Tíminn - 01.12.1964, Síða 12
r
Stjórn itnattspyrnusambands Islands
Stjórn KSÍ. — Fremri röð frá vinstrl: Sveinn Zoega, Biörgvin Schram, Guðmundur Sveinbjörnsson, Aftari röð:
l'ngvar N. Páisson, Jón Magnússon, Axel Einarsson og Ragnar Lárusson. (Ljósm.: Tíminn GE).
Björgvin Schram endur-
kjörinn formaður K.S.ð.
Frá ársþingi knattspyrnusambandsins, sem háð var s!. heigi.
Alf-Reykjavík, 30. nóvember.
Ársþing KSÍ var haldið um helg
ina. Mörg merkileg mál voru rædd
á þinginu, m. a. var milliþinga-
nefnd falið að annast athugun á
launagreiðslum til knattspyrnu-
manna vegna vinnutaps — og einn-
ig hvort tímabært væri að fjölga
liðunum í 1. deild. Reikningar
stjórnarinnar fyrir síðasta starfs-
ár báru með sér, að fjárhagur
sambandsins er góður og hefur
aldrei verið betri fyrr. Stjórnin
var endurkjörin og hefur Björgvin
Schram nú verið formaður sam-
bandsins í 10 ár.
Þingið sátu um 70 fulltrúar víðs
vegar að af landinu. Þingforseti
var kjörinn Hermann Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og
fundarritari Einar Björnsson, for-
maður KRR.
Ýmsar lagabreytingar voru
ræddar og m. a. samþykkt, að
framvegis verði leikmaður, sem
dómari vísar af velli fyrir brot,
ekki hlutgengur í kappleik í 10
daga frá og með beim degi, sem
brotið á sér stað.
Þessi lagahreyting á eflaust ræt
ur sínar að rekja til máls, sem
mikið var rætt í blöðum í sumar,
þegar Ieikmanni var vísað af velli
í lelk á Akranesi. Tilgangurinn,
sem felst í þessari breytingu, á
vissulega rétt á sér, bar sem oft
vill dragast, að menn fái dóm
fyrir alvarlegt brot. Hins vegar
virðist hér farið öfugt að hlutun-
um og dómurum sett mikið vald
í hendur, sem eflaust er hægt að
misnota. Og hvað gerist svo, ef
dómstóll kemst að þeirri niður-
stöðu, að leikmanni hafi verið vik
ið af velii án tilefnis? Eðli-
legra hefði verið, að skýrari
ákvæði hefðu verið sett um gang
mála fyrir dómstólum — hvernig
mætti hraða þeim.
Björgvin Schram gat þess á
þinginu, að íslenzka landsliðið
hefði mörg verkefni framundan.
Landsleikur við Danmörk er ákveð
inn í júlí á næsta ári — Noreg-
ur hefur leitazt eftir að fá lands-
leik 1966 — og Svíþjóð leitað hóf-
anna um landsleik 1967. Kvað
Björgvin það ánægjulega þróun,
ef viðskípti við Norðurlöndin yrðu
aukin. Þá gat hann einnig um
Norðurlandamót unglinga, sem
haldið verður í Svíþjóð í júlí á
næsta ári, en ísland er þátttak-
andi í því móti og er þegar farið
að undirbúa þá þátttöku.
Talsverðar umræður voru á þing
inu um margvísleg málefni. Alfreð
Alfreðsson frá Njarðvíkum kom
fram með athyglisverða uppá-
stungu um stofnun æfingabúða
KSÍ. Var samþykkt sú tillaga hans
að fela stjórn KSÍ athugun á mál-
inu. — Frá stjórn KSÍ kom m. a.
fram tillaga um stofnun kjördæma
ráðs og var sú tillaga samþykkt.
Áður hefur verið getið um þær
tillögur stjórnar KSÍ, sem miða
að því, að knattspyrnumönnum,
Ársþing F.R.Í.
Arsþing FRÍ var háð í Reykiavík á laugardag og sunnudag. Skvrsla
stjórnar bar vott um mikið starf á síðasta starfsári, háð var lands-
keppni við V-Noreg og tugþrautarkeppni við Noreg ov Svíþjóð Verk-
efnin innanlands voru mörg og margvísleg og eru frjálsar íþrottir
greinilega á uppleið að nýju.
Stjórn FRÍ var öll endurkjörin.
Formaður Ingi Þorsteinsson og
aðrir í stjórn þeir Örn Siðsson,
Svavar Markússon, Jón M. Guð-
mundsson, Björn Vilmundaison,
Höskuldur Goði Karlsson <>g Þor-
björn Pétúrsson.
Vegna rúmleysis í blaðinu . aag
verður nánari frásögn af þinginu
að bíða betri tíma.
sem þátt taka í landsliðsæfingum
og landsleikjum, verði greitt
vinnutap — og einnig, hvort tíma-
bært sé að fjölga liðum í 1. deild.
Báðum þessum málum var vísað
til milliþinganefndar.
Þingið, sem haldið var í húsi
Slysavarnafélagsins og hófst á
laugardag, lauk á sunnudag.
Stjórnin var öll endurkjörin —
og má geta þess, að Björgvin
Schram hefur nú verið formaður
sambandsins i 10 ár. Var hann
í því tilefni hylltur af þingheimi,
sem þakkaði honum frábær störf.
í stjórninni eiga sæti Guðmund-
ur Sveinbjörnsson, Ragnar Lárus-
son, Jón Magnússon, Axel Einars-
son, Ingvar N. Pálsson og Sveinn
Zoega.
Aðalfundur
Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar
Ármanns verður haldinn í kvöld í
félagsheimilinu við Sigtún. Hefst
fundurínn stundvislega klukkan
20,30.
Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna. (Stjórnin).
Körfubolti
Körfuknattleiksleikir þeir, sem
fara áttu fram að Hálogalandi í
dag, verða háðir í KR-heimili og
hefst fyrsti leikur kl. 1,30.
Hverfiseötu 16
Siml 21355
ÞRIÐJUDAGUR 1. desember 1964
Hefði húsið brunnið
hvað þá-----------------------------------------?
g Alf-Reykjavík.
Eldur kviknaði í íþróttahúsinu að Hálogalandi í gærmorgun,
en skemmdir urðu litlar og tókst fljótlega að slökkva hann.
íþróttastarfsemi í húsinu fellur niður í nokkra daga á meðan
viðgerð stendur og eftir upplýsingum frá Gunnari Guðmanns-
syni, umsjónarmanni hússins, mun Iíklega hægt að taka húsið
í notkun aftur um helgina næstu, þannig að engin röskun
verður á mótum.
Eldsins varð vart snemma í gærmorgun og var hann laus
í kyndiklefa hússins. Slökkviliðsmönnum tókst fljótlega að
ráða niðurlögum eldsins, en urðu áður að rjúfa þak hússins.
Skemmdir urðu eingöngu í kyndiklefanum, sem er aðskilinn
frá salnum. Lítilsháttar skemmdir urðu á sjálfu kynditækinu
og rafmagnsleiðslum.
Það er mikið lán fyrir íþróttastarfsemina, að ekki skyldi
fara verr en raun varð á. Hálogalandssalurinn er eina „íþrótta-
mannvirkið“, sem býður upp á áhorfendasvæði vegna inni-
íþrótta. Þetta atvik ætti að ýta undir það, að mannvirkja-
gerðum í Laugard-al verði hraðað. Margir eru orðnir langeygð-
ir eftir íþróttahöllinni og verður vart unað við loforðin ein
til lengdar. Hvar værum við stödd, ef Hálogalandssalurinn
hefði brunnið?
------ -
Blackpool—Nottm. Forest 0-2
Chelsea—West Ham 0-3
Leeds Utd,—W.B.A. 1-0
Leicester—Birmingham 4-4
Liverpool—Tottenham 1-1
Sheff. Wed.—Stoke City 1-1
Sunderland—Everton 4-0
Wolves—Sheff. Utd. 1-0
Bilið milli efstu liðanna í 1. Þetta er þriðji leikurinn, sem
deild lengdist á Iaugardaginn. Chelsea tapar á heimavelli, en
Um 60 þús. áhorfendur sáu hefur hins vegar engum tapað á
Manch. Utd. sigra Arsenal í
Lundúnum 3-2 í skemmtilegum
Ieik, sem er 15. leikurinn í röð
sem Manch.-liðið leikur án
taps. Dennis Law sýndi af-
burðaleik I fyrri hálfleik og
skoraði þá tvö mörk af mörkun-
um, en Conolly hið þriðja.
Anderson skoraði fyrir Arsen-
al. í síðari hálfleik sótti Lund-
únaliðið mjög, en tókst aðeins
að skora einu sinni og var
Eastham þar að verki. Manch.
Utd. hefur nú 32 stig, þremur
meira en Chelsea, sem tapaði á
heimavelli sínum í Lundúnum
fyrir nágrannaliðinu West Ham
og hinir ungu leikmenn Chel-
sea fengu þar vissulega
kennslustund í knattspyrnu.
West Ham hefur staðið sig
mjög vel að undanförnu — og
getur eitt liða státað af sigri
gegn öllum efstu Iiðunum. Þá
var athyglisvert á laugardag-
inn að öll neðstu liðin unnu og
Úlfarnir hafa hlotið sjö stig af
átta mögulegúm síðan Andy
Beattie tók við liðinu. Úrslit í
1. deild:
Arsenal—Manch. Utd. 2-3
Aston Villa—Burnley 1-0
Blackburn—Fulham 2-0
Úrslit nálgast
í Rvíkurmótinu
utivelli. West Ham sýndi stór-
kostlegan leik í fyrri hálfleik
og skoraði þá þrjú mörk, en
mörkin urðu hins vegar ekki
fleiri í leiknum, þrátt fyrir, að
Chelsea missti hinn 18 ára
Hollins af leikvelli meiddan í
seinni hálfleik. Úrslit í 2. deild:
Charlton—Pjymouth 3-2
Crystal Pal—Cardiff 0-0 j
Derby—Northampton 2-2 '
Leyton Or.—Ipswich 0-0
Manch. Cíty—Bolton 2-4
Norwich—Coventry 1-0
Portsmouth—Middlesbro 2-1
Rotherham—Huddersfield 2-3
Swansea—Southampton 3-3
Swindon—Newcastle 1-6
Á Skotlandi urðu úrslit með-
al annars þessi:
Clyde—Kilmarnock 1-2
Falkirk—Rangers 0-5
Hibernian—Dundee 2-2
St. Johnstone—Hearts 0-3
St. Mirren—Dunfemrline 1-4
Th. Lanark—Celtic 0-3
Þórólfur Beck hefur enn ekki
leikið með aðalliði Rangers —
enda hefur liðið ekki tapað
leik — eitt jafntefli, f jórir sigr-
ar — síðan hann byrjaði hjá
því, og Bretar breyta ekki sig-
urliði.
Reykjavíkurmótið i handknatt-
leik hélt áfram um helgina og
fóru þá fram þrír leikir i meistara
flokki karla og einn leikur i mfl.
kvenna. Mótinu fer nú senn að
Ijúka og eru allar líkur fyrir því,
að KR verði sigurvegari í meistara
i flokki karla, en KR hefur unnið
alla sína leiki og á aðeins einum
1 ólokið, gegn Þrótti, sem teflir
ekki fram sérlega sterku liði þessa
dagana. í meistaraflokki kvenna
bítast Valur og Ármann um efsta
sætið.
Úrslit um helgina:
Meistaraflokkur kvenna:
Fram — Víkingur 7:7
Meistaraflokkur karla:
Ármann — ÍR 19:17.
Fram — Víkingur 13:6.
Valur — Þróttur 14:10.