Tíminn - 01.12.1964, Blaðsíða 16
■MMi
Þriðjudagur 1. desember 1964
245. tbl. 48. árg.
Neonlýst klukka
í kirkjuturninum
V y
'2*.
1
ú.'>áí!ii.iuiii:iiiiiiBuiiMlnt •••••
1(1)4,.
■ !l ! I Mll'm,
EJ-Reykjavík, 30. nóv.
Fyrir nokkru veittu menn því
athygli, að upplýst klukka var
kominn í turn- Hafnarfiarðarkirkju.
Er klukka þessi þýzk að gerð,
framleidd af Thilipp Hörz í Ulm
í Bæheimi. Kostaði hún komin til
landsins 120.000 krónur.
Blaðið hafði í dag samband við
Ásgeir Long, sem sá um uppsetn-
ingu klukkunnar. Sagði hann
klukku þessa mjög góða og ná-
kvæma, væri hún búin að ganga
hér á landi í um tvo mánuði án
þess að henni skeikaði.
— Hvernig gengur þessi
klukka, Ásgeir?
— Hún gengur fyrir rafmagni.
Er hún raunverulega tvíþætt.
Niðri í kirkjunni er aðalklukkan,
sem síðan stjórnar vísunum uppi
í tuminum, en þar eru fjórar skíf
ur, ein á hverri hlið turnsins, og
sú stærst, sem er framan á turn-
inum. Klukkan getur þó gengið
í 12 klukkustundir án rafmagns.
Um leið og rafmagnið fer af, tek
ur lóðadráttur við sjálfkrafa.
Klukkan gengur því, en vísirarnir
uppi standa kyrrír. Síðan, þegar
rafmagnið kemur aftur, þá vinna
vísirarnir upp „tímatapið" og still-
ir klukkan sig þannig sjálf. Þessi
klukka hefur nú gengið í tæpa
tvo mánuði alveg rétt.
— Hvað slær hún oft?
— Hún slær á fimmtán mínútna
fresti. Sem stendur er hún í sam-
bandi við tvær kirkjubjöllur, sem
voru fyrir í turninum. Slær hún
eitt högg á minni bjölluna fyrsta
kortérið, tvö högg annað kortérið
og þrjú högg þriðja kortérið, en
stundarslögin slær hún á stærri
bjölluna. Mun láta nærri að hún
slái um 500 högg á sólarhring.
— Einníg er hægt að setja hana
samband við fimm bjöllur og
láta hana síðan slá lag, t. d. á
klukkustundar fresti, þ. e. lag
með fimm tónum.
Framhald á bls. 13.
SjmtahkverB oglLaxness-
bækur aðrar koma út í dag
GB—Reykjavík, 30. nóvember.
Riagnar í Smára bauð frétta -
mönnum að hitta Halldór Lax-
ness að máli í dag í tilefni þess
að Helgafell gefur út samtímis
þrjár bækur skáldsins, sem
koma í bókabúðir á morgun.
1. desember. Fyrst og fremst
er það ein ný af nálinni, smá-
sagnasafnið „Sjöstafakverið“.
og nýjar útgáfur af rítgerða-
safninu „Reisubókairkorn" og
fyrstu skáldsögu Halldórs,
,Barni núttúrunnar“, sem út
kom veturinn 1918-19, þegar
Halldór var 17 ára ganiall.
Um fyrstu bók sína segir
Halldór: „Nú þegar ég hef látið
til leiðast að renna augum yfir
bókina í fyrsta sinn síðan ég
sendi hana frá mér sextán
vetra gamall, þá uppgötva ég
að þetta muni vera bezta bók
mín, og liggja til þess þær
orsakir að hún geymir óm
bernskunnar. Þetta er kveðja
mín til bernskudaganna. Eg
gekk enn á stuttbuxum ann-
an dintinn meðan ég samdi
þessa bók og hafði einkenni-
legan kraga um hálsinn og stór
furðulegt hálsbindi eftir smekk
bráðþroska drengs, sem hefur
orðið hugfanginn af andlits-
myndum mestu snillinga aldar
innar sem leið í mannkynsög-
unni og alfræðibókinni. Á titil
blaði bókar. stendur að Barn
náttúrunnar sé „ástarsaga."
Þetta hlýtur að vera einhver
misskilningur. Má vera að það
sé eitthvert strákapar í auglýs
ingamennsku til að laða fólk
að bókinni — eins og þegar
Halldór frá Laxnesi
„meS einkennllegan kraga
stórfurSulegt bindi/1
og
Eiríkur rauði skírði jökulinn
Grænland. Það verður með
engu móti ráðið af bókinni, að
höfundurinn hafi verið kyn-
þroska þegar hann samdi hana.
Þó ekki væri nema vegna þess
arar brellu stendur þessi skáld
saga ein sér.“ Söguna byrjaði
Halldór að skrifa sumarið 1918
og lauk við hana í upplestrar
fríi Menntaskólans um jólin.
Nokkru síðar fór hann til út-
landa og kvaðst aldrei hafa séð
próförk af henni, „þá var um
að gera að skrifa sem flest
orð á mínútu“ sagði Halldór.
Um „Sjöstafakverið'1 sagði
Halldór: „Eg hef gengið með
þær allar í höfðinu í langan
tíma. en það tók stuttan tíma
að skrifa þær, og það er ekki
nema hálfur mánuður síðan ég
sendi þá síðustu í prentsmiðj
una. Eg geng með efni í fleiri
smásögur. hvort þær verða
nokkurn tíma skrifaðar. Smá
saga þarf lengi að vera að skap
ast, hún er óhemju tímafrek og
vandasöm. Það þarf að strika
svo margt út, sem þar á ekki
að vera.
Eg gerði Ragnari tilboð um
nokkur nöfn á bókina, t.d. „Sjö
Framhald á bls. 13
Ný símaskrá í vor
MB-Reykjavík, 30. nóvember.
Ný símaskrá kemur út á næsta
vori og er undirbúningur tvrir út
komu hennar þegar í fullum gangi.
Þeir, sem vilja gera breytingar
við númer sín í þessari nýiu
símaskrá, þurfa að bregða fljótt
við, því frestur til þess rennur út
10. desember.
Hafsteinn Þorsteinsson, fulltrúi
hjá Bæjarsímanum, sagði blaðinu
í dag, að hin nýja símaskrá myndi
koma út næsta vor, sennilega í
maí eða júni. Hún verður fyrir
allt landið og verða í henni ný
númer sjálfvirkra stöðva sem
tengjast Reykjavík og öðrum sjálf
virkum stöðvum í beinu sambandi
við hana á næstunni, svo sem Ak-
ureyrar, Dalvíkur, Húsavíkur og
e t. v. Siglufjarðar. Skráin vetður
með svipuðu sniði og undanfarið,
þó verða i henni tvenn nýmæli. í
fyrsta lagi geta varahlutaverzlan-
ir fengið nöfn sín prentuð sér-
staklega í henni og í öðru lagi verð
ur sérstök skrá yfir umboðsmenn
erlendra fyrirtækja i stafrófsröð
fyrirtækjanna. Eftir þessu befur
verið óskað, endn ekki allir, sem
vita, hverjir eru með umboð fvrir
hverja vörutegund, en nú geta
þeir sem sagt flett upp á r.afni
hins erlenda fyrirtækis og fundið
] þar nafn og símanúmer umboðs-
mannsins.
Þeir, sem vilja láta breyta at-
vinnuheiti, þurfa að láta vita fyrir
tíunda desembfcr. Hafi bæjat-sím-
inn flutt síma viðkomandi frá út
komu síðustu símaskrár, á sú bieyt
ing að koma sjálfkrafa inn í
skrána við nafn viðkomandi, en
hins vegar þurfa fyrirtæki, sem
Framhald á bls. 13.
ÞRÍR FLUTTIR
í SJÚKRAHÚS
HS-Akureyri, 30. nóvember.
Slys varð hér á Akureyri seint
í gærkvöld, er fólksbíl var ekið á
húströppur og voru bílstjórinn og
þrír farþegar fluttir á sjukrahús
og eru þar enn í kvöid. Slys
þetta varð laust fyrir klukkan fcálf
tólf í gærkvöldi. Bifreiðin A141
var á leið norður Hafnarstræti.
Skamimt fyrir sunnan húsið numer
92 ætlaði bílstjórinn að axa fiam
úr öðrum bíl, en missti við það
stjóm á bíl sínum. Lenti hann
fyrst upp á gangstétt austan við
götuna og rakst síðan á tröppur
við SV-hom hússins- Hálka var
talsverð, er þetta gerðist. I bílnum
Framhald á bls. 13.
SKYNDIHAPPDRÆTTIÐ
Þrátt fyrir glæsilega vinn-
inga sem eru Opel Rekord bif-
reið, fjórar Levin frystikislur.
fjórar Singer saumavé'ar og
fjórar Smith Corona ratmagns-
ritvélar, kostar miðinn aðeins
50 krónur. Það er því s.iálfsagt
fyrir alla að kaupa miða í þessu
ágæta happdrætti — Hægt er
að panta þá í síma 15564 og
kaupa þá úr bílnum, sem ei til
sýnis í Austurstræti 1.
Þeir, sem fengið hafa ir.iða
senda heim, eru beðnir að
gera skil fyrir þá sem ailra
fyrst á skrifstofu Framsóknar-
fl. Tjarnargötu 26
Stuðningsmenn um land allt
eru beðnir að vinna vel og
rösklega fyrir happdrættið og
tryggja með þvi góðan arar.gur
Munið að dregið verður 23.
des. n. k.
FÆREYINGAR RÆDA
HANDRITAMÁLIÐ
16. síðan — Comet
Aðils-Khöfn, 30. nóv.
Hand'ritamálið er nú að komast
á dagskrá í Færeyjum. Þar benda
menn á, að í Flateyjarbók sé
margt, sem hefur sérstaka sagn-
fræðilega þýðingu fyrir Færeyjar.
Með tilliti til þess, sem komið hef-
ur fram um afhendinguna hjá
Norðmönnum, finnst mörgum
Færeyingum mjög óæskilegt, að
teknar verði allt of skjótar ákvarð
anir um framtíð handritanna.
Ákvarðanir um afhendinguna
verða að byggjast á vísindalegum
rökum, og það er einmitt um þau,
sem mönnum kemur ekki saman
um í Danmörku, segir fréttaritari
Politikens í Færeyjum. Færeyska
blaðið „Tingakrossur“ skrifar í
dag, að Færeyingar séu líka ein
grein hins norræna stofns, og tíl
þess verði menn að taka tillit.
Blaðið álítur, að undir öllum
kringumstæðum verði að minnsta
kosti að tryggja færeyskum vís-
indamönnum ljósprentanir af
þeim handritum, sem hafa sér-
staka þýðingu fyrir rannsóknir á
elztu sögu Færeyja.
Hádegisklúbburinn
kemur saman á morgun, miðviku-
dag, í Tjarnargötu 26, a sama
tíma og venjulega.
I