Tíminn - 22.10.1963, Blaðsíða 6

Tíminn - 22.10.1963, Blaðsíða 6
TÓMAS KARLSSON RITAR % af tekjum ríkissjéHs renni til byggðaiafnvægis Til fyrstu umræðu var tek- ið í gær frumvarp til laga um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi i byggð landsins, er 6 þingmenn Framsóknar- flokksins í neðri deild flytja, þeir Gisli Guðmundsson, Skúli Guðmundson, Halldór E. Sigurðsson, Halldór Ás- grímsson. Ágúst Þorvaldsson, og Sigurvin Einarsson. Frum- varp þetta var einnig flutt á síðasta þingi, en stjórnarmeiri hlutinn vlsaði þv( frá með „rökstuddir dagskrá" studdri þeiirt rökum, að það væri ó- þarft. Gfsli Guðmundsson flutti ýtarlega og snjalla fram söguræðu fyrlr frumvarpinu og fara hór á eftir stuttir kafl ar og útdráttur úr ræðu hans: í upphafi máls aíns mkti Gísli Guðmundsson stuttl'ega elztu heim ildir um mannfjölda og skiptingu hans milli landshluta og þá þróun, sem orðið hefur á þessari öld. Hann sagði, að þeir, sem að þessu frumvarpi stæðu, héldu því ekki fram, að íslendingar eigi að byggja upp heiðarbýlin, sem voru reist eða endurbyggð í góðserinu um miðbik 19. aldar. Við álítum ekki nauðsynlegt að keppa að þvl nú um sinn að byggja up pall- ar þær jarðir, sem farið hafa í eyði undánfarna ánatugi. Eins og nú hagar til', getur það líka verið heppilegt að breyta nokkuð legu byggðarinnar og miða meir en ver- ið hefur við samgönguleiðir. En þegar svo gengur til ár eftir ár og áratugi, að björguleg bygðar- lög og heilir landshlutar halda ekki sínum hluta, að þar verður ekki eiðileg uppbygging til fram- fara og eðlileg fólksfjölgun miðað við vöxt þjóðarinnar í heild, þá telju.n við hættu á ferðum fyrir framíð þessara byggðarlaga og þessara landshluta. Hér er ekki aöefns um það að ræða, sem lengi hefur verið augljóst, að fólk flyzt úr sveitum heldur eigi það, að bæir og þorp í hlutaðeigandi lands hlutum megna ekki að auka fólks- fjölda sinn að sama skapi, halda jafnvel ekki eðlilegri fólksfjölgun sjálfra sín. Við lítum svo á, að sú hætta, sem hér er á ferðum, snertl ekki aðeins þá landshluta, sem ekki halda í horfi, heldur alla landsmenn og þjóðfélagið í heild. Sú þróun ætti að vera öllum á- hyggjuefni, sem gefa henni gaurn og reyna að gera sér grein fyrir því, hvert stefnir. Otdráttur úr framsöguræSu Gísla Gúðmundssonar fyrir frumvarpi um ráð- stafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Hagur Reykjavíkur Reykjavíkurborg vex ört og þang- að streymir fólk út öðrum lands- hlutum. Það er ekkert keppikefli fyrir þjóðfélagið, að höfuðborgin sé sem fjölmennust, heldur að hún sé fögur borg og vel upp byggð, að fólki líði þar vel, að af henni megi læra, og að hún sé landinu til sóma út á við. Það er heldur ekkert keppikefli fyrir Reykvíkinga, heldur þvert á móti, að vöxtur borgarinnar sé svo hrað- ur, að aldrei sé réðrúm til að ljúka nauðsynlegum verkefnum og þá má ekki gleyma því, að stór borg krefst miklu kostnaðarsamari mannvirkja, t.d. í sambandí við um ferð en bær og þorp. En borg án lands og landbyggðar er illa á vegi stödd. Stórar borgir í stóru, auðu landi mikllla böguleika verð- ur ekki öfundsverð á komandi tímum. Þróun byggðar. Á 22 ára tímabili, 1940 til 1962, hækkaði íbúatala lands.ins um rúmlega 51%, Hún var árið 1940 121.474 en árið 1962 183.478. Ef fólksfjölgun í hverju byggðarlagi sama í öllum byggðarlögum, eða t.d. í öllum sýslum eða kaupstöð- Suðurland austan F|alls Norðurland Austurland Vestfirðlr Kjalarnesþlng, vestana Fjalls Á sama tíma og meðalfjölgunin varð 51%, var fjölgunin í Kjalar- nesþingi 117%. Blint löqmál ráði ekki Ef Stór-Reykjavik vex hlutfalls- lega eins og hún hefur gert undan- farin 22 ár, munu aðrir landshlut- ar á komandi árum verða að sjá á bak hlutfallslega fleira fólki en undanfarið. Það mun því eftirleið- is reyna enn meira á viðnámsþrótt þeirra en gert hefur til þessa. Hér er að verki blint lögmál, sem Reyk víkingar sem slíkir, eiga vitanlega enga sök á og getur orðið viðsjár- vert fyrir þá eins og aðra þótt á annan hátt sé. Þjóðfélaginu ber sklda til að láta þessa þróun til sín taka, en láti ekki blint lögmál ráða öllu. Hika ég ekki við að segja það sem mína skoðun, að hér er um að ræða stærsta innanlandsvandamál þjóðarinnar um þessar mundir, og um átti hún alls staðar að vera jöfn heildarfjölguninni i landinu, þ.e. 51%. 51% var hin eðlilega fólksfjl'gun í hverju byggðarlagi á þessu 22 ána tímabili. Nú er þess auðvitað ekki að vænta að svo sé Spurningin er þá sú, hvort víða vanti svo mikið á þessa fólksfjölg- un, að umtalsvert sé og réttlætan- legt að tala þar um hættu á ferð- um. Séu athuguð nokkur dæmi, lítur þetta svona út: Með 50% Samkv. fjölgun: mannt. 1962: Dalasýsla 2128 1164 BarSastrandasýsla 4525 2528 (safjarSarsýslur 7612 3778 Strandasýsla 3150 1539 Húnavatnssýslur 5543 3813 Skagafj.s. og S.kr. 5951 3920 Sigluf jörSur 4355 2625 Þlngeyjarsýslur 7518 00 £ (Húsavfk ekki meðt.). N.-Múlasýsla 4032 2457 S.-Múlasýsla 6488 4567 V.-Skapt.s. ■ 2'fjl 2384 13* RangárYa!lasýsla..£>v49^[w:íni-(129| Varðandi landshluta í heúd, lít- ur þetta þannig út: Með 51% Samkv. fjölgun: mannt. ’62: Vantar: r 15.003 12.340 27% 20.530 16.300 31% 41.383 30.834 38% 15.286 10.664 46% 19.559 10530 70% 71.665 102.810 sennilega fyrst um sfnn. Vanda- A ÞINGPALLI KARL KRISTJÁNSSON hafðl í gær framsögu fyrir frumvarpi þvl, er hann fluttl á sfðasta þingl og endurflytur nú ásamt Bjartmari Guð- mundssyni um helmlld til handa rfklsstjórnlnnl að selja Jóhanni Skaftasyni, bæjarfógeta á Húsavfk jörðlna Litlagerði f Grýtubakka- hreppl f Suður-Þing. Frumvarp þetta var flutt á sfðasta þingi. Var samþykkt f efrl deild en dagaði uppi f neðri deild, 6 málið er, að koma 1 veg fyrir stöðn un, hnignun eða eyðingu lands- byggðar, ekki aðeins á tiltölulega afskekktum svæðum, heldur í stór- um landshlutum. Sjálfur höfuðstað ur Norðurlands, næststærsti bær landsins, hélt ekki einu sinni hlut fallslegri fólksfjölgun sinni á síð- asta áratug, þrátt fyrir innflutn- ing þangað. Það er kjarni þessa frumvarps, að Alþingi komi upp sérstakri landsbyggðarstofnun, sem í frum- varpinu er nefnd jafnvægisnefnd, eins konar sjálfstæðu ráðuneyti, sem sinni því viðfangsefni einu, að stuðla að eflingu landsbyggðar, jafnvægi í byggð landsins, og að þeirri stofnun sé tryggt fjármagn, — ekki mjög mikið að okkar dómi, að svo stöddu, en þannig frá gengið, að eldar dýrtíðar og verð- bólgu grandi því ekki. Þess vegna er það ekki miðað við tiltekna upp- hæð í hverfulum krónum.heldur ákveðinni hundraðstölu af ríkis- tekjum á hverjum tíma, \Vz%. Þetta reyndust verða 33 milljónir kr. á fyrsta ári, miðað við fjárlög þessa árs, en trúlega heldur hærra þar sem ríkistekjur fara fram úr áætlun. í 1. gr. frumv er tilgangur lag- anna skilgreindur: „að stuðla að jafnvægi í byggð landsins með rannsóknarstörfum, áætlunargerð og fjárhagslegum stuðningi til framkvæmda og eflingar atvinnu- lífi í þeim landshlutum, þar sem bein eða hlutfallsleg fólksfækkun hefur átt sér stað undanfarið eða er talin yfirvofandi.“ í 10. gr. segir; „Úr jafnvægis- sjóði má veita lán til hvers konar framkvæmda, sem að dómi sjóðs- stjórnar eru til þess fallnar að stuðla að jafnvægi í byggð lands ins þ.á.m. til kaupa á atvinnufyr- irtækjum, enda séu aðrir láns- möguleikar áður fullnýttir. Skal áður leitað álits sveitarstjórnar, sé hún ekki sjálf lántakandi. Veita má sveitarfélögum lán til að koma upp íbúðum.“ Sjóðnum er heimilit að afla sér lánsfjár vegna íbúða. Því fer þó fjarri, að hér sé ætlunin að setja á stofn nýjan banka, enda allvel fyrir þeirri hlið séð nú þegar, a.m.k. hér i höfuð- staðnum, og er gert ráð fyrir, að Framkvæmdabankinn annist dag- lega afgreiðslu og reikningshald. — Það hafa flutningsmenn þó í huga, að stundum þykir langt að sækja um langan veg hingað utan af landsbyggðinni, og að hver er sfnúrii hiiútum kunnugastur. Við teljum ekki ólíklegt, að svo kunni að reynast, að jafnvægisfjármagn reynist bezt komið í vörzlu bæjar- og sýslufélaga eða landshluta, sem þá jafnframt ykju það eftir föng- um samhliða, og ráðstöfuðu þvi í samráði við jafnvægisstofnun rík- isins og með hliðsjón af áætlun- um hennar. Að þessu lúta ákvæði 13. greinar um að leggja fram fé til sérstakra jafnvægissjóða með afmörkuðu starfssvæði. Þá eru akvæði til bráðabirgða um að strax eftir gildistöku þess- ara ,aga skuli í samráði við Land- nám ríkisins gera bráðabirgðaáætl on um sérstaka aðstoð við þau byggðarlög, sem dregizt hafa aft- ur úr eða vfirvofandi hætta er á, að dragist aftur úr því, sem al- mennt er, að því er varðar aðkall- andi framkvæmdir og uppbygg- ingu atvinnuvega eða fari í eyð'i að verulegu eða öllu leyti, enda séu þar að dómi landnámsins vel viðunandi atvinnurekstrarskilyrði frá náttúrunnar hendi á landi eða sjó. Til framkvæmdar bráðabirgða áa>tluninni er nefndinni heimilt að veita óafturkræf framlög úr sjóðnum, aiit að þriðjungi tekna lians til ársloka 1966. Framlögin skuiu veitt sveitar- eða sýslufé- lögum með fyrirmælum, sem nefnd in setur um notkun þeirra. Þetta frumvarp er að miklu ieyti samhlióða því frumvarpi, sem flutt var í fyrra. Það frum- va’p hlaut þá afgreiðslu, sem var á misskilnmgj byggð — svo ekki sé metra sagt Meirihlutinn sam- þykkti ’-ókstudda dagskrá sem fól í sér trávísun málsins. Rök meii-ihluta’is veru þau. að í frum varpinu fælusf engin nýmæli um fra>n það, sem þegar fælist í lögum um atvinnubótasióð og „með öllu óþarft“ Rátt .rm það leyti. sem uri’ræða stóð yfir um þetta mái á srðasta þingi fór fram úthlutun GÍSLI GUÐMUNDSSON árstns 1963 úr atvinnubótasjóðL Sjóðstjórnin, sem er skipuð mæt- um mönnum, gafst upp við að út- hluta því fé. sem hún hafði handa á milli,' sem von var og fékk ein- hvers konar stjórnarleyfi til að nota fyrirfram helminginn af tekj um sjóðsins 1964. Það er þá víst ekK, lengur „óþarft" að breyta þeim lögum, ef einar 5 milljónir eru til úthlutunar á næsta ári. Eg hef’ haft með höndum úthlutúnar- lisfa atvinnubótasjóðs s.l. vor enda er nann ekki neitt leyndarmál. f’jórum milljónum var úthlutað í Kjatarnesþing, einnig í Reykja- vík. Hverjum dettur í hug, að það sé gert til að stuðla að jafn- vægi í byggð landsins. Eg er ekki að finna ?ð þessum lánum, þau hafa sjálfsagt átt rétt á sér og kom ið að ágætu gagni, en þau eru annars eðlis en það, 9em í þessu frumvarpi felst. Við íslendingar, sem erum ekki nema 180 þús. talsins, eigum þetta fagra og ágæta land, fsland, sjóinn við strendur þess og him- inn yfir því, ef svo mætti að orði korr.ast, eigum það allt og ráð- um yfir því og sá eignarréttur er viðurkenndur af öðrum þjóðum. Við megum ekki gleyma þessu, og við verðum að gera okkur grein fyrir, hve öendanlega mikils virð'i þetta er fyrir okkur, sem nú lif- um. og afkomendur okkar í aldir fram. Hér ei gnótt lands til notk unar auk sjávar og vatns. Hér er afl f fallvútnum og' heitu vatni og þessi náttúruauður jafngildir gullnámum og olíulindum handan við höf. Hér eru auðug jarðefni. Héi eru heilsubrunnar. Dóná er ekki blá, þótt skáld lýsi henni svo en íslenzk fjöli eru blá. — lívernig má það sk'e, að við svo fá ug smá skulum eiga slíkt land? fslendingar eiga landið af þvi að þen hafa byggt það. Við eigum baf allt if þvi að fólkið, sem var hér á undan okkur, sem nú lifum, byggði bað allt Við byggjum það on;i þá, en þó varla nægilega vel ti. þess að það sé öruggt til að ht'iga okkur það ti] framtíðar. Ef sá dagtir kemur að t. d níu tíundu hiutar fslendinga verða samansafnat'ii hér við suðurhluta Faxaflóa, þa verður ísland ekki iengur fyrir Tslendinga. Lands- byggðin er okkar landvörn og án hennai verður hér ekki til iengdar friáls þjóð. Tf M I N N, þriðjudaginn 22. október 1963. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.