Tíminn - 05.08.1964, Page 2
jr
Islenzka þjóðin
ÞRIÐJUDAGUR, 4. ágúst:
NTB-Sakramento. — Pierre
Salinger, sem var bla'ðafulltrúi
Kcnnedys forseta, hefur tekiS
sæti í öldungadeild Bandaríkja
þings til bráSabirgða í stað
öldungadeildarþingmannsins,
Claire Engles frá Kaliforníu,
sem lézt í síðustu viku.
NTB-Nikosia. — Grískt varð-
skip skaut í dag átta skotum á
smábáta í grennd við bæinn
Kokkina á Kýpur, en íbúar þess
bæjar eru Tyrkir.
NTB-Lusaka.
Herflokkar
gerðu í dag harðar árásir á
þorp eitt, sem áhangendur
Lumpa-trúflokksins höfðu bú-
Izt til varnar í. Samkvæmt op
inberum fregnum létu 74 trú-
flokksmenn lífið í þeim átökum.
Kaunda forsætisráðherra Norð-
ur-Rhodesiu fordæmdi trúflokk
inn í dag og skipaði að láta
handtaka leiðtoga hreyfingar-
innar. Alice Lenshina, dauðan
eða lifandi eins fljótt og unnt
væri.
NTB-Jersey City. — Heimatil
búnum sprengjum var varpað
í Jersey City í Bandaríkjunum
í dag, en þar er ólga mikil eft-
ir kynþáttaóeirðirnar, sem orð
ið hafa síðustu dagana í borg-
inni.
4zss |C
NTB-Bonn. — i-'Ádenauer,
fyrrverandi kanslari Vestur-
Þýzkalands, reis í dag upp til
varnar beim de Gaullc forsctfi $
Frakklands og Barry Goldwat-
er forsetaefni repúblikana-
flokksins í Bandaríkjunum. —
Hann sagði gagnrýni vestur-
þýzkra blaða á stefnu þessara
tveggia stjórnmálamanna með
öllu óviðeigandi.
NTB-Leopoldville. — 75 Evr
ópumenn voru í dag fluttir flug
leiðis frá bænum Stanleyville í
Kongó og skömmu síðar sóttu
hermenn uppreisnarmanna inn
1 bæinn. Hermenn stjórnarinn
ar vörðust vasklega og kom til
harðra bardaga í bænum að
sögn ræðismanns Bandaríkj-
anna.
NTB-Miami Beach. — Gríska
fegurðardísin Kiriaki Tsopei
var kjörin fegurðardrottning
heimsins síðastliðinn laugar-
dag.
Ræða ásgeirs Ásgeirsson-
ar er hann var settur inn
í forsetaemhættið í 4. sinn
FB-Reykjavík, 4. ágúst.
Síðdegis á laugardag var Ás-
geir Ásgeirsson settur inn í for-
setaembættið í fjórða sinn, og
gerðist það við hátíðlega athöfn
í Alþingishúsinu. Þar voru um
hundrað boðsgestir viðstaddir, en
fyrir utan Alþingishúsið hafði
nokkur mannfjöldi komið saman
til þess að hylla forsetann og
frú lians, þegar þau gengu fram
á svalir Alþingisliússins að athöfn
inni lokinni. Síðan flutti forsctinn
ræðu í Alþingishúsinu og mæltist
honum svo:
Góðir íslendingar, nær og fjær!
Fyrsti ágúst er tímamót forseta
embættisins, að þessu sinni síðasta
stund þriðja kjörtímabils míns, og
upphaf hins fjórða. Mér er bæði
ljúft og skylt að flytja þjóð minni
þakkir fyrir traust fylgi og góðan
hug í garð okkar hjónanna. Emb-
ættinu fylgja bæði ánægjustundir
og áhyggjur á víxl, en svo mun
um flest eða öll- störf. Það væri
margs að minnast frá þessum tólf
árum, en ég tel hér það eitt, að
stjórnarmyndanír hafa jafnan tek
izt án tafar, og því fagna ég á
þessari stundu. Með viðkvæmum
huga þakka ég það traust, sem
lýsir sér í endurkjöri og innsetn-
"irig * í Átiítiðjfli, iiíog bið guð að
gefá Thér áfrqsmhaldandi góða
heiisu ■ og • irétfciæíhi í þeím efnum,
sem til mín taka.
Það vill nú svo til, að í byrjun
þessa árs voru 40 ár liðin frá
því ég tók fyrst sæti á Alþingi
sem fulltrúi Vestur-ísfirðinga. Ég
veit það misvirðir enginn, að ég
beini við þetta tækifæri sérstakri
kveðju og þakklæti til minna góðu
góðu og gömlu vina vestur þar.
Þeim á ég að þakka að ég slitnaði
aldrei úr sambandi við sjómann
inn, bóndann og alla alþýðu
manna, og hlaut það uppeldi í
stjórnmálum, sem ég mætti ekki
án vera í núverandi stöðu og
starfi. Þjóðmál og þingmennska
lærist ekki til neinnar hlítar
nema af langri reynslu. Þar verður
engum prófum við komið, nema
síendurteknum kosningum.
Það hefir mikið vatn runnið til
sjávar á þessum 20 árum fyrir
og öðrum 20 árum eftir lýðveld-
isstofnun, og stórfelldar breyting-
ar orðið í íslenzku þjóðfélagi og
þjóðlífi. Viðfangsefnin eru nú ær-
ið miklu flóknari en áður. Úr því
verður ekki bætt nema með auk
inni sérfræði.
Það var margt, sem menn átt-
uðu sig vart á eftir hina fyrri
heimsstyrjöld, ekki síður hin eldri
sveit embættismanna en almenn-
ingur. Gamli tíminn kom ekki aft-
ur. Tvær heimsstyrjaldir hafa
‘ fært margt úr skorðum. Breyting
ar í atvinnu-, fjárhags og utan-
ríkismálum og áukin afskipti rík-
isvaldsins heimta ný tök og þekk-
ing hjá ráðunautum Alþingis og
ríkisstjórna, og svo er fyrir þakk-
andi, að sú stétt er nú vel skipuð
hæfum mönnum, sem geta horfzt
beint í augu við hvern erlendan
stéttarbróður, sem þarf að mæta.
Er það ein hin ríkasta þörf hvers
nútíma þjóðfélags. En úrskurðir
og völd eru eftir sem áður í hönd-
um Alþingis og ríkisstjórna, og
verður svo meðan almennur kosn
smnar eigm sö
Vlð undirritunina í Alþingishúsinu á laugardaginn.
ingaréttur er í gildi.
Breytingarnar eru meiri í þjóð-
lífinu yfirleitt en í sjálfu stjórn-
skipulaginu. Þróun atvinnulífsins
hefir valdið aukinni stéttaskipt-
ing, og þó dregið úr stéttamun í
vaxandi mæli. Meðan kaupstaðir
voru fámennir, sveitir fjölmenn-
ar, tækin frumstæð og afköst lítil,
bjuggu allar „stéttir" á sama bæ,
sátu við sama borð, sváfu í bað-
stofu. Kvikfjárrækt og iðnaður
rekinn undir einu þaki, og farið í
verið á vertíð. Það er fyrst við
tilkomu fullkomnari tækja og véla
að stéttaskipting í nútímamerk-
ingu hefst og tilflutningur fólks-
ins í landinu. Árabátar verða úr-
eltir, og hin stærri vélknúnu fiski
skip draga vermennina þangað,
sem kaupstaðir vaxa við góð hafn
arskilyrði, heimilisiðnaði hnignar
í samkeppni við ódýra, erlenda
vöru unz nútímaiðnaður nær fót-
festu í kaupstöðunum. Það eru
breyttir atvinnuhættir, nýjar at-
vinnugreinar, og verkaskipting,
sem valda fólksflutningunum.
Þessi tilflutníngur hefir vaxið, svo
hröðum skrefum í seinni tíð, að
mörgum hrýs hugur við, og að
sjálfsögðu getur ríkisvald og hin
öflugri félagssamtök aukið við-
leitnina til að varðveita betra
jafnvægi í byggð landsins.
Þessi þróun hefir skapað ný
viðfangsefni og valdið átökum í
þjóðmálum, stórfelldum umbót-
um í fátækra- og tryggingamálum,
leiðréttingum á kosnlngarétti og
kjördæmaskipun, og deilum um
kaup og kjör og samræmi milli
ólíkra atvinnustétta. Ber þar sér
staklega að fagna júnísamningun-
um, sem lýðveldið fékk í 20 ára
afmælisgjöf. Þar er komið ínn á
leiðir, sem lofa góðu um framtíð-
ina. Úrbæturnar jafnan eftir á,
þegar þörfin hefir sagt greinilega
til sin.
Almennur kosningaréttur og
þingræði gerir ráð fyrir deilum
og átökum, og setur þeim leik-
reglur. Alþingi og dómstólar eru
vettvangur þessara átaka. Þar tak
ast á ólikar hugsjónir. hagsmunir.
metnaður, og fleira mætti telja.
Án slíks vettvangs réði ofbeldið
eitt úrslitum. Alþíngi er forn-
heilög stofnun með þjóð vorri, og
mikill misskilningur að ásaka stofn
unina sjálfa, skipulagið, um það,
sem míður kann að fara, og ekki
minnist ég slíks úr fornum ritum.
Það verður seint hægt að leysa
allan vanda mannlegrar sambúðar,
sinna öllum óskum í einu, eða
gerá alla jafnánægða. Með þessu
skipulagi eru deilur útkljáðar og
málefni afgreidd án liðssafnaðar
og vopnaviðskipta, og valdaskipti
fara fram án fangelsana eða af-
töku. Þessi erfð er forn, og eng-
in önnur hæf til langlífis fyrir fá
menna þjóð.
Á Alþingi tekst oft málamiðl-
un, en meiri hluti ræður að öðr-
um kosti, enda er mörgum mál-
um þann veg háttað að þau segja
tíl sín ár eftir ár, og verða ekki
leyst í eitt skipti fyrir öll.
Það er sjaldgæft að full ein-
ing náist á hinum fyrstu stig-
um hinna stærri mála, og er
sjálfstæðisbaráttan eðiilega gott
dæmi slíkra viðfangsefna Þar
sló jafnan í hinar hörðustu brýn-
ur, og tókst þó fullkomin þjóðar-
eining um endurreist Lýðveldis
fyrir 20 árum. Því fögnum vér af
heilum hug nú á þessu afmælis-
ári, og minnumst með þakklátum
huga þeirra manna, sem um það
höfðu forustuna. Þau merku tíma-
mót skapa oss nýja aðstöðu meðal
þjóðanna. En þess ber jafnframt
að minnast að samhengið er ríkt
í sögu íslands, allt frá þvi er Al-
þingi var stofnað í upphafi, og þess
vert áð geta jafnframt, að í. ár
eru 60 ár síðan þjóðin fékk heima-
stjórn og 90 ár síðan henni var
sett hin fyrsta stjórnarskrá, sem
Jón Sigurðsson kom áleiðis, án
þess þó að samþykkja, að ó-
gleymdu fullveldi árið 1918. Eng-
um forustumanna sjálfstæðisbar-
áttunnar hefir verið ofþakkað, en
ýmsum van-þakkað, og gildir það
einkum um suma ágætismenn
þessarar aldar, þó ég nefni engin
nöfn. Fjarlægðin er enn ekki nógu
mikil til þess að dómur sögunnar
sé orðinn einhlýtur. Sést það bezt
af ágreiningi og umræðum. sem
(Ljósm.: VS).
enn fara fram, og eru þó þarfar
og hjálpa til, að allt sjáist betur
síðar, í réttum hlutföllum og af
hærri sjónarhól.
Samhengi sögunnar og sam-
ræmi hugsunarháttar, erfðavenja
og löggjafar styrkir stórlega vort
unga Lýðveldi og glæðir framtíð-
Framh. á bls 15
Þriðjudaginn 4. ágúst 1964.
Veður var gott á síldarmiðunum
s.l. sólarhring og nokkur veiði 240
—250 mílur austur frá Dalatanga
Dalatangi:
Helga RE 700 mál, Dalaröst NK
550 tn., Ásbjörn RE 1300 mál,
Vonin KE 1200 tn., Guðrún GK
1200 mál, Skálaberg NS 750 tn.,
Höfrungur III AK 1700 mál,
Guðm. Þórðarson RE 300 mál, Sif
IS 500 tn„ Hoffell SU 800 mál,
Rifsnes RE 1200 tn„ Gissur hvíti
SF 150, Seley SU 600, Björg SU
100 mál.
Raufarhöfn:
Hafþór RE 600 mál, Jörundur
II RE 700 tn„ Jörundur III RE
2100, Einar Hálfdáns IS 1000,
Loftur Baldvinsson EA 900, Guð-
björg OF 550, Sigfirðingur Sl
1300, Fagriklettur GK 600, Hall-
dór Jónsson SH 1100, Ólafur Frið-
bertsson ÍS 1100, Ögri GK 900,
Árni Geir KE 600, Guðbjartur
Kristján IS 268 850, Arnarnes GK
400 mál, Anna Sl 600 tn„ Guð-
björg GK 1000 mál, Vigri GK 1200
tn„ Sigfús Bergmann GK 1600,
Baldur EA 500, Valafell SH 750,
Jón Jónsson SH 700, Helga Björg
HU 350, Sæþór OF 1100, Áskell
ÞH 600, Hugrún ÍS 1000.
2
T ( M I N N, mlðvikudaginn 5. ágúst 1964