Tíminn - 05.08.1964, Blaðsíða 1
9 bjargað eftir
8 daga námuvist
NTB-CHampagnole. 4. ágúst. Síðdegis í dag tókst að bjarga níu mönnum, sem hafa verið
lokaðir inni í kalksteinsnámu í Champagnole í Austur-Frakklandi í átta daga. Fimm eru
enn ófundnir, en ekki er talið líklegt, að þeir séu á lífi.
Fyrsti maðurinn, sem dreginn
var upp, var 29 ára gamall námu-
verkamaður að nafni Michel Ja-
ques. Hann var furðu hress eftir
vistina neðan jarðar, en strax og
hann kom upp á yfirborðið var
bundið fyrir augu honum til að
hlifa þeim við birtunni. Síðan var
farið með hann á sjúkrahús til
læknisskoðunar. Mikill mannfjöldi
beið meðfram veginum frá nám-
unni til sjúkrahússins og fyrir
framan sjúkrahúsið, en lögreglulið
bæjarins stóð vörð á veginum og
hélt opinni leið fyrir sjúkrabíl-
ana.
Klukkustund eftir að Jaques
hafði verið dreginn upp; var næsti
maður kominn upp úr námunni,
og síðan var einum af öðrum
bjargað, unz allir níu voru komn-
ir upp á yfirborð jarðar aftur.
Allir voru mennirnir furðu hress-
ir, og verkstjórinn bað björg-
unarmennina meira að segja að
hafa til rauðvín og kampavín, þeg-
ar röðin kæmi að sér, en hann var
dreginn síðastur upp.
Mönnunum var bjargað þannig,
að borað var niður í ganginn, sem
þeir höfðu lokazt inni í, og síðan
var rennt þangað niður stálhylki.
Þetta hylki er þýzkt og er 9 metra
langt, en rýmið fyrir mennina er
2,5 metra hátt. Þetta hylki var
FB-Reykjavík, 4. ágúst.
Heildarsíldaraflinn, sem boxúzt
hefur á land í sumar er nú orðinn
meira en helmingi meiri en á
sama tíma í fyrra. Samkvæmt
skýrslu Fiskifólags íslands hafa
borízt á land í sumar 1.463.115
máí og tunnur. Aflahæsta síldar
skipið er nú Jörundur III., sem i
dag er kominn með 25.300 mál og
notað við að bjarga 14 mönauoa,
sem lokuðust inni í námu í Vest-
ur-Þýzkalandi á síðastliðnu hausti
og voru þar innilokaðir í þrettán
daga.
Meðan me'nnirnir níu voru
dregnir upp, var haldið áfram aS
bora annars staðar í námunni, en
fimm menn hafa enn ekki fund-
Framlx. á bls 15
tunnur. Sautján skip eru komin
með 15 þúsund mál og tunnur og
þar yfir.
Norðanlands og austan hafa í
ár borizt á land 789.404 málum og
tunnurn meira en á sama tíma í
fyrra, og samkvæmt aflaskýrslu
LÍÚ er meðalafli á skip kominn
yfir 7000 mál og tunnur, en þess
Framh á bls 15
SILDARAFLINN HELMINGIMEIRI
Helltu brennivíni niður fyrir
unglingum
Bindindisskemmtanir
voru hvarvetna fjöl-
og ánægjulegar
FB-Reykjavík, 4. ágúst.
Fjöldí manns sótti út á lands
byggðina um verzlunarmanna-
helgina og var hegðun þessa
fólks misjöfn. f Þórsmörk var
hátt á fjórða þúsund manns,
og bar þar allmikið á drykkju-
skap á laugardaginn og aðfara
nótt sunnudags, en minnkaði
eftir það, þegar ganga tók á
vínföngin. Þaðan voru fluttir 17
menn til Reykjavíkur, ofurölvi,
og skrifaðar voru milli 50—
60 lögregluskýrslur. í Vagla-
skógi fór allt fram með ein-
dæmum vel og þurfti lögreglan
aðeins að hafa þar afskipti af
tveim mönnum, sem voru nokk
uð undir áhrifum áfengis. !
Húsafellsskógi var mikill mann
fjöldi og fór þar allt vel fram
og sama máli gegndi um
Bjarkarlund, og aðra staði, sem
blaðið hefur haft fregnir af.
Mesta fjölmennið mun haía
dvalizt í Þórsmörk um verzl-
unarmannahelgina, og fór all-
margt fólk inn eftir strax á
föstudagskvöld, en þó flestir á
laugardaginn. Leitað hafði ver
ið að áfengi í mörgum bílum,
en samt mun mikið áfengis-
magn hafa komizt inn eftir. Lög
reglumenn, sem þar voru til
eftirlits helltu niður mjög
miklu af áfengi, sem var í eigu
unglinga innan við 21 árs ald-
ur, en tóku þar fyrir utan flösk
ur af um 20 manns, er kominn
var yfir þann aldur. Máttu þeir,
sem flöskurnar áttu sækja þær
til lögreglunnar hér í Reykja
vík eftir helgina.
Lögreglan flutti 17 menn o£-
- orn til Reykjavíkur, og sagði
Framh a hls i
Menn svömluSu víSa í vatnsföllum um helgina. Hér er veriS aS aka yfir læk í Þjórsárdal, en annar
bíll hefur drepiS á sér. (Tímamynd, IGÞ).
Hér er fariS meS boSaföllum vfir Innri-ÁskarSsá iKerlingarfjöllum.
(Timamynd, KJ).