Tíminn - 21.01.1964, Síða 7

Tíminn - 21.01.1964, Síða 7
Útgefc’ndi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framlcvæmdastjóri: Tómas Arnason. _ Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas' Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Daviðsson. Ritstjórnarskrifstofur f Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Baukastr 7. Afgr.sími 12323 Augl., sími 19523 Aðrar skrifstofvir, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan- iands. t lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f — Vinnufriðurinn og ríkisstjórnin „Þ.jóðin verður að fá vinnufrið“ heitir forystugrein Morgunblaðsins s.l. sunnudag. Engum blandast hugur um, að hér er vikið að einu mesta vandamáli okkar og þjóðin öll óskar einskis fremur, en vinnufriður náist og haldist, en jafnframt er ljóst, að þessi vandi er svo mikill, að engin von er um viðunandi árangur, nema launþegar, vinnuveitendur, löggjafarvald og ríkisstjórn leggi sig fram saman til’ þess í heiðarlegri viðleitni. Morgunblaðinu er hollast að minnast þess, að það er til einskis að hrópa í sífellu um það, að þjóðin verði að fá vinnufrið, meðan ríkisstjórnin grefur daglangt og nátt- langt undan hverri stoð vinnufriðarins af annarri og lít- ur á það sem kjarnann í stjórnarstefnu sinni og eina jafnvægisráð í þjóðarbúskapnum að veikja kjaragrund- völl almennings í stað þess að treysta hann. Morgunblaðinu er gjarnast að bera ósk sína um vinnu- frið fram sem einhliða kröfu á hendur launþegum rétt eins og þeir einir hafi það í hendi sinni að tryggja hann, og lætur oft í það skína, að þar standi helzt illvilji launa- stéttanna í vegi. Allir, sem skyn bera á þessi mál, vita að jafnvel góður samkomulagsvilji launþega og atvinnu- rekenda dugar ekki til þess að tryggja vinnufrið, ef rík- isvaldið beitir öfugum klónum í þessum málum. Það er aðeins hið hatrammasta íhaldssjónarmið, sem ekki vill skilja það, að launafólkið kýs ekkert fremur en vinnufrið. Það er ekki von að langt þokist í átt til varanlegs vinnufriðar í landinu, ef ríkisstjórnin og að- almálgagn hennar halda og klifa á því, að vinnustéttirnar geri það að gamni sínu eða af illum hvötum að efna til langvinnra og harðra verkfalla. Allir, sem vilja skilja rétt samhengi þessara mála, vita að engin stétt leikur sér að þessu. Hún gerir það ekki fyrr en í algerri nauð- vörn. Ef litið er t. d. á verkföllin á s.l. ári sést gerla, að ekki var lagt út í þau, fyrr en þau voru orðin óhjákvæmi- legt neyðarúrræði. Stéttirnar gáfu hvern frestinn á fæt ur öðrum, og ríkisstjórnin misnotaði biðlund þeirra. Nú hefur enn einu sinni verið samið á töluvert breið- um grundvelli um kauphækkanir, sem enginn sanngjarn maður telur vinnustéttirnar ofhaldnar af, þegar litið er á dýrtíðina. Þá er komið að því að treysta þann grund- völl vinnufriðarins, sem þar var lagður. Blandast nokkr- um hugur um, hvaða aðilar það eru, sem þar geta bezt að unnið? Það er að sjálfsögðu ríkisstjórnin með skyn- samlegum efnahagsráðstöfunum, sem hefta dýrtíð og treysta atvinnuvegina. Eins og málin standa í dag, er það ríkisstjórnin ein, sem getur gefið þjóðinni vinnufrið. Á þessu sést, hve mikilvægt það er, að stjórnin reiði ekki svipu nýrra álaga og dýrtíðar að launafólkinu og reki það með því út í nauðvörn nýrra verkfalla. Ráðhús og þinghús Ráðhús Reykjavíkur er mjög á dagskrá og á margra vörum. Borgin ákvað 1955 að byggja ráðhús í Tjarnar- endanum og hefur nú samþykkt gerð hússins. Alþingi hefur hrokkið vig og telur vanda sinna óráðnu húsnæðis- mála aukast og jafnvel að sér þrengt. Hvorir um sig ræða málin í sínu horni. Þetta bendir ótvírætt til bess, að nauðsynlegt sé að taka mál þessi nýjum tökum, fiannig að borgin, ríkisstjórnin og Alþingi taki sér fyrir íiendur að leysa málið allt í samvinnu, og það svo mynd- Arlega, að í einu verði ákveðið um stað ráðhússins, þing- Gússins og skipulag gamla miðbæjarins alls,. Ekki verður um það deilt, að full þörf er á ráðhúsi í Reykja- vík, heimili fyrir stjórn og aðal- skrifstofur höfuðborgarinnar. — Fundarsalur fyrir borgarstjórn og vinnustaður fyrir borgarfull- trúa og ýmsar nefndir, sem vinna að fjölþættum málefnum borgarinnar. Þetta er bæði menningarmál og metnaðarmál fyrir höfuðborg ina. Er það raunar merkilegt og lærdómsríkt, hve það hefir dreg izt lengi, að koma því í fram- kvæmd. Sérstaða Reykjavíkur Það kom fram við opnun sýn- ingar í Hagaskóla á ráðhústeikn- ingunum, að Reykjavík væri eina höfuðborgin í Evrópu og þótt víða væri leitað, sem ekki ætti ráðhús. Ekki var þess getið í út- varpinu, hvort ráðamenn borgar- innar roðnuðu við þessar upp- lýsingar. En öðrum fannst þær I mjög eðlileg afleiðing af margra áratuga valdatíma sama meiri- hluta í Rvík. — Eða eins og dag- blaðið Vísir orðaði það, ekki alls fyrir löngu í ritstjórnargrein, að það „skapaði óhjákvæmilega stöðnun“, ef einn og sami flokk- ur færi áratugum saman með völdin Staðarval Átta ár eru nú liðin, síðan bæjarstjórn Reykjavíkur ákvað að ráðhúsið skyldi byggt í norð- anverðri Tjörninni. Og um líkt jlJI,.ÍéytiHýár ráðhúsnefnd kosin. Og iaru&t|./ a^íhefir tekið, að undirbua óg' ge'rá' þær telkningar að ráð- húsi Reykjavíkur, sem nú liggja frammi og till. eru um að samþ hér í dag. Og þessi undirbúning- ur og teikningár mun þegar nú kosta um 3 millj. króna. — Og nú er að komast hreyfing á mál ið. Það er fagnaðarefni. Borgin þarf að eignast ráðhús: Virðulegt, einfalt en vandað. Og sé hófsemi gætt um stærð og kostnað allan. Teikningarnar Hvernig myndu nú teikning- arnar fullnægja þessum sjónar- miðum? Eru tök á að endurbæta þær, eða gera betur? Það er skylda okkar við nú- tíð og framtíð, að athuga gaum gæfilega, hvort þær tillögur og teikningar, sem nú hafa verið gerðar, séu svo alfullkomnar, að þær sé ekki hægt um að bæta. Það er raunar alkunna, að betur sjá augu en auga. Það var í alveg ákveðnum til- gangi, að ég hvatti til þess á síð asta borgarstjórnarfundi, að sýna borgarbúum teikningarnar og líkan af þessari miklu bygg- ingu, — áður en fullnaðarsam- þykkt væri gerð um hana. — Eg er þakklátur borgarstjóra fyr ir að hafa gefið almenningi kost á að sjá þær, — þennan stutta tíma. En álít að tíminn sé of stuttur og að of mikið sé hrað- að, að fullnaðarsamþykkt á þess- um teikningum í borgarráði og borgarstjórn, — áður en almenn ingi gefst kostur á að sjá þær og athuga. Eg taldi og tel að þetta sé vafa söm vinnuaðferð og ekki full kurteisi við borgarbúa og tæp- lega nógu bjargföst trú á yfir burðum teikninganna. Vissulega eru það horgarbúai almennt, sem verða að borga þær hundruð milljóna króna, er ráðhúsiS ásarnt rýmingu húsa og lóðakaupum, kostar. Ráðhúsnefnd og sérfræðing- ana, tók það 8 ár, að vinna verk ið. Er það til of mikils mælzt, að skattborgararnir fái 8 vik- ur til að athuga það, áður en borgarstjórn samþykkir? Vinsamleg gagnrýni. Það er búið að ákveða stað fyrir ráðhúsið. Staðurinn er fal- legur — en mjög dýr og hefir fleiri ókosti. Og margir borgar- búar eru óánægðir með hann. Og meðal þeirra eru fuglavinir og BJÖRN GUÐMUNÐSSON börn, sem gengur illa að skilja hvers vegna sé ekki annar stað- ur fyrir þetta stóra hús, heldur en leikvangur þeírra og.fuglanna í sól og skjóli fyrir norðan- nepjunni. En hússtæðið var ákveðið á þessum stað. Og við hann eru teikningarnar að sjálfsögðu mið aðar. Og við fyrstu sýn, komu þær mér myndarlega fyrir sjón ir. En tel þó öllum borgarfulltr. skylt, að hafa uppi um þær vin- samlega gagnrýni. Og ættu þeir alveg sérstaklega, að hugleiða skoðun og ummæli formanns ráðh.nefndar, Gunnars Thorodd sen, sem komu fram hjá honurn við opnun sýningarinnar s. 1 föstudag En hann taldi bæði rétt og nauðsyn, að hafa uppi vinsamlega gagnrýni. Bakhliðin og borgin Ráðhúsið snýr bakhliðinni að ráðhústorginu og kjarna mið- borgarinnar, með Alþingishúsið og Dómkirkjuna í næsta ná- grenni, en fjær slagæð verzlunar og viðskiptalífs borgarinnar og alla umferðina um miðbik henn ar. — Þetta byggingarfyrirkomu lag mun vera nokkúð óvanalegt, og með réttu þykir mörgum að staðsetning hússins geri kröfu til þess, að báðar hliðar þess séu jafn fallegar. En það þarf ekki lengi, að virða fyrir sér líkan hússins til að sjá, að miklu meira er lagt upp úr þvi að gera suðurhliðina fallega, — þar er allt stál og gler (reglu- legt gróðurhús). Og þar gengur háhýsið fram úr hlið stóra húss- ins, og mun það eiga að gera hliðina tilkomumeiri, a. m. k breytilegri. Ber að virða þessa viðleitni, þótt um fegurðina megi deila. Einfaldleikinn í byggingar stíl, er býsna sterkur. Norðurhliðin er norðansvali festur í stein. Sú hlið er að neð- an í nokkuð á 4. mtr. hæð, öll gluggar, en að ofan, á 7 metr. hæð, allt gluggalaus steinhella Þeir, sem vmna ínnan vio vegg í framtíðinni, tefja sig ekki á að horfa út á ráðhústorgið. Ekki kann ég að meta þessa byggingarlist, — og mun það ríkt í eðli íslendinga, að geta litið út um glugga. Að utan er ekki vandalaust að ganga frá þessum mikla stein- vegg í miðri borginni, þannig að hann komi mönnum í gott skap og lyfti huganum. Það þarf að vera fallegur steinn og bjart yfir hon- um. Ekki mun af veita, því oft verður kalt á ráðhústorginu. Sól- ar og sunnanblæs nýtur þar tak- markað og er nokkur ókostur, að loka þau úti frá þessu hátíða- svæði borgarinnar um alla fram- tíð. Stærð hússins: Flatarmál ráðhússins er 2165 m2. Meginhluti þess er aðeins tvær hæðir. Jafnskjótt og ég sá teikninguna, fannst mér það mik- ið örlæti, að byggja aðeins 2 hæðir ofan á jafndýran grunn og hér er gerður. Og til eru menn, sem finnst það nokkurt örlæti, að hafa þessa aðra hæð á 7. m. undir loft. Mun þess þó þörf fyrir nokkurn hluta hennar, en ekki allan. Þegar rætt er um kostnað við bygginguna, er skylt að gera sér grein fyrir notagildi hússins. Við fljótlega athugun virðist manni allmikill hluti af aðalhúsinu vera ætlaður til annars en .hagrýtrar starfsemi stjórnar borgarr.nnar, eða fyrir skrifstofur hennar. Á fyrstu hæð virðist aðeins tæplega 14 hluti flatarmálsins ætlaður undir skrifstofur, en meginhlutinn ýmsir salir: Forsalur skreyttur lista- verkum 475 m2 Ráðhússkáli 608 — Forsalur fyrir ráðhús- skála 345 — o.s.frv. Á 2. hæð er fundarsalur borg- arstjórnar og nokkurt húsrými ætlað fyrir bókasafn og lesstofu fulltrúanna. Þar eru einnig smá herbergi fyrir borgarstjóra, for- seta borgarstjórnar og ritara. Þetta húsrými nær yfir um % hluta 2. hæðar. En um % hlutar fara í ýmiss konar sali: Lista- verkasal (334 m2), Forsal (176), Matsal (143), Framleiðslu fyrir matsal (43). Enn fremur gengur Ráðhússkáli (608 m2) upp í gegn- um 2. hæð. — Þannig er fyrir- hugað, að'mikill meirihluti af 1. og 2. hæð hússins sé notaður fyr- ir ýmsa sali. Það skal ákveðið tekið fram, að ekki er hægt að byggja ráð- hús með neinum kotungsbrag, eða að komast hjá að hafa ein- hverja móttöku- eða matsali í því. En borgin hefur verið á gelgju skeiði með eigið húsnæði. Og sumum hættir við, þegar þeir rétta úr kútnum, að stökkva Iengra en þeim er hollt. En stóru stökkin verða sjaldan til farsæld- ar. Og hér er hugleitt hvort ekki sé fær leið, að breyta eilftið til og taka eitthvað meira af hús- rýminu til hagnýtrar notkunar. Skiptar skoðanir eru um hve mikið borgin á að byggja af óhag nýtu húsnæði í skjóli ráðhússins, eða innan veggja þess. Að sjálf- sögðu er rétt-mætt hjá borgarbú- um, að gera kröfu um, að gætt sé fyllsta hófs í þessum hlutum. Þess ber og að gæta, að meira Framhald á 13. síSu. ÍÍMINN, þrlðjudaginn 21. janúar 1964 —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.