Tíminn - 02.02.1964, Qupperneq 3

Tíminn - 02.02.1964, Qupperneq 3
í SPEGLITÍMANS ÁKVEÐIÐ hafði verið að Anna-María, Danaprinsessa, og Konstantin Grikkjakrónprins mund'u gifta sig í janúar 1965, en nú hefur Friðrik Danakon- ungur fengið giftingunni frest- að um rúmlega hálft ár, því að honum finnst Anna-María vera óþarflega ung enn þá. f sumar mun Anna-María fara í nokk- urra vikna ferðalag til Græn- lands, en þangað hefur hún ekki komið áður. Hún vill gjarn an sjá þennan hluta af Dan- merkurríki, áður en hún flytur búferlum til Grikklands fyrir fullt og allt og gerist þar drottn ing. Með prinsessunni í ferða- Iaginu verða Dorrit Bech, hirð- meyja hennar, og fulltrúi úr Grænlandsráðinu. Nú sem stendur er Anna-María í vetrar fríi í svissneska skíðabænum Gstaad. MYNDIN er tekin af Önnu- Maríu, þegar hún ásamt móður sinni, heimsótti barnaheimili í úthverfi Kaupmannahafnar, — núna rétt eftir jólin. # KVIKMYNDA-leikkonan Nat- alie Wood, sú sem leikur Maríu í West Side Storv, er 25 ára gömul og fráskilin. Fyrrverandi eiginmaður hennar var leikar- inn Rohert Wagner. Nú ætlar Natalie að gifta sig aftur og tilvonandi eiginmaður heitir Arthur Loew, er 37 ára að aldri og var áður giftur Dehor- ah Power. BANDARÍSKI kvikmynda- leikarinn Steve Cochrane hefur ákveðið að fá skilnað frá e'i»- inkoriu sinni. Heddy Janna Jen- sen. Þegar skilnaðurinn er sve um garð genginn. ætlar Steve að fylla lystisnekkju sína pr fallegum ungum stúlkum op i'^’-ðast um heimshöfin Hnn” hofur siálfur gefið þessar unn- lýsingar o.g auglýsir nú eftir •’npum og fallegum stúlkum Hinir sex heimsfrægu hrafn ar, sem eru til heimilis í Tower-turninum í London hafa aldrei lifað beinlínis í sátt og samlyndi, en nú tek- ur þó út yfir allan þjófabálk. Nýlega réðust fimm þeirra á þann sjötta og fóru svo illa með hann, að hið konunglega félag, sem stofnað er í þeim tilgangi, að vernda dýr gegn allri grimmd mannanna, varð í flýti að aka hrafninum á sjúkrahús, þar sem gert var að brotnum fæti hans. Einn eftirlitsmannanna í turninum sagði eftir þetta atvik, að hrafnarnir væru alltaf meira og minna að slást, en í þetta skipti hefðu slagsmálin geng ið of langt. Samkvæmt brezk um þjóðsögum, þá mun brezka heimsveldið missa mátt sinn, ef hrafnarnir yfir gefa Tower-turninn. Þess vegan vonar brezka þjóðin að í framtíðinni fari þeir betur hver með annan. # Undan ströndinni í Suður- Californíu er eyja er nefnist Santa Catalina. Þar fór fyrir skömmu fram loftbelgjakapp hlaup og vildi svo illa til að amma nokkur að nafni Bar- bara Keith hvarf út í busk- ann ásamt loftbelgi sínum. Átta loftbelgir tóku þátt í keppninni og urðu sex þeirra að nauðlenda á hafinu. Með- al þeirra var einn, sem inni- hélt son Barböru Hutton, Lance Reventlow. Eini maður inn, sem komst á leiðarenda, var Ed Yost, og lenti hann heilu og höldnu á San Clem- ent. Mikið rok var, þegar loft kappsiglingin fór fram, og greip það loftbelg ömmunnar traustataki og það svo snögg- lega, að hraðbátar gátu ekki elt hann uppi. Það síðasta sem heyrðist frá gömlu kon- unni voru þau skilaboð, að belgurinn þeyttist suður á bóginn með ofsahraða. Um- fangsmikil leit hefur nú ver- ið sett af stað, en ekki vit- um við, hvort hún hefur bor ið nokkurn árangur. VICTOR BORGE, danski grin istinn, sem gjörsigraði Ame- ríku, ku nú alveg hafa misst snilligáfu sína. Hann kom fram í ABC-sjónvarpinu í Bandaríkj- unum á nýársdag og hét þáttur hans, Victor Borge í Camegie Hall, en gagnrýnendur segja, að frekar hefði mátt nefna(Lib- erace í Hollywood. Munurinn er bara sá, að Liberace hefur fastan áhorfendafjölda, sem geðjast vel að honum, en aðdá- endur Victor Borge höfðu bú- izt við einhverju öðru og betra af þessum fræga grínleikara. — Gagnrýnendur spurðu sjálfa sig skelfingu lostnir, hvað orðið af hinum frumlega, skemmti- lega og óaðfinnanlega Borge, sem allir höfðu þekkt. Það liti út fyrir það, að hann hefði al- gjörlega misst gáfu sína-Meðan á skemmtiþættinum stóð, var hann alltof kyrrlátur og feim- inn. Ekki bætti rullan mikið upp framkomuna, því að hún var þvogluleg, og setningarnar illa bornar fram hjá Borge. — Hreyfingarnar voru óeðlilegar og í alla staði hafði maðurinn verið ófyndinn og leiðinlegur. * Albert Einstein, það er ó- þarfi að kynna hann nánar, var eitt sinn spurður að þvi, hvaða vopn hann héldi að mannkynið mundi nota í þriðju heimsstyrjöldinni. Eg veit það satt að segja ekki, svaraði hann og klóraði sér í hárkollunni, því þróuninni hefur fleygt svo ótt fram, að ÞAÐ skyldi engan furða á því, þó að sænska leikkonan Britt Eklund brosi glaðlega framan í lesendur. Hún liefur nefnilega alveg nýlega gert samning við kvikmyndafélagið 20th Century Fox, og fyrsta hlutverk hennar verður í kvik- myndinni „Those Magnificent Men in their flying Machine". Myndin er tekin af leikkon- unjli á þaki Savoy- hótelsins í London. ég get ekki fylgst með lengur. En ég veit aftur á móti hvaða vopn munu verða notuð í fjórðu heimsstyrjöldinni, það verða steinar. # Sænski fornleifafræðingur inn og docentinn, Márta Strömberg, er prófessor við háskólann í Lundi, og þykist nú hafa fundið sanannir fyrir þeirri kenningu sinni, að víkingahöfn hafi eitt sinn ver ið við Kaseberga, á suður- strönd Skánar. Eftir þriggja ára rannsókn á staðnum hef ur hún fundið minjar tíu lág reistra húsa. Hægt er að gera sér grein fyrir byggingarfyrir komulagi húsanna, og þarna hefur einnig fundizt arabisk mynt, skreytt mynd af kalíf- anum í Bagdad. Harun el Rashid, sem uppi var fyrir 800 árum. Egypzki menntamálaráð- herrann aflýsti nýlega bann færingunni á Elizabet Taylor og þar með er mögulegt að sýna hina umdeilu mynd hennar Cleopötru í Egypta- landi. Nafn. Liz hafði verið sett á lista yfir þær slæmu manneskjur, sem Egyptaland vill hvorki sjá né heyra, en eftir að ýmsir háttsettir emb- ættismenn þar í landi höfðu séð myndina, komust þeir að þeirri niðurstöðu, að hún væri mjög góð auglýsing fyrir Egyptaland. Þar að auki er Liz svo hrífandi, sagði einn þeirra á eftir, að hún á náð unina skilið. Áður en myndin verður sýnd opinberlega í Egyptalandi, mun samt atrið ið þar sem Cleopatra er í baði, verða klippt úr. * Eins og allir kennarar vita geta furðulegustu svör oltið upp úr nemendum á prófum. Stundum eru svörin svo vit- laus, að erfitt er að ákveða, hvort um misskilning er að ræða, eða hreina og beina heimsku. Á skóla einum i Englandi hljóðaði ein spurn- ingin svona: Hve mörg tonn af kolum eru það, sem flutt eru út frá Englandi árlega? Eitt svarið var á þessa leið: Árið 55 f. k. Það þarf ekki að orðlengja neitt um það, en nemandinn fékk núll fyrir svarið. ?. < ' v. V ss -. „ . . % s.v,. ... . .. ..v~...0... .í ÞETTA eru fjórar konung- bornar frúr, sem jafnframt eru tilvonandi mæður, séðar með augum skopteiknarans Steen, en hann vinnur við hollenzka blaðið Panorma. Þessar fjórar konunglegu tilvonandi mæður eru þarna í göngutúr í hallar- garðinum og ýta á undan sér fjórum konunglegum barna- vögnum. Elizabeth drottning, hún á von á barni sínu síðast i í febrúarmánuði eða snemma í marz, genfiur fyrst, síðan kem ur Alexandra prinsessa, eiginkona Angus Ogilvy, — en hún mun eiga sitt barn síð- ast í þessum mánuði eða þar um bil. Margrét prinsessa kem- ur þar á eftir, en hún á von á sér einhvern tíma með vorinu, og lestina rekur svo hertogaynj an af Kent, sem á von á barni sínu síðast í apríl. ★ TÍMINN, sunnudaginn 2. febrúar 1964 3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.