Tíminn - 06.07.1963, Blaðsíða 16
Laugardagur 6. júlí 1963
148. tbl.
47. árg.
íslenzk-þýzk orða-
bók í undirbúningi
FB-Reykjavík, 5. júlí
f vor var hafizt handa um söfn-
un orða í nýja íslenzk—þýzka orða
bók, sem gefin verður út af VEB
Verlag Enzyklopadie í Leúpzlg.
Sveinn Bergsveinsson prófessor
við Humboldt-háskólann í Austur-
Berlín ritstýrir bókinni, en í henni
NORSKIR LANDBÚNAÐARVÍSINDAM ENN SKOÐA SIG IM HÉR
VILJA LÆRA AÐ FRAMLEIÐA JAFN-
GOTTKINDAKJÖT OG ÞAÐ ÍSLENZKA
GB-Reykjavík, 5. júlí.
TVEIR norsklr landbúuaðar
sérfræWngar, Paul Moberg
sauðfjárræktiarráðunautur oig
Gustav Norland dýralæknir,
hafa verið hér í heimsókn og
ferðast um landið í hálfan
mánuð, og hittí ég þá að máli
í dag á skrifstofu dr. Halldórs
Pálssanar búnaðarmálastjóna.
Ég sipurði þá um erindi þeirra
iiingað, og varð Paul Moberg
fýrst fyrir svörum:
— Við 'komum hingað á eig-
in eyk, en Halldór búnaðar-
málastjóri, Páll Pálsson yfir-
dýralæknir og Pétur Gunnars-
son tilraunastjóri undirbjuggu
ferð okkar um landið til að
við fengjum sem bezta yfir-
sýn á þessum stutta tíma. Við
höfum nokkrar tegundir sauð-
fjár í Noregi, Dala- Gheviot- og
Rygakynin voru kynbætt fyrir
nálega einni öld og árangur
hefur náðst góður með þau,
bæði hvað snertir ullar- og
kjötgæði. En ein er sú tegund,
PAUL MOBERG og GUSTAV NORLAND.
Landkynið, sem mest hefur rækt að kynbæta og við kom-
tíðkazt í afskekktum sveitum izt að ratm um, að það skili
Noregs og skyldast er kyninu miklu betra kjöti hér á
hér, en meira hefur verið van- íslandi, sem við þekkjum af
(Ljósm.: TÍMINN-GE).
íslenzkum kjötinnflutningi til
Noregs. Aðaláherzlan í ræktun
þessa kyns heima hjá okkur
Framhald á 15. síðu.
eiga að vera um 12.000 orð, og
verður hún í vasabókarformi.
Dr. Sveinn Bergsveinsson hefur
undanfarin 10 ár verið „Gastpro-
íessor“ í norrænum fræðum við
Humboldt, en var frá og með 1.
maí s.l. að telja skipaður fastur
prófessor við háskólann. Tólf stú-
dentar stunda nú nám hjá honum,
og eru það fjórir þeirra, einn
Dani og þrír Þjóðverjar, sem um
þessar mundir vinna að orðasöfnun
i bókina, en stúdentar þurfa að
vinna að einhverju raunhæfu verk
efni einhvern tíma á námstíma
sínum, og er það hluti úr náminu
sjálfu.
í orðabókinni eiga að vera um
12 þúsund orð úr nútímaíslenzku
og öll almenn nýyrði. Ýmsar orða-
Framhald á 15.' sfSu.
Enqum vísað f rá I haust
FB-Reykjavík, 5. júií
Ekki verður nauðsynlegt að vísa I
frá neinum af umsækjendum um
skólavist í Menntaskólanum í
lteykjavík á vetri komandi, að |
sögn Kmstins Ármannss. rektors.
Byggingaframkvæmdir við skól-1
an hófust á laugardaginn, og var
þá rutt til á lóðum þeim, sem
skólinn hefur fengið til umráða,
og nú er byrjað að sprengja klöpp- \
ina, sem þarna er, en það mun |
vera nauðsynlegt, til þess að ný-
byggingamar beri ekki gamla skól
ann ofurliði, vegna þess hversu
háar þær verða.
Sökum þess hve byggingarfram-
kvæmdimar hafa tafizt að undan-
TVO JAFNTEFLI FRIÐ-
RIKS f LOS ANGELES
hsím-Reykjavík, 5. júlí.
Stórmeistaramótið í Los Ange-
leis hófst 2. júlí og hafa nú verið
tefldar tvær umferðir og gerði
Friðrik Ólafsson jiafntefli í báð-
um, fyrst við Gligorflc í harðri
skák, þar sem báðir lentu í gífur-
legu tímahraki, en Friðrik bauð
síða,n jafntefli, þótt hann ætti að-
eins betra, en allt gat skeð í skák
iitni. f 2. umferð gerði Friðrik
svo jafntefli við Najidorf í 20. leikj
um. Hann haffii hvítt í báðUim
þessum skákum.
Töfluröðin á mótinu er þannig:
1. Friðrik Ólafsson, 2. Najdorf,
Argentínu, 3. Reshewsky, USA, 4.
Keres, Sovétríkjunum, 5. Petros-
jan, Sovétríkjunum, 6. Benkö,
USA, 7. Panno, Argentínu og 8.
Gligoric, Júgóslavíu. Greinilegt
er, að raðað er niður fyrirfram
til þess að landar tefli saman í
1. umferð.
Úrslit í 1. umferðinni urðu
þessi: Najdorf vann Panno, Res-
hewsky vann Benkö, en Keres og
Petrosjan gerðu jafntefl'i. f 2. um-
V.-ISLENDINGAR HEIM ANNAÐ KVÓLD
FB-Reykjavík, 5. júlí
Vestur-íslendingarnir, sem hing-
að komu í hópferð frá Winnipeg í
lúní fljúga heimleiðis með
flugvél frá Pan American frá
Keflavíkurflugvelli á sunnudags-
kvöld.
Valdimar Líndal dómari kom að
niáli við blaðið og bað okkur að
koma því áleiðis til landa sinna,
að þeir væru beðnir að hittast við
Hótel Borg klukkan 9:15 á sunnu-
•iagskvöldið en þaðan verður ek-
i?j með bíl til Keflavíkur. Þeir sem
ætla sjálfir að sjá sér fyrir ferð
til Keflavíkur eru beðnir að vera
komnir til flugvallarins stundvís-
lega klukkan 10,30 um kvöldið.
frð vann Gligoric heimsmeistar-
ann Petrosjan, Keres vann Benkö,
en biðskák varð hjá Panno og
Reshewsky.
Greinilegt er — vegna hinna
mörgu vinningsskáka — að teflt
er af mikilli hörku, enda háar
peningaupphæðir í boði og nema
verðlaun hálfri milljón íslenzkra
króna.
Svæðismótið.
Fjórar umferðir hafa verið tefld
ar á svæðismótinu í Þýzkalandi
og stendur Ingi R. Jóhannsson sig
með miklum ágætum. Hann þyrj
aði þó ,á því að tapa í 1. umferð
fyrir stórmeistaranum Porticsh,
Ungverjalandi, en vann síðan
Norðmanninn Johannesen í 2. um
ferð. í þriðju umferð gerði Ingi
jafntefli, en vann alþjóðameistar-
ann Minev, Búlgaríu, í 4. umferð.
Hefur Ingi því tvo og hálfan vinn
ing úr þessum fjórum umferðum.
iörnu verður þeim ekki lokið áð-
ur en skólinn tekur til starfa i
haust, en rektor sagði, að öllum
umsækjendum um skólavist yrði
veitt viðtaka, til einhverra ráða
yrði að taka til þess að hýsa þá
alla, en það yrði gert. Umsækjend-
ur í ár eru 285 en síðasta ár sátu
um 300 í þriðja bekk.
ENN TEFST
ASKENAZY
FB-Reykjavík, 5. júlí
Askenazy og Þórunn voru vænt-
anleg til Reykjavíkur með Loft-
leiðavél í kvöld eða nótt, en nú er
útlit fyrir, að komu þeirra seinki
enn, því spáð var þoku í Reykja-
vík eftir miðnætti, og þá myndi
flugvélin ekki geta lent hér, en
ouk þess tjáði starfsmaður Loft-
leiða blaðinu, að vélin myndi á
eftir áætlun.
Drukknun
SK-Vestmannaeyjum, 5. júlí.
Um 9 leytið í gærkvöldi urðu
menn varir við, að lítill drengur
hafðj drukknað í þró, sem mynd-
ast innan við steypta undirstöðu
að nýbyggingu hjá Hraðfrystistöð-
inni.
Verið er að reisa þarna nýtt hús.
og hefur undirstaðan verið steypt
og um flóð myndast þarna lón
sem er nokkuð djúpt. Um kvöld-
matarleytið gerðu menn hlé á
vinnu sinni, en komu síðan til
baka aftur um kl. 8 og um 9 þeg-
: i fjarað'i tóku menn eftir barns-
Pki á þróarbotninum. Baldur litli
var tæpra fimm ára gamall.
fíugu vestur /
skyndiuppskurð
FB-Reykjavík, 5. júli.
Eftir hádegi í dag var kona
skonin upp að Staðiarfelli á
Fellsströnd. Það var Árni
Björnsson skurðlæknir, sem
skar konurna upp, en hún hafði
orðið alvarlega veik í gær, og
vegna þoku komst Björn Páls-
son ekki vestur tí'I þess að
sækja hana og flytja hania á
sjúkrahús.
Þegar konan, sem heitir
Brandís Steingrímsdóttir, veikt
ist í gær var strax reynt að
ná í Björn Pálsson til þess að
fljúga með hana suður, en
vegna þoku komst hann ekki.
Þá var sóttur læknirinn í Búð-
ardal og gat hann hresst kon-
una dál'ítið við, en í morgun
var líðan hennar orðin svo
slæm, að ekki þótti ráðlegt að
flytja hana til Reykjavíkur.
Þá var Björn Pálsson send-
ur með tvo lækna, þá Árna
Björnsson skurðlækni og Valtý
Bjarnason svæfingalækni vest-
ur í Dali, og lentu þeir á Breiða
bólsstað á Fellsströnd klukkan
fimm mínútur yfir eitt. Fóru
þeir strax að Staðarfelli, og
var lokið við að skera konuna
upp klukkan hálf fjögur, og
hún þegar flutt flugleiðis til
Reykjavíkur. Lánaðist aðgerð-
in vel, og líður konunni eftir
vonum.