Tíminn - 24.11.1964, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUÐAGUR 24. nóvember 1964
7
TÍMINN
ÚTBOÐ
Fjármálaráðherra hefur ákvcðið að nota heimild í lögum frá
20. þ. m. til þess að bjóða út 50 milljón króna innlent lán
ríkissjóðs með eftirfarandi skilmálum:
SKILMÁLAR
1. GREI N
Hlutdeildarbréf lánsins eru nefnd spariskírteini, og eru þau
öll gefin út til handhafa. Þau eru í þremur stærðum, 500, 2.000
og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröð eins og segir í
aðalskuldabréfi.
2. GREI N
Skírteinin eru lengsttil'10 ára, en frá 10. janúar 1968 erhand-
hafa í sjálfsvald sett, hvenær hann færskírteini innleyst. Vextir
greiðast eftir á og í einu lagi við innlausn. Fyrstu 5 árin nema
þeir 6% á ári, en fara síðan hækkandi, eftir því sem handhafi
dregur innlausn, og verða tæplega 9,2% á ári síðasta ár láns-
tímans. Innlausnarverð skírteinis tvöfaldast á 10 árum og
verður sem hér segir að meðtöldum vöxtum og vaxtavöxtum:
Skírteini 500 kr. 2.000 kr. 10.000 kr.
Eftir 3 ár 596 2.384 11.920
— 4 ár 631 2.524 12.620
— 5 ár 669 2.676 13.380
•— 6 ár 719 2.876 14.380
-— 7 ár 777 3.108 15.540
— 8 ár | 843 3.372 16.860
— 9 ár 916 3.664 18.320
— 10 ár 1.000 4.000 20.000
Við þetta bætast verðbætur samkvæmt 3. gr.
3. G R E I N
Við innlausn skírteins greiðir ríkissjóður verðbót á höfuðstól,
vexti og vaxtavexti í hlutfalli við þá hækkun, sem kann að
hafa orðið á vísitölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skír-
teinis til gjalddaga þess (sbr. 4. gr.). Hagstofa íslands reiknar
vísitölu byggingarkostnaðar, og eru núgildandi lög um hana nr.
25 frá 24. apríl 1957. Spariskírteinin skulu innleyst á nafn-
verði auk vaxta, þótt vísitala byggingarkostnaðar lækki á
tímabilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. Skírteini verða ekki
innleyst að hluta.
Spariskírteinin verða til sölu i öllum bönkum, bankaútibúum,
stærri sparisjóðum og hjá nokkrum verðbréfasölum í Reykja-
vík. Geta væntanlegir kaupendur keypt skirteini gegn bráSa-
birgSakvittun frá og meS mánudeginum 23. nóvember n.k.,
en skírteinin YerSa tilbúin til afhendingar í Reykjavík frá og
meS T. desember n.k. Afhending þeirra utan Reykjavíkur hefst
nokkrum dögum seinna eftir því sem samgöngur leyfa.
4. GREIN
Fastir gjalddagar skírteina eru 10. janúar ár hvert, í fyrsta
sinn 10. janúar 1968. Innlausnarfjárhæð skírteinis, sem er
höfuðstóll, vextir og vaxtavextir auk verðbótar, skal auglýst í
nóvember ár hvert í Lögbirtingablaði, útvarpi og dagblöðum,
í fýráta sinn fVrif nóýemberlok 1967. Gildir hin auglýsta inn-
lausnarfjárhæð óbreytt frá og með 10. janúar þar á eftir allt
árið fram að næsta gjalddaga fyrir öll skírteini, sem innleyst
eru á tímabilinu.
5. GREI N
Nú rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðslu
verðbótar á höfuðstól og vexti, og skal þá málinu vísað til
nefndar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðlabanki
íslands tilnefnir einn nefndarmann, Hæstiréttur annan, en
hagstofustjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fell-
ir fullnaðarúrskurð í ágreiningsmálum, sem hún fær til með-
ferðar. Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu bygging-
arkostnaðar, skal nefnd þessi koma saman og ákveða, hvernig
vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli
tengdar eldri vísitölum. Skulu slíkar ákvarðanir nefndarinnar
vera fullnaðarúrskurðir.
6. GREI N
Skírteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst
á sama hátt og sparifé, samkvæmt heimild í 3. gr. nefndra
laga um lántöku þessa.
7. G R E I N \
Innlausn spariskírteina fer fram í Seðlabanka íslánds. Eftir
lokagjalddaga greiðast ekki vextir af skírteinum, og engin
verðbót er greidd vegna hækkunar vísitölu byggingarkostn-
aðar eftir 10. janúar 1975.
3. GREI N
Allar kröfur samkvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekkl
lýst hjá Seðlabanka íslands innan 10 ára, talið frá 10. janúar
1975.
9. GREIN \
/^ðalskuldabréf lánsins er geymt hjá Seðlabanka íslands.
_,. nóvember 1964
SEÐLABANKI ÍSLANDS