Tíminn - 12.03.1964, Side 15
A ENDASPRETTI
Framhaic aí 9 síðu.
skiptis í löndum og ég hef
sótt nok-kur, fyrst í Edinborg
1929. Þegar við Margrét vor-
um á leið með járnbrautarlest
til Sofia í fyrra, rákumst við
'þar á gamlan mann, sem var
líka á leiðinni á þingið þar.
Hann heitir Kennedy, ég man
ekki hvort hann er enskur eða
skozkur, en hann var einn
þeirra, sem undirbjuggu þingið
í Edinborg forðum daga. Við
tókum nú tal saman, og ég
segi við hann, að það hafi ver
ið skemmtilegt á þinginu í Ed-
inborg, þó að þar hafi ekki ver
ið mættir nema 960 fulltrúar.
Hann rak þá upp stór augu og
sagði: „Ha, 960? Já, þeir voru
víst 960. Mikið afskaplegt st.ál
minni hafið þér, maður“. Þá
gat ég ekki gert að að brosa
og hugsaði sitt af hverju.
— Þótti þér það fámennt
þing?
— Já, yfirleitt skipta fulltrú
ar þúsundum. T. d. 5000 fulltrú
ar á þinginu í Sofia, en þar i
borg er líka óvenjumikill í-
hugi á esperanto. Allt gátu
gestirnir fengið sér til skemmt
unar, andlegrar uppbyggingar
eða sáluhjálpar framreitt á
esperanto, fyrirlestra, upplest
ur á sögum og kvæðum, tvö
leikhús fluttu leikrit á málinu
allan tíman, prestar messuðu
á esperanto.
— Einu sinni hélzt þú esper-
antonámskeið hér í Reykjavík.
Heldurðu, að unga fólkið hér
hafi áhuga á málinu?
— Því miður er því ekki að
heilsa. Hér veður uppi sú
tízka að allir eigi að læra
ensku og þurfi helzt ekki ann-
að. Margir halda því fram, að
enskan sé svo létt mál, mál-
fræði svo fábrotin, en sannleik
urinn er sá, að enska er mjög
erfitt mál, flóknara eii margux
hyggur og orðaforðinn gífurleg
ur. En hér bjarga flestir sér
með það eins og á hundasundi.
Ensku lesa ekki nærri allir sér
til gagns, sem þykjast kunna
hana. En mér þótti gott það
sem Sigurður Nordal sagði í
blaðagrein í vetur, þar se:n
hann sýndi fram á, að sú útlend
þjóðtunga, sem flestum kæmi
að mestu gagni að læra, væri
danskan, þegar allt kæmi til
alls. Það þykir víst ekki nógu
fínt um þessar piundir eins og
áður var, en á dönsku er gef
inn út allur sá fróðleikur, sem
við höfum brúk fyrir, eins og
Sigurður sýndi fram á.
Nú erum við komnir upp á
fjórðu hæð að Hringbraut 45,
þar eru dyr til hægri með
þremur máluðum rúðum í, verk
eftir Nínu listmálara Tryggva-
dóttur. Þórbergur bendir á
myndirnar og segir: „Jæja,
þarna sérðu garnaflækjuna, og
gakktu í bæinn.“
Frá Alþingi
hefði komið, að annar háttur yrði
hafður á framkvæmd málsins en
raunin hefur orðið á.
Gísli Guðmundsson sagði, að í
ályktuninni hefði ekki verið kveð
ið á um neina framtíðarlausn
þessara mála, heldur verið um
bráðabirgðalausn fyrir Vestfirði.
eem Alþingi vildi láta framkyæma
tafarlaust. Hins vegar yrði að
gera áætlanir um heildarlausn
þessara mála og minnti hann í
því sambandi á frumvarp Fram-
sóknarmanna um jafnvægi í
byggð landsins og rakti nokkuð
efni þess. Nauðsynlegt væri að
fcoma upp sérstakri stofnun með
lérstöku starfsliði til að fylgjast
með og stjórna þessum málum.
Þá átaldi Gísli það, að þetta frum
7arp sem flutt hefði verið í þing
ísyrjun og vísað til nefndar í októ
ber, skyldi ekki fást afgreitt frá
nefnd. Það er kannski sami sof-
andahátturinn sem veldur því og
virðist hafa valdið því að fram-
kvæmd þingsályktunarinnar hef-
ur dregizt svo.
Hannibal Valdimarsson kvað
það nú upplýst, hve slælega hef-
ur verið að þessu máli unnið.
Formaður atvinnubótasjóðs upp-
lýsir að ekkert samráð hafi verið
haft við stjórn sjóðsins, ekkert
hefur verið talað við bankaráð
Framkvæmdabankans og ekki var
búið að skrifa sveitarstjórnum og
bæjarstjórn ísafjarðar í nóvem-
ber. Þá sagði hann þingmenn hafa
kynnt sér Norður-Noregsáætlun-
ina og við vitum betur en Norð-
menn, hvað hér á við.
Einar Olgeirsson sagði, að í
nefnd, sem vinstri stjórnarflokk-
arnir hefðu skipað til að athuga
um áætlunarmálin, hefði fulltrúi
Framsóknarflokksins í nefndinni,
Skúli Guðmundsson, verið andvíg
ur slíkum áætlunum. Þá sagði
Einar, að áætlun miðstjórnarfund
ar Framsóknarflokksins nú um
áætlunargerð væri greinilega
hræsnin ein.
Eysteinn Jónsson kvaðst ekki
vita, hvað fram hefði farið í
þeirri nefnd, sem Einar Olgeirs-
son hefði nefnt, en staðreynd
væri að Framsóknarflokkurinn
hefði ekki verið andvígur slíku í
ríkisstjórninni og það var ríkis-
stjórnin, sem gerði út um þessi
mál og það er afstaðan þar, sem
skiptir máli. Framsóknarflokkxir-
inn hefur staðið að margs konar
áætlunargerð og fjárfestingar-
skipulagningu og minnti hann á
Rauðku, Fjárhagsráð og þjóðhags
áætlanagerð Framkvæmdabank-
ans. Vitnaði Eysteinn síðan í fjár
lagaræðu, er hann hefði flutt í
vinstri stjórninni árið 1956, þar
sem hann hefði lagt áherzlu á
nauðsyn áætlanagerðar og að
þjóðhagsáætlanir- .yrðu. lagðar,
fram með fjárlagafrumvarþi
hverju sinni.
JÓN MÚLI
Framnalo al 16 síðu.
— Plöturnar, sem leiknar
eru milli kl. 7 og 8, tek ég til
fyrir vikuna um helgar tneð að
stoð Egils Jónssonar, klarinettu
leikara. Svo snakka ég, eins og
andinn inngefur, jafnóðum og
þær eru spilaðar. Þetta er
skemmtilegra svopa, þ. e. a. =,
ef manni dettur eitthvað í
hug- Eg get þetta þó ekki all-
an morguninn, þarf líka að
líta yfir fréttirnar og leiðarana.
— Þú hlýtur að véra mikill
morgunhani?
— Svona sæmilegur. E.g
verð að vakna kl hálf sex,
enda má það ekki seinna vera,
því ég álít, að ekki sé hægt að
mæta fyrir framan mikrófón-
inn, fyrr en maður er búinn að
raka sig, bursta tennurnar,
greiða sér og pússa skóna, og
þetta tekur langan tíma.
-i— Hefurðu samið nokkuð
upp á síðkastið?
— Nei, en ég tók nú meðal
annars þessu tilboði um breyt
ingu á starfsháttum vegna þess,
að nú vonast ég til að eignast
einhvern frítíma, svolítinn
tíma fyrir prívatlíf, og þá
kannski dettur manni eitthvað
í hug.
SÖLUMENN GEYSAST
Pramhald af 16. s(8u.
— Já, segir Þórhallur, ég fór
vestur á land og þaðan til Hólma-
víkur um Tröllatunguheiði. Hann
var nú dálítið erfiður á köflum
vegurinn þar, og ég þurfti að nota
spilið í múlanum Steingrímsfjarð
armegin.
— Og hvernig gekk svo salan í
þessari ferð?
— Nokkuð vel, segja þeir báðir.
Þetta eru erfiðir tímar að verzla
á, segir Kristján, en hann hefur
verið við sölumennsku í um 20
ár, ferðazt vítt og breitt um land
ig, og þekkir því orðið verzlunina
mæta vel.
—■ Ekkert hefur bilað í ferð-
inni?
— Nei, það er ekki hægt að
segja það. Það þarf bara að passa
að smyrja í hjöruliðina á 500 km.
fresti svo einhver ending verði í
þeim, segir Þórhallur að lokum.
PRÓFKJÖRIÐ
Framhalo af 1 síðu.
ur ekki ennþá sagt, hvort hann
muni gefa kost á sér sem forseta-
efni, en Goldwater og Rockefeller
skoruðu á hann í dag að segja ann
að hvort af eða á, og það strax.
Stjórnmálafréttaritarar telja,
að úrslit kosninganna og sigur
Lodge beri fyrst og fremst að
skilja sem andúð gegn Goldwat
er og Rockefeller, en ekki sem
tákn um, að republikanar vilji
endilega Lodge sem forseta.
Ekki var um neina opinbera
kosningabaráttu að ræða í próf-
kjöri demókrata, þar sem Johnson
forseti er talinn öruggt forseta-
eíni síns flokks, en demókratar
voru þó beðnir um að greiða at-
kvæði, og fékk Johnson 18.058
atkvæði og Robert Kennedy, dóms
málaráðherra 14.548 atkvæði. Hef
ur hið mikla atkvæðamagn, sem
Kennedy fékk, vakið töluverða at-
hygli.
Henry Cabot Lodge er komini
af háttsettri fjölskyldu í Nýja
Englandi, og hafa 6 úr fjölskyld-
unni setið í Öldungadeildinni.
Lodge var varaforsetaefni repu-
blikana 1960 þegar John F. Kenn-
edy varð forseti. Kennedy út-
nefndi Lodge síðan sem sendi-
herra Bandaríkjanna í Suður-Víet-
nam og dvelur hann þar nú.
FLUGMENNIRNIR
íiKfflinlifi111 at L si?u-
eru á vérði í heraðinu vopnaðir
sjálfvirkum skotvopnum, og
stöðva alla, sem fara um göturn-
ar.
Sovétríkin sendu Bandaríkjun-
um í dag mótmælaorðsendingu
vegna þess, að könnunarflugvélin
hafi brotið lofthelgi A-Þýzkalands.
Segir í orðsendingunni, að flug-
vélin hafi verið í njósnaleiðangri
yfir A-Þýzkalandi og þess vegna
verið skotin niður. Ekki vildu
Sovétmenn gefa neinar upplýs-
ingar um, hvort rrrennirnir 3, sem
í vélinni voru, væru á lífi, en
sendiráð USA í Bonn tilkynnti
seint í kvöld, að þeir væru lif-
andi.
Bandaríkjamenn hafa mótmælt
þessum atburði, og segja, að Rúss
ar hafi skotið niður flugvélina að
mjög vanhugsuðu máli. Er þess
krafizt, að áhöfn vélarinnar og
flakið verði þegar sent til V-Þýzka
lands. Einnig hafa Bandaríkja-
menn óskað þess, að fá að heim-
sækja staðinn, þar sem flugvélin
hrapaði niður.
Bandaríkjamenn hafa borið til
baka fullyrðingar Sovétríkjanna
um, að flugvélin hafi vérið í
njósnaleiðangri, og telja óskiljan
legt hvernig flugvélin, sem var á
æfingarflugi yfir V-Þýzkalandi,
hafi getað villzt. Áhöfninni var;
sérstaklega skipað að forðast að I
koma nálægt .kommúnistískum !
svæðum, einkum vegna þess, að
'bandarísk æfingarflugvél var skot
in niður yfir A-Þýzkalandi 28.
janúar s. 1.
Til GUNNARS
BJARNAS0NAR:
Þú hefur vel um vitið rætt,
— vit og skyn er öllum gott,—
en þig og aðra þú hefur vætt
því, sem vekur háð og spott.
Halldór Kristjánsson
Kvöldvaka stúdenta
TK—Reykjavík, 11. marz.
Stúdentaráð og Stúdentafélag
Reykjavíkur efna til kvöldvöku í
Súlnasal Hótel Sögu næst komandi
föstudagskvöld kl. 8.30. Mjög verð-
ur vandað til kvöldvökunnar.
Sverrir Hermannsson, viðskipta-
fræðingur, mun flytja stutt ávarp,
Sigurveig Hjaltested syngur ein-
söng og Rúrik Haraldss. og Róbert
Arnfinnsson flytja nýjan gaman-
þátt. Dans verður stiginn tiL kl. 1
eftir miðnætti. Síðasta kvöldvaka
Stúdentafélagsins og Stúdenta-
ráðs var mjög fjölsótt og þótti
takast hið bezta. Er ekki að efa að
þessi verður einnig fjölsótt og
ánægjuleg.
NÝSTÁRLEG SKEMMTUN
(Framhald af 2. síðu)
sérstaklega valin með tilliti til
æskufólks má fullyrða að fólk á
öllum aldri mun kunna að meia
hina fjölbreyttu skemmtiskrá. Er
vert að hafa í huga, að með því að
fjölmenna á skemmtunina leggja
menn einnig góðu málefni lið.
MEÐALHITINN
Framhald af 1. síðu.
1929 6,1 stig í Reykjavík, og er
það heitasti marz, sem mælzt hef-
ur á landinu frá því mælingar hóf
ust, nema ef metið yrði slegið í
ár.
Vegir hafa til skamms tíma ver
ið góðir, en nú er frost að fara
úr þeim norðanlands og þeir byrj-
aðir að detta niður og koma í þá
hvörf. Hefur af þessum sökum orð
ið að loka Lágheiði til Ólafsfjarð-
ar og Hálsavegi milli Raufarhafn-
ar og Þistilsfjarðar. Vegurinn á
Melrakkasléttu er einnig orðinn
allblautur og sama máli gegnir
Verkamannafélagið Dagsbrún.
Arshátíð
félagsins verSur í Iðnó n. k. iaugardag og hefst
með borðhaldi kl. 7,30 e. h.
Aðgöngumiðar í skrifstofu félagsins að Lindarg. 9.
Skemmtinefndin.
Eg þakka hjartanlega þeim sem minntust mín á
sextugsafmaeli mínu 6. þ.m. Sérstakar þakkir færi ég
starfsfélögum mínum í Kaupfélagi Rangæinga fyrir
höfðinglega gjöf.
Guðmundur Karlsson, Hvolsvelli
AlúSarþakkir færum viS fyrir auSsýndan vinarhug og samúS í
veikindum og við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og
iangafa,
GuSmundar Kristjánssonar
Bjarkarlund!, Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
Agnesar Þorláksdóttur
frá Arnardrangl.
Vandamenn.
Faðir okkar,
Kristján Kjartansson
Björnshúsum, Grímsstaðaholti.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. marz kl.
10,30. — Fyrir hönd barna hins látna og annarra vandamanna.
Svelnn Kristjánsson.
ÞAKKARÁVÖRP
um vegi í Skagafirði. Verður Vega
málaskritstofan brátt að takmarka
umferð um þessa blautu vegi, til
þess að reyna að koma í veg fyrir
að þeir skemmist meira en þörf
krefur.
Alls staðar að berast fréttir um
það, að bændur séu byrjaðir að
vinna vorvinnu í janúar voru
menn byrjaðir að plægja fyrir
austan fjall, og í og við Reykja-
vík er byrjað að stinga upp kart-
öflugarða.
SEGIR EKKI AF SER
Framhald af 1. síðu.
ræðu, sem hann hélt á 50.000
manna fundi.
MvNamara, sem dvalizt hefur í
S-Víetnam ásamt Maxwell Taylor,
yfirimanns bandaríska herráðsins,
og fleiri bandarískum hernaðarsár
fræðingum, síðan 5. marz, kom til
Hue ásamt forsætisráðherra S-
Víetnam, Nguyen Khanh, hers-höfð
ingja, og er talið, að ferðin hafi
verið farin til þess að sýna þjóð-
inni, að hinn nýi forsætisráðherra
hafi allan stuðning Bandaríkjanna.
Lodge lýsti því einnig yfir í
kvöid í Saigon, að hann væri
hrærður yfir úrsljtunum I prófkjör
inu í New Hampshire, en að har.íi
hafi ekki í hyggju að segja af
sér sendiherrastöðunni í S-Víet-
nam.
'! í M I N N, fimmtudaginn 12. marz 1964. —
15
I