Tíminn - 05.08.1964, Side 15
ICOMCÍEMG: JÞÆN&I&
AETTOMOBHi MIÆJM
STAÐFESTIR
BÍL EKIÐ OLÍULAUSUM 216 KM. ÁN ÞESS AÐ
NOKKRAR SKEMMDIR KÆMU FRAM VEGNA
ÞESS AÐ NOTAÐ VAR fr
(„Det totale antal km, vognen saledes havde
gennemkdrt unden motorolie var 216 km“.)
Löggilt þýðing á skýrslu þessari fæst á öllum benzín-
stöðvum og bílavarahlutabúðunum og hjá umboðun-
um. (
MOLYKpTí; & k a st<;W«
foidal disjxjfiiorj af molyfodoi»»m
sufíids id.ó ftÍQh qoolify oiL Wheo osd
« cmókí«y« o» additive, j» wiil np;
s.C'ttlt; ot ftmoved by )>nopeiJy
loiofc-d owiomotivc-typc fjrtój-s.
ölKfcCTlONS FOR USE
ThU ft-ounco can iythe <o>»&ci amaud
<o Inainl tho avofogc 5-ijumt cronUcaiö
Uso in thö some prapartion for o*h«
yií« engínoi. ...... r • . . ...
Romovo inner oaal tmd poor cotrttc
acoOMni ín»o o-attkcnso.
for moxímum aRaclivenass. uc» o
fivury.oíf thonjc.
t AlPKA-MOtYKOTE CÖRPORATIíj
Hti'Wrti Áyó., Siocrtfo^ Caon ■'Rvct-otth C:
ibis ivSítsoÍA <&.<. ‘ lúíSííSii. fsisíí - '^otrt.íc
Söluumboð AKUR hf.
Reykjavík.
KÍSILL hf.
Lækjargötu 6B, sími 15960.
MOLYKOTE „A“ Er þýzkt einkaleyfi (nr. 1,025,085) sem allir framleiðendur
„Moly Efna“ reyna að líkja eftir.
MOLYKOTE „A“ inniheldur minni olíu og meira molybdenum sulfide (MoS2)
en aðrir.
MOLYKOTE .,A“ Má nota á alla bíla (benzín og Diesel), með háþrýstimótor
ÁSAMT bílum með vökva undirlyftum.
MOLYKOTE „A“ Stíflar ekki olíusigti og samlagast öllum olíum.
MOLYKOTE „A“ Dregur úr hitamyndun vegna núnings og kemur í veg fyrir
„karboniseringu".
MOLYKOTE „A“ ásamt 60 öðrum tegundum af olíu og feiti er notað hjá
öllum stærstu vélaframleiðendum í heimi.
MOLYKOTE „A“ og „G“ fæst hjá öllum benzínstöðvum á landinu og bíla-
varahlutabúðum. >
mm
HELLTU BRENNIVÍNI
Framhald af 1. stðu.
Óskar Ólason varðstjóri að
við það hefði sljákkað mikið í
mönnum almennt í Þórsmörk,
og vinir þeirra sem eftir voru
þar inn frá og voru mikið
drukknir hefðu dregið þá út úr
aðalmannsöfnuðinum og úr
vegi lögreglunnar til þess að
þeir yrðu ekki sendir á brott.
Mennirnir 17 voru sendir með
áætlunarbíl til Reykjavíkur og
með þeim tveir lögreglumenn.
Kom til töluverðra átaka á leið
inni, en lögreglumönnunum
tókst þó að ná yfirhöndinni í
þeim leik áður en yfir lauk.
Um 100 manns þurftu að leita
læknis í Þórsmörk og hafði
það fólk meitt sig á ýmsan
hátt. Yfirleitt vildi það brenna
við, að fólk væri illa búið í
Mörkinni og alls ekki til göngu
ferða en þrátt fyrir það reyndi
það að fara í slíkar ferðir og
árangurinn varð alls kyns
meiðsli.
Óskar sagði, að skátar úr
Reykjavík og Hafnarfirði hefðu
veitt mikla hjálp, og hefðu
þeir jafnvel orðið að tjalda
fyrir sumt af unglingunum, er
ekki kunnu neitt til þess kon-
ar. Sagði hann, að það alvar-
legast í þessu máli væri, að
þeir sem flyttu fólkið inn eftir
bæru ekki næga ábyrgð, á því,
þegar þangað væri komið.
Hann minntist þó á Litla ferða
klúbbinn, sem þarna var, og
að hann hefði borið af í öllu,
og hefði, ekki þurft að hafa
nokkur afskipti af klúbbnum
eða þeim, sem með honum
voru.
í Húsafcllsskógi var utisam
koma á vegum Bindindissam-
takanna og fór hún mjög vel
fram. Þarna voru miklar tjald
búðir og engin ólæti. í Bjark
arlundi var á annað þúsund
manns, og þurfti lögreglan ekki
að flytja fólk þaðan né hafa
afskipti af nokkrum manni. Þar
var dansað til kl. 2 eftir mið-
nætti en um 4 var allt orðið
kyrrt og menn komnir í tjöld
sín.
í Vaglaskógi var verzlunar-
mannahelgin friðsælli en verið
hefur síðustu árin, og eru
menn bæði glaðir og undrandi
yfir þessari breytingu, sem
þar hefur orðið á. Fimm aðilar
tóku að sér að sjá um hátíðina
í skóginum, Héraðssamband
Þingeyinga, Ungmennasamband
Eyjafjarðar, Templarar á Ak-
ureyri, Æskulýðsráðið og
íþróttabandalagið á Akureyri.
í Vaglaskógi voru um 3000
manns og meiri hluti þessa
fólks dvaldist í skóginum 2
daga og sumir þrjá. Nú brá
svo við, að fjölskyldur frá
Akureyri komu með börn sín,
en til þessa hafa foreldrar
ekki þorað að koma í Vagla-
skóg um verzlunarmannahelg
ina til þess að tjalda þar og
vera með börnum sínum vegna
óspekta og skrílsláta.
Fréttaritari blaðsins á Akur-
eyri sagði í kvöld, að aug-
ljóst væri, að yfirgnæfandi
meirihluti fólks vildi halda
sómasamlegar samkomur og
hefði það nú tekizt í Vagla-
skógi í ár með aðstoð þeirra 5
aðila, sem tóku að sér að
stjórna vínlausri fjöldasam-
komu.
9 BJARGAÐ
Framhald af I s(5u.
izt af þeim 14, sem lokuðust inni,
þegar náma.n hrundi saman á
mánudagi£p fyrir rúmri viku.
Talið er ólfldegt, að þeir séu enn á
lífi, en fyrir fáeinum dögum
heyrðust högg, sem talið er, að
hafi getað komið frá einhverjum
þeirra, er síðustu tvo sólarhring-
ana hefur þó ekkert lífsmark
heyrzt frá þeim.
Björgunarstarfið víð námuna
hófst strax daginn eftir að hún
hrundi saman, en verkið gekk afar
hægt vegna hættu á hruni, ef
sprengt yrði. Borunin niður í
ganginn, sem mennirnir níu voru
í, tók því marga daga, og björg-
unarstarfið kostaði líf eins manns,
sem fékk þungt járnstykki í höf-
uðið, er hann vánn að björgun-
inni.
SÍLDARAFLINN
Framhald af 1. síSu.
ber að geta, að í þeirri skýrslu
eru aftur á móti einnig þeir bát-
ar, sem stunda síldveiðar hér
sunnan lands. Síldarskýrsla LÍÚ
mun birtast í fimmtudagsblaðinu
og þá í heild.
í kvöld náðum við tali af Magn
úsi skipstjóra á Jörundi III. sem
er aflahæsta skipið á vertíðinni.
Magnús sagðist vera kominn með
25.300—25.400 mál og tunnur, og
væri nú leið til Raufarhafnar með
2100 tunnur, sem hann hefði feng-
ið 24 tíma siglingu undan landi.
Hann var búinn að vera á siglingu
í 17 tíma og átti enn eftir 7, þegar
við töluðum við hann. Hann sagði,
að skipin hefðu verið í tölu-
verðri síld um 120—140 mílur
undan landi í dag, og hefði síldin
vaðið, og veiði verið talsverð.
Skipin, sem komin eru með
20 þúsund mál og þar yfir eru
auk Jörundar III, Jón Kjartans
son með 24.200 mál og tunnur,
Snæfell 23.600, Sigurpáll 21.400,
Sigurður Bjarnason 20.900 og
Helga 20.100.
VÍÐAVANGUR —
Framhald al bls 3
Mbl. á sunnudaginn. Víst er
það gott umræðuefn'i, og sú
fegurð verður ekki oflofuð. En
þetta minnir á vísu Steins
Steinars, þegar honum þótti
svartwættið á Suðurnesjum
helzti m'ikið, þá minnti hann á,
að vor væri í Breiðafirði. En
þótt íhaldið reyni að víkja sér
undan umræðum um ábyrgð
viðreisnarmanna á skattpín-
ingunni með því að tala um
fegurðina við- Breiðafjöað, geta
skattborgararnir því miður ekki
greitt útsvarið sitt og skattana
með sama hætti.
HAFIÐ ÞIÐ?
Framhatd af 16. siðu.
við hlið kennarans. — Hafið
þið enga hunda?
— Hundar eru bannaðir hér
í borginni. Átt þú hund?
— Já, já, og hún á líka hund,
— við eigum allar hunda, seg-
ir hún. — Þeir eru dásamlegir.
— En þið hafið ponys?
— Já, já, mikið af þeim.
— Ég elska hesta — segir
hún með breiðu brosi.
— Áttu hest?
— Nei, hann er svo dýr. En
kannski get ég keypt lítinn
pony seinna.
Fyrsti langferðabíllinn ók
rétt í þessu niður að bryggj-
unni og hreyfing komst á
mannskapinn, því að margt var
að sjá og tíminn naumur.
— Hvenær farið þið af landi
burt?
— Við förum strax í nótt, —
segir Myles. — Reykjavík er
fyrsti viðkomustaður okkar í
þessari ferð, og héðan förum
við til Ándalsnes í Noregi. Við
tnunum sigla inn suma norsku
firðina, þeir .eru sagðir stór-
fenglegij. Og síðan förum við
beinttstu leið til baka til Dun-
dee — og í sólskinið — segir
Myles brosandi og kveður okk-
ur, því að bílarnir koma hver
af öðrum og hann verður að
sjá um, að allir krakkarnir
hans komist á sinn stað heilir
á húfi.
FORSETINN
(Framhald al 2. síðu)
arvonirnar. Það er forn hugsjón
„að hverr maður verði síns rétt-
ar og laga njótandi". Um stjórn-
skipulag í aðaldráttum byggir ís-
lenzk þjóí á bjargi sinnar eigin
sögu og beztu fyrirmyndum
skyldra þjóða.
Vér höfum margt að þakka og
getum verið ánægð með ætt og
uppruna, legu lands vors og sjávar
og landsgæði. Þjóðin hefir tekið
fljótt og vel við véltækni ’nútím-
ans, og sýnir það, eins og bók-
menntir áður, að kynstofninn er
góður. Það hefir sýnt sig að það
þarf ekki ófrið erlendis til ár-
gæzku, afkasta og velgengni. í dag
eru 50 ár liðin frá því hin fyrri
heimsstyrjöld hófst með hersögn
Þjóðverja í garð Rússa. Vér höfum
verið ósnortnari en aðrar vestræn-
ar þjóðir af hörmungum tveggja
heimsstyrjalda. En eins og styrj-
aldartækni er nú komið, er engin
vernd lengur í fjarlægðum. Vér
skulum þó ekki sýta um þá hluti,
sem vér ráðum ekki við, heldur
halda ótrauðir áfram uppbygging
lands vors og þjóðfélags. En að-
gæzlu þarf um skipti við aðrar
þjóðir, vanda vorn málstað og
drengilega aðferð.
Það, sem mestu varðar er sam-
hugur þjóðarinnar. Flokkar liggja
að vísu andfætis, en þó í sama
bóli. Áróður má aldrei ganga svo
langt að skyggi á þjóðareining á
úrslitastundum. Sem þjóð búum
vér öll við ein og sömu örlög.
Óskir þjóðskáldsins, sem síðar
varð fyrstur íslenzkur ráðherra, á
morgni þessarar aldar hafa allar
rætzt eða komizt nokkuð áleiðis,
og ég lýk máli mínu með þessari
brýningu, sem enn er í gildi.
„Starfið er margt, en eitt er
bræðrabandið, boðorðið, hvar sem
þér í fylking standið, hvernig sem
stríðið þá og þá er blandið, það
er: að elska, byggja og treysta á
landið.“
FLUGÖRYGGIÐ
Framhald al 16. siðu.
truflanir tíðar. Nú gætu flug-
umferðarstjórar og flugstjórar tal
azt við án nokkurra milliliða hér
yfir íslandi, og jafnvel hægt að
hafa samband við þotur um 350
km. suður í hafi.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim er glöddu mig á 60 ára
afmælinu hinn 30. júlí með heimsóknum, gjöfum og
hlýjum kveðjum. Einnig fyrír alúðlegar viðtökur í nýaf-
3töðnu ferðalagi. — Guð blessi ykkur öll.
Helga Tryggvadóttir,
Þverlæk, Rang.
Móðir okkar tengdamóðir og amma.
Þorsteina Árnadóttir
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. þ. m. ki.
10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað.
Auður Kjartansdóttir Egilsson, Gunnar Egilsson,
Árni Kjartansson, Hulda Filipusdóttir,
Gyða Kjartansdóttir, Júlíus Baldvinsson,
Sigríður Kjartansdóttir, Tryggvi Benediktsson,
og barnabörn.
Eiglnkona mín,
Guðný Þorleifsdóttir
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 2. ágúst. — Fyrir mína hönd og
annarra vandamanna.
Jón Þorsteinsson
Hamri.
Við þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vin-
semd við andlát og jarðarför
Gísla Jóhannssonar,
Kleppsvegi 46.
Eiginkona, börn, foreldrar, systkini
og tengdaforeldrar.
T í M I N N, miðvikudaginn 5. ágúst 1964 —
15