þátt
í kapphlaupinu og gera-st kvik-
myndaframleiðendur. Mörg „loft
kennd“ fyrirtæki hafa sprottið
upp í skugga hinna grónu,
traustu kvikmyndafélaga, og
ítölsku blöðin ræða þetta mál
af kappi.
Það er ekki svo að skilja, að
nauðsynlegt sé að hafa ráð á
9 milljónum ísl. króna til þess
að gerast kvikmyndaframleið-
andi á Ítalíu. Það þarf aðeins
að leggja fram fimmtunginn af
þeirri upphæð, eða 1,8 milljónir
Hitt er hægt að fá að láni. í
blaðinu L’Espresso stendur, að i
kvikmyndaheiminum sé nálega
eingöngu lifað á lánum Höfund
ar kvikmyndahandrita, tækni
mennlaðir menn, leikarar og
sumir leikstjórar verða að fá
laun sín greidd í reiðufé. Þar
gildir regian „engín vinna án
launa" En allt annað, filmur.
framköllun, vélar, sviðbúnaður
er greitt: með víxlum’ sem tryggð
ir eru með ímynduninni einni
að heita má.
Þó hafa ekki orðið eftirtektar
verð hrun síðan í kreppunni
1955. Óheppinn framleiðandi lýs
ir ekki yfir gjaldþroti að jafnaði
en leysir félag sitt aðeins upp
Kröfuhafar eru oftast mjög
nægjusamir og gera sér stundum
að góðu lítinn hluta af kröfun
uni.
ÞAÐ ER heppm fyrir ítalska
svikmyndagerð, að ílalir taka inn
(endar myndir fram yfir að'rar og
þeir eru auk þess tíðir gestir !
kvikmyndahúsum. Árið 1962 voru
750 milljónr aðgöngumiða seld
ar í landmu f borginni eilífu er
ekki mikið um leikhús. en þar
er urmull kvikmyndahúsa. ítalsk
ar fjölskyldur fara að jafnaði
kvikmyndahús tvisvar í viku
Sjónvarpið hefir ekki einu sinni
dregið tii muna úr aðsókninni
að kvikmyndahúsunum.
í blöðunum er mjög mikið um
kvikmyndafréttir og ef marka
mætti þá heimsmynd. sem mynr.
skreyJtu vtkublöðin bregða upp
þá gæti maður ætlað að Sophia
Loren, Gina Lollobrigida Claud
Framhald á 15. sfðu
V í M I N N , fimmtudaginn 18. apríl 1963 —
/