Tíminn - 22.10.1963, Side 4
RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON
'Karl Benedlktsson skorar fyrir Fram. Þeir reyna árangurslaust a5
stöðva hann, Pétur Bjarnason og Þórarinn Ólafsson.
ÞAÐ VEKUR OFT AT'HYGLI mína í litla salnum að Háloga-
landl, hvað við þurfum mlklð að nota unglinga, sem markadómara
(hornaverðl) í handknattlelk. Við þessu er víst ekkert að segja,
dómaraskortur er í handknattleilc eins og öðrum íþróttagreinum —
og því kannski ekkert verra að get.a .gnlflið til, unnlinga, en .ekkl
neins.
Þetta, að því er virðist litla embætfi, þ. e. markadómari, er þó
þýðingarmeira en margur hyggur og mikil nauðsyn að skipa I það
góða menn hverju sinni, þótt ekki hafi þeir alltaf dómarapróf.
Ég var að furða mlg á því á laugardagskvcldið, að í einum
leiknum stóð ungur piltur í öðru horninu og virtist. óvenju áhuga-
samur, veifar cft á línu o. s. frv. Þegar ég gœtti betur að, stóð
þjálfari annars liðsins við Tiliðina á honum, með skiptimenn, og
gaf liinum unga hornaverði óspart „góð ráð", m. a. óspar á að
benda honum á, þegar andstæðingaliðið gerðist brotlegt, þ. e.
stelg á Ifnu.
Þessi framkoma þjálfarans hafði mikii áhrif á úrslit leiksins
og ég held, að hann hafi hagnazt nokkuð vel á þessu framferði
sínu . . . En vel á minnzt, þetfa er nokkuð, sem stjórn Handknatt,
leiksráðsins og dómarafélagsins, eiga að útiloka. Það á algerlega nð
banna þjáifara að standa með skiptimenn sína við hlið markadóm-
ara. Ég veit að sumir dómarar hafa skipað þjálfurum að halda
sér í horninu fjær markadómaranum. En það er ekki nóg að
sumir dómarar geri þetta — þetta á að vera „prinsip". — alf.
TAKTISKUR LEIKUR FÆRDI
FRAM SIGUR YFIR VlKMG
Alf-REYKJAVÍK, 21. október.
VEL ÚTF/ERÐUR, taktlskur lelkur og hárrétt tempo, færðl fslands-
melsturum FRAM fimm marka sigur gegn VÍKING á fyrsta degl Reykja-
vfkurmótshis f handknattlelk á laugardaginn. Lokatölurnar urðu 12:7. í
sjálfu sér var letkurlnn ekkl rlshár og grelnilegt, að enn elga bæði lið-
In nokkuð I land hvað vFðvfkur æfingu. Samt tókst Fram undravel að
útfæra taktlskan lelk, sem Vfklngar kunnu engin ráð vlð. Vörn Fram
truflaði sóknarleik Vfklngs stórkostlega, jafnvel svo, að oft þvældust
Víkingar hver fyrir öðrum f algeru relðuleysl. Það hjálpaðl Fram elnnlg,
að markvörðurlnn, Þorgelr Lúðvfksson, áttl skfnandi dag — og grelp oft
snflldarlega inn f.
Eftir hina slæmu frammistöðu
gegn FH á dögunum, verður ekki
annað sagt en úrslitin séu nokkur
uppreisn fyrir Fram. Fram lék ólíkt
skynsamlegar gegn Vflcing. Fyrst og
fremst var hraðanum stillt í hóf og
það var ekki fyrr en 2 minútur
voru til leiksloka, að Fram leyfði
sér að setja hjólið fyrir alvöru af
stað, þá voru úrslitin líka örugglega
ráðin.
Taugaspenna sat í öndvegi hjá
báðum liðum fyrstu mínútur og
það var ekki flanað að neinu. Þrjár
mínútur liðu, án þess að nokkuð
skeði, en svo braut Ágúst Þór tauga
spennumúrinn og skoraði 1:0 fyrir
Fram. Áður höfðu línumenn 'Fram
opnað Vikingsvömina með þvi að
þjappa sér út í annað hornið. —
Ágúst bætti öðru marki við fyrir
Fram, en litlu síðar svaraði Pétur
Bjarnason fyrir Viking 2:1. Þetta
var eina mark Víkings í 15 mínútna
’fyrri hálfleiks. Síðan áftti Fram
sviðið. Ingólfur bætti þriðja mark-
inu við — og litlu síðar því fjórða,
úr víti. Rétt fyrir hlé skoraði Jón
Friðsteinsson 5:1, skauzt laglega úr
vörninni og greip inn í sóknarleik
Víkinga, sem áttu sér einskis ills
von.
Fjögurra marka forskot í hálf-
leik hefði undir venjulegum kring-
umstæðum verið næg ástæða fyrir
íslandsmeistarana til að auka hrað-
ann i áíðari hálfieik. En æfingarlitið
lið getur ekki leyft sér slíkt — þótt
við æfingarlítið llð sé að etja. Ung-
ur nýliði Víkings, Gunnar Gunnars-
son, skoraði nær strax mark númer
tvö. Ingólfur bætti sjötta markinu
við fyrir Fram úr víti. Siðan sjöunda
markinu — og því áttunda úr víti.
Átta mínútur voru liðnar af síðari
hálfleiknum og staðan 8:2. Rósmund
ur og Pétur löguðu stöðuna fyrir
Víking með 2 mörkum. Karl Ben.
skoraði laglega níunda mark Fram,
en sfðan bættu þeir Sigurður Hauks
son og Þórarinn Ólafsson fimmta
og sjötta markinu við fyrir Víking.
Forskot Fram var komið niður í
þrjú mörk, En endasprettur Fram
var góður, Hinn snjalli linumaður
Fram, Sigurður Einarsson, skoraðl
tvö mörk í röð og Ingólfur bætti
því tólfta og síðasta við úr vitl. Á
milli hafði Rósmundur skorað sjö-
unda mark Vfldngs.
FRAM verðskuldaðl fyllilega slgur
F þessurp lelk. Liðlð er enrr æflngar-
lítið, en með slnum taktlsku hliðum
er það sífelldur ógnvaldur. Mér
fannst engtnn bera af I liðinu, þó
átti Þorgelr I markinu góðan dag
og hann er vaxandi leikmaður. —
London, 20. okt. (NTB).
TOTTENHAM mlsstl enn forust.
una í ensku knattspyrnunnl á laug-
ardaglnn fyrir Manch. Utd., sem
sigraði Notthingham Forest með 2:1
á útivelli og náðl forustunni á betri
markatölu en Tottenham, sem fékk
Lelcester í heimsókn og náði að-
eins jafntefli 1:1. Er það fyrsta stig-
ið, sem Tottenham tapar á helma-
velli. Bæði liðin hafa 19 stlg. — í
leiknum við Lelcester meiddlst mlð
herji Tottenham og Englands, —
Bobby Smlth, — og eru litlar líkur
að hann geti lefklð gegn „Helms-
liðlnu" á mlðvlkudaglnn.
KR-ingar sigursælir í Þýzkalandi
Alf-Reykjavik, 21. október.
MEISTARAFLOKKUR KR í hand
knattleik sigraði í öðrum leik sfn- !
Austur-Berlín, 19. okt. (NTB).
UNGVERJALAND sigraði á
laugardaginn Austur-Þýzkaland
með 2:1, í fyrri leik landanna í
Evróoukeppninni. — Áhorfend-
ur voru 70 þúsund, og síðari leik-
urínn verður háður í Budapost 3.
nóvember. Þett= er liður í 2. um-
ferð keppninnar.
Prag, 20. okt. (NTB).
FINNSKA liðið Helsinkl Pallo.
seura tapaði á laugardag með
8:0 i Evrópukeppni blkarhafa
gegn Slovana, Bratislava. Slovan
sigraði einnig í fyrri leiknum
með 4:1.
t/tn í V.-Þýzkalandi. KR lék gegn
Blau-Weiss 1894 og vann með 17:15
eftir jafnan leik, þar sem talsverð
harka var á degskrá. (þróttasíðunni
hefur borizt bréf frá Sigurgeir Guð-
mannssyni, fararstjóra KR, um þenn
an leik og för KR-inga. Hann sagði
m. a.:
„Við komum til^Lohne í Olden
burg um sex-leytið á sunnudag, Þar
var tekið á móti hópnum í félags-
heimili Blau-Waiss 1894 og bauð
borgarstjórinn okkur velkomna með
ræðu. Var okkur síðan dreift á
heimili, einn eða tveir á hvern
stað og var það fyrirkomulag í
tvær nætur. Á mánudagsmorgun
var komið saman klukkan 8,30 og far
ið til að skoða svínasláturhús og
fuglasláturhús þar sem m. a. er hægt
■að slátra 2400 kjúklingum á klukku
stund . . .
Eftir hádegi var farið um borgina
sem telur 18 þúsund íbúa, og byggði
afkomu sína á korkiðnaði, sem er
nú kominn yfir í plastiðnað auk
landbúnaðarstarfa . . .
Leikurinn við Blau-Weiss 1894
fór svo fram um kvöldið í stórri
íþróttahöll fyrir troðfullu húsi á-
horfenda. Fyrir leikinn var skipzt
á gjöfum. Svo hófst leikurinn . .
Eftir 15 mínútur var staðan 5:5. —
Fyrsta kastið vörðu markmenn okk
ar illa, voru stifir og þungir og eft-
ir 25 mínútur var Blau-Weiss yfir
10:7. í hléi var 11:9.
f síðari hálfleik tóku KR-ingar
að verða harðari og frekari, eða
eins og dómarinn leyfði. En ótal
markskot brugðust vegna frábærrar
markvörzlu hjá Blau-Weiss. Þó fóru
okkar menn að hitna, Þjóðverjarnir
voru farnir að óttast Karl Jóhanns-
son og héldu miskunnarlaust. Eftir
10 minútur var 13:13, Ólafur Adolfs
son skoraði úr víti, því eina, sem
við fengum i leiknum, en heima
hefðum við a. m. k. fengið fimm.
Þegar 5 mínútur voru eftir, var stað
an jöfn, 15:15. Síðustu minúturnar
átti KR með rólegu spili. Reynir
Ólafsson skoraði 16. markið og
Karl skoraði 17. markið eftir ein-
leik . . .
Lokatölurnar urðu þvi 17:15, KR í
hag. Dómarinn í þessijm leik var
ekki góður, leyfði of mikla hörku.
KR-ingar voru lengi að átta sig á,
hvað langt þeir máttu ganga, en þá
tóku þeir ifka á móti . . .
Eftir leikinn var hóf og dans-
leikur, en síðan haldið til Hennef.
Vegna bilunar á bilnum, sem við
ferðumst með, misstum við af að
skoða Köln og Bonn . .
Ingólfur átti góðarr siðarl hálfleik
og sama er aS segja um Karl Ben.
Víkingum tókst illa upp. Þeir eru
greinilega æfingarlitlir og það var
því illa fundið upp, þegar þeir
reyndu oft í leiknum að skrúfa upp
hraða. Vfldngar hefðu að ósekju
mátt reyna meira línuspil, þegar
Fram otaði sínum mönnum fram í
vörninni, sem orsakaði ringulreið.
Hvað um það, Vfldngar eiga áreið-
anlgea eftir að sækja i sig veðrið i
næstu leikjum.
Dómari i leiknum var Magnús Pét
ursson og tókst að vanda vel upp.
SIGRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR heltlr
hin unga blómarós á myndlnni fyr-
Ir ofan. Hún er I 2. flokkl Fram
og skoraði fyrsta markið, sem sett
var f Reykjavíkurmótlnu f hand-
knattlelk, er hófst á laugardag.
ÚRSLIT
Andreas Bergmann, stjómar-
maður í ÍBR, setti 18. Reykja-
víkurmoiið í handknattleik s.I.
laugardugskvöld. Fyrir utan
þrjá leiki í meistaraflokki karla
sama ftvöld, léku í 2. flokki
kvenna bram og Valur og lauk
með jafntefli 5:5 og í 3. flokki
karla Vfklngur og KR. Víking-
ur vann meíí 6:4.
Á sunnudagskvöld fór fram
nokkrir Ieikir, m. a. tveir í
meistaraflokki kvenna. Viking-
ur vann Fram í nokkuð
skemmtilegum leik með 8:5 og
Ármann bursfcaði Þrótt með
11:1.
í 3. flokki karla sigraði ÍR
Prótt með 11:9 og Fram burst-
aði Vai með 11:1. 1. 2. flokki
sigraði Fram Val með 6:4 og
Víkingur og ÍR gerðu jafntefli
í æsispennandi leik, 9:9.
T í M I N N, þriðjudaginn 22. október 1963. —